Fréttablaðið - 19.07.2010, Page 40
24 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
KEFLAVÍK 0-2 BREIÐABLIK
0-1 Kristinn Steindórsson (72.)
0-2 Alfreð Finnbogason (86.)
Keflavíkurvöllur, áhorf.: 14.411
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr. (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–12 (8–3)
Varin skot Ómar 3 – Ingvar 8
Horn 3–8
Aukaspyrnur fengnar 11–5
Rangstöður 6–3
Keflavík 4–4–2 Ómar Jóhannsson 5 - Alen
Sutej 6 (82., Sigurður Sævarsson -), Haraldur Freyr
Guðmundsson 6, Bjarni Hólm Aðalsteinsson 6,
Brynjar Guðmundsson 5 - Paul McShane 5, Hólmar
Örn Rúnarsson 6, Magnús Sverrir Þorsteinsson 5,
Jóhann Guðmundsson 6 (77., Ómar Sigurðsson -)
- Guðmundur Steinarsson 6, Hörður Sveinsson 6
(77., Magnús Matthíasson -).
Breiðablik 4-2-3-1 *Ingvar Kale 8 - Árni
Gunnarsson 6, Kári Ársælsson 6, Elfar Freyr
Helgason 6, Jökull Elísabetarson 5 - Finnur Orri
Margeirsson 6, Kristinn Jónsson 6 - Haukur
Baldvinsson 5 (64., Andri Yeoman 6), Alfreð
Finnbogason 7, Kristinn Steindórsson 7 (84., Olgeir
Sigurgeirsson -) - Guðmundur Pétursson 6 (64.,
Arnór Sveinn Aðalsteinsson 6).
Framherjinn Stefán Þórðarson reif óvænt fram skóna um helgina
er ÍA sótti HK heim í Kópavog. Þetta var fyrsti leikur Stefáns fyrir
ÍA í rúm tvö ár en hann hafði áður lýst því yfir að hann væri búinn
að leggja skóna á hilluna.
„Þórður þjálfari hringdi í mig daginn fyrir leik og bað mig
um að redda sér. Það vantaði marga leikmenn í hópinn
og lítil reynsla á bekknum. Þar sem ég var staddur á
Símamótinu í Kópavogi var það sjálfsagt mál að bjarga
honum. Ég þurfti ekkert að fara til þess að spila,“
sagði Stefán léttur í blíðviðrinu í Kópavogi.
„Það var talað um að ég myndi spila svona 15
mínútur enda er Hjörtur ekki alveg í formi til þess að spila
í 90 mínútur. Tala nú ekki um þar sem við vorum manni
færri allan leikinn. Hjörtur átti síðan stórleik og spilaði sinn
langbesta leik í sumar.
Ég tók svo hans stöðu og verð að viðurkenna að það
var mjög gaman að koma aftur á völlinn.“
Stefán segist ekki vera í neitt sérstaklega góðu formi enda
æfir hann ekki að staðaldri. Hann segist detta inn á einstaka
æfingu hjá Skagamönnum enda erfitt að hætta algjörlega
að sparka í bolta.
„Það hefur verið mikil pressa á mér að vera með og
sérstaklega þar sem það gekk illa til að byrja með. Ég
er beðinn daglega um að koma aftur. Ég reikna ekki
með því að spila meira í sumar en ég hef lært það af
reynslunni að maður á aldrei að segja aldrei. Það er
því best að segja sem minnst,“ sagði Stefán og hló
við.
„Það er vissulega ekki auðvelt að halda sig frá
þessu og mér finnst gaman að mæta á æfingar. Við
sjáum bara hvað setur en eins og ég segi er ólíklegt
að ég spili meira.“
STEFÁN ÞÓRÐARSON: TÓK ÓVÆNT FRAM SKÓNA ÞEGAR ÍA HEIMSÓTTI HK Í KÓPAVOGINN
Reikna ekki með því að spila meira í sumar
> Stjarnan fer til Grindavíkur
Einn leikur fer fram í Pepsi-deild
karla í kvöld er Stjarnan sækir
Grindavík heim. Grindvíkingar eru
í næstneðsta sæti deildarinnar
og þurfa sárlega á sigri að halda.
Liðið mun mæta til leiks með tvo
nýja leikmenn og verður áhugavert
að sjá hvernig þeir koma út fái þeir
að spila. Stjarnan er í sjöunda sæti
deildarinnar og þarf sárlega á sigri
að halda ætli liðið sér að vera með í
pakkanum í efri hluta deildarinnar.
