Fréttablaðið - 23.08.2010, Page 20
20 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
Ýmsir krefjast afsagnar við-skiptaráðherra fyrir meint
afglöp í tengslum við mat á geng-
istryggðum lánum, svokölluðum
myntkörfulánum. Ekki sakar að
rifja upp aðdraganda málsins.
Í lögum númer 38 frá
28/05/2001 stendur að heimilt
sé að verðtryggja lán og spari-
fé með vísitölu neysluverðs og
hlutabréfavísitölur. Ekki er
minnst á aðrar vísitölur. Mánuði
áður en frumvarp var samþykkt
mótmælti fulltrúi fjármálafyrir-
tækja að verðtrygging yrði tak-
mörkuð við þessar tilteknu vísi-
tölur. Fjármálafólk vissi gjörla í
hvað stefndi. Núverandi forsætis-
ráherra líka, hún sat í efnahags-
og viðskiptanefnd.
Frumvarpið var stjórnarfrum-
varp ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar og Halldórs Ásgrímsson-
ar. Þeir voru enn við völd haustið
2005. Þá skipaði hinn síðarnefndi
hinn fyrrnefnda seðlabanka-
stjóra. Skömmu áður hafði nýr
forstjóri Fjármálaeftirlits verið
ráðinn.
Ætla mætti að sömu fjármála-
fyrirtæki og mótmæltu takmörk-
un verðtryggingar hefðu haldið
sig við leyfðar vísitölur. Svo var
ekki. Árið 2005 höfðu þau um
nokkurt skeið boðið upp á lán
tengd gjaldeyrisvísitölum. Ætla
mætti að nýskipaðir stjórnendur
Seðlabanka og FME sem sátu í
umboði sömu ríkisstjórnar hefðu
fljótlega skipt sér af lögbroti
fjármálafyrirtækjanna. Svo var
ekki. Og fyrirtækin héldu áfram
að veita ólögleg lán með vísitöl-
um tengdum erlendum gjaldmiðl-
um.
Myntkörfulán eru einfaldlega
erlend lán. Lán í erlendri mynt
til íslenskra viðskiptavina eru
ekki „raunveruleg eign í erlendri
mynt“ samkvæmt þekktum hag-
fræðikenningum sem bent er á
í skýrslu Rannsóknarnefndar
Alþingis. Samkvæmt henni voru
þau samt færð til bókar sem eign
í erlendri mynt hjá fjármálafyrir-
tækjum sem lutu eftirliti Seðla-
banka og FME. Þrátt fyrir lága
vexti er lán í erlendri mynt mjög
áhættusamt ef tekjur og eign-
ir á móti eru í sveiflukenndri
smámynt, höfuðstóllinn getur
hækkað mikið og snögglega.
Þetta voru og eru augljós sann-
indi í fjármálafræðum. En sér-
fræðingar bankanna hjálpuðu
íslenskum neytendum að leggja
þessa snöru um háls sér. Marg-
ir neytendur hafa eflaust verið
grunlausir þótt sumir hafi líka
viljandi tekið sjénsinn. Á erlend-
um vettvangi eru viðskipti með
stóra gjaldmiðla umfangsmikil
og ópersónuleg, fáir hafa áhrif á
markaði. Í hinu örsmáa hagkerfi
Íslands gegnir öðru máli. Þegar
innstreymi gjaldeyris þraut og
ljóst var að leiðrétting krónunnar
var í vændum lögðust innherjar
bankanna á eitt að hjálpa til við að
fella gengið. Um leið hengdu þeir
marga vini, ættingja og nágranna
í snöru myntkörfulána.
Fjármálakerfið er rjúkandi
rúst, gjaldmiðillinn er ónýtur,
mörg heimili og fyrirtæki gjald-
þrota. Öllum er ljóst hvað gerðist.
Innherjar létu greipar sópa í fjár-
málafyrirtækjum. Ríkisstjórn,
Alþingismenn og eftirlitsaðilar
voru ýmist skeytingarlaus eða
tóku þátt í leiknum. Seðlabanki
og Fjármálaeftirlit sýndu sér-
staklega vítavert aðgerðarleysi í
aðdraganda hrunsins.
