Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 12
12 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is GEORGE BERNARD SHAW FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1856 „Sá sem eyðir lífi sínu í að gera mistök er ekki einungis virðingarverð- ari heldur hefur gert mun meira gagn en sá sem eyðir lífi sínu í ekki neitt.“ Shaw var írskur leikritahöf- undur sem samdi meira en 60 leikrit. Eitt það frægasta er án efa Pygmalion. MERKISATBURÐIR 1847 Líbería fær sjálfstæði. 1775 Bandaríska póstþjónust- an er stofnuð. 1788 Breskir landnemar setjast að í Sydney í Ástralíu og hefja þar með langvinn- ar deilur við frumbyggja landsins. 1945 Verkamannaflokkur- inn vinnur bresku þing- kosningarnar og tekst að koma Winston Churchill frá völdum. 1983 Einar Vilhjálmsson setur Íslandsmet í spjótkasti þegar hann kastar 90,66 metra og sigrar á úrvals- móti Norðurlanda og Bandaríkjanna. 1992 Teygjustökk er reynt í fyrsta sinn á Íslandi. „Hótel Djúpavík, góðan dag!“ er svar- að bjartri röddu í símann. Þar reynist vera hótelstýran sjálf, Eva Sigurbjörns- dóttir. Hún er snarlega beðin um smá- spjall á tímamótasíðu þar sem hótelið er tuttugu og fimm ára á þessu ári og verður fúslega við því. Hún rifjar fyrst upp hvernig ævintýrið byrjaði. „Við bjuggum í Kópavogi um 1980 þegar Ásbjörn Þorgilsson eiginmað- ur minn heyrði það í fréttum að Djúp- avík væri að fara í eyði. Hann lang- aði að sjá staðinn áður en allir færu í burtu og kom hér haustið 1982. Það varð kveikjan að öllu saman því síðar var honum boðin gamla síldarverk- smiðjan til kaups. Við skelltum okkur á hana og datt í hug að fara þar í fisk- eldi sem ekkert varð svo af. En stað- urinn heillaði og þegar við fórum að dvelja hér fundum við að það vantaði einhverja þjónustu fyrir ferðamenn svo úr varð að við keyptum Kvenna- braggann 1984 og opnuðum hótel þar 1985 með átta tveggja manna herbergj- um. Svo vorum við hér yfir jól og ára- mót 85/86. Þá var staðurinn eiginlega búinn að gleypa mig með húð og hári svo úr varð að ég hætti sem leikskóla- kennari fyrir sunnan. Við ákváðum að selja íbúðina okkar í Kópavogi og vinnuvélaverkstæði Ásbjörns. Með því að fá líka meiri lán hjá Byggðastofn- un tókst okkur að merja þetta og hér erum við enn.“ Nú hafa þau Eva og Ásbjörn svefn- pláss fyrir 34 gesti í þremur húsum á staðnum. Líflegt er yfir sumarið að sögn Evu. „Það var brjálað að gera í fyrra, aðeins gloppóttara fyrri part sumars í ár en nú er fullt hjá okkur flestar nætur. Það er mikill fjöldi gesta sem gengur hér um dags daglega og sum borðin í veit- ingasalnum þarf að tví- og þrísetja á kvöldin.“ Eva segir ýmsa viðburði hafa verið í sumar í tilefni afmælisársins. Hún telur upp tónleika með Svavari Knúti og Kristjönu Stefáns, sýninguna 25 sem listafólkið Smári Kristinsson og Nina Ivanova á Ísafirði héldu til heið- urs hótelinu og ljósmyndir Boga Leikn- issonar frá Djúpavík og nágrenni sem hanga uppi núna. Hún segir Djúpa- víkurdaga svo verða á sínum stað um miðjan ágúst með tónleikum, varðeldi og hlaðborði að vanda. Verksmiðjan á líka stórafmæli að sögn Evu. Hún fór í gang 7. júlí 1935 svo hún er 75 ára. Þar er listsýning á vegum Hlyns Hallssonar og Jónínu Haraldsdóttur sem hefur yfirskriftina Áfram með smjörlíkið. Einnig sýning- in Pictures and their sounds sem er myndabók með viðeigandi hljóðum. „Við erum af veikum mætti að gera verksmiðjuna upp,“ segir Eva. „Það eru farnar nokkrar milljónir í þökin og eiga sjálfsagt eftir að gera áfram. En um leið og búið er að bæta þau verð- um við búin að bjarga því sem er mest áríðandi. Vonandi endist okkur aldur til þess.