Fréttablaðið - 02.07.2010, Page 39
FÖSTUDAGUR 2. júlí 2010 27
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 02. júlí 2010
➜ Tónleikar
23.00 Hljómsveitin Hjaltalín mun
ásamt Láru Rúnarsdóttur spila tónlist
sína í Krúsinni á Ísafirði í kvöld. Tónleik-
arnir hefjast kl. 23.00 og er aðgangseyrir
2.000 krónur.
23.00 Í kvöld verða Pearl Jam Tribute
tónleikar á Sódóma Reykjavík. Miða-
verð er 1000 krónur og opnar húsið kl.
23.00, tónleikar hefjast á miðnætti.
➜ Bæjarhátíðir
Bæjarhátíðin Dýrafjarðardagar á Þing-
eyri. Víkingaandinn svífur yfir vötnum,
sem að sjálfsögðu falla öll til Dýrafjarðar
þessa helgi. Nýtt og glæsilegt víkinga-
svæði á Þingeyrarodda, víkingaskip
og fleira. Nánari upplýsingar á www.
thingeyri.is.
Hamingjudagar verða haldnir á Hólma-
vík um helgina, en hátíðin hefur verið
á hverju ári frá 2005. Frá upphafi hefur
verið lögð áhersla á fjölskylduvæna og
ódýra afþreyingu við sem flestra hæfi.
Upplýsingar um hátíðina má finna á
www.strandabyggd.is/hamingjudagar
Blúshátíð í Ólafsfirði verður haldin um
helgina og hefst dagskrá í dag. Nánari
upplýsingar um hátíðina má finna á
www.blues.fjallabyggd.is.
Írskir dagar 2010 verða formlega settir
í dag, en hátíðin er haldin á Akranesi.
Nánari upplýsingar um hátíðina má sjá
á www.irskirdagar.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Leikstjórinn Judd Apatow, sem á
meðal annars heiðurinn að kvik-
myndunum Knocked Up og 40
Year Old Virgin, hefur nú ákveðið
að taka að sér að leikstýra nýrri
mynd með Pee-wee Herman.
„Við verðum að horfast í augu
við það, heimurinn þarfnast Pee-
wee Herman. Ég er mjög spennt-
ur fyrir því að fá að vinna með
Paul Reubens, sem mér finnst
alveg einstakur leikari og hand-
ritshöfundur. Það er frábært að
fá hann aftur á hvíta tjaldið,“
sagði Apatow um væntanlegt
samstarf sitt og Reubens.
Snýr aftur á
hvíta tjaldið
SPENNTUR Leikstjórinn Judd Apatow
leikstýrir nýrri mynd með Pee-wee
Herman. NORDICPHOTOS/GETTY
Sjálfsmynd íslensku þjóðarinn-
ar birtist í nýju ljósi í Réttarrík-
inu eftir myndlistarmanninn Þór-
odd Bjarnason, en bókin inniheldur
tuttugu skopmyndir eftir Þórodd.
„Þetta er í raun og veru eins
konar tímarit og við stefnum á að
gefa út alls konar efni í þessu sama
formi, áður hefur komið út ljóðabók
og nú er það Réttarríkið. Bókin er
sambland af bók og umslagi og lítur
forsíðan nákvæmlega eins út og lítið
umslag þar sem þú getur skrifað á
nafn og heimilisfang og sett í póst.
Þetta er því tilvalin gjöf sem menn
geta skutlað í póstinn,“ útskýrir Þór-
oddur sem gefur út bókina ásamt
nokkrum félögum sínum. Í framtíð-
inni vonast hann eftir því að fleiri
gangi til liðs við þá og leggi til efni
í næstu bækur. „Þetta getur verið
allt frá kökuuppskriftum, teikning-
um og smásögum,“ segir hann.
Réttarríkið fjallar eingöngu um
kindur og er nafnið tilvísun í rétt-
ina og réttarríkið Ísland þar sem
þjóðinni er meðal annars líkt við
sauð sem leiddur er til slátrunar.
Aðspurður segir Þóroddur að ekki
hafi verið erfitt að fá hugmynd-
ir að skrítlum í bókina heldur hafi
hann þurft að hafa sig allan við að
koma þeim á blað. „Það er bara svo
margt fyndið við kindur og um leið
og maður byrjar á einni þá kemur
sú næsta bara til manns.“ Umslagið
verður til sölu í bókabúðum Máls og
menningar og Eymundsson.
- sm
Bók sem skutla má í póstinn
GEFUR ÚT RÉTTARRÍKIÐ Þóroddur
Bjarnason myndlistarmaður samdi
bókina Réttarríkið sem fjallar eingöngu
um kindur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Allt úrvalið fæst í Smáralind, Kringlunni og Skeifunni. Minna úrval í öðrum verslunum.
,
Fígúrur í miklu úrvali
Kartöfluhausar
Talandi sími
Talandi vasaljós
Bílar og bílabrautir
Toy Story Barbie dúkka
Action Links þrautabrautir
fígúrur fylgja
Hristibílar
þú hristir og þeir rjúka af stað