Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 42
30 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Læra hjá sænsku kempunum
Tveir efnilegustu markverðir landsins,
Aron Rafn Eðvarðsson og Arnór
Freyr Stefánsson, eru staddir í
Svíþjóð þessa dagana þar sem þeir
sækja markmannsnámskeið hjá
tveimur af betri markvörðum
handboltasögunnar, Svíunum Mats
Olsson og Tomas Svensson. Þeir
félagar koma síðan heim í dag. Þeir
Olsson og Svensson mynduðu eitt
sterkasta markvarðapar sem sést
hefur í landsliði og hafa örugglega
af miklu að miðla.
HANDBOLTI Valsmenn hafa gengið
frá samningum við þrjá mark-
verði fyrir komandi tímabil í
kvennaboltanum.
Þetta eru Sunneva Einarsdótt-
ir, Guðný Jenný Ásmundsdóttir
og Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir.
Sunneva kemur frá Fram, Sig-
ríður frá FH en Guðný Jenný
var í Val eftir að hafa rifið fram
skóna á síðasta tímabili vegna
meiðsla markvarðar Vals.
Þessum þremur er ætlað að
fylla það skarð sem besti mark-
vörður landsins, Berglind Íris
Hansdóttir, skilur eftir sig en hún
er flutt til Noregs. - hbg
Markvarðamál Valskvenna:
Þrjár í stað
Berglindar
Dekk fyrir: tjaldvagna, hjólhýsi, fellihýsi,
fjórhjól, húsbíla, fólksbíla, jeppa, kerrur,
mótor hjól o.s.frv., o.s.frv.Rauðhellu 11, Hfj.( 568 2035
Hjallahrauni 4, Hfj.
( 565 2121
Dugguvogi 10
( 568 2020
www.pitstop.is
ÞRJÁR FULLKOMNAR ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR
Allskonar dekk
fyrir fólk á leið í frí
PITSTOP
FÓTBOLTI Fylkir tapaði 3-0 fyrir
Zhodino frá Hvíta-Rússlandi í
fyrri leik liðanna í undankeppni
Evrópudeildar UEFA ytra í gær.
Staðan í hálfleik var marka-
laus en heimamenn sóttu þá mun
meira.
Þeir skoruðu eftir rúmar fimm-
tíu mínútur og kláruðu leikinn
með þremur mörkum á fjórtán
mínútum.
Fylkir þarf því að skora í það
minnsta þrjú mörk til að eiga
möguleika á að komast áfram í
seinni leiknum á Laugardalsvelli
næsta fimmtudag. - hþh
Fylkir tapaði í Hvíta-Rússlandi:
Þrjú mörk í
seinni hálfleik
ERFITT Ólafur Þórðarson þarf að finna
leið til að skora í það minnsta þrjú mörk
í seinni leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Aðstæður á Austfjörðum
til knattspyrnuiðkunar í gær
voru svo slæmar að flauta þurfti
af leik Fjarðabyggðar og Fjöln-
is í 1. deildinni eftir 25 mínútur.
Fjölnismenn gistu á Eskifirði í
nótt og leikurinn fer fram í dag
klukkan 16, líklega innandyra í
Fjarðabyggðarhöllinni.
„Hér ríkir tóm gleði,“ sagði
kaldhæðinn þjálfari Fjölnis,
Ásmundur Arnarson, í gærkvöldi
þar sem liðið sat á kaffihúsi og
horfði á gamla HM-leiki.
„Aðstæður voru ekki boðlegar,
það var ekki hægt að taka horn
nema á einum stað á vellinum.
Það var ekki hægt að rekja bolt-
ann og þegar menn byrjuðu að
renna sér var þetta orðið hættu-
legt,“ sagði Ásmundur. „Þó að það
sé leiðinlegt var þetta það eina í
stöðunni,“ sagði þjálfarinn.
Aðrir leikir fóru fram í deild-
inni og kláruðust. Víkingur burst-
aði ÍR 4-0 í Breiðholtinu og komst
upp að hlið Leiknis í toppsæt-
ið. Bæði lið hafa 19 stig en ÍR er
með 16. Leiknir gerði 2-2 jafntefli
við HK og heldur toppsæti deild-
arinnar á markatölu. Þá vann ÍA
1-4 sigur á botnliði Gróttu og reif
sig þar með upp um þrjú sæti í
töflunni. - hþh
Leik hætt í 1. deildinni:
Aðstæður voru
hættulegar
ÁSMUNDUR Ætlar að gera gott úr hlut-
unum á Eskifirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI KR er komið með annan
fótinn í aðra umferð forkeppni
Evrópudeildar UEFA eftir sann-
færandi frammistöðu gegn
Glentoran. KR spilaði lengstum
glimrandi fótbolta þrátt fyrir afar
erfiðar aðstæður. Það rigndi eldi
og brennisteini allan leikinn og
völlurinn var á floti.
Leikur KR í gær var sá lang-
besti á þessu sumri og undirritað-
ur spurði því Loga Ólafsson, þjálf-
ara KR, að því hvar þessi fótbolti
hefði verið í allt sumar.
„Hann hefur verið inni í skápn-
um. Svo koma menn út úr skápn-
um,“ sagði Logi og glotti við tönn.
