Fréttablaðið - 04.08.2010, Page 8
8 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Breska læknatíma-
ritið Lancet birti leiðara í síðustu
viku þar sem fram kemur að nið-
urstöður fjölþjóðlegrar magnrann-
sóknar, birtra í bandaríska lækna-
tímaritinu American Journal og
Obstetrics & Gynecology, sýni fram
á að heimafæðingar auki líkur á
ungbarnadauða um helming.
„Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna fram á að fyrirfram ætlað-
ar heimafæðingar hjá heilbrigðum
konum utan áhættuhópa miðað við
fyrirfram ætlaðar spítalafæðing-
ar sama hóps kvenna auki hættu
á ungbarnadauða um helming (0,2
prósent á móti 0,09 prósent),“ segir
í grein Lancet. „Konur hafa rétt á
því að velja hvort og hvernig þær
fæði, en þær hafa ekki rétt á því að
stofna börnunum sínum í hættu.“
„Mér finnst verið að taka af
konum sjálfræðið með þessari
fullyrðingu,“ segir Áslaug Hauks-
dóttir ljósmóðir. „Allar mæður
hugsa mest um barnið sitt. Allar.“
Áslaug hefur sinnt heimafæðingum
í þrettán ár og segir langflest tilvik
ganga vel. Hún segir að svo fram-
arlega sem konan sé hraust og með-
ganga hafi gengið vel, þá sé ekkert
því til fyrirstöðu að fæða barnið
heima.
„En ef eitthvað bregður útaf; hiti
móður, hjartsláttartruflanir barns,
fæðingin orðin
langdregin eða
eitthvað annað,
þá færist fæð-
ingin upp á spít-
ala.“
Áslaug segir
niðurstöður
rannsóknar-
innar í Lancet
segja litla sögu.
„Við vitum ekk-
ert hvaðan þess-
ar tölur koma. Einn þriðji af heima-
fæðingum í Bandaríkjunum er til
dæmis án ljósmóður eða heilbrigð-
isstarfsmanns,“ segir hún. „Sú töl-
fræði sem Bretar eru farnir að
reiða sig á er á góðri leið með að
verða jafn slæm og tölfræði Banda-
ríkjamanna.“ Áslaug segir flestar
ljósmæður velja að fæða heima hjá
sér og ánægðustu mæðurnar séu
þær sem eignist börnin sín heima.
Hildur Kristjánsdóttir, ljósmóð-
ir hjá Landlæknisembættinu, segir
heimafæðingar teljast öruggar að
uppfylltum vissum skilyrðum.
„Það er algjört skilyrði að ljós-
móðir geti aðstoðað við fæðingu. Ef
konan er frísk, utan áhættuhóps og
ekkert óeðlilegt við meðgönguna,
hefur ekki verið talið neitt á móti
heimafæðingum. Þetta er upplýst
val kvenna.“
Heimafæðingar hér á landi hafa
aukist á síðustu árum og um 40
prósenta aukning er á milli síðustu
tveggja ára. sunna@frettabladid.is
1. Hver eru meðallaun starfs-
manna Orkuveitu Reykjavíkur?
2. Hvenær á að halda hér
alþjóðlegt sundíþróttamót sam-
kynhneigðra?
3. Hvað er talið að margir hafi
sótt Þjóðhátíð í Eyjum í ár?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
1,8
1,6
1,4
1,2
1,0
0,8
0,6
0,4
0,2
%
19
80
19
81
19
82
19
83
19
84
19
85
19
86
19
87
19
88
19
89
19
90
19
91
19
92
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
Hlutfall heimafæðinga frá 1980 til 2009
Heimafæðingum hefur fjölgað hér á landi á síðustu árum. Um 40 pró-
senta aukning varð á síðasta ári frá 2008 og segja ljósmæður að þeim
mæðrum sem vilji fæða börn sín heima fari enn fjölgandi hér á landi.
PAKISTAN, AP Flóðin í Pakistan hafa
orðið að minnsta kosti 1.500 manns
að bana auk þess sem hundrað þús-
und manns eiga á hættu að fá alvar-
legar sýkingar.
Ekkert lát var á úrkomu norðvest-
an til á flóðasvæðinu sem veldur
hættu á því að vatn flæði yfir stóra
stíflu. Erfitt hefur reynst að koma
3,2 milljónum manna til aðstoðar
vegna þess að vegir eru gegnsósa,
brýr hafa brotnað og símasamband
liggur niðri.Tugir þorpa í Punjab-
héraði eru á kafi. Sums staðar í sýsl-
unum Kot Addu og Layyah stendur
vatnið svo hátt að einungis trjá-
toppar og hæstu byggingar standa
upp úr. „Við bara hlupum burt með
börnin okkar, en skildum allt eftir.
Allar eigur okkar eru komnar á
kaf í vatn. Við eigum ekkert,“ segir
Fateh Muhammed, fjölskyldufað-
Tugir þorpa á kafi í vatni vegna flóðanna í Pakistan:
Erfitt að koma aðstoð til fólks á flóðasvæðinu
SAMFÉLAGSMÁL Dómsmála- og mannréttinda-
ráðuneytið hefur úrskurðað í sex kærumál-
um sem vörðuðu umsóknir flóttamanna um
hæli hér á landi á þessu ári. Tveimur málum
var vísað aftur til Útlendingastofnunar, í einu
máli var synjun á hæli og dvalarleyfi stað-
fest og málum þriggja einstaklinga lauk með
endursendingu til annars Evrópulands.
