Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 32
Mest lesið DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Óendanleg uppspretta skemmtunar! Úrval Útsýn býður upp á nýjung í haust og flýgur til Orlando í Bandaríkjunum! Orlando er fjölbreytt borg og einn af vinsælustu áfangastöðum heims fyrir fjölskyldur. Orlando hefur upp á að bjóða þekktustu skemmtigarðar heims, Disney World, Sea World, Universal Studios ásamt mörgum öðrum. Hægt væri að heimsækja nýjan skemmtigarð hvern dag vikunnar og þegar fólk hefur fengið fylli sína af þeim hefur Orlando upp á margt annað að bjóða og má segja að borgin bjóði upp á óendanlega möguleika til skemmtunar! Úrval af frábærum golfvöllum, söfnum og veitingastöðum. Þeir sem njóta þess að versla munu einnig geta svalað þorsta sínum í öllum þeim glæsilegu verslunarmiðstöðvum sem Orlando hefur uppá að bjóða, og ber þá helst að nefna Florida Mall, Premium Outlet og margar fleiri. Í boði verður fjölbreytt úrval gistinga á mjög hagkvæmu verði og staðsetning þeirra flestra gerir bílaleigubílinn óþarfan. Bókaðu núna á urvalutsyn.is og tryggðu þér þitt sæti! NÝT T! Alamo Vacation Homes Íbúð með 3 svefnherbergjum. Staybridge Suites Íbúð með 2 svefnherbergjum og morgunverði. Baymont Inn Herbergi með morgunverði. VERÐ FRÁ: VERÐ FRÁ: VERÐ FRÁ: m.v. 4 fullorðna og 2 börn Brottför: 9. október – 8 nætur m.v. 4 fullorðna og 2 börn Brottför: 9. október – 8 nætur m.v. 2 fullorðna og 2 börn Brottför: 9. október – 8 nætur 88.500 kr.* 97.600 kr.* 86.800 kr.* Sími 585 4000 Orland o Florida ferðir í o któber! SÓL BORGIR ÆVINTÝRI SKÍÐI GOLF ÍÞRÓTTIR Ferðaskrifstofa MEIRA Á urvalutsyn.is * Innifalið: Flug, flugvallarskattar og gisting. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Osment á Íslandi Leikarinn Haley Joel Osment, sem sló í gegn í hlutverki Cole Sear í kvikmyndinni The Sixth Sense, er staddur hér á landi ásamt vini sínum til að fagna útskrift sinni. Leikarinn sást meðal annars á Prikinu og á Kaffibarnum þar sem hann hlustaði á plötusnúðana Gísla Galdur og Benna B-Ruff þeyta skíf- um. Leikarinn var afskaplega hrifinn af tónlistinni sem plötusnúðarnir léku og fékk hann meira að segja leyfi hjá piltunum til að velja eitt óskalag og varð lagið Massage Situation með hljómsveitinni Flying Lotus fyrir valinu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var leikarinn afskaplega viðkunn- anlegur og lét hann lítið fyrir sér fara. Nýtt andlit á skjánum Heyrst hefur að búið sé að ganga frá ráðningu nýs spyrils í Gettu betur en Eva María Jónsdóttir mun ekki halda áfram í starfinu. Síðustu spyrlar hafa allir verið margreyndir sjónvarpsmenn en í þetta skiptið hefur nýgræðingur verið valinn í starfið. Sá mun vera 24 ára gömul stúlka að nafni Edda Hermanns- dóttir. Edda þessi hefur unnið undir Sigrúnu Stefánsdóttur, dagskrárstjóra sjónvarps, og var valin af henni til starfans. Edda er í hagfræðinámi við Háskóla Íslands og leiddi lista Röskvu í síðustu Stúdentaráðskosning- um. Edda á ekki langt að sækja sjónvarps- áhugann því hún er dóttir sjálfs Hemma Gunn sem stýrði þættinum árið 1987. - sm, kg 1 Harmi slegnir yfir slysinu 2 Maður skallaður í miðbænum 3 Þingmaður VG: Mun ekki heldur styðja ríkisstjórnina 4 Mikil ölvun á Mærudögum 5 Lýst eftir Jóni Helga 6 Ómar Ragnarsson tók lagið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.