Fréttablaðið - 19.07.2010, Page 34
18 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
PONDUS
KYNNIR:
Þungavigtar-
boxarar lesa
frumsamin ljóð!
Það sem Igor
skortir í gáfum
bætir hann
upp í heilum.
Tík! Tík! Tík! Tík!
Takk!
Þér blæðir! Þér
blæðir! Kveðja,
Gunnar!
Blrgh
Blarf umpf
Blarghghff
blarghh
Í NÆSTU VIKU:
Gamlar konur
lesa erótískar
skáldsögur!
Hann strauk
henni blítt
og hvísl-
aði: „voff
voff!“
Það verða
450 krónur.
Hvað
heitirðu?
Palli.
Of margir
stafir. Í dag
heitirðu
„Bó“
Ha?
Nafnið þitt er of langt
fyrir glasið þannig
að ég skrifaði „Bo“!
Skilurðu?
Ég fékk
Mó, en
þú?
Ég held að
við gefum
þjónustu-
stúlkum of
mikið vald.
Ertu enn þá í
vandræðum með
heimalærdóminn?
Ég virðist vera búinn að
gleyma öllu sem stafa-
karlarnir kenndu mér.
Vá. Ég veit. Mig dreymdi í nótt að
stafurinn B lamdi mig í
klessu.
Já.
Næsti!
Í pósthrúgunni sem beið mín eftir sum-arfrí gat að líta athyglisverða gjöf frá
Arion banka. Þar var á ferðinni Einka-
klúbbskort og bæklingur með nöfnum
fyrirtækjanna sem bjóða korthöfum upp
á alls konar tilboð. Þar kennir ýmissa
grasa, svo sem afsláttar hjá fjórhjóla- og
hestaleigu, gleraugna- og ísbúðum, keilu-
höllum og fjölda veitingastaða. Pitsu-
staðir eru þar nokkuð áberandi en
sveifli maður kortinu býðst til
dæmis líka dágóður afsláttur af
dýrindisréttum Rauða hússins
á Eyrarbakka. Það er nú ekki
ónýtt.
EKKI þurfum við hjónin að
sitja þar náföl því þökk sé
Arion banka get ég nú tekið eig-
inmanninn með mér í brúnkumeð-
ferð án þess að þurfa að greiða
aukalega fyrir hann. Maður-
inn verður þó eftir heima
dytti mér í hug að bregða mér
í vaxtarmótun sem bankinn
reddar mér nokkurra þúsund
króna afslætti af. Svoleiðis
trakteringar er nefnilega
aðeins fyrir konur. Í bæk-
lingnum fylgir þessu tilboði
ljósmynd þar sem klipið er
með töng í húðina á maga
ákaflega grannrar konu.
Þetta líkist því helst að fulltrúi spænska
rannsóknarréttarins sé að krefja hana
sagna, kannski um innihald síðasta skyr-
hrærings.
EKKI rugla vextinum sem þarna er mót-
aður saman við vextina sem koma á lánin
okkar. Það duga víst engar tengur á þá.
Einkaklúbbskortið frá Arion banka minn-
ir mig óþægilega á fjárhag háskólaár-
anna. Þá þótti einmitt mikill fengur af því
að vera í þessum klúbbi og gott ef ekki
svolítil upphefð. Nema ég hafi oftúlk-
að nafnið á honum. Bankahrunið skaut
sumum okkar einmitt að nokkru leyti
aftur til háskólaáranna. Maður hefur
þurft að velta hverri krónu fyrir sér á
nýjan leik og reyna að stramma af lang-
anir sínar og þarfir.
ÞAÐ hefði verið gaman ef markaðsdeild
Arion banka hefði boðið upp á afslætti í
almennilegum matvörubúðum, barnafata-
verslunum eða til dæmis bókabúðum. Það
gæti nú verið búbót fyrir margar barna-
fjölskyldur í næsta mánuði þegar skólarn-
ir hefja göngu sína á nýjan leik. Gjafir
lýsa þeim sem gefur býsna vel um leið og
þær sýna hvaða mynd hann hefur af þeim
sem þiggur. Í ljósi þessa má þjóðin enn og
aftur þakka fyrir langlundargeðið sem
pestir, heyfellir og bankahrun hefur ekki
tekist að murka úr henni.
Ó, þessir heltönnuðu tímar