Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.08.2010, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 18.08.2010, Qupperneq 2
2 18. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR Sigrún, verður ekki orð um það meir? „Svo mörg voru þau orð!“ Nýjasti liður í sparnaðaraðgerðum RÚV er sá að leggja niður hinn vinsæla þátt Orð skulu standa á Rás 1. Sigrún Stefánsdóttir er dagskrárstjóri útvarpsins. Tekið skal fram að Sigrún bindur vonir við að þátt- inn megi endurvekja þegar betur árar. LÖGREGLUMÁL Lögregla leitar enn að morðvopni sem notað var til þess að stinga mann á fertugs- aldri til bana í Hafnarfirði aðfara- nótt síðastliðins sunnudags. Um er að ræða eggvopn sem hann var margstunginn með. Unnusta mannsins kom að honum látnum á svefnherbergisgangi í húsinu sem hann bjó í rétt fyrir hádegi á sunnudag. Síðdegis í gær var manni á þrí- tugsaldri sleppt úr haldi lögreglu vegna málsins. Maðurinn var yfir- heyrður í fyrrakvöld og síðan lát- inn gista fangaklefa yfir nóttina. Ekki þóttu efni til að að krefjast gæsluvarðhalds yfir honum. Verjandi mannsins, Guðrún Sesselja Arnardóttir, sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hún segir bera að „ ...fordæma þau forkastanlegu vinnubrögð sem ákveðnir fjölmiðlar hafa við- haft í þessu máli og þá sérstak- lega ótímabæra nafn- og mynd- birtingu af skjólstæðingi mínum. Gera verður þá kröfu til fjöl- miðla að þeir hafi í heiðri þá meg- inreglu réttarfarslaga að maður sé saklaus uns sekt telst sönnuð og á það sérstaklega við þegar hvorki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir viðkomandi, né heldur gefin út ákæra.“ Guðrún Sesselja sagði við Fréttablaðið í gær að hún myndi fara yfir málið með skjólstæð- ingi sínum hvað varðaði nafn- og myndbirtingu á honum í fjöl- miðlum. Nafn mannsins var birt á vefmiðlunum dv.is og í kjölfarið á pressan.is og eyjan.is. Vel kunni að vera að höfðað verði mál á hendur viðkomandi fjölmiðlum á grundvelli meiðyrða eða brots á friðhelgi einkalífs. „Ég skil ekki svona vinnubrögð,“ sagði Guðrún Sesselja. Á fjórða tug lögreglumanna vinnur að rannsókn morðmálsins. Fjölmargir hafa verið yfirheyrð- ir og þeirri vinnu er ekki lokið. Tæknirannsókn á vettvangi er langt komin og önnur gagnaöfl- un í fullum gangi. Fjöldi ábend- inga hefur borist frá almenningi og verið er að vinna úr þeim eftir því sem tilefni er til. Lögreglan biður þá sem upp- lýsingar geta gefið í tengslum við rannsókn málsins um að hafa sam- band í 444 1104. jss@frettabladid.is SPURNING DAGSINS Morðvopns leitað og málssókn yfirvofandi Morðvopn sem notað var til að bana manni á fertugsaldri í Hafnarfirði um síð- ustu helgi er enn ófundið. Manni á þrítugsaldri sem hafði verið yfirheyrður af lögreglu var sleppt í gær. Lögmaður hans segir málshöfðun koma til greina. MORÐRANNSÓKNIN Á fjórða tug lögreglumanna vinnur nú að rannsókn á morðmál- inu í Hafnarfirði. Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir og verið er að vinna úr gögnum og ábendingum frá almenningi. Gera verður þá kröfu til fjölmiðla að þeir hafi í heiðri þá meginreglu réttarfarslaga að maður sé saklaus uns sekt telst sönnuð GUÐRÚN SESSELJA ARNARDÓTTIR VERJANDI DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík- ur hefur dæmt pólskan karlmann, Tomasz Burdzan, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Athæf- ið átti sér stað í lok júní í fyrra. Konan hafði verið að skemmta sér og kvaðst fyrir dómi ekki hafa haft nægjanlega fjármuni til að taka leigubíl heim. Hún hitti mann- inn í miðbænum í Reykjavík. Hann bauð henni að koma með sér heim, svo hún gæti hringt, sem hún þáði. Hún spurði mannninn hvort hann ætti áfengi, en hann gaf henni kaffi. Þegar konan bjóst til brottfarar hrinti maðurinn henni á skáp eða hillu þannig að hún vankaðist og vissi ekki af sér fyrr en hún lá í rúmi mannsins. Hann hafði svo við hana samræði gegn vilja hennar. Hún fór svo á Neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana. Maðurinn neitaði sök. Dómur- inn taldi framburð hans hins vegar afar ótrúverðugan og taldi að mað- urinn hefði beitt konuna ofbeldi og haft við hana samræði. Auk þriggja og hálfs árs fang- elsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni 1,2 milljónir króna í miskabætur. - jss Karlmaður dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi og til greiðslu miskabóta: Bauð konu heim og nauðgaði HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Dæmdi í nauðgunarmálinu. LÖGREGLA Björgvin Björgvinsson hjá rannsóknardeild lögreglunn- ar í Reykjavík óskaði eftir því að vera færður úr starfi sem yfir- maður kynferðisbrotadeildar