Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 46
30 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR Magnús Leifsson hefur bæst í hóp handritshöfunda að grín- þáttunum Steindinn okkar sem voru sýndir á Stöð 2 á dögunum. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá er ný þáttaröð fyrirhuguð á næsta ári en félagarnir Steindi Jr. og Ágúst Bent slógu í gegn með þeirri fyrstu. „Hann er góður vinur okkar og mjög fyndinn náungi. Hann er líka mjög skapandi, sem er mjög mikilvægt þegar kemur að því að skrifa handrit,“ segir Steindi um nýja liðsmanninn. „Hann var að lauma að okkur hugmyndum í fyrstu seríu sem við vorum ánægðir með og notuðum. Það var ekkert annað í stöðunni en að taka hann inn.“ Þeir þremenningar ætla að byrja að skrifa saman í ágúst og tökur hefjast að öllum líkindum í september. „Það er mjög þægi- legt að fá viðbót í hópinn, sér- staklega vegna þess að þetta þarf að gerast hraðar en áður,“ segir Steindi. Magnús, sem er listamaður og grafískur hönnuður, hlakkar mikið til að takast á við verkefn- ið. „Ég held að þetta verði mjög gaman. Það er gaman að vinna með þessum strákum og við náum vel saman.“ Hann er ánægður með viðtökurnar við fyrstu serí- unni og hafði gaman af því að sjá hugmyndir sínar verða að veru- leika. „Það var fáránlega gaman. Þetta er dót sem var talað um í partíum og í léttu djóki. Það var líka gaman að sjá alvöru leikara í þáttunum tækla það sem ég hafði verið að benda strákunum á.“ Að sögn Steinda verða eingöngu nýjar persónur í næstu þáttaröð. Grínið heldur samt áfram að vera hvasst þar sem ekkert verður gefið eftir. Þeir félagar framleiða þætt- ina sjálfir og eru þessa dagana að safna fyrir betri græjum. „Við erum að taka að okkur alls konar verkefni til að safna peningum til að kaupa græjur. Við fengum lán- aða tólf ára gamla myndavél fyrir fyrstu seríu en viljum hafa þetta enn þá flottara núna.“ Hann bætir við að nóg sé til af hugmyndum fyrir nýju þáttaröð- ina og að einhver afgangur sé einn- ig til frá þeirri síðustu. „Við erum langt frá því að vera saddir.“ freyr@frettabladid.is 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 GOTT Á GRILLIÐ MAGNÚS LEIFSSON: HELD AÐ ÞETTA VERÐI MJÖG GAMAN Nýr handritshöfundur bætist við Steindann okkar Kvikmyndagerðarmaðurinn Haraldur Sig- urjónsson hefur unnið að heimildarmynd um hljómsveitina Stóns undanfarið ár. Har- aldur fylgdi hljómsveitarmeðlimum eftir á tónleikum og myndaði það sem átti sér stað á bak við tjöldin. Haraldur er góður vinur meðlima Stóns og segir hann þá í raun hafa átt hugmynd- ina að myndinni. „Þeir vildu að ég tæki upp tónleika sem fóru fram á skemmtistaðnum Nasa í fyrra. Ég tók upp eitthvert efni bak- sviðs og fannst svo mikil stemning í gangi að við ákváðum að taka upp meira efni,“ segir Haraldur en bætir við að það gangi á ýmsu bak við tjöldin. „Meðan á tökum stóð kom upp vandamál innan hljómsveitarinn- ar sem hafði meðal annars mikil áhrif á samskipti milli meðlima og mig langaði að fylgja því máli eftir, það er eiginlega ástæð- an fyrir því að við ákváðum að gera þetta að heimildarmynd.“ Haraldur hefur starfað sem klippari og við sjónvarpsþátta- og aug- lýsingagerð í rúm tólf ár en ákvað í kjöl- far hrunsins að setjast á skólabekk og læra handritaskrif við Kvikmyndaskóla Íslands. Stuttmynd hans, Áttu vatn?, hlaut að auki fyrstu verðlaun á Stuttmyndadögum sem fram fóru í júní. Líkt og áður hefur komið fram hafa tökur á heimildarmyndinni staðið yfir í rúmt ár og er Haraldur kominn með heilmikið af efni til að vinna úr. Hann segir tökurnar þó hafa gengið heldur hægt þar sem tveir hljómsveitarmeðlimir búi erlendis og því erfitt að skipuleggja tónleikahald. „Ég lét upptökuvélina oft bara ganga og þá virtust strákarnir gleyma henni og fóru að haga sér eðlilega, þannig að ég er kominn með mikið af efni sem ég þarf núna að vinna úr,“ segir hann en stefnt er að því að frumsýna heimildarmyndina á Skjaldborgarhátíðinni næsta ár. -sm Vandamál Stóns fest á filmu FYLGIR STÓNS Haraldur Sigurjónsson kvikmyndagerðar- maður vinnur nú að heimildarmynd um tribute-sveit- ina Stóns. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Linda Björg Árnadóttir, hönnuður og fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands, hefur opnað fallegt hótel á Patreksfirði ásamt eiginmanni sínum, Andrew Burgess. Hjónin keyptu húsið fyrir rúmum þremur árum og ætluðu upphaflega að nota húsið sem frístundahús en ákváðu fyrir ári síðan að breyta því í sumarhótel. Hótelið hefur hlotið nafnið Hótel Ráðagerði og hóf rekstur hinn 1. júlí síðastliðinn og eru þar sex herbergi en verður fjölgað í níu næsta sumar. „Við vorum upphaflega að leita að húsi úti á landi sem við gætum flúið í þegar við vildum ró og næði. Við vildum nokkuð rúmgott hús því við vildum nóg vinnupláss þar sem við gætum breitt úr okkur og unnið vinnu okkar. Þetta hús bauð upp á svo marga möguleika að við ákváð- um að færa okkur út í hótelrekstur, en þar sem þetta er sumarhótel þá höfum við húsið út af fyrir okkur á veturna,“ segir Linda, en húsið er um 350 fermetrar að stærð og allt hið glæsilegasta. Linda Björg segir hótelið vera samstarfsverkefni milli sín og eig- inmannsins, sem er starfandi arki- tekt. „Hótelið er fyrst og fremst hönnunarleg upplifun. Allur heim- ilistextíllinn er hannaður af mér og svo erum við einnig með skemmti- legan Hawaii-bar inni í einni stof- unni sem gefur þessu suðræna stemningu. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð þann stutta tíma sem við höfum haft opið og erum meðal annars í góðu samstarfi við Sjóræn- ingjahúsið hér í bæ og saman höfum við háleitar hugmyndir um framtíð Patreksfjarðar.“ Linda segir lífið á Patreksfirði vera dásamlegt og að þeim hjónum líði afskaplega vel enda sé fjörður- inn með eindæmum fallegur. - sm Hönnuður í hótelrekstri á Patró HÓTELSTÝRA Hönnuðurinn Linda Björg Árnadóttir opnaði hótel á Patreksfirði ásamt eiginmanni sínum, Andrew Burgess. MYND/HEIÐA Rækjur með rauðum chili, lim- esafa og kóríander. Marínerast í skál, sett í álpappírsumslag og grillað. Ljúffengur forréttur. Sunna Dís Másdóttir, bókabúðarstýra á Flateyri. Hið árlega Laugavegshlaup fór fram um helgina, en þetta 55 kílómetra hlaup þykir afar krefjandi – svo vægt sé tekið til orða. Veðurfrétta- konurnar Soffía Sveinsdóttir og Elísabet Margeirs- dóttir af Stöð 2 luku báðar hlaupinu og sú síðarnefnda sigraði í sínum flokki. Það verður að teljast ólíklegt að nokkur sjónvarps- stöð geti státað af hraustari veður- fréttakonum enda engin smá leið sem stöllurnar hlupu … Siggi Olsen og félagar í Ultra Mega Technobandinu Stefán komu fram á tónlistarhátíðinni Slottsfjell í Noregi um helgina. Hljómsveitin kom þar fram ásamt Skotunum í Belle and Sebastian og Mew, sem er ein allra stærsta og besta hljómsveit Dana. Ultra Mega Techno- bandið er rómað fyrir magnaða sviðs- framkomu þannig að búast má við að Norðmenn hafi ekki orðið fyrir von- brigðum. Tónleikastaðurinn Faktorý var opnaður formlega um helgina þar sem Grand rokk var áður. Hljóm- sveitirnar Mammút og Agent Fresco komu fram á laugardagskvöld og talsverður fjöldi fólks lagði leið sína á staðinn. Hinn skeleggi Haraldur Leví hefur verið fenginn til að bóka hljómsveitir á staðinn en hann er innvinklaður í íslenskt tónlistarlíf í gegnum útgáfufyrirtæki sitt, Record Records, og mun vafalaust leysa verkefnið með sóma. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI LÁRÉTT 2. hæfileika, 6. tveir eins, 8. sérstak- lega, 9. geislahjúpur, 11. tveir eins, 12. kunningi, 14. mjaka, 16. samtök, 17. ennþá, 18. gapa, 20. tveir eins, 21. horfðu. LÓÐRÉTT 1. málmur, 3. hæð, 4. gróðrahyggja, 5. sarg, 7. hindrun, 10. regla, 13. ger- ast, 15. sál, 16. þróttur, 19. snæddi. LAUSN LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. tt, 8. sér, 9. ára, 11. gg, 12. lagsi, 14. fikra, 16. aa, 17. enn, 18. flá, 20. dd, 21. litu. LÓÐRÉTT: 1. stál, 3. ás, 4. fégirnd, 5. urg, 7. trafali, 10. agi, 13. ske, 15. andi, 16. afl, 19. át. ÞRÍR HANDRITSHÖFUNDAR Félagarnir Steindi Jr., Ágúst Bent og Magnús Leifsson standa saman að næstu þáttaröð af Steinda- num okkar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ERTU AÐ FARA Í SUMARFRÍ? Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman. Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst á netfangið dreifing@posthusid.is Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins, nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Steinunn Valdís Óskarsdóttir. 2 Kronkron. 3 Vilborg Dagbjartsdóttir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.