Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 2
2 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR Davíð, hvað segja pabbi og mamma og afi og amma? „Mamma er best og amma er toppurinn.“ Davíð Arngrímsson símsmiður starfar iðulega í fjarskiptamöstrum sem ná fleiri hundruð metra hæð.“ SPURNING DAGSINS F í t o n / S Í A Nánari upplýsingar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Borgarferð Barcelona 13. – 20. ágústVerð á mann í tvíbýli 92.900 kr. Aukagjald vegna einbýlis er 57.000 kr. Innfalið í verði: Flug, skattar og gisting með morgunverðarhlaðborði á Hotel Condado í 7 nætur. ATH. Missið ekki af þessari hagstæðu ferð. DÓMSMÁL Ákæra hefur verið gefin út á hendur rúmlega þrítugum manni sem játaði fyrr í sumar að hafa orðið karlmanni að bana í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum. Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ að morgni 8. maí. Flótlega beindist grunur að manninum sem nú hefur verið ákærður og var hann hnepptur í varðhald. Nokkru síðar játaði hann að hafa orðið manninum að bana. Hann sætir enn varðhaldi. Manninum hefur verið kynnt efni ákærunnar en hún hefur ekki verið birt honum. Þing- festingardagur hefur ekki verið ákveðinn, enda eru dómstólar í fríi um þessar mundir. - sh Banaði manni í Reykjanesbæ: Ákærður fyrir manndráp SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Akra- ness hefur samþykkt að minnka kjaraskerðingu bæjarstarfs- manna niður í 40 prósent af því sem ákveðið hafði verið. Breyt- ingin gildir frá næstu mánaða- mótum. Ennfremur var ákveðið að fela fjölskylduráði bæjarins að gera tillögur um endurskoðun á launa- skerðingu í grunn- og leikskólum með aukningu á þjónustu og starf- semi viðkomandi stofnana í huga. Ástæða breytinganna er bætt afkoma bæjarsjóðs. „Fyrst og fremst hafa útsvars- tekjur verið meiri en við höfðum áætlað,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, formaður bæjarráðs, sem kveður þetta góðs vita þótt hann ítreki að tíðindin merki ekki að kreppan sé yfirstaðin á Akra- nesi. Það hangi meðal annars á gengi stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga enda sé um helm- ingur starfsmanna þar búsettur á Akranesi. Launaskerðingin hafði að sögn Guðmundar verið misjöfn hjá starfsmönnum bæjarins. Laun undir 300 þúsund krónum hafi ekki verið skert en sumir tekið á sig um 15 prósent launaskerðingu. Sú skerðing minnki nú niður í um 6 prósent. Í greinargerð Jóns Pálma Páls- sonar, framkvæmdastjóra fram- kvæmdadeildar, kemur fram að afkoma Akraneskaupstaðar var mun betri í fyrra og það sem af er þessu ári en áætlanir gerðu ráð fyrir. Samtals í fyrra og fyrstu sex mánuði þessa árs er bærinn gerður upp með um 270 milljóna króna afgangi í stað rúmlega 180 milljóna króna halla eins og reiknað hafði verið með. Er þar þannig um að ræða 450 milljóna króna sveiflu til hins betra á átján mánuðum. Bæði rekst- ur inn sjá lf- ur og fjármagnsliðir hafa verið hagstæðari en ráð var fyrir gert. Samtals hefur reksturinn skilað um 360 milljóna króna afgangi á þessu tímabili í staðinn fyrir 106 milljóna króna afgangi. Og í stað- inn fyrir að fjármagnsliðir þýddu 311 milljóna króna mínus þá varð mínusinn tæplega 90 milljónir. Þess má geta að