Hásteinsvöllur, áhorf.: 852.
ÍBV Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–7 (8–6)
Varin skot Albert 6 – Hannes 7
Horn 5–6
Aukaspyrnur fengnar 8–11
Rangstöður 2–5
FRAM 4–4–2
Hannes Halldórsson 6
Sam Tillen 6
Kristján Hauksson 5
Jón Orri Ólafsson 6
Joe Tillen 6
(63., Ívar Björns. 6)
(90., Daði Guðm. -)
Almarr Ormarsson 7
Halldór H. Jónsson 6
Jón Eysteinsson 7
Tómas Leifsson 6
Jón Guðni Fjóluson 6
Hjálmar Þórarinsson 6
(68., Guðm. Magnú. 6)
*Maður leiksins
ÍBV 4–5–1
Albert Sævarsson 7
Matt Garner 7
*Rasmus Christia. 8
Eiður Sigurbjörns. 7
Þórarinn Valdimars. 8
(80., Anton Bjarna. -)
Finnur Ólafsson 7
Tony Mawejje 6
Ásgeir A. Ásgeirsson 6
(77., Yngvi Borgþ. -)
Arnór Eyvar Ólafs. 6
Tryggvi Guðmunds. 6
Danien Warlem 7
(68., Eyþór Birgis. 6 )
1-0 Danien Justin Warlem (65.)
1-0
Jóhannes Valgeirsson (7)
Staðan í Pepsi-deild karla:
Breiðablik 12 8 2 2 28-13 26
ÍBV 12 8 2 2 19-9 26
FH 12 5 4 3 21-18 19
Keflavík 12 5 4 3 12-13 19
Valur 12 4 6 2 20-18 18
Fram 12 4 5 3 18-17 17
Fylkir 11 4 3 4 23-22 15
Stjarnan 11 3 4 4 20-19 13
KR 11 3 4 4 17-18 13
Selfoss 12 2 2 8 15-26 8
Haukar 12 0 7 5 15-25 7
Grindavík 11 2 1 8 11-21 7
FÓTBOLTI Einn leikur fór fram í
Pepsi-deild karla á laugardag er
Fram sótti ÍBV heim á Hásteins-
völl. ÍBV gefur ekkert eftir í
toppbaráttunni og lagði Fram 1-0
með marki Suður-Afríkumanns-
ins Danien Justin Warlem.
„Ég er gífurlega sáttur við leik
liðsins. Það var enginn sem bar
af en allir stóðu sig vel,“ sagði
kátur þjálfari ÍBV, Heimir Hall-
grímsson.
„Það er mikil stemning í lið-
inu og það eru í raun engin brögð
á bak við það. Strákarnir sjá um
það mikið sjálfir. Bæði þeir sem
eru inni á vellinum og þeir sem
eru utan vallar.“
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari
Fram, var ekki nógu sáttur.
„Þetta var leikur sem við áttum
aldrei að tapa. Fyrri hálfleikur
einkenndist af því að ÍBV var að
kýla boltann mikið fram og við
einfaldlega náðum ekki að nýta
okkur plássið sem skapaðist þá á
milli varnar og miðju.“ - vsh
Pepsi-deild karla:
ÍBV á flugi
FÖGNUÐUR Eyjamenn eru hreinlega
óstöðvandi þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GOLF Það var aldrei mikil spenna
á lokadegi Opna breska meistara-
mótinu í golfi í gær. Suður-Afríku-
maðurinn Louis Oosthuizen sýndi
að hann er með stáltaugar og gaf
aldrei færi á sér á lokadeginum
á St. Andrews. Á endanum vann
hann öruggan sjö högga sigur á
mótinu.
Hann fékk aðeins tvo skolla á
lokadeginum en á móti kom einn
örn og einn fugl. Hann lék loka-
daginn á 71 höggi en hina hringina
þrjá lék hann á undir 70 höggum.
Paul Casey gerði sitt besta til þess
að elta Oosthuizen, spilaði djarft
golf sem gekk ekki upp. Hann
missti því á endanum af öðru sæt-
inu í mótinu til Lee Westwood.
„Þetta er algjörlega ótrúlegt,“
sagði Oosthuizen en hann var í 54.
sæti á heimslistanum fyrir mótið.
Hann fékk tæpar 160 milljónir
fyrir sigurinn í mótinu.
