Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 16
16 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Elsku dóttir okkar og systir
Ástríður Tómasdóttir
verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 21. júlí
kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeir sem vildu minnast hennar eru beðnir að láta
Unicef á Íslandi eða aðrar hjálparstofnanir njóta þess.
Ásta Svavarsdóttir
Tómas R. Einarsson
Kristín Svava Tómasdóttir
Ása Bergný Tómasdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
Gísla Bessasonar
frá Kýrholti í Skagafirði, til heimilis að
Kjarnalundi, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Kjarnalundar
fyrir frábæra umönnun og hjúkrun.
Bessi Gíslason Una Þóra Steinþórsdóttir
Guðrún Gísladóttir Jóhannes Mikaelsson
Elínborg Gísladóttir Hörður Ágústsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir og afi
Gylfi Magnússon
Hjarðarholti 13, Akranesi lést 11. júlí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
20. júlí kl. 14.00.
Aðalheiður Gylfadóttir Ásgeir Ólafsson
Magnea Gylfadóttir Hörður Einarsson
Ebba Magnúsdóttir
og barnabörn.
Niðjasamtök
Gunnlaugsstaðaættarinnar
Aðalfundur samtakanna verður laugardaginn 24. júlí
næstkomandi klukkan 14.00
í samkomuhúsinu við Þverárrétt í Borgarfi rði.
Best er að koma á föstudagskvöldið svo hægt sé að mýkja
söngröddina fyrir átök laugardagsins.
Með kveðju, stjórnin.
Elskulegur sonur, bróðir og barnabarn
Stefán H. Skúlason,
Hólmasundi 2,
lést að morgni 12. júlí sl. á Landspítala, Fossvogi.
Útför verður gerð frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði,
mánudaginn 19. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
Stefáns er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra
barna.
Katrín Árnadóttir Páll E. Winkel
Guðný Kristín Winkel
Katrín Pála Winkel
Guðný Sigurðardóttir Árni Hreiðar Þorsteinsson
Elskuleg móðir okkar, amma,
langamma og tengdamamma,
Friðrika Beta
Líkafrónsdóttir
áður til heimilis Álfhólsvegi 66,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 9. júlí.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey þann 16. júlí. Innilegar
þakkir til starfsfólks Álfhóls.
Hrönn Guðný Gunnarsdóttir Jón Oddur Jónsson
Rósa Sigríður Gunnarsdóttir Hannes Kristinsson
Bjarney Sólveig Gunnarsdóttir Böðvar Böðvarsson
Gunnar Björgvin Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför elskulegrar mágkonu og frænku
okkar,
Magneu Katrínar
Hannesdóttur
frá Stóru Sandvík,
verður gerð frá Selfosskirkju þriðjudaginn 20. júlí
klukkan 13.30.
Hrefna Gísladóttir
og systkinabörn hinnar látnu.
Hjartkær eiginmaður, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi
Guðmundur
Ingimundarson
verslunarmaður, Bogahlíð 8, Reykjavík
lést þriðjudaginn 13. júlí á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 21. júlí kl 13.
Jóhanna M. Guðjónsdóttir
Guðjón Ingi Guðmundsson Ruth Guðmundsdóttir
Elsa Guðmundsdóttir Björgólfur Thorsteinsson
og barnabörn.
MOSAIK
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
Sigurður Þorgeirsson
Pósthússtræti 1, Keflavík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þriðjudaginn
13. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
fimmtudaginn 22. júlí kl. 14.00.
Erna Sigríður Sigurðardóttir
Lilja Bergmann Sigurðardóttir Friðrik Sverrisson
Garðar Sigurðsson Ásta Halldóra Böðvarsdóttir
Gunnlaug Olsen Sturla Ólafsson
Kolbrún Dóra Kristinsdóttir Þór Sigurðsson
Jóna Kr. Olsen Sigurðardóttir Leif Erik Williams
og barnabörn.
