Fréttablaðið - 19.07.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI19. júlí 2010 — 167. tölublað — 10. árgangur
MÁNUDAGUR
skoðun 12
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
Híbýli og viðhald
veðrið í dag
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
POTTAPLÖNTUR þurfa mismikla sól og mismikið
vatn og um að gera að kynna sér þarfir þeirra þegar þær
eru keyptar. Fyrir þá sem finnst of flókið að muna hvað
hentar hverri plöntu geta gerviblóm verið góður kostur.
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
„Mér þykir mjög vænt um þessa
mynd af tveimur ástæðum,“ segir Birna. „Bæði af því að þetta er
pappírsbrúðkaupsgjöfin frá honum
Palla mínum og líka af því mér
finnst konan svo lík ömmusystur
barnanna minna.“ Palli heiti f l
Stafni og séð hana þar í gluggan-um. „Viktor Smári í Stúdíó Stafni
sagði honum að margir væru búnir
að spyrja um myndina en hún væri
ómerkt. Hún hefði komið frá safn-ara og listfræðinl
hún á góðu verði svo Palli keypti
hana handa mér,“ segir Birna. „Það fyrsta sem ég sagði þegar ég sá myndina var að mé fist k
Pappírsbrúðkaupsgjöfin frá honum Palla mínum
Þegar Birna Berndsen, annar tveggja eigenda hins nýja fyrirtækis Athygli ráðstefnur, er beðin að nefna
einhvern hlut á sínu heimili sem er í miklum metum gengur hún að gamalli mynd í dökkum ramma.
„Það veit enginn hver málaði myndina en mér finnst hún óskaplega falleg og mikil ró yfir henni,“ segir Birna Berndsen, ráðgjafi
hjá Athygli og ráðstefnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
híbýli og viðhaldMÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010
FASTEIGNIR.IS
19. JÚLÍ 2010
29. TBL.
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
Ferðalög lengi heillað
Jón Garðar Snæland gefur
út bók um fjallaskála á
Íslandi.
tímamót 16
Sérstök sápa
Heitu pottarnir í Laugardalslauginni
urðu kveikjan að hönnun á
handklæði og sápu.
allt 2
Því lengi býr að fyrstu gerð
Svooona sterk
HÆGUR VINDUR og bjart veður
verður víða um land í dag en þó
má búast við þokubökkum með
norður- og austurströndinni. Hiti
verður víða á bilinu 12 til 22 stig,
hlýjast sunnan- og vestanlands.
VEÐUR 4
16
15 12
13
16
FÓLK Magnús Leifsson hefur bæst
í hóp handritshöfunda að grínþátt-
unum Steindinn
okkar sem voru
sýndir á Stöð 2.
Eins og Frétta-
blaðið hefur
greint frá er ný
þáttaröð fyrir-
huguð á næsta
ári en félagarn-
ir Steindi Jr.
og Ágúst Bent
slógu í gegn
með þeirri fyrstu.
„Hann er góður vinur okkar og
mjög fyndinn náungi. Hann er líka
mjög skapandi, sem er mjög mikil-
vægt þegar kemur að því að skrifa
handrit,“ segir Steindi. „Hann var
að lauma að okkur hugmyndum í
fyrstu seríu sem við vorum ánægð-
ir með og notuðum. Það var ekkert
annað í stöðunni en að taka hann
inn.“ - fb / sjá síðu 30
Steindinn okkar fær liðsauka:
Fyndinn vinur
ráðinn í vinnu
MAGNÚS LEIFSSON
SKIPULAGSMÁL Áform um bygg-
ingu 3.200 fermetra samgöngu-
miðstöðvar í Vatnsmýri eru enn
í bið. Reykjavíkurborg á eftir að
veita samþykki fyrir því að hefja
100 daga kynningarferli en fram-
kvæmdir gætu fyrst hafist að
því loknu. Því er óljóst hvort þær
munu hefjast á þessu ári.
Því var lýst yfir í vetur er leið
að framkvæmdir ættu að hefjast
í sumar og 80-90 manns myndu
fá vinnu við verkið á tólf mánaða
framkvæmdatíma. Borgaryfir-
völd og samgönguráðuneyti gerðu
samkomulag um framkvæmdina
í apríl og fyrir lá vilyrði lífeyris-
sjóða um að fjármagna verkefnið
með lánum.
Samgöngumiðstöðinni hefur
verið ætlað að hýsa starfsemi
tengda innanlandsflugi og hóp-
ferðabílum. Henni er ætlað að
rísa í grennd við Loftleiðahótelið.
Ráðgert hefur verið að innheimta
nokkur hundruð króna gjald af
hverjum seldum farmiða til að
endurgreiða lán lífeyrissjóðanna
vegna framkvæmdanna.
Málið hefur hins vegar ekkert
hreyfst frá því í apríl. Borgar-
yfirvöld tóku ekki ákvörðun um
að hefja kynningarferlið meðal
borgarbúa fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í maí í vor. Ný
borgarstjórn hefur ekki fjallað
um málið frá því hún var kjörin.
Málið hefur verið umdeilt meðal
borgarbúa. Andstæðingar flug-
vallar í Vatnsmýri telja að með
framkvæmdinni verði flugvöll-
urinn festur í sessi þrátt fyrir að
gildandi skipulag renni út eftir
sex ár og þrátt fyrir að borg-
arbúar hafi ákveðið í atkvæða-
greiðslu fyrir meira en áratug
að flugvöllurinn eigi að víkja úr
Vatnsmýri.
Þrátt fyrir tilraunir undan-
farna daga hefur Fréttablaðið
ekki náð sambandi við nýjan for-
mann og varaformann skipulags-
ráðs, Pál Hjaltason og Hjálmar
Sveinsson, til að ræða málið og
kanna vilja nýs meirihluta varð-
andi kynningarferli. Ekki náðist
í Ólöfu Örvarsdóttur skipulags-
stjóra vegna málsins. Næsti fund-
ur skipulagsráðs borgarinnar er
áformaður 11. ágúst. - pg
Enn engin ákvörðun verið
tekin um samgöngumiðstöð
Í apríl var kynnt að framkvæmdir við samgöngumiðstöð í Vatnsmýri ættu að hefjast í sumar. Þær áttu að
skapa 80 til 90 störf. Nú er alls óvíst hvort farið verði í þessar framkvæmdir á árinu.
VEÐURBLÍÐA Á ÞINGVÖLLUM Veðurblíða var á Þingvöllum um helgina. Hitinn komst þar
í 23,9 gráður í gær og greip þetta fólk tækifærið og naut góða veðursins. Sumir kusu að fara í smá siglingu en
aðrir að liggja í grasinu í sandölum og ermalausum bol. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hönnuður stýrir hóteli
Fagstjórinn Linda Björg
Árnadóttir og maðurinn
hennar reka lítið hótel.
fólk 30
VIÐSKIPTI Erlendir markaðir finna
fyrir óstöðugleika íslenskra
stjórnmála og Íslendingar eru
að missa trúverðugleika sinn á
þeim. Þetta segir dr. Jón Ágúst
Þorsteinsson, forstjóri Marorku
og formaður Samtaka fyrirtækja
í orku- og umhverfistækni.
Jón Ágúst hefur sent öllum
þingmönnum bréf þar sem hann
biðlar til þeirra og stjórnvalda að
sýna samstöðu um stöðugleika,
til að skapa viðunandi starfsskil-
yrði fyrir hugverkaiðnað í land-
inu. Hann hefur fengið mikil og
jákvæð viðbrögð við bréfinu og
segir almennan skilning ríkja
á því að samvinnu sé þörf til að
koma landinu á réttan kjöl.
Jón Ágúst segir lykilatriði að
halda samningaviðræðum við
Evrópusambandið áfram. „Við
mætum þeim viðhorfum erlend-
is að við göngum til samninga og
drögum okkur svo í hlé. Við vilj-
um ekki borga skuldir okkar. Við
viljum ekki starfa með þeim sem
lána okkur peninga, eins og AGS.
Svona viðhorf stórskaða viðskipti
okkar,“ segir hann. Hann segir að
Íslendingar verði að sýna fram á
að þeir muni klára þessi mál. „Í
viðskiptum er trúverðugleiki
allt.“
Um tíu þúsund Íslendingar
starfa í hugverkaiðnaðinum og
hann veltir um 150 milljörðum á
ári hérlendis, en 200 milljörðum
erlendis. Mikilvægt er að vöxt-
ur iðnaðarins fari fram á Íslandi,
segir Jón Ágúst. Eins og staðan sé
í dag hafi fyrirtæki eins og Mar-
orka engar forsendur fyrir áfram-
haldandi vexti á Íslandi.
- þeb, - sv / sjá síðu 4
Íslendingar tapa trúverðugleika sínum vegna óstöðugleika íslenskra stjórnmála:
Forstjóri biðlar til stjórnvalda
Blikar á toppinn
Breiðablik lagði Keflavík í
stórslag gærdagsins í Pepsí-
deildinni.
sport 24