Einn maður var endursendur til Grikk-
lands, en aðbúnaður hælisleitenda þar í landi
hefur sætt mikilli gagnrýni. Maðurinn, sem
er frá Íran, kærði úrskurð Útlendingastofn-
unar varðandi vísun hans til Grikklands, en
ráðuneytið staðfesti brottflutninginn. Rauði
krossinn hefur ítrekað biðlað til stjórnvalda að
láta af þessum endursendingum síðan Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna beindi
tilmælum til ríkja sem taka þátt í Dyflinn-
ar-samstarfinu að senda flóttamenn ekki til
Grikklands.
Sautján einstaklingar hafa leitað hælis hér á
landi í ár. Allir hælisleitendur eru flóttamenn
og koma frá tólf ríkjum. Fimmtán umsóknir
voru enn til meðferðar hjá Útlendingastofn-
un nú í júní. Útlendingastofnun viðurkenndi á
fyrri hluta ársins stöðu þriggja hælisleitenda
sem flóttamanna og veitti einum einstaklingi
að auki stöðu sem aðstandanda flóttamanns.
Kemur þetta fram í skýrslu Rauða kross
Íslands varðandi fjölda hælisleitenda á fyrstu
sex mánuðum þessa árs.
- sv
Flóttamenn endursendir til Grikklands þrátt fyrir aðvaranir Sameinuðu þjóðanna:
Tilmæli Flóttamannastofnunar SÞ ekki virt
SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks í bæjarráði Kópa-
vogs leggja til að gatnagerðar-
gjöld vegna stækkunar á eldra
húsnæði verði felld niður tíma-
bundið.
Vísa þeir til hvatningarátaks
í þágu innlendrar atvinnustarf-
semi, meðal annars með hækk-
aðri endurgreiðslu virðisauka-
skatts vegna vinnu við eigið
íbúðarhúsnæði og sumarhús og
til sérstakra framkvæmdalána
sem sumar fjármálastofnanir
bjóði almenningi á hagstæðum
kjörum.
„Sveitarfélög geta lagt sitt af
mörkum í þessum efnum og ligg-
ur beinast við að fella niður opin-
ber gjöld vegna framkvæmda á
eldra húsnæði,“ segir í tillögunni.
Afgreiðslu hennar var frestað á
síðasta fundi. - gar
Séu með í hvatningarátaki:
Gefi eftir gjöld
af gatnagerð
KÓPAVOGUR Tímabundin niðurfelling
gatnagerðargjalda hvetur til fram-
kvæmda.
Rauði kross Íslands hefur ákveðið
að senda 3,5 milljónir króna úr
neyðarsjóðum sínum til hjálparstarfs
vegna flóðanna í Pakistan. Þá hefur
hann opnað fyrir söfnunarsíma sinn,
904 1500, fyrir þá sem vilja láta
fé af hendi rakna. Þegar hringt er í
númerið bætast 1.500 krónur við
næsta símreikning viðkomandi.
RKÍ sendir hjálp
UMHVERFISMÁL Eitraður sveppur
fannst á leikskólalóð á Akureyri
nú á dögunum. Á vef Umhverf-
isstofnunar segir að ábending
frá Náttúrufræðistofnun Íslands
hafi borist stofnuninni.
Sveppurinn heitir Garðlumma
(Proxillus involutus) og er nokk-
uð útbreiddur hér á landi og
finnst í birkikjarri, trjágörð-
um og á grasflötum í þéttbýli.
Hann er eitraður hvort sem
hann er borðaður hrár eða soð-
inn. Eiturefnin í sveppinum ráð-
ast á meltingarfærin og valda
magakvölum, uppköstum og nið-
urgangi. Einnig geta einkennin
verið snarlækkaður blóðþrýst-
ingur, veikur og hraður púls,
svimi, sjóntruflanir og meðvit-
undarleysi.
Umhverfisstofnun bendir
starfsfólki á leikskólum landsins
á að tína sveppina jafnharðan og
þeir vaxa svo ekki sé hætta á að
börn borði þá.
Búið er að fjarlægja sveppinn
af lóð leikskólans á Akureyri.
Garðlumma á Akureyri:
Eitursveppur á
leikskólalóð
Heimafæðingum fjölgar ört
Breskt læknatímarit dregur val kvenna um heimafæðingar í efa. Hvar konur fæða börnin sín er spurning
um uppýst val, segja ljósmæður hér á landi. 40 prósenta aukning fæðinga í heimahúsum á milli ára.
MÓÐIR OG BARN Heimafæðingar hafa aukist mikið hér á landi á síðustu árum. NORDICPHOTOS/GETTTY
ÁSLAUG
HAUKSDÓTTIRGARÐLUMMA Sveppurinn eitraði er
nokkuð útbreiddur hér á landi.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
BJARGAR EIGUM
SÍNUM Maður teygir
sig niður í leðjuna
eftir eigum sínum.
ir sem segir flóðið hafa komið svo
skyndilega að ekki hefði verið hægt
að verjast.
Punjab er stærsta hérað lands-
ins og þar er landbúnaður í mestum
blóma. Ónýt uppskera veldur því
að Sameinuðu þjóðirnar telja að 1,8
milljónir manna þurfi á matvælaað-
stoð að halda. - gb
DÓMSMÁLA- OG MANNRÉTTINDARÁÐUNEYTIÐ Ráðu-
neytið hefur úrskurðað í sex kærumálum á þessu ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?