Fréttablaðið - 04.08.2010, Síða 6
6 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
ORKUMÁL Framkvæmdastjóri
Magma Energy á Íslandi hafnar
alfarið ásökunum Bjarkar Guð-
mundsdóttur tónlistarmanns þess
efnis að fyrirtækið vilji eign-
ast allar orkuauðlindir á Íslandi.
Ummælin lét Björk falla í viðtali
við AFP fréttaveituna í Helsinki í
Finnlandi í gær.
„Þetta er algerlega fráleitt og
úr lausu lofti gripið,“ segir Ásgeir
Margeirsson, framkvæmdastjóri
Magma Energy á Íslandi. Hann
segir að kaup Magma á HS Orku
hafi verið markmið fyrirtækisins,
aldrei hafi komið til tals að eignast
önnur íslensk orkufyrirtæki.
„Þeir [Magma Energy] hafa þegar
íhugað að kaupa í það minnsta fimm
önnur orkufyrirtæki á Íslandi,“
sagði Björk í samtali við AFP.
„Þetta eru bara skröksögur,“
segir Ásgeir. Hann segir ýmsar
sögur hafa komist á flot í umræð-
unni sem ekki eigi við rök að styðj-
ast, og þetta sé angi af því.
„Einhverjir eru enn að halda því
fram að það séu í raun Íslending-
ar á bak við Magma, það er alger-
lega rangt líka,“ segir Ásgeir. Hann
segir sögusagnir um að Hann-
es Smárason eða aðrir svonefndir
útrásarvíkingar komi að félaginu
rangar. Magma Energy er fyrir-
tæki á markaði, og hverjum sem
er frjálst að kaupa hlut í félaginu,
segir Ásgeir. Staðfest hafi verið síð-
ast þann 19. júlí að engir Íslending-
ar séu meðal hluthafa.
Efnahags- og viðskiptaráðherra
sendi Magma Energy bréf í síðustu
viku þar sem fram kemur að rann-
saka eigi lögmæti kaupa dótturfé-
lags Magma í Svíþjóð á HS Orku.
Þar kom einnig fram að ríkisstjórn-
in ætli sér að vinda ofan af einka-
væðingu innan orkugeirans.
Ásgeir segir fyrirtækið ekki hafa
svarað bréfi ráðherrans, en lýst yfir
vilja til samstarfs við stjórnvöld við
rannsóknina.
Erfitt er að sjá hvernig stjórn-
völd ætla að koma í veg fyrir kaup
dótturfélags Magma í Svíþjóð á HS
Orku, segir Ásgeir. Hann segir enn
þrjá möguleika í stöðunni; ljúka
kaupunum, fresta þeim eða hætta
alfarið við þau. Þessa möguleika
verði að skoða í því ljósi að Magma
hafi í raun skuldbundið sig til að
klára kaupin.
Spurður hvað gerist komi stjórn-
völd með einhverjum hætti í veg
fyrir fjárfestingu Magma í HS Orku
segir Ásgeir að augljóslega séu
stjórnendur Magma Energy farnir
að velta fyrir sér lagalegum úrræð-
um. Hann segir þó allt of snemmt að
ræða mögulega skaðabótakröfu nái
kaupin ekki fram að ganga.
brjann@frettabladid.is
Magma segir áskanir
Bjarkar vera fráleitar
Kanadíska orkufyrirtækið Magma Energy stefnir að því að eignast allar orku-
auðlindir á Íslandi, segir Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður. Algerlega frá-
leitt og úr lausu lofti gripið segir framkvæmdastjóri Magma Energy á Íslandi.
HS ORKA Stjórnendur Magma Energy hafa þegar kannað lagaleg úrræði stöðvi
stjórnvöld kaup dótturfélags Magma í Svíþjóð á HS Orku, segir framkvæmdastjóri
Magma á Íslandi. Hann segir of snemmt að ræða mögulega bótakröfu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við
gerir grillmat að hreinu lostæti!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
38
23
8
ORKUMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra skipaði í gær
fimm manna nefnd sem ætlað er
að meta lögmæti kaupa Magma
Energy á HS Orku í gegnum
sænskt dótturfélag, og mögu-
legar forsendur fyrir inngripi
stjórnvalda í viðskiptin.
Hjördís Hákonardóttir, fyrr-
verandi hæstaréttardómari, verð-
ur formaður nefndarinnar, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
forsætisráðuneytinu.
Auk hennar verða í nefndinni
Bjarnveig Eiríksdóttir héraðs-
dómslögmaður og sérfræðingur í
Evrópurétti og alþjóðaviðskipta-
rétti, Sveinn Margeirsson iðn-
aðarverkfræðingur, Ólafur Páll
Jónsson, dósent í heimspeki við
Háskóla Íslands, og Aagot Ósk-
arsdóttir lögfræðingur.
Nefndin á að gefa rökstutt álit
á því hvort kaup dótturfélags
kanadíska orkufyrirtækisins
Magma Energy á HS Orku stand-
ist lög um auðlindir og orkunýt-
ingu. Nefndin mun einnig kanna
hvort þau standist ákvæði EES-
samningsins. Þá er nefndinni
ætlað að láta í ljós álit sitt á því
hvort forsendur séu fyrir stjórn-
völd að leita leiða til að grípa inn
í viðskiptin og hvaða leiðir séu
færar í þeim efnum, segir í til-
kynningunni.
Í framhaldinu er nefndinni
ætlað að fjalla um einkavæðingu
innan orkugeirans almennt og
starfsumhverfi hans. - bj
Forsætisráðherra skipar nefnd sem kanna á lögmæti kaupa Magma á HS Orku:
Kanna forsendur fyrir inngripi
LEIÐIR NEFND Hjördís Hákonardóttir,
fyrrverandi hæstaréttardómari, mun
leiða nefnd stjórnvalda sem fjalla mun
um kaup Magma Energy á HS Orku.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.OL
NEYTENDUR Níu verslanir á höfuðborgarsvæðinu
hafa ekki sinnt ítrekuðum tilmælum Neytenda-
stofu um réttar verðmerkingar á vörum. Húsa-
smiðjan við Helluhraun er með hæst hlutfall,
eða 32 prósent.
Neytendastofa kannaði verðmerkingar í þrjá-
tíu verslunum á höfðuðborgarsvæðinu í lok maí
þessa árs. Fimmtán verslanir fengu athuga-
semdir varðandi rangar merkingar. Áframhald-
andi könnun var svo gerð í byrjun júlí.
„Þetta verður að laga til að forðast sektir,“
segir Matthildur Sveinsdóttir, lögfræðingur hjá
Neytendastofu, sem segir reglurnar sem versl-
anir eigi að fylgja vera mjög einfaldar og skýr-
ar. Hlutfall þeirra verslana sem merkja vitlaust
sé hátt miðað við seinni heimsókn.
„Við gerðum margar athugasemdir að þessu
sinni og við höfum nýverið byrjað að sekta
matvöruverslanir fyrir vitlausar merkingar á
vörum. Við sektuðum bæði Krónuna og Hag-
kaup í vor,“ segir Matthildur.
Fimm af þeim níu verslunum sem sinntu ekki
tilmælum Neytendastofu í maí voru með hlut-
fall athugasemda yfir 20 prósentum nú í júlí.
Þær verslanir voru Elko í Skeifunni, Rúmfata-
lagerinn við Smáratorg og í Skeifunni, Múrbúð-
in Kletthálsi og Húsasmiðjan Skútuvogi. - sv
Verslanir á höfuðborgarsvæðinu sinna ekki ítrekuðum tilmælum Neytendastofu:
Þriðjungur rangt verðmerktur hjá Húsasmiðjunni
VERÐMERKINGAR 50 prósent þeirra verslana
sem neytendastofa kannaði í maí fengu
athugasemdir vegna verðmerkinga.
Hefur þú farið á útihátíð?
Já 70%
Nei 30%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að skera ætti niður
rekstrarkostnað Orkuveitunnar?
Segðu skoðun þína á visir.is.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EIÐ
A
KJÖRKASSINN