Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 38
22 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR Leikarinn Leonardo DiCaprio getur vel hugsað sér að eignast börn í framtíðinni. Hann er þó ekki tilbúinn í föðurhlutverkið alveg strax. „Langar mig að verða pabbi? Já, en ég held að það séu nokkur ár í það,“ sagði DiCaprio, sem er á föstu með ísraelsku fyr- irsætunni Bar Refaeli. „Að því sögðu þá finnst mér ég ekki þurfa að eiga börn til að leika pabba í bíómyndum. Þessi tilfinning bær- ist alveg innra með mér og ég hef fullan skilning á henni.“ Nýjasta mynd DiCaprio nefnist Incept- ion og er í leikstjórn Christophers Nolan sem síðast sendi frá sér The Dark Knight. SÍMI 564 0000 16 16 L L L 12 12 L SÍMI 462 3500 16 12 12 PREDATORS kl. 8 - 10 KNIGHT AND DAY kl. 8 - 10 KILLERS kl. 6 SÍMI 530 1919 16 12 12 L 12 PREDATORS kl. 8 - 10.20 PREDATORS LÚXUS kl. 5.40 - 8 - 10.20 SHREK 4 3D 3D ÍSL TAL kl. 3.30 - 5.45 SHREK 4 2D ÍSL TAL kl. 3.30 - 5.45 SHREK 4 3D ENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45 KNIGHT AND DAY kl. 8 - 10.30 KILLERS kl. 10.30 GROWN UPS kl. 3.30 - 5.45 - 8 -10.20 PREDATORS kl. 5.40 - 8 - 10.20 KNIGHT AND DAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 KILLERS kl. 5.45 - 8 - 10.15 GROWN UPS kl. 5.45 - 10.30 THE A TEAM kl. 8 NÝTT Í BÍÓ! .com/smarabio "Hraðskreið og hlaðin fjöri. Tom Cruise hefur sjaldan verið hressari!" -T.V, Kvikmyndir.is -News of the World -Timeout London Óttinn rís á ný... í þessum svaklega spennutrylli „Fullkomlega óhætt að mæla með Knight and Day sem laufléttu sumarsprelli“ -S.V., MBL Bráðfyndin og hjartnæm frá byrjun til enda. Lang besta Shrek myndin og það eru engar ýkjur - Boxoffice Magazine MISSIÐ EKKI AF HASAR GAMANMYND SUMARSINS „Besta Twilight myndin til þessa“ – Entertainment Weekly  - hollywood reporter  - p.d. variety ÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSI 12 12 12 12 16 10 L L L L L L L L L L L L L L L L14 14 14 14 SHREK SÆLL ALLA DAGA-3D ísl. kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 SHREK SÆLL ALLA DAGA ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 SHREK FOREVER AFTER-3D ensku Tali kl. 8 - 10:10 BOÐBERI kl. 8 - 10:10 TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:40 - 8 - 10:40 TWILIGHT SAGA kl. 3 - 5:40 - 8 - 10:40 NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:50 LEIKFANGASAGA 3 ísl. kl. 1 - 1:30 - 3:20 - 3:40 - 5:50 TOY STORY 3 ensku Tali kl. 8 - 10:20 SEX AND THE CITY 2 kl. 8 PRINCE OF PERSIA kl. 5:40 AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 SHREK SÆLL ALLA DAGA-3D ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50 SHREK FOREVER AFTER-3D ensku Tali kl. 8 - 10:10 LEIKFANGASAGA 3 - 3D M/ ísl. Tali kl. 3:20 - 5:40 TOY STORY 3-3D M/ ensku Tali kl. 8 BOÐBERI sýnd á morgun kl. 10:20 TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:30 - 8 - 10:40 SHREK SÆLL ALLA DAGA-3D ísl. Tali kl. 6 SHREK FOREVER AFTER-3D ensku Tali kl. 8 - 10 LEIKFANGASAGA 3 ísl. Tali kl. 6 TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 8 BOÐBERI kl. 10:30 SHREK SÆLL ALLA DAGA-3D ísl. Tali kl. 6 - 8 GROWN UPS kl. 10:10 KILLERS kl. 8 - 10:10 BOÐBERI kl. 6 “ÞRÍVÍDIN ER ÓTRÚLEGA MÖGNUД  - n.y. daily news  - empire - bara lúxus Sími: 553 2075 SHREK 4 ENSKT TAL 3D 4, 6 og 8 L SHREK 4 ÍSLENSKT TAL 2D 4 L SHREK 4 ÍSLENSKT TAL 3D 4 og 6 L PREDATORS 8 og 10 (POWER) 16 KNIGHT AND DAY 5.50, 8 og 10.10 12 THE A - TEAM 10.10 12 POWERSÝNING KL. 10.00 Bíó ★★ Knight and Day Leikstjóri: James Mangold Aðalhlutverk: Tom Cruise, Camer- on Diaz, Peter Sarsgaard Roy Miller er ofboðslega klár og flinkur leyniþjónustumaður og er svo snjall í meðferð skotvopna, hnífa sem og slagsmálum með berum höndum að jafnoki hans finnst vart hérna megin grafar. Svikurum í hans röðum tekst að klína upp á Roy röngum sökum um að hann leiki tveim skjöldum þannig að hann er útlægur ger úr klúbbi njósnara. Ástæðan er sú að Roy hafði kom- ist á snoðir um