bæjarstjórn Akraness samþykkti í gær ráðn- ingarsamning við nýjan bæj- arstjóra, Árna Múla Jónasson. Hann mun fá 850 þúsund krónur í mánaðarlaun auk aksturspen- inga. Launin eru að sögn Guð- mundar hærri en hjá fyrrverandi bæjarstjóra. „Bæjarstjórastarf- ið á Akranesi var sennilega orðið lægsta launaða bæjarstjórastarf á landinu,“ segir Guðmundur. gar@frettabladid.is Akurnesingar afnema launalækkun að hluta Mun betri afkoma Akraneskaupstaðar í fyrra og á þessu ári en áætlað var leiðir til þess að launaskerðing á bæjarstarfsmenn minnkar 1. september í 40 prósent þess sem hún átti að vera. Nýráðinn bæjarstjóri fær hærri laun en forverinn. AKRANES Bæjarstarfsmenn á Akranesi fá hluta launa sinn til baka um næstu mán- aðamót. Formaður bæjarráðs þakkar það fyrst og fremst meiri útsvarstekjum en menn héldu að myndu skila sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GUÐMUNDUR PÁLL JÓNSSON NEYTENDUR Samtals seldust um 743 þúsund lítrar af áfengi í vínbúðum ÁTVR í síðustu viku, vikuna fyrir verslunarmannahelgi. Þetta er um 0,9 prósenta samdráttur frá vik- unni fyrir verslunarmannahelgina í fyrra, þegar um 750 þúsund lítrar seldust, að því er fram kemur á vef ÁTVR. Viðskiptavinum fækkaði einnig milli ára. Um 124 þúsund komu í verslanirnar í síðustu viku saman borið við 125 þúsund í sömu viku á síðasta ári. Föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi er enn sölu- hæsti dagurinn, þann dag komu um 43 þúsund manns í vínbúðirn- ar, ríflega þriðjungur þeirra sem keyptu áfengi í vikunni. - bj Samdráttur í sölu á áfengi: Seldu 743 þús- und lítra á viku ÁFENGI Hver viðskiptavinur ÁTVR í vik- unni fyrir verslunarmannahelgi keypti að meðaltali um það bil sex lítra af áfengi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR LÖGREGLUMÁL Innbrot var framið í hús í Reykjanesbæ aðfaranótt mánudags á meðan heimilisfólk svaf. Tölvu og stórum flatskjá var stolið úr húsinu, auk þess sem síma var stolið úr svefnherbergi. Í herberginu svaf kona ásamt tveimur börnum sínum. Lögregla telur að brotist hafi verið inn milli klukkan eitt og sjö um morgun- inn. Málið er óupplýst og er fólk sem hefur upplýsingar um málið beðið að hafa samband við lög- regluna í Keflavík. - þeb Innbrot í Reykjanesbæ: Stolið úr húsi meðan fólk svaf STANGVEIÐI Laxveiði í Elliðaánum er þegar orðin meiri en í allt fyrrasumar. Þetta kemur fram á vef Stanga- veiðifélags Reykjavíkur þar sem segir að í hádeginu á mánudag hafi veiddir laxar verið orðnir 880 talsins. Þá segir að í gegnum teljara hafi gengið 2.027 laxar og 68 silungar. Segir ennfremur að gera megi því skóna, ef allt sé eðlilegt og ekki tekið tillit til mögulegra affalla, að 2.283 laxar sé gengnir í Elliðaárnar nú þegar. Veiðin stendur út ágúst. - gar Gott sumar í Elliðaánum: Meiri veiði en í allt fyrrasumar Í ELLIÐAÁNUM Veiðin er komin í 880 laxa. Jóhanna fundar í Manitoba Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra átti í gær fund með Greg Selinger, forsætisráðherra Manitoba í Kanada. Manitoba hefur stutt sam- starf tengt íslenskri arfleifð á svæðinu. Jóhanna er í opinberri heimsókn. FORSÆTISRÁÐUNEYTI Fá umhverfisvottun Bæjarfélögin á Snæfellsnesi, sem árið 2008 fengu fyrst allra á heims- vísu sameiginlega