Fréttablaðið - 04.08.2010, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 4. ágúst 2010 13
Það er800 7000 • siminn.is
Netlykill á 0 kr.
Þú getur fengið 3G netlykil á 0 kr. gegn sex mánaða
bindingu. Netlykilinn geturðu notað í sumarbústaðnum,
fellihýsinu eða bara á þjóðveginum, enda veitir hann
aðgang að stærsta 3G dreifikerfi landsins.
Kynntu þér hagstæðar áskriftarleiðir Símans.
EFNAHAGSMÁL Tölur um innflutning benda til
þess að hagkerfið hafi fundið botninn og sé nú
tekið að vaxa á ný á ýmsum sviðum eftir und-
angengna gjaldeyris- og bankakreppu. Þetta
segir í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka.
Hagstofan birti innflutningstölur fyrir helgi.
Innflutningur jókst á fyrri hluta þessa árs
samanborið við sama tímabil í fyrra.
„Aukningin í magni mæld var lítil eða 0,8
prósent en um er að ræða viðsnúning engu að
síður frá því sem hefur verið í undangenginni
kreppu,“ segir í umfjöllun Íslandsbanka, en á
sama tíma í fyrra var 43 prósenta samdráttur.
„Ekki hefur mælst aukning í innflutningi á
fyrri hluta árs í magni talið frá árinu 2006.“
Fram kemur að tæplega fjögurra prósenta
vöxtur hafi verið í innflutningi neysluvara.
„Fyrir ári var 49 prósenta samdráttur í sömu
stærð. Viðsnúningurinn þar er því verulegur
á milli ára og til merkis um að neyslan sé nú
farin að vaxa á ný.“ Bent er á að innflutningur
á flestum sviðum hafi tekið við sér, svo sem á
fatnaði og heimilistækjum.
„Lítilsháttar samdráttur mælist enn í inn-
flutningi á bifreiðum en á móti hefur innflutn-
ingur á varahlutum í ökutæki aukist til muna
eða um 10 prósent á milli ára en bifreiðaflot-
inn hefur elst nokkuð í kreppunni.“ - óká
VERKSTÆÐI Samdráttur er enn í bílainnflutningi, en
varahlutasala hefur aukist.
Aukning í innflutningi á fyrri hluta árs hefur ekki mælst síðan árið 2006:
Botninum náð og hagkerfið tekið að vaxa
SAMGÖNGUMÁL Umferð um versl-
unarmannahelgina var rúmlega
þremur prósentum meiri í ár en
í fyrra. Þó var verslunarmanna-
helgin ekki mesta umferðarhelgi
sumarsins þar sem meiri umferð
mældist á sex talningarstöðum
Vegagerðarinnar helgina 16. til
18. júlí.
Vegagerðin skipti helginni upp í
tvö samanburðartímabil svo hægt
sé að bera hana saman við aðrar
helgar sumarsins. Annars vegar
er venjuleg helgi, frá föstudegi til
sunnudags, borin saman við aðrar
helgar og svo hins vegar frá föstu-
degi til mánudags.
6,8 prósenta aukning varð á
umferð milli verslunarmanna-
helgarinnar og helgarinnar þar á
undan. Þá var umferðin 3,1 pró-
senti meiri nú en um verslunar-
mannahelgi í fyrra. Sé helgin skoð-
uð frá föstudegi til mánudags varð
aukningin milli ára 2,4 prósent.
Þrátt fyrir að gert hafi verið
ráð fyrir aukinni umferð um Suð-
urlandsveg vegna Landeyjahafn-
ar dróst umferð um veginn saman.
Umferð um Vesturlandsveg jókst
hins vegar mikið og telur Vega-
gerðin að það megi rekja fyrst og
fremst til landsmóts UMFÍ sem
var haldið í Borgarnesi. Margir
hafi líklega nýtt sér nálægð Borg-
arness við höfuðborgarsvæðið og
keyrt fram og til baka alla dagana
í stað þess að gista í Borgarnesi.
- þeb
Umferð um verslunarmannahelgina jókst um þrú prósent milli ára:
Helgarumferð töluvert meiri en í fyrra
VESTURLANDSVEGUR Umferð um veginn
var talsvert meiri en um verslunar-
mannahelgina í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
EVRÓPUMÁL Ísland samdi við Evr-
ópusambandið í vikunni um áfram-
hald Þróunarsjóðs EFTA og Þróun-
arsjóðs Noregs. Sjóðirnir hafa 280
milljarða króna til umráða og er
ætlað að veita styrki til verkefna
sem styðja við félagslega og efna-
hagslega uppbyggingu fimmtán
ríkja í Suður- og Austur-Evrópu.
Til ársins 2014 verður lögð
áhersla á styrki til verkefna sem
tengjast náttúruvernd og endur-
nýjanlegri orku. Íslensk sveitarfé-
lög eru talin geta miðlað þekkingu
og reynslu á þessum sviðum. - sv
Þróunarsjóðir EFTA:
Ísland mun
miðla reynslu
SVEITARSTJÓRNARMÁL Í Skagafirði
býr fólk frá 25 þjóðlöndum auk
Íslendinga. Alls eru 117 erlendir
ríkisborgarar skráðir, flestir þeirra
pólskir eða 34, samkvæmt tölum á
vef Skagafjarðar.
Þeir sem koma lengst að eru frá
Nepal, Taílandi, Brasilíu, Ástralíu
og Suður-Afríku.
Verkefni sem unnið er að í Húsi
frítímans gengur út á að hafa sam-
band við íbúa með erlent ríkis-
fang og kynna þeim tómstundir
og afþreyingu sem boðið er upp á
í sveitarfélaginu. - óká
Pólverjar eru fjölmennastir:
Telja útlenda
í Skagafirði
Sundhöllin lokuð
Sundhöllin í Reykjavík verður lokuð
til 7. ágúst vegna viðhalds. Á vef
Reykjavíkurborgar eru gestir beðnir
afsökunar á óþægindunum.
REYKJAVÍK
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N