“ gun@frettabladid.is HÓTEL DJÚPAVÍK: ER TUTTUGU OG FIMM ÁRA Í ÁR Okkur tókst að merja þetta og hérna erum við enn EVA SIGURBJÖRNSDÓTTIR HÓTELSTJÓRI „Það er mikill fjöldi gesta sem gengur hér um dags daglega,“ segir hún og er á fullu að skipuleggja Djúpavíkurdaga um miðjan ágúst. MYND/ÚR EINKASAFNI. Elskulegur faðir minn, Bjarni Jónsson, fyrrv. leigubifreiðarstjóri á Akureyri, lést þann 20. júlí sl. Útförin fer fram frá Höfðakapellu þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.30. Rósa Bjarnadóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Jón Salómon Jónsson, sjómaður frá Flateyri, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 19. júlí verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 28. júlí kl. 15.00. Ingibjörg Guðmundsdóttir Svandís Jónsdóttir Guðbjartur Guðbjartsson Valborg Jónsdóttir Grétar Arnbergsson Kristinn Þórhallsson Birna Jónsdóttir Garðar Sigurgeirsson Magnfríður Jónsdóttir Ólafur R. Jónsson Sólveig Jónsdóttir Björn Ágúst Jónsson Anna María Sigurðardóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Guðrúnar Sigríðar Jóhannesdóttur Blöndal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheim- ilisins Holtsbúð Garðabæ fyrir góða umönnun. Jóhannes Blöndal Maj Britt Pálsdóttir Jósep Blöndal Hedvig Krane Gunnar Blöndal Margrét Magnúsdóttir Guðmundur Blöndal Guðrún Blöndal Theódór Sigurðsson Lárus L. Blöndal Soffía Ófeigsdóttir Anna Bryndís Blöndal Jón Ásgeir Blöndal Lárus St. Blöndal Jónasson Íris Dröfn Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Erla Kristbjörg Garðarsdóttir, Sunnuflöt 8, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þ. 19. þ.m. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðju- daginn 27. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknar- og vinafélagið Bergmál, reikn. 117-26-1616, kt. 490294-2019. Ágúst Karlsson Kristín Jóhanna Ágústsdóttir Ásta Karen Ágústsdóttir Ágúst Karl Ágústsson Katrín Jónsdóttir Hekla Karen Pálsdóttir Elfa Sól Ágústsdóttir Gabríela Rós Ágústsdóttir MOSAIK Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Jón Eyjólfur Jónsson (1925 - 2007), eða Eyjólfur sund- kappi eins og hann var gjarnan kallaður, synti frá Kjalarnesi til Reykjavíkur, um 10 kílómetra leið, á þessum degi árið 1959. Það tók hann fjóra og hálfan klukkutíma að komast á leiðarenda. Eyjólfur var lögreglumaður og íþróttamaður sem vakti eft- irtekt á 6. áratug síðustu aldar fyrir ýmis afrek tengd sjósundi. Má þar nefna Drangeyjarsund 1957, frá Reykjavík til Akraness 1958, frá Reykjavík til Hafnar- fjarðar og Vestmannaeyja- sund 1959 og frá Hrísey til Dalvíkur 1960. Eyjólfur var einn af hvata- mönnum að stofnun Þróttar og var gerður að heiðurs- félaga íþróttafélagsins árið 1989. Þess má geta að um Eyjólf hefur verið skrifuð bókin Eyjólfur sundkappi: Ævintýraleg saga drengs af Grímsstaðaholtinu, sem Almenna bókafélagið gaf út árið 2004. HEIMILD: WWW.WIKIPEDIA.ORG ÞETTA GERÐIST: 26. JÚLÍ 1959 Eyjólfur sundkappi vinnur afrek

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.