Útgáfufélagið Skrudda hefur gefið út bókina Fjallaskálar á
Íslandi eftir Jón Garðar Snæland. Í þessari bók er í máli og
myndum lýst hartnær 400 skálum, gömlum og nýjum, sem
reistir hafa verið víðs vegar á Íslandi.
Bókin var ekkert áhlaupsverk og segist Jón Garðar hafa
verið að viða að sér upplýsingum um fjallaskálana á ferða-
lögum um landið undanfarinn áratug. „Þetta hefur smám
saman safnast í sarpinn á þeim tíma en ætli ég hafi ekki
byrjað að skrá niður upplýsingar um hvern og einn skipu-
lega undanfarin fimm ár,“ segir Jón Garðar sem gaf út bók-
ina Heitar laugar á Íslandi ásamt Þóru Sigurbjörnsdóttur.
Fjallaskálar á Íslandi hefur að geyma fróðleik um skál-
ana, sögu þeirra og búnað. Ljósmynd er af öllum skálunum
og staðsetning þeirra mörkuð með GPS-punkti og á landa-
korti. Spurður hvort hann eigi sér einhvern uppáhaldsskála
segir Jón Garðar erfitt að gera upp á milli þeirra. „Þetta er
slíkur aragrúi af skálum og mjög margir flottir. En ætli ég
myndi ekki tilneyddur velja skálana á Austfjörðum, þeir eru
margir hverjir mjög flottir og í ægifagurri náttúru.“
Jón Garðar fékk ferðabakteríuna í barnæsku og ferðaðist
mikið með föður sínum. Eftir að hafa búið erlendis í nokk-
ur ár ágerðist áhuginn enn frekar. „Maður sér landið í öðru
ljósi og lærir að meta það upp á nýtt,“ segir Jón Garðar sem
reynir að verja sem mestum tíma í óbyggðunum. „Ég hef
ekki tölu á hversu margir dagar þetta eru á ári en stóran
part sumars er ég úti á landi og svo fer maður auðvitað líka
í nokkrar vetrarferðir á hverju ári.“ bergsteinn@frettabladid.is
JÓN GARÐAR SNÆLAND: GEFUR ÚT
BÓK UM FJALLASKÁLA Á ÍSLANDI
Afrakstur af
tíu ára vinnu
JÓN GARÐAR SNÆLAND Reynir að verja sem mestum tíma utan
borgarmarkanna. Hann hefur viðað að sér upplýsingum um fjallaskála
á Íslandi undanfarinn áratug. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EDGAR DEGAS FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1834
„Málun er auðveld þegar
þú kannt ekki til verka en
erfið þegar þú gerir það.“
Franski listamaðurinn Edgar
Degas (1834-1917) er þekktur
fyrir málverk sín, skúlptúra
og teikningar. Litið er á hann
sem einn af upphafsmönnum
impressjónismans.
Tyrkjaráninu lauk hinn 19. júlí 1627
þegar ránsmenn frá Algeirsborg í
Alsír sneru aftur til Norður-Afríku.
Höfðu þeir með sér um fjögur
hundruð manns frá Grindavík,
Austfjörðum og Vestmannaeyjum.
Sumarið 1627 komu tveir
ræningjahópar frá Norður-Afríku
til Íslands. Annar var frá borginni Sale í Marokkó og hinn kom frá
Algeirsborg. Fyrri hópurinn fór til Grindavíkur og tók land 20. júní
1627. Þeir hertóku þar fimmtán Íslendinga, felldu tvo og tóku tvö
skip með áhöfn og annað herfang. Hinn hópurinn fór til Aust-
fjarða 5. til 13. júlí og náði fólki á mörgum bæjum. Austfjarða-
þokan varð þó sumum búendum til bjargar. Því næst var haldið
til Vestmannaeyja.
Heimild: Visindavefur.hi.is
ÞETTA GERÐIST: 19. JÚLÍ 1627
Tyrkjaráninu lýkur