Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 2
2 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR Vísitala miðuð við gildi í janúar 2005 150% 120% 90% 60% 30% 0% -30% Ja nú ar 2 00 5 Jú lí 20 05 Ja nú ar 2 00 6 Jú lí 20 06 Ja nú ar 2 00 7 Jú lí 20 07 Ja nú ar 2 00 8 Jú lí 20 08 Ja nú ar 2 00 9 Jú lí 20 09 Ja nú ar 2 01 0 Jú lí 20 10 Maí 2010 52,7% Maí 2010 140% Nóvember 2009 80% Apríl 2008 -16,4% Júlí 2005 -16,5% Kaffi Pasta Vísitala neysluverðs Unnið úr gögnum frá Data Market MALASÍA Tollverðir á flugvellinum í Kuala Lumpur í Malasíu fundu 400 sjaldgæfar skjaldbökur og 40 froska í farangri tveggja kvenna sem voru að koma frá Madagask- ar. Konurnar voru handteknar og bíða dóms. Þetta er í annað skiptið á skömmum tíma sem smyglar- ar eru gripnir með sjaldgæf dýr á flugvellinum. Talið er að selja hafi átt dýrin í gæludýraverslanir og til veitingastaða. Yfirvöld hafa áhyggjur af því að á meðan pólit- ísk vandamál Madagaskar breyt- ast ekki muni ólöglegur flutning- ur á dýrum og plöntum úr landi aukast. - ls Smyglarar gripnir í Malasíu: Með skjaldbök- ur í ferðatösku Stútur undir stýri Ökumaður var stöðvaður, grunaður um ölvun og að vera undir áhrifum fíkniefna, af lögreglunni á Akureyri. Bílstjórinn var á leið út úr bænum þegar hann var stöðvaður og var ferjaður beint á lögreglustöðina. LÖGREGLUFRÉTTIR Eggert, leggstu undir feld áður en þú stígur á svið í Svíþjóð? „Já, það er alveg nauðsynlegt. Fleiri ættu að gera það áður en þeir framkvæma.“ Feldskerinn Eggert Ólafur Jóhannsson kemur fram ásamt hljómsveit sinni, Spottunum, á sænskri þjóðlagahátíð í ágúst. NEYTENDUR Pasta hefur hækk- að óvenju mikið í verði á síðustu árum hér á landi. Sé verðlagning borin saman við vísitölu neyslu- verðs sést glögglega að verðið tók stökk um mitt ár 2008 og fer svo stigvaxandi, hátt fyrir ofan vísi- tölu neysluverðs. Til samanburð- ar má skoða verðlag á kaffi, sem einnig er aðflutt vara, og sést að verðið heldur sig mestmegnis fyrir neðan vísitöluna. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að með verð á vörum sem þessum séu breytingar á heimsmarkaðsverði algengasta skýringin. „Heimsmarkaðsverð á olíu er mikið í umræðunni á Íslandi og fólk virðist almennt gera sér grein fyrir því að markaðurinn er háður því hér á landi,“ segir Andr- és. „En það sem vill gleymast er að það gildir nákvæmlega það sama um hráefni til matvinnslu eins og kaffi, hveiti, hrísgrjón og annað slíkt.“ Andrés segir að uppskeru- brestir á hráefnum til mat- væla geti haft gífurleg áhrif á heimsmarkaðs- verð. „Þegar kóln- ar í Brasilíu, þá rýkur verð á kaffi upp.“ Andrés segir mikilvægt að koma Íslendingum í skilning um að ekki sé sjálfgefið að gengis- lækkanir hafi verðlækkanir í för með sér. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, sem er umboðsaðili fyrir Barilla pasta, tekur í sama streng og Andr- és og segir ástæðu fyrir hækkun- um vera almenna hækkun á heims- markaði. „Gengið spil- ar líka inn í. Þegar það bætist við hækk- un á heimsmarkaðsverði verður útkoman þessi.“ Jóhannes Gunnarsson, formað- ur Neytendasamtakanna, segir Íslendinga gera sér fulla grein fyrir því að verð úti í heimi hafi áhrif hér á landi á innfluttum vörum, en eftir styrkingu krón- unnar þá kalli Neytendasamtök- in eftir enn frekari verðlækkun- um. „Ef allt væri eðlilegt ætti verð á pasta að vera á niðurleið eins og á öðrum innfluttum vörum,“ segir hann. „Innflytjendur vöru verja hækkanir með veikingu krónunn- ar og þá ætlumst við til að þeir séu sjálfum sér samkvæmir og lækki verð þegar krónan styrkist. Við eigum talsvert mikið inni af verðlækkunum enn þá þó að þetta hafi að hluta til gengið til baka.“ sunna@frettabladid.is Pasta hefur hækkað um rúm 150 prósent Verð á pasta er langt fyrir ofan vísitölu neysluverðs. Hækkun á verðlagningu hveitis á heimsmarkaði ásamt gengisfalli krónunnar sögð vera ástæðan. Fylgir ekki vísitölu neysluverðs á sama hátt og sambærilegar innfluttar matvörur. PASTA Hagsmuna- aðilar segja algengustu skýringuna á verðhækkun innfluttrar vöru vera hækkun heims- markaðsverðs. ÍSAFJÖRÐUR „Mér líst frábærlega á starfið. Ég flutti árið 1987 frá Ísafirði og hlakka til að snúa aftur,“ segir Daníel Jakobsson, nýráðinn bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar. Daníel er hvað þekktastur fyrir skíðamennsku, var einn fremsti skíðagöngumaður lands- ins um tíma, keppti á Ólympíu- leikunum í Lillehamer og gegndi formennsku í Skíðasambandi Íslands. Árið 1994 var hann val- inn íþróttamaður Ísafjarðar. Undanfarið hefur Daníel starf- að sem útibússtjóri hjá Lands- banka Íslands að Laugavegi í Reykjavík. „Það ríkir tilhlökkun meðal fjölskyldunnar fyrir nýjum heimkynnum en eiginkona mín og börn eru öll mikið skíðafólk þannig að ekki spillir að eiga kost á að komast oftar á skíði,“ segir Daníel en hann tekur við starfi bæjarstjóra í lok ágúst. Alls 27 einstaklingar sóttu um starf bæj- arstjóra. „Ég tek við ágætis búi á Ísa- firði. Menn hafa haldið vel á spil- unum í bænum og þrátt fyrir að þetta sé mikil varnarbarátta á þessum tímum eru sóknarfærin einnig mörg. Með bættari sam- göngum er til dæmis hægt að efla ferðamennskuna, bæði að vetri og sumri til. Þá er mikil- vægt að styðja við háskólasetrið og stuðla að fjölbreyttu atvinnu- lífi.“ - jma Útibússtjóri Landsbankans á Laugavegi ráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar: Fyrrum Ólympíufari í bæjarstjórastól MÖRG SÓKNARFÆRI Daníel Jakobsson, nýráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir tækifæri fram undan í ferða- mennsku. FÓLK Sjósundkappinn Benedikt Lafleur þurfti að hætta eftir tæp- lega tveggja mílna sund en hann ætlaði að synda frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja fyrstur manna í gær. Benedikt lenti í köldum straumi hjá Markárfljóti og í kjölfarið bætti í vind. Haft var eftir Benedikt á fréttavefnum Eyjafrettir.is að ekkert vit hefði verið í að halda áfram. Markmið sundsins var að vekja athygli á nýju siglingaleiðinni milli Landeyjahafnar og Vest- mannaeyja. Leiðin er ellefu kíló- metra löng. - mmf Benedikt Lafleur: Hætti eftir tvær mílur MEXÍKÓ Byssumenn hófu skotárás í afmælisveislu í borg í Coahuila- ríki í Mexíkó á sunnudagsmorg- un með þeim afleiðingum að 17 manns létust, þar á meðal afmæl- isbarnið. Talið er að morðin teng- ist eiturlyfjastríðinu í Mexíkó en glæpagengi hafa barist um völdin á svæðinu, sem er ein aðalsmygl- leið fyrir eiturlyf inn í Banda- ríkin. Styrjöldin í Mexíkó hefur stig- magnast síðustu misserin með auknu ofbeldi. Fórnarlömbin á sunnudag voru yngst um tvítugt og það elsta var 38 ára en árás- armennirnir skutu meira en 200 skotum af sjálfvirkum vélbyss- um. - jma Eiturlyfjastríðið í Mexíkó: 17 myrtir í af- mælisveislu BLÓÐUG STYRJÖLD Morðin í Coahuila á sunnudag eru með þeim hrikalegri sem framin hafa verið í tengslum við eiturlyfjastríðið. BRETLAND Dreamliner Boeing 787-þota lenti í Farnborough í Bretlandi í gærdag og er þetta í fyrsta skipti sem vélin lendir utan Bandaríkjanna. Með í för voru meðal annarra yfirmenn Boeing en flugvélin var alls níu klukkutíma á flugi. Flugstjóri ferðarinnar, Mike Bryan, bar lof á flugvélina en ýmsar flugmæl- ingar fóru fram meðan á fluginu stóð. Flugvélin mun taka þátt í flug- sýningu sem hefst í næstu viku en um tíma var óttast að vélin myndi ekki taka þátt vegna tæknilegra vandamála er komu upp á síðustu stundu. - jma Dreamliner Boeing 787: Lenti utan Bandaríkjanna ALLT GEKK AÐ ÓSKUM Flugferðin til Bretlands gekk vel en um tíma var tví- sýnt hvort Dreamliner-vélin myndi taka þátt í flugsýningu á Bretlandi. Sprakk við sandblástur Lok sprakk framan í mann sem var við sandblástur á Suðurnesjunum í gær. Hann er ekki lífshættulega slasaður en var fluttur á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala. SLYSFARIR ENGLAND „Jólin koma fyrr ár hvert,“ sagði Geraldine James, innkaupastjóri jóladeildar Sel- fridges í London, í samtali við breska ríkisútvarpið. Verslunin Selfridges á Oxford- stræti í London hefur jólavertíð sína 145 dögum fyrir jól, eða 2. ágúst næstkomandi. Verslunin hefur aldrei boðið jólavarning til sölu svo snemma. Talsmenn verslunarinnar segja að sala undanfarinna ára sýni að sumir viðskipavina séu farnir að huga að jólum í ágúst. Á síðasta ári seldi verslunin yfir þúsund jólaskraut í fyrstu vik- unni sem hófst þá 8. ágúst. - mmf Selfridges hefur jólavertíð: Jólin byrja í ág- úst í London KJARAMÁL Boðað hefur verið til sáttafundar í kjaradeilu slökkvi- liðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna á miðvikudag. Upp úr viðræðunum slitnaði fyrir helgi. Þá hafði launa- nefndin boðið 1,4 prósenta launa- hækkun sem ekki var fallist á. Samningar nást ekki nema menn komi saman og ræði málin, segir Sverrir Björn Björnsson, formað- ur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðs- og sjúkraflutninga- menn hafa boðað átta klukku- stunda verkfall á föstudag náist samningar ekki fyrir þann tíma. Verkfallið þýðir að lágmarksfjöldi starfsmanna verður á hverri vakt og ekki verður hægt að kalla út aukamannskap. Líklega verður Akureyrarflugvelli lokað þar sem slökkviliðsmenn þar munu leggja niður störf. Þá munu þeir sem þurfa að komast á milli spítala lík- lega ekki komast, segir Sverrir. Frekari verkfallsaðgerðir hafa svo verið boðaðar eftir föstudag, fyrst yfirvinnubann hinn 7. sept- ember og svo allsherjarverkfall ef ekki hafa náðst samningar. - þeb Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn funda á miðvikudag með launanefnd: Boðað til sáttafundar í deilu KJÖRUNUM MÓTMÆLT Slökkviliðsmenn vilja miða laun sín við laun lögreglu- manna en segja launanefndina langt frá kröfum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN Olíufélagið BP vill halda loki, sem notað er til að stöðva olíulekann í Mexíkóflóa, á olíuleiðslunni þar til hægt verður að koma í veg fyrir lekann með endanlegum hætti. Engin olía hefur lekið frá því að lokið var sett á fyrir helgi. Til- raunirnar hafa því gengið framar vonum og vilja forsvarsmenn BP halda áfram prófunum á nýja lok- inu þangað til vinnu við nýja olíu- borholu lýkur. Mögulegt er að ef áfram gengur vel með lokið verði það notað sem varanleg lausn. - þeb Nýtt lok á olíuborholunni: BP heldur próf- unum áfram SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.