Fréttablaðið - 26.07.2010, Blaðsíða 30
22 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. vanþóknun, 6. mjöður, 8. sauða-
garnir, 9. hafið, 11. tvö þúsund, 12.
högni, 14. stinga, 16. skammstöfun,
17. kopar, 18. örn, 20. grískur bókstaf-
ur, 21. óvild.
LÓÐRÉTT
1. þurft, 3. tveir eins, 4. gufuskip, 5.
angan, 7. ávöxtur, 10. andmæli, 13.
atvikast, 15. einsöngur, 16. ris, 19.
þófi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. svei, 6. öl, 8. vil, 9. rán, 11.
mm, 12. fress, 14. pikka, 16. þe, 17.
eir, 18. ari, 20. pí, 21. kala.
LÓÐRÉTT: 1. þörf, 3. vv, 4. eimskip,
5. ilm, 7. lárpera, 10. nei, 13. ske, 15.
aría, 16. þak, 19. il.
„Ég þurfti bara að hlaða símann einu sinni í
þennan eina og hálfa dag sem tökurnar stóðu
yfir,“ segir Isak Winther, grafískur hönnuður,
sem tók upp myndband við lagið Þriggja daga
vakt en það sem þykir óvanalegt við mynda-
bandið er að það var allt tekið upp gegnum
myndavél á síma.
„Ég er ánægður með útkomuna en við vild-
um búa til ákveðna stemmingu í kringum
lagið. Gera þetta svona aðgengilegra fyrir
fólk með því að nota þessa tækni. Sýna fólki
að það er ekkert mál enda flestir símar komn-
ir með flotta tækni sem hægt er að leika sér
með,“ segir Ísak og bætir við að myndbandið
hafi alltaf átt að vera ódýrt í framleiðslu. „Við
vildum ekki gera myndband í háskerpu með
óhreyfðum römmum heldur var það þetta
símamyndbandsútlit sem við vorum að sækj-
ast eftir. Gera eitthvað sem allir geta gert
sjálfir í sínum símum.“
Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir stuttu
er lagið Þriggja daga vakt samstarf hljóm-
sveitanna NýDönsk, Gus Gus og Hjaltalín en
sveitirnar munu koma fram á Akureyri um
verslunarmannahelgina á hátíð sem gengur
undir sama nafni.
„Við vorum alveg svakalega heppin að fá
Daníel Ágúst Haraldsson með okkur í lið en
hann leikur aðalhlutverkið í myndbandinu
ásamt nokkrum statistum, en hann er nátt-
úrulega öllu vanur,“ segir Ísak en þetta er
í fyrsta sinn sem hann tekur upp tónlistar-
myndband.
Í sjálfu myndbandinu eru dansandi krakkar
með munstraða kassa á hausnum í stóru hlut-
verki. „Við vöktum mikla athygli hvert sem
við fórum að taka upp enda ekki vanalegt að
sjá dansandi fólk með kassa á hausnum víðs
vegar um borgin. Þetta var mjög gaman,“
segir Ísak. - áp
Tók tónlistarmyndband upp á síma
MEÐ SÍMANN AÐ VOPNI Ísak Winther, graf-
ískur hönnuður, tók upp myndband við lagið
Þriggja daga vakt á venjulegan farsíma.
Bandaríski kvikmyndaframleið-
andinn Paula Wagner, sem hefur
unnið náið með Tom Cruise, er í
viðræðum við þá Richard Scobie
og Kristin Þórðarson um að taka
þátt í framleiðslu kvikmyndar eftir
handriti þeirra, 66 gráður norður.
„Þetta einfaldlega gerbreytir öllu
fyrir okkur og setur ákveðinn gæða-
stimpil á verkefnið sem við höfðum
ekki áður,“ segir Kristinn sem starf-
ar sem framleiðandi hjá Sagafilm.
Hann framleiðir einnig myndina
ásamt Richard og Edwinu Fork frá
Írlandi.
