Fréttablaðið - 04.08.2010, Side 43
MIÐVIKUDAGUR 4. ágúst 2010 39
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Árni Gautur Arason Odd Grenland
Gunnleifur Gunnleifsson FH
Varnarmenn:
Indriði Sigurðsson Viking
Kristján Örn Sigurðsson Hönefoss
Grétar Rafn Steinsson Bolton
Ragnar Sigurðsson IFK Gautaborg
Sölvi Geir Ottesen FC Kaupmannahöfn
Arnór Sveinn Aðalsteinsson Breiðabliki
Miðvallarleikmenn
Aron Einar Gunnarsson Coventry
Ólafur Ingi Skúlason SönderjyskE
Arnór Smárason Esbjerg
Rúrik Gíslason OB
Steinþór Freyr Þorsteinsson Örgryte
Matthías Vilhjálmsson FH
Guðmundur Kristjánsson Breiðabliki
Sóknarmenn
Eiður Smári Guðjohnsen AS Monaco
Heiðar Helguson QPR
Veigar Páll Gunnarsson Stabæk
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen hefur aftur verið valinn í
íslenska landsliðið og er hann
í hópnum sem mætir Liechten-
stein í vináttulandsleik þann 11.
ágúst næstkomandi. Það er síð-
asti leikur Íslands fyrir undan-
keppni EM 2012 í haust. Grétar
Rafn Steinsson snýr einnig aftur
eftir meiðsli en báðir misstu af
æfingaleiknum gegn Andorra í
vor. Ólafur Jóhannesson, lands-
liðsþjálfari, valdi Eið Smára ekki
þá þar sem hann taldi hann ekki í
nægilega góðu formi.
Fjórir leikmenn í hópnum, þeir
Gunnleifur Gunnleifsson, Arnór
Sveinn Aðalsteinsson, Matthí-
as Vilhjálmsson og Guðmundur
Kristjánsson, leika með íslensk-
um liðum. Ekki náðist í Ólaf í gær
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. - esá
A-landslið karla valið:
Eiður Smári
aftur valinn
00.000
440.000.000
+260.000.000
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fjögur í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
Fyrsti vinningur stefnir í 440 milljónir
og Ofurpotturinn stefnir í 260 milljónir.
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 4. ÁGÚST 2010
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
Fjórfald
ur
1. vinnin
gur
HANDBOLTI Íslenska 20 ára lands-
liðið reif sig upp eftir tap á móti
Portúgal með því að rassskella
Frakka í gær og tryggði sér með
því úrslitaleik á móti Dönum um
sæti í undanúrslitum á Evrópumót-
inu í Slóvakíu. Íslenska liðið vann
franska liðið 42-30 í gær á sama
tíma og Portúgalir unnu Dani 29-
28 sem þýðir að Ísland og Danmörk
spila um undanúrslitasætið í dag.
Það er ekki á hverjum degi sem
Íslendingar vinna Frakka í hand-
boltanum eða hvað. „Við erum
vanir að vinna þá reglulega. Þetta
er þriðja stórmótið í röð þar sem
við sláum þá út. Við áttum topp-
leik og strákarnir spiluðu alveg
eins og englar. Við stýrðum þess-
um leik frá A til Ö. Frakkar áttu
aldrei möguleika,“ sagði Einar
Guðmundsson, annar þjálfara
íslenska liðsins.
Íslenska liðið fór stigalaust inn í
milliriðilinn eftir tap á móti Portú-
gal í lokaleik riðlakeppninnar.
„Portúgal vann Danmörk í dag
(í gær) og þó þeir heiti Portúgal þá
eru þeir mjög sterkir. Við byrjuð-
um mjög illa á móti þeim og lent-
um 7-1 undir en annars spiluðum
við þann leik mjög vel. Við vorum
þá hreinlega óheppnir að stela ekki
sigrinum,” sagði Einar.
Það var allt annað í gangi í byrj-
un leiksins í gær. „Ég fann það
strax í upphitun að strákarnir
væru virkilega stemmdir og ætl-
uðu ekki að sleppa þessu tækifæri.
Það er bara hálfleikur hjá okkur
núna en síðan er bara að vinna
Dani á morgun (í dag) og komast
í undanúrslit,“ segir Einar.
Portúgalarnir eru komn-
ir áfram en það verð-
ur síðan annaðhvort
Ísland eða Danmörk
sem fylgir þeim.
„Danir eru sterk-
ari en Frakkarnir
og þeir eru mjög
sterkir. Þeir eru
með mjög góðan
markmann og spila
með sterka vörn.
Það verður jafn
leikur,“ segir
Einar.
Aron Pálm-
a rsson va r
markahæstur
í íslenska lið-
inu með níu
mörk og var
valinn besti
leikmaður
íslenska
l ið s i n s í
leiknum en
markvörður-
inn Arnór Stefánsson var einnig
sjóðandi heitur og varði 19 skot á
50 mínútum.
„Varnarleikurinn, hraðaupp-
hlaupin og markvarslan voru frá-
bær í dag (í gær).
Við höfum
unnið mikið í varnarleik og hann er
búinn að vera mjög góður á þessu
móti. Við skorum alltaf 40 mörk.
Við skoruðum reyndar bara 35
mörk á móti Portúgal en vorum þá
með 20 tapaða bolta,“ segir Einar
sem segir íslenska liðið hafa eign-
ast þekktan aðdáanda á mótinu.
„Ulrik Wilbek (þjálfari A-lands-
liðs Dana) er hér með Dönunum
og hann hristir bara hausinn yfir
Íslendingunum því hann segir að
Íslendingarnir skori alltaf svo
rosalega mikið í sínum leikjum.
Hann hafði voðalega gaman af
að horfa á okkur og var voðalega
jákvæður gagnvart okkur,“ segir
Einar og ekki að ástæðulausu því
hraðinn er mikill í leik íslenska
liðsins.
„Þetta lið er búið að vera lengi
saman og leikmenn þekkja hver
annan út og inn. Þetta eru mjög
hraðir leikmenn og þegar við
náum þessum takti þá erum við
illviðráðanlegir,“ segir Einar og
hann hefur engar áhyggjur af
þreytu í liðinu því þeim hafi
tekist að stjórna álaginu vel.
Einar er líka bjartsýnn fyrir
leikinn í dag enda spili strák-
arnir hans alltaf best þegar allt
er undir.
„Þeir spiluðu einn sinn besta
leik á móti Frökkum og það er
oft með þetta lið að þeir eru best-
ir þegar það skiptir máli. Við
erum oft að merja einhver léleg
lið en þegar það er komin einhver
alvara í þetta þá geta þeir allt,”
sagði Einar.
Leikur Íslands og Danmerkur
hefst klukkan 12.00 að íslenskum
tíma og er í beinni útsendingu á
heimasíðu mótsins.
-óój
Íslenska 20 ára landsliðið vann tólf marka sigur á Frökkum í gær og mætir Dönum í mikilvægum leik í dag:
Wilbek hristir hausinn yfir íslenska liðinu
ARON
PÁLMARSSON
Skoraði níu
mörk í gær
og var valinn
besti leik-
maður liðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ULRIK WILBEK Er hrifinn að íslenska 20
ára landsliðinu. MYND/ GETTY IMAGES