Fréttablaðið - 19.07.2010, Side 4
4 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR
LANDBÚNAÐUR Á Íslandi eru starfrækt 22
minkabú og stendur til að eitt til viðbótar taki
til starfa í Skagafirði í haust. Minkarækt í
landinu gengur vonum framar og Björn Hall-
dórsson, formaður Sambands íslenskra loð-
dýrabænda (SÍL), segir hrun íslensku krón-
unnar hafa gert það að verkum að búgreinin
komst aftur á skrið.
„Gengið komst loks í það sem það átti að
vera,“ segir Björn. „Verð á skinnum á heims-
markaði fór upp og í dag
erum við að fá rúmlega
helmingi meira fyrir hvert
skinn, eða um sjö þús-
und krónur. Hvert einasta
skinn fer til Danmerkur
og er danska krónan okkur
sérstaklega hagstæð.“
Fjöldi minka í hverju búi
er að meðaltali á milli sjö
og átta þúsund og veltan
um 50 milljónir á ári.
„Markaðurinn stóð í
stað í nokkur ár, en er
loksins núna að taka við
sér,“ segir Björn. „Útlend-
ingar eru að fá nasaþef af
greininni og einnig erum
við farin að fá óvenju mikið af fyrirspurnum
frá Íslendingum.“
Björn segir skilyrði á Íslandi vera kjörin
fyrir iðnina og úrgangurinn úr dýrunum, sem
er vandamál í mörgum öðrum löndum, kjör-
inn áburður á landið.
„Hér er ódýr orka, auðveldur aðgangur á
hreinu landi, gott loftslag fyrir dýrin og gott
hráefni,“ segir hann. „Þetta er að vissu leyti
angi af þekkingariðnaði. Við erum að nýta
þekkingu og látum ekkert ráðast af tilviljun-
um.“
Strangar reglur eru um aðbúnað dýranna
og segir Björn mikilvægt að aðstæður í búun-
um séu þannig að hver sem er geti komið inn
hvenær sem er og fullyrt að hlutirnir séu í
lagi. Hann hefur verið formaður SÍL í ellefu
Minkaræktin blómstrar á
Íslandi eftir hrun krónunnar
Minkaræktin gengur betur eftir hrun íslensku krónunnar. Aðstæður á Íslandi kjörnar til ræktunar og
margir farnir að velta fyrir sér starfinu, segir formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda.
Refarækt á Íslandi leið undir lok
þegar síðasti refabóndinn, Guð-
mundur Ólason, lagði hanskana
á hilluna fyrri part árs 2009.
„Ég hefði alveg viljað halda
áfram en það var bara ekki
möguleiki,“ segir Guðmundur.
Björn Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra loðdýra-
bænda, segir litla afkomu vera í
refarækt og greinina víðast hvar
í Skandinavíu eiga undir högg
að sækja.
„Það er lítil endurnýjun í
stofninum og meðalaldurinn
nánast sá sami ár eftir ár,“ segir
hann. „Norskir silfurrefaframleið-
endur eru nánast þeir einu sem
hafa eitthvað upp úr þessu, en
verðið á skinnunum hefur verið
hrikalega lágt í langan tíma.“
Refarækt hófst hér á landi
upp úr 1930. Árið 2004 voru 13
refabú á landinu.
Síðasti refabóndinn hætti búrekstri í fyrra
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
31°
28°
23°
31°
28°
23°
23°
24°
25°
31°
32°
33°
18°
29°
20°
23°Á MORGUN
Hæg breytileg átt um
mest allt land.
MIÐVIKUDAGUR
Hægur vindur um
mest allt land.
14
14
19
15
16
16
16
1716
18
16
15
15
12
12
8
13
13
16
13
14
2
2
2
4
4
6
2
3
4
3
4
BJARTVIÐRI er í
kortum dagsins og
á það við um mest
allt land. það er
helst að dragi fyrir
sólu með norður-
og austurströnd-
inni en þar er hætt
við þokubökkum.
Á morgun hækkar
hitinn norðan- og
austanlands og
þar verður bjart
en sunnanlands
dregur heldur úr
sólskini.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
Markaðurinn
stóð í stað
í nokkur ár
en er loksins
núna að taka
við sér.