„Þetta var virkilega vel útfærður
leikur af okkar hálfu. Við leyfðum
þeim aðeins að hafa boltann og lok-
uðum á svæðin. Okkar vandamál
í sumar er að við höfum fengið of
mörg mörk á okkur og því vildum
við vernda markið. Þessi leikur
var lagður svipað upp og í Evr-
ópukeppninni í fyrra en það gaf
afar góða raun. Svo er líka málið
að þegar menn eru staðráðnir í að
vinna saman þá erum við skrambi
góðir.“
KR tók fljótt öll völd á vellinum
í gær og fyrsta markið kom eftir
aðeins tólf mínútur. Þá virtist vera
brotið á Björgólfi er hann var kom-
inn í gegn en dómarinn dæmdi
ekkert þar sem Guðmundur Reyn-
ir fékk boltann og skoraði af stuttu
færi. Óskabyrjun. Tuttugu mínút-
um síðar skoraði Kjartan Henry
annað mark KR. Hann tók þá frá-
kast eftir skot Björgólfs og skoraði
af stuttu færi.
KR fékk talsverðan fjölda af
fínum færum í gær og oftar en
ekki eftir laglegt samspil. Liðið
nýtti þó aðeins eitt tækifæri í við-
bót. Þá skallaði Björgólfur send-
ingu Kjartans smekklega í markið.
3-0 fyrir KR og sú forysta á að
duga gegn Glentoran sem er ekkert
sérstaklega sterkt lið.
„Það er 3-0 í hálfleik og það
hefur oft þótt fín forysta. Vissu-
lega er þetta gott veganesti fyrir
seinni leikinn en menn geta ekki
kastað hendinni til verksins.
Menn verða að hafa fyrir hlutun-
um. Við munum aldrei fara inn í
seinni leikinn með ofmat á okkur
sjálfum og vanmat á þeim. Þetta
er alls ekki slæmt lið og aðstæð-
ur voru þeim kannski ekki í hag í
dag,“ sagði Logi.
Hann getur leyft sér að brosa
eftir þennan leik enda virðist KR
vera vaknað rétt eins það gerði á
síðustu leiktíð er það byrjaði að
spila í Evrópukeppninni. KR er
loksins mætt til leiks og með álíka
spilamennsku í Pepsi-deildinni þá
liggur leiðin aðeins upp á við hjá
KR-ingum. henry@frettabladid.is
KR-ingar mættir til leiks
KR vann öruggan 3-0 sigur á norður-írska liðinu Glentoran er liðin mættust á KR-
vellinum í 1. umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA. Sigur KR var síst of stór.
„Voru þau svona mörg já? Þá stóð ég mig bara vel,” sagði Sandor
Matus, fyrirliði og markvörður KA, sem átti stórleik gegn FH í
átta liða úrslitum VISA-bikars karla í gær.
FH skaut 32 sinnum að marki, en Sandors varði hvað eftir
annað frábærlega, alls 10 skot, og hélt liðinu inni í leiknum í
rúmar 50 mínútur. Þá skoraði FH og eftir það var eftirleikurinn
auðveldur. En Sandor hætti þó ekki að verja og hann bjargaði KA
frá niðurlægingu í Kaplakrika.
„Ég naut mín vel en ég held ég fái ekkert yfirvinnukaup
þrátt fyrir hvað var mikið að gera,” sagði Sandor léttur. „Það
var gaman að spila gegn einu besta liði landsins. Við gerðum
okkar besta og þeir spiluðu mjög vel. Allir leikmenn FH-liðsins
hreyfa sig vel, senda rétt og kunna að spila góðan fótbolta.
Grasið er gott og völlurinn er góður. Nú fann ég hvernig
Jabuilani-boltinn hegðar sér, hann er góður,” sagði Sandor og
hló en rigning og rok var á vellinum.
„Við ætluðum bara að spila okkar leik og ekki pakka í
vörn. Við áttum nokkur færi og þetta var ekki alslæmt en þetta var
sanngjarn sigur,“ sagði hinn geðþekki Ungverji.
„Við vissum að við þyrftum að vera þolinmóðir og vorum það
í fyrri hálfleik. Við vorum í frábærum tækifærum en náðum ekki
að nýta þau. Við komum grimmir inn í seinni hálfleik og drápum
eiginlega leikinn með fyrsta markinu. Á endanum var þetta
þægilegur og góður sigur,” sagði Ólafur Páll Snorrason sem
skoraði tvö mörk fyrir FH. Matthías Vilhjálmsson skoraði í
millitíðinni.
„Sandor er hörku markmaður og stóð vel fyrir sínu en
hann náði ekki að stoppa þessi tvö frábæru mörk hjá
mér,” sagði Ólafur og brosti.
„Heilt yfir er ég mjög sáttur, við héldum hreinu
og nú erum við komnir í undanúrslit. Mótið er svo
stutt, við þurfum bara að halda haus í þremur
eða fjórum leikjum til að komast á Laugar-
dalsvöllinn,” sagði Ólafur Páll. - hþh
ÓLAFUR PÁLL SNORRASON SKORAÐI TVÖ MÖRK Í SIGRI FH Á KA: SANDOR MATUS BJARGAÐI KA FRÁ NIÐURLÆGINGU
Við drápum leikinn með fyrsta markinu
2-0 Kjartan Henry skorar annað mark KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON