Fréttablaðið - 02.07.2010, Page 34
22 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir fyrir þá vináttu og
hlýhug sem okkur hefur verið sýnd við
andlát föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Gísla Guðmundssonar
Kristnibraut 43, Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Heimahlynningar og líknardeildar Landspítalans fyrir
persónulega og hlýlega umönnun.
Þorleifur Gíslason Ásdís Jónsdóttir
Stefanía Vigdís Gísladóttir Magnús Ingimundarson
Guðmundur Gíslason Hafrún Hrönn Káradóttir
Guðrún Torfhildur Gísladóttir Magnús Atli Guðmundsson
Guðbjörg Þórey Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Vigdísar Jóhannsdóttur
Rofabæ 23, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og starfsfólki heimahjúkrun-
ar Karitas.
Jónas Aðalsteinn Helgason Sandra Þorbjörnsdóttir
Jóhann Helgi Helgason Þórunn Kristjánsdóttir
Páll Hinrik Helgason Ingibjörg Hauksdóttir
Þórir Jökull Helgason Hulda Júlía Sigurðardóttir
og ömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
Guðmundur H. Karlsson
stýrimaður, Vallengi 13,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 30. júní.
Þóra Kjartansdóttir
Karl Guðmundsson Brynja Hafsteinsdóttir
Þuríður Saga Guðmundsdóttir Guðni Ólason
Sigurbjörg Unnur Guðmundsdóttir Bjarni Þór Óskarsson
Kjartan Ísak Guðmundsson Erna Vigdís Ingólfsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur hins látna.
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
Guðmundar Georgssonar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki A6 á
Landspítala, Fossvogi.
Örbrún Halldórsdóttir
Halldór Guðmundsson Anna Vilborg Dyrset
Örbrún Guðmundsdóttir Heinrich Berger
Hrafnhildur Guðmundsdóttir Magnús Hauksson
Gunnþórunn Guðmundsdóttir Dagur Gunnarsson
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs
föður míns, tengdaföður, afa, sonar,
bróður og frænda,
Lárusar Kristins
Viðarssonar
Fróðengi 6.
Ingibjörg Jenný Lárusdóttir Guðbjörn Óli Eyjólfsson
Eyjólfur Lárus Guðbjörnsson
Hulda Jenný Marteinsdóttir Viðar Guðmundsson
Sólveig Viðarsdóttir Carl Tulinius
Guðmundur Skúli Viðarsson Ingunn Bernótusdóttir
Helga Matthildur Viðarsdóttir
og fjölskyldur.
Vinur okkar,
Kjartan Bjarnason
frá Djúpadal, Vesturvegi 15a,
Vestmannaeyjum,
lést sunnudaginn 27. júní á Heilbrigðisstofnuninni í
Vestmannaeyjum. Útförin fer fram frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn 10. júlí kl. 14.
Hildur K. Oddgeirsdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra sem auð-
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Oddgeirs Ágústs Ottesen.
Sendum starfsfólki á Hrafnistu þakklæti fyrir góða
umönnun og samferðafólki hans á Hrafnistu hlýjar
kveðjur.
Skafti Geir Ottesen Guðný Gunnþórsdóttir
Sigurbjörg Ottesen
Guðný Ásta Ottesen Sigurður Emil Ólafsson
Anna Katrín Ottesen Björn Ingi Stefánsson
Auður Ingibjörg Ottesen Páll Jökull Pétursson
Morten Geir Ottesen Kolbrún Bjarnadóttir
Sólhildur Svava Ottesen
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæru
Magnþóru Kristínar
Þórðardóttur.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heimahlynningar og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Sveinbjörn Árnason
Ingibjörg Þ. Sveinbjörnsdóttir Guðmundur B. Jóhannsson
Árni Sveinbjörnsson Marianne Sveinbjörnsson
Sveindís M . Sveinbjörnsdóttir Óskar Sigurbjörnsson
Sigrún I. Petersen Ingolf J. Petersen
Díana S. Sveinbjörnsdóttir Jón Þ. Traustason
Kolbrún Sveinbjörnsdóttir Stefán Halldórsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, sonur, tengdasonur og afi,
Jakob Kristinsson
vélvirki, Ránargötu 25, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri þriðjudaginn 29.
júní.
Jóhanna Maríanna Antonsdóttir
Ragnheiður Jakobsdóttir Rúnar Hermannsson
Lilja Jakobsdóttir Sævar Ísleifur Benjamínsson
Anna Jakobsdóttir
Kristinn Frímann Jakobsson Guðrún Sigríður
Þorsteinsdóttir
Elín Árnadóttir
Steinunn Ragnheiður Árnadóttir Anton Baldvin Finnsson,
Baldvin, Steinunn Alda, Hermann Helgi, Maríanna Vilborg
og Atli Jakob.
MOSAIK
Fjörukráin í Hafnarfirði fagnar 20 ára afmæli í sumar.
Byggingarnar sem hýsa veitingastaðinn voru reistar árið
1841 og hafa hýst ýmiss konar starfsemi en um tíma var
þar verslun og pakkhús. Árið 1985 stóð til að rífa húsið en
húsafriðunarnefnd mælti gegn því. Húsið var þá endurbyggt
og árið 1990 opnaði Jóhannes Viðar Bjarnason þar veitinga-
staðinn Fjörukrána.
„Ég var alltaf ákveðinn í því að búa til íslenskan veit-
ingastað og var búin að ganga með hugmyndina í maganum
í nokkur ár. Ég rak veitingastaði fyrir aðra um einhvern
tíma en það vildi enginn leyfa mér að prófa þetta,“ segir
Jóhannes en segja má að hann sé frumkvöðull þess að upp-
hefja víkingamenninguna.
Íslenskur matur eins og súrmeti, kjötsúpa og harðfisk-
ur hefur frá upphafi verið á matseðli Fjörukráarinnar og
eins hefur Jóhannes staðið fyrir víkingahátíðum í 16 ár.
Hann fékk þó ekki hljómgrunn fyrir víkingadagskránni
alls staðar í byrjun.
„Þegar ég kynnti þessar hugmyndir fyrir bæjarstjórum
og ráðamönnum vildi enginn taka þátt í þessu, þeir héldu að
ég ætlaði að flytja inn mörg hundruð fyllibyttur, gráar fyrir
járnum, sem ætluðu sér bara að höggva mann og annan. Það
kom auðvitað annað á daginn og menn eru komnir á aðra
skoðun í dag. Á fyrstu hátíðunum vorum við að flytja inn
um 500 víkinga til landsins en nú er orðinn til fjölmennur
hópur íslenskra víkinga. Mjög færir handverksmenn, stein-
smiðir, bogaskyttur og útskurðarmenn. Hátíðin í ár var því
að megninu til íslenskir víkingar.“
Jóhannes hefur byggt Fjörukrána upp jafnt og þétt síð-
ustu tvo áratugi og eru nú sæti fyrir um 500 manns á Fjöru-
kránni og Hótel Víking sem Jóhannes rekur einnig við hlið
veitingastaðarins. Hann gengur sjálfur í öll störf og kann
vel við sig í vinnunni. „Ég er ánægðastur þegar fólk heldur
að ég sé klósettvörðurinn, þá veit ég að ég er að vinna vinn-
una mína.“ En er hann efni í herskáan víking sjálfur?
„Nei, ef ég hefði verið uppi á víkingatímabilinu væri ég
örugglega kokkurinn en ekki í fremstu víglínu að berjast.“
heida@frettabladid.is
FJÖRUKRÁIN Í HAFNARFIRÐI: 20 ÁRA
Er sjálfur lítill
bardagamaður
VÆRI ÖRUGGLEGA KOKKUR Jóhannes Viðar Bjarnason, eigandi Fjöru-
kráarinnar, hefur upphafið víkingamenninguna á Íslandi en segist ekki
efni í herskáan víking sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JÓHANN HJÁLMARSSON RITHÖF-
UNDUR ER 71 ÁRS.
„Margur er skáld þó hann
yrki ekki.“
Jóhann hefur sent frá sér
fjölda ljóðabóka og hafa ljóð
hans verið þýdd á fjölmörg
tungumál. Ljóðabók hans,
Hljóðleikar, var tilnefnd til
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs árið 2003. Jóhann
var bæjarlistamaður Mos-
fellsbæjar árið 2006.