BJÖRN
HALLDÓRSSON
SAMBANDI
ÍSLENSKRA
LOÐDÝRABÆNDA
ár og ekki hefur nein kvörtun borist á þeim
tíma.
„Þessar nýju reglur voru settar að okkar
frumkvæði. Við Íslendingar erum vanir því
að búa í sátt og samlyndi við náttúruna og
við reynum að búa eins vel að þessum dýrum
og við getum. Okkar afkoma byggist á því að
þeim líði sem best.“
Björn segir aðstæður dýranna vera mun
lakari víða erlendis heldur en á Norðurlönd-
unum og að alþjóðasamtök fylgist grannt með
þróun mála. sunna@frettabladid.is
SVISS Leikstjórinn Roman Pol-
anski hefur nú látið sjá sig í fyrsta
sinn á opinberum vettvangi síðan
honum var sleppt úr stofufang-
elsi í Sviss fyrir fjórum dögum.
Polanski fór að sjá eiginkonu sína
á Montreux Jazz Festival en gaf
ekki færi á viðtali við fjölmiðla.
Interpol hefur gefið út hand-
tökuskipun á Polanski í 188 lönd-
um. Bandarísk yfirvöld eru að
reyna að fá hann framseldan svo
hægt sé að dæma hann fyrir að
hafa haft mök við stúlku undir
lögaldri árið 1977. - ls
Polanski laus úr stofufangelsi:
Fór á tónleika
hjá konunni
DÝRALÍF Í ár hafa fleiri lundar en áður
hætt að sinna eggjum sínum vegna
fæðuskorts. Þetta segir Erpur Snær
Hansen, sviðsstjóri vistfræðirannsókna
hjá Náttúrustofu Suðurlands. Lunda-
pysjur eru mjög háðar sandsílaseiðum
fyrstu vikurnar. Hafrannsóknastofnun-
in hefur nýlega lokið mælingum á sand-
sílastofninum.
„Meginniðurstaðan er sú að nýliðun í
sandsílastofninum síðustu tveggja ára er
ekki að skila sér í nægilega miklum mæli
til að halda við stofninum,“ segir Valur
Bogason, hjá Hafrannsóknastofnun í Vest-
mannaeyjum. Hann var leiðangursstjóri í
sandsílaleiðangri sem lauk á fimmtudag.
Farið hefur verið í sandsílaleið-
angur til að skoða breytingar í stofn-
stærð síla og afla upplýsinga um styrk
árganga hjá sandsílum síðustu fimm
ár. Fjórir staðir hafa verið skoðaðir;
Breiðafjörður, Faxaflói, Vestmanna-
eyjar og við Vík og Ingólfshöfða.
„Ástand sandsílastofnsins er skást í
Faxaflóanum.“
Sandsíli eru mikilvæg fæða sjófugla,
fiska og hvala. Sandsílastofninn nú er
að uppistöðu til frá árinu 2007 og hefur
sá árgangur verið ríkjandi síðustu
þrjú árin að sögn Vals. Hann segir til
dæmis lundapysjur háðar sandsílaseið-
um fyrstu vikurnar. - mmf
Nýjar mælingar sýna slaka nýliðun í sandsílastofninum við Íslandsstrendur :
Færri lundar sinna eggjunum sínum
FÆÐA FUGLA Sandsíli eru mjög mikilvæg fæða fyrir lunda.
ROMAN POLANSKI Ljósmyndarar sátu
fyrir leikstjóranum þegar hann mætti á
tónleika hjá eiginkonu sinni í Montreux.
NORDICPHOTOS/AFP
Tekinn á rúmlega 140
Tíu bílstjórar voru teknir fyrir of hrað-
an akstur af lögreglunni á Sauðár-
króki um helgina. Sá sem hraðast ók
var tekinn á 145 kílómetra hraða og
má hann búast við um 70.000 króna
sekt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MINKUR Í BÚRI Minkaskinnin eru seld til Danmerkur. Verðið hefur hækkað töluvert eftir fall íslensku krónunn-
ar og nú fást um sjö þúsund krónur fyrir hvert skinn.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 16.07.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,1078
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,888 122,46
187,51 188,43
158,1 158,98
21,215 21,339
19,679 19,795
16,705 16,803
1,3968 1,405
184,42 185,52
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Taktu bollur með í ferðalagið!
www.ora.is