áform vinnufélaga síns um að ræna nýuppfundinni eilífðarrafhlöðu og selja vondum vopnaframleiðanda. Áður en Roy lagði á flótta undan fyrrum félögum sínum tókst honum að stela rafhlöðunni og sén- íinu sem fann hana upp þannig að nú leggja bæði leyniþjónustan og vondi vopnaframleiðandinn ofur- kapp á að hafa hendur í hári hans. Á flugvelli rekst Roy, bókstaf- lega, á bifvélavirkjann þokkafulla June Havens og áður en stúlkan sú veit af er hún komin á kaf í háska- legan darraðardans við her af ill- mennum þannig að henni er sá illskásti kostur vænstur að hanga með Roy til þess að eiga einhverja möguleika á að halda lífi. Söguþráður myndarinnar skipt- ir í sjálfu sér engu máli og er væg- ast sagt gisinn þar sem hann geng- ur út á það eitt að Tom Cruise og Cameron Diaz geti hlaupið, flogið eða keyrt á milli skotbardaga og ýktra hasaratriða sem eru öll þau leiðinlega marki brennd, þrátt fyrir íburðinn, að persónurnar eru aldrei í raunverulegri hættu. Sennilega vegna þess að Roy er klárari en allir hinir og sallar óvinina niður skælbrosandi og reytandi af sér brandara. Í þessu er enginn háski, sáralítil spenna og það versta er að þetta er ekkert sérstaklega fynd- ið heldur. Aðstandendur Knight and Day hafa líklega ekkert verið að stressa sig of mikið yfir smáatriðum á borð við styrk handrits, rökrétta sögu- framvindu og annað slíkt þar sem vinsældir Cruise og Diaz þykja án efa næg trygging fyrir viðunandi aðsókn. Fylgispekt fólks við þessar Hollywood-stjörnur hefur öllu meira með fríðar snoppur þeirra og meintan kynþokka heldur en leikhæfileika að gera. Maður á svosem auðveldara með að skilja þetta í tilfelli Diaz þar sem hún er ákaflega eðlileg og hugguleg dúlla þannig að erfitt er að þykja ekki pínu vænt um hana. En svo ég haldi nú áfram að vera ófagmannlegur gagnrýnandi og segi bara það sem mér finnst hreint út þá þykir mér með mestu ólíkindum hvernig fólk nennir að púkka upp á Tom Cruise, jafn staðlaður, litlaus og leiðinlegur sem hann er. Hann hefur vissulega átt sínar stundir og sýnt tilþrif en vinsældir hans og launakröfur eru samt sem áður ekki í neinu sam- ræmi við hæfileika hans og getu. Þar sem eitthvert réttlæti fyr- irfinnst nú samt í heimi hér hefur gengisvísitala Cruise farið heldur niður á við á undanförnum árum og ef til vill liggur þar skýringin á því að hann kjósi að leika á jafn dauð- hreinsaðri, auðmeltri og aðgengi- legri ekki-spennumynd og Knight and Day er. Aðdáendur Cruise og Diaz verða samt varla fyrir vonbrigðum enda vita þeir upp á hár hvað þeirra fólk kann og getur. Aðrir þurfa ekkert að hafa fyrir því að halda sér vak- andi en þeir verða heldur ekki fyrir neinum hjartsláttartruflunum af völdum spennu eða hláturs. Þórarinn Þórarinsson Niðurstaða: Meinlaus og kjánaleg glansmynd þar sem stórstjörnur fá að vera voða sætar og klárar að berjast í lítt spennandi spennumynd sem er sérstaklega löguð að smekk fólks sem vill almennt trúa því að heimurinn sé fallegur og lífið æði. Meinlaus lágspenna ÓFYNDIN OG ÓSPENNANDI Bíógestir verða ekki fyrir neinum hjartsláttartruflunum af völdum spennu eða hláturs á Knight and Day. LEONARDO DICAPRIO Leikarinn getur vel hugsað sér að eignast börn í fram- tíðinni. Söngkonan Pink datt á tónleikum sínum í Nürnberg í Þýskalandi á fimmtudagskvöldið. Söngkonan átti að svífa yfir sviðið á meðan hún söng lagið Glitter In The Air en hafði ekki fest sig nægi- lega vel með þeim afleiðingum að vír sem hélt henni uppi slitnaði og Pink féll niður á sviðið. Söng- konan var flutt með sjúkrabíl til aðhlynningar og á leiðinni sendi hún aðdáendum sínum skilaboð í gegnum Twitter síðu sína. „Mér þykir mjög leitt að tónleikarn- ir hafi endað með þessum hætti. Ég skammast mín og biðst afsökunar. Ég vona í það minnsta að fallið hafi litið vel út í ykkar augum.“ Pink slösuð DATT Söngkonan Pink slasaði sig á tónleik- um í Þýskalandi á fimmtudaginn. Ekki pabbi alveg strax

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.