Fréttablaðið - 07.07.2010, Side 36
20 7. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Ísdrykkir
hrystir
eða
hrærðir
007
Hamborbarabar
James Bond
í seinni tíð
Segðu mér,
hversu lengi
ertu að vinna í
kvöld?
Við lokum
klukkan eitt!
Ertu til í að
koma með
mér heim
í eitt púrt-
vínsglas og
sjóorustu?
Uhh... Takk,
en nei takk!
Hugsaðu
um það!
Búinn að því.
Sama og þegið!
Slönguspilið?
Lúdó? Ekki heldur!
Hvað með
sjérríglas
og rólega
glímu?
Þúrý-Laila!
Hvað
gerir þú
venjulega í
þessu?
Ég fer
með í
hvert
skipti!
áfram
með þig!
Hvernig ferðu að því að lesa,
hlusta á tónlist og sms-a vini
þína á sama tíma?
Það er
eðlilegt.
Að gera marga hluti í einu er eðlilegt
fyrir kynslóðina mína. Eins og það
er eðlilegt fyrir þína að öskra á sjón-
varpið þegar fréttirnar eru í gangi.
Ég hrópa ekki, ég
bendi á staðreynda-
villur!
Hátt.
Úff! Er allt í
lagi?
Þegar ég sakna gömlu
vinnunnar treð ég mér í
aðhaldssokkabuxur og
tilfinningin hverfur.
Það er frekar neyðarlegt að vera með sterka réttlætiskennd en telja sig
sjaldnast í stakk búinn að takast á við þær
afleiðingar sem framgangur réttvísinnar
og réttlætis hefur í för með sér. Þessi neyð-
arlega staða síendurtekur sig þó á Íslandi
rétt eins og þau skilaboð liggi í loftinu að
þjóðin hafi ekki efni á að stjórnast af rétt-
lætiskennd.
FYRSTA dæmið sem ég sá um þessa hátt-
semi var reyndar afar saklaust. Ég var
á Laugardalsvellinum að horfa á lands-
leik þegar Eiður Smári Guðjohnsen braut
harkalega af sér. Dómarinn beið ekki boð-
anna og rauk að kappanum harðákveðinn
meðan hann teygði sig í brjóstvasann
eftir gula spjaldinu, en þá versnaði í því.
Mundi hann allt í einu að Eiður hafði
fengið gult spjald áður og yrði því að fara
í sturtu ef hann liti það í annað sinn. „Það
er nú ekki hægt að reka besta landsliðs-
mann Íslands út af,“ hefur hann örugg-
lega hugsað með sér. „Þetta er á
þeirra heimavelli og þeir gera í
buxurnar ef þeir missa kappann
út af. Þar að auki eru örugglega
komnir fjölmargir áhorfendur
alla leið frá Bíldudal til að
horfa á hann.“ Hann stakk
því gula spjaldinu aftur
í vasann og leit til Eiðs
alveg eyðilagður.
EFTIR hrun tók þetta á sig alvarlegri mynd
enda voru stórtækir kaupsýslumenn búnir
að keyra fyrirtæki sín í þrot og koma þjóð-
inni í stórvandræði með ofurskuldum. Rétt-
lætiskenndin hefur eflaust sagt ráðamönn-
um að réttast væri að ganga að þeim eins
og öllum öðrum óreiðumönnum. Þeir töldu
það þó of dýrkeypt fyrir íslenskt efnahags-
líf. Rauða spjaldinu var því stungið niður í
brjóstvasann svo ég noti nú líkingarmálið
úr Laugardalnum.
NÚ hefur Hæstiréttur dæmt gengislánin
ólögleg. Yfirvöld segja þjóðina þó ekki hafa
efni á því að taka á þeim eins og hverri
annarri lögleysu. Réttvísin kostar sitt rétt
eins og réttlætið.
ÞRÁTT fyrir þetta er ég samt svo róman-
tískur að trúa því að réttlætið sigri að
lokum. Til eru nefnilega reikningsskil sem
enginn kemst hjá. Þjóðskáldið okkar Páll
Ólafsson lýsir þeim af mikilli snilld í eftir-
farandi stöku:
ILLA fenginn auðinn þinn,/ áður en lýkur
nösum,/ aftur tínir andskotinn/ upp úr
þínum vösum.
EFLAUST finna margir hugarhægð í því að
réttlætið sé í alvörunni til. Það er þó sorg-
legra að það ber að þakka djöflinum en
ekki yfirvaldinu.
Réttlætið sigrar víst að lokum
www.frettabladid.is | 512 5000
*Kjarnadreifingarsvæði Fréttablaðsins er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði,
Selfoss, Borgarnes, Akranes, Reykjanesbær, Þorlákshöfn, Keilir, Garður, Sandgerði, Grindavík og Vogar.
GÓÐAR
FRÉTTIR
FYRIR ALLA
Enn betra aðgengi að Fréttablaðinu
Suðurnes
Breytingar voru gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins
1. júní. Blaðinu er áfram dreift ókeypis í lúgur og Fréttablaðskassa
kjarnadreifingarsvæði* okkar. Nýbreytnin felst í að frídreifingu
í verslunum og á bensínstöðvum á kjarnadreifingarsvæði verður
hætt, en blaðið í staðinn selt í lausasölu um land allt samhliða
fyrrgreindri frídreifingu heim eða í hverfi. Lausasölustöðum verður
fjölgað til muna auk þess sem fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum
verður nærri þrefaldaður, úr 60 í um 170. Nánari upplýsingar um
dreifingu Fréttablaðsins má nálgast á visir.is/dreifing.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á visir.is eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Fjöldi lausasölustaða
á Suðurnesjum
N1 þjónustustöð, Aðalstöðinni, Keflavík
10-11, Keflavík
N1 verslun, Keflavík
Olís, Básinn, Reykjanesbæ
10-11, Leifsstöð
Eymundsson, Leifsstöð
Bónus, Fitjum, Njarðvík