„Ég mun líklega ekki átta mig
á þessu afreki fyrr en síðar í vik-
unni. Mér fannst ég spila vel alla
dagana og það var lykilatriði hjá
mér að vera rólegur og yfirveg-
aður. Eina sem upp á vantaði var
að spila alla hringina án þess að
fara í glompu eins og Tiger gerði
árið 2000,“ sagði Oosthuizen sem
var ekki fjarri því en hann fór í
glompu á 14. holu í gær.
Tiger Woods komst aldrei
almennilega í gang á mótinu eftir
að hafa byrjað vel fyrsta daginn.
Hann mætti til leiks með nýjan
pútter en spilaði lokadaginn með
gamla pútternum.
„Mér fannst ég aldrei ráða
almennilega við hraðann á púttun-
um þannig að ég fór aftur í gamla
pútterinn. Ég hef sjaldan eða
aldrei púttað eins illa og á þessu
móti. Ég þrípúttaði níu sinnum
þannig að eðlilega er ég ekki ofar-
lega,“ sagði Tiger en hann þakk-
aði áhorfendum sérstaklega fyrir
góðar móttökur. - hbg
Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen vann óvæntan en afar öruggan sigur á Opna breska í golfi:
Lykilatriði að vera rólegur og yfirvegaður
MEISTARINN Louis Oosthuizen er
hér með silfurkönnuna eftirsóttu.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI „Það er gott að vera kom-
inn á toppinn aftur en ÍBV er á ein-
hverju svaka skriði og við verðum
að halda í við þá til að halda okkur
við toppinn, svakalega sætt að
sigra hér í Keflavík,“ sagði Kári
Ársælsson, fyrirliði Breiðabliks,
sáttur eftir sigurinn á Keflavík í
gær.
„Við vissum það að við þurftum
að sigra þennan leik þar sem Eyja-
menn unnu sinn leik. Þetta var
svona vinnusigur og við sýndum
mikinn karakter en ég veit ekki
hvort þreytan hafi setið í mönnum
eftir ferðalagið um daginn. Við
töpuðum fyrir þeim í fyrri umferð-
inni og var því mjög sætt að mæta
hér og svara fyrir það með sigri,”
sagði Kári en hann segir góða til-
finningu að vera á toppnum og að
þetta sé eitthvað sem hann gæti
auðveldlega vanist.
„Það er gaman að vera á toppn-
um og Breiðablik hefur aldrei verið
á toppnum. Það er virkilega góð
tilfinning og hægt að venjast því
alveg auðveldlega. Það var mark-
miðið fyrir mót að enda sem meist-
arar og við ætlum að vinna þetta
mót,“ sagði fyrirliðinn ákveðinn í
leikslok.
Haraldur Freyr Guðmundsson,
fyrirliði Keflavíkur, var ekki eins
ánægður og Kári en hann segir
titilvonir liðsins orðnar að engu
eftir tapið í gær.
„Við erum greinilega ekki með
þetta topplið sem við héldum og
verðum bara að fara sætta okkur
við það að vera í einhverju miðju-
hnoði. Þegar það er jafnt mót þá
er sjö stiga forskot ansi gott for-
skot,“ sagði Haraldur svekkur í
leikslok.
„Við verðum að vinna okkur
úr þessum vandamálum sem eru
greinilega að skora mörk, það sjá
allir sem mæta á leiki. Þetta er
auðvitað ekkert búið og fullt eftir
af þessu móti en það er bara næsti
leikur sem telur og við verðum
bara að þjappa okkur saman og
gíra okkur upp í þann leik, þannig
virkar þetta,“ sagði Haraldur
Freyr fyrirliði frekar svekktur
enda er Keflavík að missa Breiða-
blik fram úr sér.
Eftir góða byrjun hafa Keflvík-
ingar gefið eftir í toppbaráttunni.
Vandamál liðsins er sem fyrr að
skora mörk og það kom í bakið á
þeim í gær.
Blikar að sama skapi eflast við
hverja raun. Eftir að liðið braut
þann múr að komast á toppinn
hefur ekkert verið að trufla Kópa-
vogsliðið sem sýnir sífellt meiri
þroska og yfirvegun í sínum leik.
Þessu Blikaliði eru allir vegir
færir í sumar. - rog
Blikar flugu beint aftur á toppinn
Breiðablik skellti sér aftur í toppsæti Pepsi-deildar karla er liðið skellti Keflavík, 0-2, í Bítlabænum. Bæði lið
fengu sín færi en Blikar nýttu sín á meðan Ingvar Kale varði allt sem kom á mark Kópavogsliðsins.
ÖLL SUND LOKUÐ Hörður Sveinsson og
sóknarmenn Keflavíkur náðu ekki að
skora í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI