Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 36
20 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Hinn tröllvaxni Ice Explor-
er-bíll er nýkominn til
landsins. Hann er notaður
í ferðalög upp á Langjök-
ul þar sem ekkert fær hann
stöðvað.
„Þetta er bylting fyrir okkur,“
segir Arngrímur Hermannsson,
framkvæmdastjóri og eigandi Ice.
Fyrirtækið býður nú upp á ferð-
ir á Langjökul á sérútbúnu jökla-
farartæki frá Póllandi sem er það
eina sinnar tegundar hér á landi.
Bíllinn, sem var upphaflega notað-
ur af Nató, tekur allt að 45 farþega
og undir honum eru átta risastór
dekk. „Við fengum hann til lands-
ins 15. júní. Þá var búið að vera að
útbúa hann fyrir okkur erlendis.
Umferðarstofa þurfti svo að taka
hann út,“ segir Arngrímur. „Þetta
er eiginlega fyrsti jöklabíllinn
sem er með hópferðaleyfi.“
Venjulega hefur fólk farið upp á
jökla á hefðbundnum jeppum sem
hafa í mesta lagi tekið tíu farþega
en sá fjöldi fjórfaldast með til-
komu Ice Explorer-jeppans eins
og hann er kallaður. Ferðalag-
ið fer þannig fram að fólk ekur
bílum sínum upp að jökulrönd-
inni í gegnum Húsafell. Eftir það
er farið upp að Geitlandsjökli.
„Þá erum við í tvo og hálfan tíma
til þrjá tíma á toppinn og sýnum
jökulbráðnunina. Hvernig hlýn-
un jarðar er að fara með jökulinn
okkar,“ segir Arngrímur.
Góð aðsókn hefur verið í ferð-
irnar og stutt er síðan Íslenska
þjóðdansafélagið stóð fyrir ferð
þangað upp með erlendum þjóð-
dönsurum. „Það fóru fjörutíu
manns upp á jökul og við tókum
sporið að sjálfsögðu,“ segir hann.
freyr@frettabladid.is
TRYLLITÆKI FRÁ NATÓ
UPP Á LANGJÖKUL
ÞJÓÐDANSAFÉLAGIÐ Íslenska þjóðdansafélagið stóð fyrir ferð á Langjökul. Að
sjálfsögðu tók fólkið sporið.
Tímaritið The National Enquir-
er heldur því fram að Vilhjálm-
ur Bretaprins hafi margoft haldið
framhjá kærustu sinni, Kate Midd-
leton, og að stúlkan viti af því en
kjósi að líta framhjá því þar til
nú.
„Það er verið að undirbúa Kate
undir lífið í konungshöllinni og
hún hefur lært allar reglurnar,
en einn ráðgjafinn sagði henni að
hún ætti ekki að kippa sér upp við
það þótt prinsinn haldi áfram að
taka sér hjákonur í framtíðinni,“
var haft eftir ónefndum heimild-
armanni. „Kate finnst Vilhjálmur
hafa komið mjög illa fram við hana
og verst þykir henni að hann reyn-
ir ekki einu sinni að fela hin sam-
böndin,“ sagði vinur Middleton.
Miklar vangaveltur eru um hvort
prinsinn og Middleton munu ganga
í hið heilaga á næstunni, en þau
hafa verið saman í sjö ár.
Þolir ekki meir
ÞOLIR EKKI MEIRA Vilhjálmur Bretaprins
á að hafa haldið margoft framhjá kær-
ustu sinni, Kate Middleton.
Sharon Osbourne, eiginkona rokkarans
Ozzy, segir að dóttir þeirra, Kelly, eigi
eftir að jafna sig á skilnaðinum við unn-
usta sinn, Luke Worrall. Kelly sleit trú-
lofun þeirra fyrr í vikunni en orð rómur
er uppi um að hann hafi haldið fram-
hjá henni. Kelly sendi nýlega frá
sér Twitter-skilaboð þar sem
hún viðurkenndi að eiga erf-
itt með að sætta sig við orðinn
hlut. „Ég sagði við hana: „Þessi
skilnaður er sá fyrsti af mörgum.“
Þetta er eitthvað sem við göngum
öll í gegnum,“ sagði Sharon.
„Engin af mínum vinkonum
hefur komist hjá því að lenda
í hjartasorg og engin hefur
endað með fyrsta náungan-
um sem hún hefur orðið ástfangin af. Ég
þekki enga sem hefur lent í því.“
Sharon heldur áfram og stappar stál-
inu í dóttur sína: „Því miður fyrir hana
þá er þetta eitthvað sem hún mun lenda
í. Það þýðir ekkert að gera annað en að
rífa sig upp og byrja upp á nýtt. Hún
er virkilega sorgmædd núna en
hún á eftir að ná sér. Við gerum
það öll. Þegar allt kemur til alls þá
lærir hún af þessu og hún getur
enn þá tekið upp símann og hringt
í okkur. Við erum ekki að fara
neitt í burtu.“
Stappar stálinu í dóttur sína
KELLY OSBOURNE Kelly sleit trúlofun sinni við
Luke Worrall fyrir skömmu.
SHARON OSBOURNE Eiginkona
rokkarans Ozzy segir að dóttirin
Kelly eigi eftir að jafna sig á
skilnaðinum.
Fótboltatöffarinn David Beckham
og rapparinn Snoop Dogg eru orðn-
ir góðir vinir. Þeir búa báðir í Los
Angeles og halda góðu sambandi
en Beckham spilar með LA Galaxy.
Beckham var einn sá fyrsti til að
heyra nýjustu plötu Snoop.
„Síðan ég flutti til LA höfum við
verið góðir vinir. Hann er mikill
fótboltaaðdáandi og bauð mér
í hljóðverið til að hlusta
á hana á undan öllum
öðrum. Hann spurði mig
út í nokkur og lög ég
sagðist hafa fílað þau
öll.“ Beckham bætir
við að hann hefði aldrei
látið rapparann vita ef
hann hefði ekki fílað
lögin því Snoop var
með tvo fíleflda líf-
verði við hliðina á
sér. „Þetta er dálít-
ið skrítinn vinskap-
ur en við náum vel
saman. Hann er mjög
hæfileikaríkur náungi
og bara virkilega fínn.“
Skrítinn vinskapur
BECKHAM OG
SNOOP Beckham og
Snoop Dogg eru góðir
vinir og deila með sér alls
konar hlutum.
Þyngd:
20 tonn
Burðargeta:
10 tonn
Vél:
V8 dísil
Hestöfl:
360
Fjöldi gíra:
16
ICE EXPLORER-BÍLINN:
ICE EXPLORER Hinn tröllvaxni bíll er
notaður í ferðir upp á Langjökul og
tekur allt að 45 farþega.
Dalahringur er nýr og bragðmildur
hvítmygluostur. Lögun ostsins gerir það
að verkum að hann þroskast hraðar en
aðrir sambærilegir mygluostar á
markaðnum. Gríptu með þér
Dalahring í næstu verslun.
> HASARHETJA Í FANGELSI
Hasarhetjan Wesley Snipes tap-
aði nýlega máli fyrir áfrýjun-
ardómstól í Bandaríkjun-
um. Hann er því á leiðinni í
fangelsi þar sem hann fékk
þriggja ára dóm fyrir skatt-
svik.
folk@frettabladid.is