Green Globe- umhverfisvottun, hafa nú formlega hlotið endurnýjaða umhverfisvottun samfélaga. Á vef Stykkishólms kemur fram að vottunin sé að þessu sinni undir merkjum Earth Check. SNÆFELLSNES ORKUMÁL Raforkuverð hefur verið hækkað hjá öllum orkusölum landsins. Landsvirkjun hækkaði raforku- verðið um 8,3 prósent þann 1. júlí og fylgdu aðrir í kjölfarið 1. ágúst. Þá hækkaði HS Orka verðið um 5,3 prósent, Fallorka 8,3 prósent og Orkubú Vestfjarða um 3 pró- sent. Þetta kemur fram á vef Orku- vaktarinnar. Aðeins er birt verð á almennum orkugjaldskrám. Sé hækkun á almennum gjald- skrám hjá helstu orkusölum landsins skoðuð frá upphafi árs- ins kemur í ljós að Fallorka hefur hækkað verðið um 8,2 prósent, HS Orka um 7,6 prósent, Orkubú Vest- fjarða um 3 prósent, Orkusalan um 8,3 prósent og Orkuveita Reykja- víkur um 5,3 prósent. Samkvæmt því er Orkubú Vestfjarða með hag- stæðasta verðið. Orkuvaktin segir líklegt að aðrar gjaldskrár hækki álíka mikið og hinar almennu. Þá vekur fyrirtækið athygli á því að líklegt sé að Orkuveita Reykjavíkur muni hækka verð á næstunni. - þeb Orkusalar hækka raforkuverð um þrjú til átta prósent: Allir hækka verð á rafmagni HELLISHEIÐARVIRKJUN Raforkuverð hefur hækkað um þrjú til rúmlega átta prósent á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNSÝSLA Embætti sérstaks sak- sóknara hefur ráðið tuttugu og tvo nýja starfsmenn til að rannsaka brot tengd bankahruninu og stefnt er að því að ráða tíu til tuttugu til viðbótar. Þá hefur Fjármálaeftirlit- ið ráðið sex starfsmenn og hyggst ráða aðra sex til viðbótar. Fjármálaeftirlitið auglýsti eftir starfsmönnum fyrr í sumar og bárust 175 umsóknir, þar af voru tuttugu lögfræðingar og 155 með viðskipta- og hagfræðimenntun. Sex voru ráðnir og eru þeir allir með viðskipta- eða hagfræðipróf. Á næstunni verða síðan sex ráðn- ir til viðbótar. Þegar ráðningum nýrra starfs- manna verður lokið, áður en þetta ár er úti, er gert ráð fyrir að starfsmenn FME verði um eitt hundrað en þeir voru sextíu og fimm þegar bankakerfið hrundi í október 2008. Embætti sérstaks saksóknara auglýsti einnig eftir nýjum starfs- mönnum fyrr í sumar og hvorki fleiri né færri en 470 umsókn- ir bárust, en flestir umsækjenda voru viðskipta- eða hagfræðing- ar. Tuttugu og tveir hafa nú verið ráðnir. Þar af eru níu lögfræðing- ar, sex með menntun á sviði við- skipta- og hagfræði og sjö lög- reglumenn. Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag að emb- ættið stefndi að því að bæta við sig tíu til tuttugu starfsmönnum til við- bótar í samræmi við það sem stefnt var að, en embættið gerði ráð fyrir að bæta við sig þrjátíu til fjörutíu nýjum starfsmönnum í heildina. Starfsmenn sérstaks saksókn- ara verða á bilinu sjötíu til átta- tíu þegar ráðningum nýrra starfs- manna lýkur. Áður hefur verið greint frá því að stefnt sé að því að öllum málum verði lokið hjá emb- ætti sérstaks saksóknara fyrir árs- lok árið 2014. - þþ Fjármálaeftirlitið og embætti sérstaks saksóknara ráða til sín fólk: Ráða 28 í ný rannsóknarstörf ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Embætti sérstaks saksóknara hefur gengið frá ráðningu 22 nýrra starfsmanna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.