Wagner er stórlax í Hollywood
og hefur unnið í fjölda ára með
Tom Cruise. Til að mynda hefur
hún framleitt allar Mission Imp-
ossible-myndirnar, Valkyrie, War
of the Worlds og The Last Samurai.
„Við fórum á fund með Paulu í byrj-
un júní og höfum síðan verið í góðu
sambandi við hana. Paula er búin að
lesa handritið og er mjög hrifin af
því og í beinu framhaldi hófust við-
ræður við hana. Auk þess standa nú
yfir samningaviðræður við leikara
en ekki er hægt að gefa upp að svo
stöddu við hverja er verið að tala
við,“ segir Kristinn.
Handritið að 66 gráður norð-
ur var valið inn á Co-pro hátíðina
í Los Angeles í byrjun júní eins og
Fréttablaðið hefur áður greint frá.
Hátíðin er haldin af framleiðenda-
félagi Bandaríkjanna, The Prod-
ucers Guild of America, og eru
fimm erlend handrit valin á hverju
ári sem þykja hvað líklegust til að
hljóta náð fyrir augum samfram-
leiðenda í Bandaríkjunum. Margir
þekktir framleiðendur óskuðu
eftir fundum með Íslendingunum
og sýndi Wagner handritinu hvað
mestan áhuga.
66 gráður norður er spennutryllir
í anda Hitchcock-myndanna og The
Others, sem Wagner framleiddi.
Um 20 prósent myndarinnar verða
tekin upp hér á landi en afgangur-
inn á Írlandi. Stefnt er að því að
tökur hefjist næsta sumar í leik-
stjórn Egils Arnar Egilssonar, eða
Eagle Egilssonar, og verður þetta
fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd.
Framleiðsluáætlun hljóðar upp á um
fimm milljónir evra, eða tæpar átta
hundruð milljónir króna.
„Við erum að vinna í að púsla
þessu saman. Við vonumst eftir
því að það verði sæmilega stór
„casting“ skrifstofa í Bretlandi sem
aðstoði okkur við að finna leikara í
aðalhlutverkin,“ segir Kristinn.
Líklegt er að Íslendingar fari með
einhver aukahlutverk í myndinni
en stóru hlutverkin verða í hönd-
um þekktra erlendra leikara, enda
verður myndin öll á ensku.
freyr@frettabladid.is
KRISTINN ÞÓRÐARSON: ÞETTA GERBREYTIR ÖLLU FYRIR OKKUR
Framleiðandi Toms Cruise
í viðræðum við Íslendinga
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Paula Wagner ásamt Tom Cruise og eiginkonu hans Katie Holmes. Wagner og Cruise hafa unnið náið
saman á undanförnum árum. NORDICPHOTOS/GETTY
„Við erum góðir félagar og maður
lætur þetta ekkert á sig fá,“ segir
Erpur Eyvindarson rappari um
samstarf hans og söngvarans
Henrik Biering í laginu Keyrum-
ettígang en það hefur vakið
athygli að kapparnir eru hvor á
sínum endanum í pólitík. Erpur
er þekktur fyrir að liggja ekki á
sínum vinstri sinnuðum stjórn-
málaskoðunum á meðan Henrik
er sjálfstæðismaður.
„Já, ég reyni nú bara að kom-
ast hjá því að ræða um pólitík við
hann,“ viðurkennir Henrik sem er
að stíga sín fyrstu skref í tónlistar-
bransanum. „Ég hef áður gefið út
lagið íslenskt bagg, sem varð nokk-
uð vinsælt,“ segir Henrik en hann
er nýkominn heim úr námi í Dan-
mörku og stefnir í viðskiptafræði
í Háskóla Íslands í haust. „Ég ætla
mér að halda áfram í tónlistinni og
mun örugglega troða upp með Erpi
á einhverjum tónleikum í vetur.
Við erum góðir félagar og stjórn-
málaskoðanir skipta ekki máli“
Lagið, sem einnig er með söngv-
aranum Friðriki Dór, er unnið af
strákunum í Stop Wait Go og hefur
notið vinsælda upp á síðkastið. Það
mun hljóma á á væntanlegri plötu
Erps og á Pottþétt 53.
„Ég þekki alls konar fólk og
læt það ekki á mig fá þótt hann
sé með aðra skoðun en ég. Það
væri samt ekkert verra ef Henrik
mundi hætta þessu sjálfstæðis-
rúnki sínu,“ segir Erpur hlæjandi
og bætir við að fyrst Davíð Odd-
son og Þórarinn Eldjárn hafi getað
unnið saman í gamla daga, en þeir
voru saman með þætti á útvarps-
töðinni Matthildur, þá ættu þeir
Henrik ekki að vera í vandræðum
með sitt samstarf í tónlistinni. - áp
Félagar þrátt fyrir ólíkar skoðanir
KVIKMYNDIR PAULU
WAGNER:
■ Mission Impossible 1-4
■ The Last Samurai
■ War of the Worlds
■ Valkyrie
■ The Others
■ Vanilla Sky
■ Death Race
■ Elizabethtown
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
HÆGRI GEGN VINSTRI Henrik Biering og
Erpur Eyvindarson láta ólíkar stjórnmála-
skoðanir ekki hafa áhrif á sig.
L
A
U
G
A
R
D
A
G
F
Ö
S
T
U
D
A
G
S
U
N
N
U
D
A
G
DJ SEXY LAZER
PRESIDENT BONGO
Verzlunarmannahelgin
á Oddvitanum á Akureyri
Fatahönnuðurinn Una
Hlín Kristjánsdóttir
er stödd á Indlandi
þessa dagana þar
sem hún undirbýr
framleiðslu næstu
fatalínu sinnar,
en hún hannar
undir heitinu
Royal Extreme.
Ferð Unu Hlín-
ar til Indlands
hefur verið
ævintýri lík-
ust og hlaut
hún meðal annars einstaklega
fallegan sari að gjöf frá samstarfsfé-
lögum sínum. En sari er hefðbund-
ið klæði indverskra kvenna og
getur verið sérlega skrautlegt og
fallegt.
Una Hlín er einnig í hópi þeirra
íslensku fatahönnuða sem taka
þátt í Tískuvikunni í Kaupmanna-
höfn sem fram fer dagana 12. til
14. ágúst. Aðstandendur hátíðar-
innar hyggjast koma sér á spjöld
sögunnar með því að vera með
lengsta sýningarpall heims og
komast þannig í hóp Guinness
heimsmethafa. Strikinu verður
breytt í sýningarpall og munu tvö
hundruð fyrirsætur ganga eftir
götunni klæddar flíkum frá ýmsum
hönnuðum. Ekki er þó vitað til þess
að íslensku hönnuðirnir ætli að
taka þátt í þessum stórviðburði.
Hótelleik Radisson SAS hótelanna
er nú lokið og verður sigurvegari
keppninnar kynntur innan skamms.
Vinkonurnar Aníta Hafdís Björns-
dóttir og Ása Rán Einarsdóttir voru
á meðal þeirra Íslendinga sem létu
reyna á heppnina. Stúlkurnar seldu
allar eigur sínar fyrir jól
og eru nú á ferð um
heiminn og stunda
svifvængjaflug og
því hefði hótelgisting
komið sér vel. Þær
stöllur
fengu þó
ekki nógu
mörg
atkvæði
og
féllu
því úr leik.
- sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
VERSLUNARMANNAHELGIN
„Ég er að fara á þjóðhátíð, ætla
að reyna að djamma eitthvað
þar. Allir í vinahópnum bíða
spenntir. Þetta verður vonandi
geðveikt gaman hjá okkur eins
og í fyrra.“
Júlí Heiðar Halldórsson poppari.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IG
G
I