Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 18
Eldhús er herbergi sem notað er til að elda og undirbúa mat. Ef eldhúsið er hluti af stærra herbergi, sem notað er í annað, þá nefnist það eldhús- krókur. Á Vesturlönd- um er yfirleitt ofn í eldhúsum sem og ísskápur. Þar er líka vaskur með heitu og köldu vatni til að nota við eldamennskuna og til að vaska upp, þó oft sé uppþvottavél í nútímaeldhúsi. Eldhús eru oft samkomustað- ur fjölskyldunnar og vina, jafnvel þó ekki sé verið að matbúa. is.wikipedia.org LÍTIL BOX geta verið hentug þar sem miklu betra er að geyma ýmsa smáhluti í þeim heldur en að hafa þá úti um allt. Box af öllum stærðum og gerðum eru líka tilvalin fyrir dótið í barnaherbergjunum. Taktur - Fyrir 16-25 ára. Atvinnuleitin, listahópar, fréttasmiðja, heilsuhópur og margt fleira. kl. 9 -16 Skapaðu þér góða framtíð! - Fimmti hluti af sex. Lokað! kl. 13 -15 Ráðgjöf fyrir innflytjendur kl. 14 -16 Briddsklúbbur kl. 14 -16 Gönguhópur kl. 13 -14 Vinnum saman (Býflugurnar) kl. 14 -16 Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is www.raudakrosshusid.is | Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 13-16 Dagskrá vikunnar Rauðakrosshúsið Ókeypis fyrir alla Mánudagur 19. júlí Taktur - Fyrir 16-25 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. kl. 9 -12 Prjónahópur - Komdu og prjónaðu í góðum félagsskap. kl. 13 -15 EFT og djúpslökun - Umbreyttu heftandi viðhorfum og innleiddu EFT inn í daglegt líf þitt. Umsjón: Viðar Aðalsteinsson, EFT sérfræðingur. kl.14 -16 Þriðjudagur 20. júlí Miðvikudagur 21. júlí Miðvikudagar eru dagar unga fólksins í Rauðakrosshúsinu Fimmtudagur 22. júlí Tölvuaðstoð kl. 13:30-15:30 Art of living - Hugleiðsla kl. 15 -16 LOKAÐ! Rauðakrosshúsið verður lokað alla föstudaga í júlí. Heilsuhópur Takts - Fyrir alla sem vilja. Útileikfimi í Nauthólsvík. Mæting kl. 9 í Rauðakrosshúsinu. Leikfimin hefst kl. 9:30. Föstudagur 23. júlí - Lokað Gönguhópurinn Njótandi og þjótandi - Gengið um höfuðborgarsvæðið þrisvar í viku (mán. kl. 13, mið. og fös. kl.10) og margvíslegir staðir skoðaðir. Upplýsingar um upphafsstaði hverju sinni á raudakrosshusid@gmail.com. Taktur - Fyrir 16-25 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. kl. 9 -12 Skip án skipstjóra - Einstaklingur án markmiða er eins og skip án skip- stjóra. Settu þér markmið og fylgdu þeim eftir. kl.13 -14 Lífskraftur og tilfinningar - Fimmti hluti af sex. Lokað! kl.14 -16 Taktur - Fyrir 16-25 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. kl. 9 -12 Ítölsk matargerð - Lærðu að gera ljúffenga rétti og smakkaðu. kl.13 -14 Lífskraftur og tilfinningar - Sjötti hluti af sex. Lokað! kl.14 -16 Heilsuhópur - Hreyfing skiptir máli! Lærðu að gera vinnuáætlun um þína hreyfingu og það er aldrei að vita nema að æfingunum fjölgi. kl.14-15 Laugavegi 178 - Sími: 551 2070 Sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, Lokað á laugardögum í sumar Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is teg. AVA - hlýralaus BH í stærðum D,DD,E,F,FF,G á kr. 11.450,- bandabuxur í S,M,L,XL á kr. 4.990,- sokkabandabelti í S,M,L,XL á kr. 6.990,- læraband á kr. 2.990,- MJÖG GLÆSILEGT FYRIR SUMARBRÚÐINA „Við ákváðum að horfa til ferða- þjónustunnar og finna út hvað í borginni hefði einna mest aðdrátt- arafl á erlenda ferðamenn. Sú rannsókn leiddi í ljós að stór hluti þeirra heimsækir sundlaugarnar okkar og finnst mikið til þeirra koma. Þannig varð hugmyndin til,“ segir Kristín Birna Bjarna- dóttir, sem ásamt Friðgerði Guð- mundsdóttur sigraði í hönnun- arkeppni um minjagrip fyrir Reykjavíkurborg fyrr á árinu, með handklæði og sápu sem líkj- ast heitum potti og til stendur að framleiða á næstunni. „Við fáum frumgerðina að handklæðinu afhenta í dag og líki okkur útkoman er viðbúið að það verði komið í sölu eftir um það bil fjórar vikur ef allt gengur að óskum. Ferlið í kringum sápuna er lengra,“ segir Kristín og eftir- væntingin leynir sér ekki í rödd- inni, enda hafa þær Friðgerður staðið í ströngu við að koma vör- unni af teikniborðinu og í fram- leiðslu. Að hennar sögn kemur sápan til með að verða tvílit, blá eins og pottarnir í Laugardalslauginni og glær eins og vatnið, en handklæð- ið verður hvítt. Til greina komi að bæta litum við síðar ef varan gengur vel í sölu. „Við sjáum bara hvernig þetta fer af stað,“ segir hún og bætir við að þótt sápan og handklæðið hafi verið hugs- að sem minjagripir ættu lands- menn sjálfir alveg allt eins að geta notið þeirra. „Hvorutveggja er fallegt inni á hvaða heimili sem er og líka hæglega hægt að kippa þessu með sér í sund.“ roald@frettabladid.is Heitur pottur í sápulíki Heitu pottarnir í Laugardalslauginni urðu kveikjan að handklæði og sápu sem Kristín Birna Bjarnadóttir og Friðgerður Guðmundsdóttir unnu sigur fyrir í hönnunarsamkeppni um minjagripi fyrir Reykjavík. Sápan líkist heitum potti og handklæðið sjali þegar búið er að vefja því utan um sig Vöruhönnuðirnir Friðgerður Guðmundsdóttir og Kristín Birna Bjarnadóttir hanna saman undir merkinu Gerist, en þær sigruðu í hönnunarsamkeppni um minjagrip fyrir Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Ef borðplatan á stofuborðinu eða borðstofuborðinu er orðin lúin má lífga upp á hana með því að fá sér gler- eða plexíglerplötu ofan á hana. Undir plötuna er svo tilvalið að setja dúk eða veggfóður eða jafnvel fjöl- skyldumyndir, hugmyndafluginu eru engin takmörk sett. Í barna- og unglingaherbergjum getur þetta verið sniðug lausn fyrir skrif- borð. - eö Líflegar borðplötur EKKI ÞARF AÐ VERA MIKIÐ MÁL AÐ HRESSA UPP Á BORÐPLÖTUR SEM ERU FARNAR AÐ LÁTA Á SJÁ.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.