Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 13
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 BLÓMAVASAR þurfa alltaf að vera hreinir þegar blóm eru sett í þá því lítils háttar óhreinindi geta stíflað rásirnar í blómaleggjunum. Ef það gerist deyja blómin strax og veita því ekki eins mikla gleði. „Rjúpur eftir Braga Ásgeirsson er fyrsta myndin sem við hjónin eign- uðumst og hún hefur fylgt okkur alla tíð. Bragi málaði hana eftir jólin 1967 og þetta er afgangurinn af jóla- steikinni,“ segir Anna Leósdóttir og bendir á mynd fyrir ofan borðstofu- skápinn. „Á þessum árum var Bragi mágur mannsins míns sem er smið- ur og vann í hundrað klukkustundir heima hjá Braga. Þetta voru vinnu- launin.“ Þannig er sagan bak við þessa skondnu mynd en skyldi þeim hjón- um strax hafa þótt hún falleg? „Ég var ekki alveg sátt í byrjun því ég vildi heldur peninginn, við vorum dálítið illa stödd fjárhagslega á þess- um árum,“ viðurkennir Anna. „En ég er ekki sama sinnis í dag því ég elska þessa mynd og er mjög fegin að við fengum ekki greitt í pening- um. Þeir væru sko löngu farnir.“ Við hliðina á Rjúpum eru tvær myndir eftir Erró sem Anna kveðst hafa fengið í arf eftir móðursyst- ur sína. „Þær komu á okkar heim- ili ári á eftir myndinni hans Braga þannig að þær hafa verið lengi hjá okkur líka,“ segir Anna og lýsir í lokin sögu tignarlegs fálka eftir Guðmund frá Miðdal sem situr á skápnum og starir hvössum augum fram í stofu. „Fálkinn er úr búi afa míns og ömmu sem ólu mig upp og hann endaði semsagt hjá mér.“ Sjálf vinnur Anna við listsköpun og er með sýningu í Kaffi Hafnar- firði að Strandgötu 29 sem reyndar er að ljúka 27. þessa mánaðar. Hún kveðst búin að mála í 26 ár og um hennar sjöundu sýningu sé að ræða. Hins vegar er ljóðabókin Skúm sem hún gaf út í tilefni sýningarinnar sú fyrsta í röðinni. Þar birtast rúm- lega fimmtíu ljóð sem túlka má sem minningabrot úr lífi hennar. gun@frettabladid.is Er fegin að við fengum ekki greitt í peningum Fagurkerinn Anna Leósdóttir á listmuni sem hafa fylgt henni lengi. Sjálf málar hún líka og yrkir. Hún er með sýningu í Kaffi Hafnarfirði og hefur þar til sölu sína fyrstu ljóðabók sem heitir Skúm. Anna á myndir og muni sem eflaust veita henni innblástur í eigin listsköpun. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA SUMAR ÚTSALA Gerið gæða- og verðsamanburð 20-50% AFSLÁTTUR Lök, hlífðardýnur, sængurverasett, heilsukoddar, viðhaldskoddar, íslenskir PU leðurgaflar, náttborð, útlitsgallaðar dýnur og fleira. 6 mán aða vaxtal ausar greiðs lur SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900 ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900 Ný se nding SAGA OG ÞÓR Hágæða heilsudýnur VALHÖLL/FREYJA Góð rúm á frábæru verði Ný sending Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900 ÚTSALA Opið mánud. – föstud. frá kl 11 – 18 Lokað á laugardögum Þú kaupir 2 fl íkur og færð þriðju fl íkina FRÍTT með Sú ódýrasta fylgir frítt með 40%50% Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is Af vor og sumarlista Friendtex lista 2010 Lokað vegna sumarleyfa 3. og 4. ágúst A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.