Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 19. júlí 2010 25 SÓL OG BLÍÐA Á SÍMAMÓTINU HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND www.utilif.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 5 0 6 9 4 0 6 /1 0 Deuter Aircontact Pro Sá vandaðasti úr smiðju Deuter. Frábært stillanlegt burðarkerfi. Fáanlegur í ýmsum stærðum f. dömur og herra. Deuter Aircontact Margverðlaunaður bakpoki! Góður í lengri ferðir. Vandað, stillanlegt burðarkerfi. Regnyfirbreiðsla. Fáanlegur í ýmsum stærðum f. dömur og herra. Deuter Futura Okkar vinsælustu dagpokar! Með frábæru öndunarkerfi í baki. Regnyfirbreiðsla og ýmsar festingar. Fáanlegur í ýmsum stærðum. 50+15 L Verð: 44.990 kr. 55+15 L Verð: 47.990 kr. 60+15 L Verð: 49.990 kr. 70+15 L Verð: 49.990 kr. 45+10 L Verð: 31.990 kr. 55+10 L Verð: 34.990 kr. 65+10 L Verð: 42.990 kr. 75+10 L Verð: 47.990 kr. 22 L Verð: 15.990 kr. 28 L Verð: 17.990 kr. 32 L Verð: 19.990 kr. 42 L Verð: 23.990 kr. Góðir ferðafélagar í sumar Deuter bakpokarnir eru mest verðlaunuðu bakpokar seinni ára FÓTBOLTI Það var heldur betur líf og fjör í Kópavoginum um helgina þegar 1.400 hressar stelpur tóku þátt í hinu árlega Símamóti Breiðabliks. Alls voru 166 lið skráð til leiks frá 30 félögum og er óhætt að segja að leikgleðin hafi skinið úr hverju andliti. Í 5. flokki vann KA í keppni A- liða en Valur vann bæði hjá B og C-liðum. Víkingsstelpur voru svo hlut- skarpastar í keppni D-liða. Í 6. flokki fengu Haukar gull í keppni A-liða. FH vann hjá B-liðum, Haukar hjá C og loks ÍA í D-liðum. Finna má öll úrslit mótsins á heima- síðu mótsins, simamotid.is. Margt var brallað um helgina og var sérstaklega mikið stuð á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu. Sigurður Ragnar Eyj- ólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins, kíkti í heimsókn og vakti heimsókn hans lukku. Veðrið lék við keppendur sem og mótsgesti sem voru fjölmargir. Var það mál manna að mótið hefði heppnast einkar vel og fóru allir heim með bros á vör í gær. henry@frettabladid.is LANDSLIÐSFYRIRLIÐ- INN LÉT SJÁ SIG Katrín Jónsdóttir landsliðsfyr- irliði heilsar hér upp á leikmenn. FJÖR Á HLIÐARLÍNUNNI Það verður ekki annað sagt en að foreldrarnir lifi sig inn í leikina. BLÓÐ, SVITI OG TÁR Stelpurnar gefa ekkert eftir. Hér liggur leikmaður Þórs frá Akureyri slasaður á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GLAÐST YFIR GÓÐUM ÁRANGRI KA-stúlkur stóðu sig vel á Símamótinu og hér er hringt heim og látið vita af því að bikar sé í húsi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.