Fréttablaðið - 19.07.2010, Blaðsíða 20
19. JÚLÍ 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
H
ellulagnir fela í sér útlagningu á hellum, steyptum eða
náttúrulegum. Mikilvægt er að hellur séu valdar með til-
liti til þess álags sem á svæðinu verður, til dæmis hvort
um sé að ræða umferðargötu, innkeyrslu eða göngustíg. Í
dag er úrval steinsteyptra hellna mikið og gæði framleiðslunnar í
flestum tilfellum góð. Á Íslandi er ekki mikið um að náttúrugrjót
sé notað í hellulagnir en það hefur þó færst í vöxt á síðustu árum.
Sem dæmi má nefna hraun-, granít- og basaltflísar, brústeina- og
oddsteinalagnir.
Mikilvægt er að vel sé hugað að undirbúningi og undirbyggingu.
Best er að mæla upp svæðið, leggja út snúrur og gera sér grein
fyrir hæð fyrirhugaðs yfirborðs með tilliti til nærliggjandi svæða
og mannvirkja. Tryggja þarf að vatn eigi greiða leið um yfirborð-
ið og í réttar áttir, til dæmis í niðurföll. Algengt viðmið er að halli
á yfirborði sé lágmark tveir sentimetrar á hvern metra. Í flestum
tilfellum er nauðsynlegt að jarðvegsskipta undir hellulagnir, til
að tryggja burð og hindra frostlyftingar. Áður en það er gert þarf
að kanna hvort lagnir liggi undir graftrarsvæðum og taka tillit til
þeirra við útgröft. Þykkt og uppbygging burðarlagsins fer eftir því
álagi sem á svæðinu verður. Algengt er að jarðvegsskipti séu frá
50-100 sentimetrar, háð jarðvegi og álagi. Í burðarlag þarf að nota
efni sem þjappast vel og verður ekki fyrir frostáhrifum, til dæmis
grófa grús. Grúsina þarf að þjappa með jarðvegsþjöppu, lagskipt í
um það bil 20 sentimetra lögum. Þegar grús hefur verið sett í réttar
hæðir er svokölluðum hellusandi jafnað yfir svæðið og hann þjapp-
aður. Algengt er að hellusandur sé hafður í um það bil fimm senti-
metra lagþykkt (þykkari þegar snjóbræðsla er lögð undir hellur). Til
að slétta hellusandinn í réttar hæðir eru yfirleitt notaðir leiðarar, til
dæmis járn-vatnsrör sem eru stillt af í grafin niður í samræmi við
áður mældar og útsettar hæðir. Yfir leiðarana er síðan dregin rétt-
skeið sem tryggir að yfirborðið verði jafnt og í samræmi við hæð-
arsetningar. Þessi aðgerð er yfirleitt kölluð „straujun“ af fagmönn-
um. Sé um beina hellulögn að ræða er yfirleitt settar upp stýrilínur
til að tryggja að lögnin verði bein og hornrétt. Hellur má leggja með
ýmiskonar mynstri, þó háð hellugerð. Gæta þarf þess að bil, einnig
kallað fúga, sé á milli hellna sem eykur styrk og kemur í veg fyrir að
brotni upp úr köntum. Fyllt er í fúgur með svokölluðum fúgusandi.
Til að tryggja styrk og endingu hellulagnar þarf yfirleitt að steypa
meðfram köntum og gott er að ljúka verkinu á að þjappa yfir svæð-
ið með léttri jarðvegsþjöppu.
Nánar um hellulagnir á www.meistari.is. Garðurinn að Merki í Fnjóska-
dal ber glöggt merki um iðju-
semi og vandvirkni eigend-
anna, Óskar Helgadóttur og
Stefáns Tryggvasonar. Innan
um ræktarlegan gróðurinn
leynist margt sniðugt.
Ósk er við slátt nærri húsinu en
leggur frá sér ljáinn. „Þetta er
eins og að berjast við vindmyllur,
sprettan er svo mikil,“ segir hún
brosandi. Bendir á forláta sláttu-
vél skammt frá sem gagnast ekki
í svona miklu grasi.
Merki stendur á landamerkj-
um Hallgilsstaða og Sólvangs og
dregur nafn sitt af því. Þarna
byggðu þau Ósk og Stefán árið
1995 og byrjuðu fljót-
lega að forma garð-
inn. „Þá fannst mér
þetta vera óendanleg vinna,“ rifj-
ar Ósk upp. „Við fórum marg-
ar ferðir að ná okkur í grjót út í
Flateyjardal og austur í Aðaldals-
hraun. Ég man að vinkona mín
sagði við mig þegar við vorum að
byrja. „Mundu bara, Ósk mín, að
trén vaxa,“ og ég hugsaði. Já, já,
á hundrað árum! en svo er þetta
ótrúlega fljótt að gerast þegar
sprettan fer í gang.“
Í hlíðinni fyrir ofan heim-
ilisgarðinn er minningarreit-
ur um föðurbróður Stefáns sem
hafði lært skógrækt í Noregi en
fórst ungur af slysförum. Skóg-
urinn veitir gott skjól
en myndar líka
skafla að vetr-
inum, að sögn
Óskar.
Stefán hefur smíðað tvö lítil
burstahús hvort í sínum enda
garðsins og fígúrur málaðar á
fjörugrjót af Ósk og dótturinni
Sigurbjörgu Örnu setja þar sinn
svip. Einnig, hlóðapottar, mjólk-
urbrúsar og hestasláttuvél. „Gam-
alt járnadrasl sem aðrir henda,
það hirði ég,“ segir Ósk hlæjandi.
Kveðst hafa annað verðmætamat
en almenningur og ábyggilega
vera uppi á vitlausum tíma. „Mér
finnst ekkert gaman að eiga krist-
al en ég hef rosalega gaman af því
að eiga gamalt dót.“ Garðvinnan
er henni líka að skapi. „Þegar dag-
urinn er búinn og allt eðlilegt fólk
fer inn að hvíla sig finnst
mér gott að dunda í
garðinum,“ segir
hún. „Það tæmir
hugann og hreins-
ar sálina.“ - gun
Stefán og Ósk baða sig í kvöldsólinni sem skín gegnum Víkurskarðið.
Mörg handtök liggja að baki garðinum í Merki þar sem nostrað er við hvern hlut. MYNDIR/GUN
Ættum við að koma í smá göngutúr?
Tröllin virða fyrir sér búsældina.
„Gamalt járnadrasl sem aðrir henda, það hirði ég,“ segir Ósk.
Gaman að gömlu dóti
GARÐYRKJA & UMHVERFIÐ
MAGNÚS BJARKLIND GARÐYRKJUTÆKNIR
Um hellulagnir