í gær. Var það vegna hinnar hörðu gagnrýni sem ummæli hans í DV um fórnarlömb nauðgana hafa sætt. Lögreglan sendi frá sér yfir- lýsingu um málið í gærmorgun þar sem meðal annars kom fram að embættið harmi ummæli Björgvins í blaðinu og þau end- urspegli á engan hátt afstöðu eða viðhorf þess til kynferðisbrota eða fórnarlamba þeirra. Emb- ættið biðjist jafnframt afsökun- ar á ummælunum og að það sé mat yfirmanns kynferðisbrota- deildarinnar að þau séu til þess fallin að skaða trúverðugleika rannsókna lögreglunnar á sviði kynferðisbrota. Rannsóknir á kynferðisbrotum á höfuðborg- arsvæðinu heyri nú undir yfir- mann rannsóknardeildar, Frið- rik Smára Björgvinsson. Meðal annars var haft eftir Björgvini í DV á mánudag að fólk í annarlegu ástandi ætti að líta í eigin barm og taka ábyrgð á sjálfu sér. Hefur hann beð- ist afsökunar á ummælunum en hefur ekki rætt opinberlega við fjölmiðla. Stefán Eiríksson lögreglustjóri vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið og vísaði í yfirlýs- ingu lögreglunnar. - sv Yfirmaður kynferðisbrotadeildar höfuðborgarsvæðisins fluttur úr starfi: Baðst afsökunar á orðum sín- um og harmar ummælin MENNING Forsvarsmenn menning- arnætur kynntu dagskrá hátíðar- innar, sem haldin verður á laug- ardag, í gömlum strætisvagni í gær. Uppátækinu var ætlað að minna fólk á að lögð er áhersla á bílalausa menningarnótt. Þeir bíleigendur sem leggja ólöglega í miðborginni á menn- ingarnótt mega nú í fyrsta skipti eiga von á sektum. Fólk er hvatt til að skilja bílana eftir heima og fá allir frítt í strætisvagna til að draga úr umferð um miðbæinn. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Strætin óma“, og eru borgar- búar hvattir til að fylla miðborg- ina af hljóðfæraslætti og söng. - bj Þétt dagskrá á menningarnótt: Allir fá ókeypis í strætisvagna KYNNING Jón Gnarr borgarstjóri og Stef- án Eiríksson lögreglustjóri hvöttu fólk til að skilja bílana eftir heima á menning- arnótt á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON Var færður til í starfi vegna ummæla sem höfð voru eftir honum í DV. VÍSINDI Hópur örverufræðinga við Newcastle-háskóla í Bretlandi hefur uppgövað að bakteríur hafa lyktarskyn. Bakteríur eru einföldustu líf- verur jarðarinnar og hafa frekar verið þekktar fyrir að valda lykt en finna hana hingað til. Nýja rannsóknin bendir hins vegar til þess að bakteríur hafi eins konar nef sem geti greint agnir í lofti sem mynda lykt svo sem ammoníak. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að bakteríurnar bregðast við ammoníakslykt með því að mynda eins konar slím sem festir nálægar bakteríur saman. - mþl Uppgötvun í Newcastle: Bakteríur með lyktarskyn Hjólað á Hverfisgötu Starfsmenn Reykjavíkurborgar vinna að uppsetningu tímabundins hjól- reiðastígs á Hverfisgötu sem tekinn verður í notkun næsta föstudag. 35 gjaldskyld bílastæði á Hverfisgötu verða helguð hjólreiðum í þessari tilraun og hefur verkefnið verið kynnt fyrir íbúum og þjónustuaðilum. Viðurkenning fyrir fegrun Fegrunarviðurkenningar vegna feg- urstu lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja og endurbóta á eldri húsum í Reykja- vík árið 2010 verða afhentar í dag. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhendir viðurkenningarnar. REYKJAVÍK SLYS Frönsk kona hrasaði við hellaskoðun í Miklafelli í Eld- hrauni í dag og tvíhálsbrotn- aði. Féll konan niður um einn og hálfan metra og lenti á and- litinu, að sögn Guðmundar Inga Ingason- ar, varðstjóra lögreglunnar á Hvolsvelli. Björgunar- sveitin Kyndill á Kirkjubæjar- klaustri var kölluð á staðinn ásamt TF-GNÁ, þyrlu Landhelg- isgæslunnar. Fjallabjörgunar- menn frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu fóru með þyrlunni á staðinn. Guðmundur segir aðstæður hafa verið erfiðar á svæðinu og nokkurn tíma hafi tekið fyrir þyrluna að komast á áfangastað. Miklar annir voru hjá Land- helgisgæslunni, fjögur útköll á innan við sólarhring. - sv / sjá síðu 12 Kona hrasar í hellaskoðun: Flutt með þyrlu tvíhálsbrotin TF-GNÁ CHICAGO,AP Fyrrverandi ríkis- stjóri Illinois-ríkis í Bandaríkj- unum, Rod Blagojevich, var sak- felldur í gær fyrir að ljúga að starfsmönnum bandarísku alrík- islögreglunnar, FBI. Kviðdómur komst ekki að nið- urstöðu vegna annarra ákæru- liða en Rod Blagojevich var meðal annars sakaður um að reyna að selja sæti Baracks Obama í öldungadeild bandaríska þingsins. Saksóknarar í Illionois tóku fram eftir að dómur féll að áætl- að sé að taka mál Blagojevich upp eins fljótt og auðið er. - sv Fyrrum ríkisstjóri sakfelldur: Laug að FBI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.