Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 29
híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010 3
● PARKETTIÐ HREINSAÐ Við dagleg þrif á olíubornu parketti
ætti að nota ryksugu eða þurrmoppu en strjúka ætti yfir þá fleti sem á
koma mikil óhrein-
indi með rökum
klút. Hins vegar
ætti ekki að blaut-
skúra olíuborið
parkett. Hafa ber í
huga að þegar gólf
er þvegið þá þorn-
ar viðurinn, þess
vegna er mikil-
vægt að nota réttar
sápur til að halda
æskilegu rakastigi viðarins. Þó þarf einnig að passa upp á að nota ekki of
mikið af sápu því þá er hætta á að fita setjist á yfirborð viðarins.
Heimild: www.pm.is
● SKREYTT MEÐ MINNING-
UM Skreytingar á heimilum þurfa
ekki að vera flóknar. Hægt er að draga
fram gamla hluti úr bernsku sinni eða frá
fyrsta heimilinu og nota til skrauts. Finnið hlut
sem ykkur þykir vænt um, eins og gamla eld-
húsvog, teketil eða blómavasa og gerið að
helsta skrauti stofunnar. Svo má bæta við
nýjum fylgihlutum í bland við þann gamla.
● HREINN KÆLISKÁPUR Við affrystingu kæliskápa þarf að huga
að ýmsu og gott er að ganga skipulega í verkið.
Best er að byrja á því að henda gömlum afgöngum og grænmeti,
einnig þeim matvörum sem komnar eru fram yfir síðasta neysludag.
Ekki er gott að nota sterk hreinsiefni, matarsódi og vatn er ágætis
kostur. Ef sápan er þó notuð verður að passa að skola kæliskápinn vel
á eftir en sápan getur skilið
eftir lykt sem sest í mat-
vælin.
Skál með heitu vatni
neðst í kæliskápnum flýtir
fyrir affrystingunni. Hár-
blásari getur einnig flýtt
fyrir en þá verður að passa
að blása bara á málmfleti.
Heimild: www.leidbein-
ingastod.is
Garðkönnur sem ekki eru lengur í notkun geta
verið fallegt skraut. Mikil prýði getur verið að því
að koma gömlu garðkönnunni fyrir á einhverjum
góðum stað og jafnvel setja nokkur blóm
í hana. Hugsanlega
er hægt að grípa til
hennar í neyð en ef
engin þörf er á því getur ver-
ið ágætt að setja nokkra steina
í botninn á henni svo hún haldist
örugglega á sínum stað. - eö
Nýtt hlutverk
Garðkönnur í sterkum og fallegum litum lífga upp á garðinn.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…