Vissulega má gagnrýna nýskip-
aðan utanþingsráðherra fyrir að
hafa yfirsést sum minnisblöð um
lögfræðileg álitamál tengd einum
flokki útlána gjaldþrota fjármála-
stofnanna. En að krefja hann um
afsögn er í besta falli hrænsi, í
versta falli tilraun til að beina
athygli og ábyrgð frá gerendum
hrunsins og varpa skuld á björg-
unarfólk. Ekki síst þegar krafan
kemur frá þeim sem áttu að gæta
almannahagsmuna í aðdraganda
hrunsins. Brennuvörgum fer illa
að gagnrýna slökkviliðsmann þó
hann sprauti óvart aðeins út í loft-
ið.
Fyrir fjórtán árum kom bréf inn um lúguna hjá mér. Bréfið var
sent til allra starfandi presta þjóð-
kirkjunna og lýsti upplifun konu
sem ásakaði þáverandi biskup um
kynferðisbrot . Ég sat lengi með
þetta bréf í kjöltunni. Svo lagði
ég það inn í myrkasta og dýpsta
hornið á skápnum á skrifstofunni
og vonaði að það hyrfi. Stundum
fannst mér eins og skápurinn log-
aði og það komu frá honum þung
taktviss högg. Ég flutti prédik-
un í kirkjunni þar sem ég hvatti
til þess að biskupinn tæki sér
frí meðan málið væri rannsak-
að. Ekki gekk það eftir og stuttu
seinna heyrðust fregnir af því að
allir prófastarnir hefðu lýst yfir
stuðningi við hann. Enn lét bréf-
ið ófriðlega í skápnum. Haldinn
var fjölmennur fundur presta
um málið og þrýstingur á bisk-
up jókst. Nokkur okkar undir-
bjuggu tillögu á Prestastefnu þar
sem farið var fram á að biskup-
inn færi í leyfi. Á Prestastefnunni
lýsti yfirmaður kirkjunnar því
yfir að hann myndi láta af emb-
ætti ári síðar fyrir aldurs sakir og
mér var mikið létt. Nú væri þessi
saga gleymd og grafin, nú þyrfti
enga tillögu, hægt væri að hugsa
til framtíðar og bréfið léti mig í
friði að eilífu.
Ég biðst afsökunar á ráðleysi
mínu í þessu máli sem rann inn
um lúguna hjá mér og mörgum
öðrum á því herrans ári 1996. Ég
hef tekið þátt í að þegja þunnu
hljóði. Ég heyrði ásakanir á hend-
ur vígsluföður mínum og yfir-
manni kirkju minnar og aðhafðist
lítið. Ég hringdi aldrei í konuna
sem sendi mér bréfið, ekki gagn-
rýndi ég heldur prófastana opin-
berlega. Mér var nóg að sá sem
styrinn stóð um viki til hliðar. Ég
hygg að ég eigi þennan feril sam-
eiginlegan með mörgum. Kyn-
ferðisbrot er brot eins aðila gegn
öðrum, en með í myndinni eru
gjarnan óvirkir meðspilarar líka,
sem láta kyrrt liggja, horfa í hina
áttina og loka fjölskyldu- og stofn-
anasögur inni í skápnum. Og nú
logar skápurinn á ný. Dóttir hins
látna biskups gekk á fund kirkju-
ráðs í liðinni viku og greindi þeim
frá því að faðir sinn hefði misnot-
að sig kynferðislega í æsku. Saga
konunnar sem kom fram 1996 fær
nú byr undir báða vængi. Núver-
andi biskup er legið á hálsi að hafa
tekið þátt í að þagga niður málið
frá 1996, ekki aðeins sem óvirki
meðspilandinn sem ekkert heyrði
og ekkert sá, heldur í sálgæsluvið-
tali með konunni. Þar með liggur
höfuð kirkjunnar undir alvarlegu
ámæli.
Biskup er höfuð kirkjunnar
og í persónu hans kemur saman
hið persónulega og hið opinbera.
Biskupinn er tákn um einingu
kirkjunnar og talsmaður hennar.
Biskup er tilsjónarmaður prest-
anna. Undanfarna daga hefur
allt sálgæslu- og æskulýðsstarf
kirkjunnar verið sett í uppnám.
Á þeim vettvangi er mikið og gott
starf unnið. Prestar eru virkir í
barnaverndarstarfi um land allt
og vinna samfélaginu mikið gagn
með sálgæslu sinni. Þjóðkirkj-
an stendur fyrir öflugu barna-
og æskulýðsstarfi. Hún hefur
sett sér starfsreglur um með-
ferð kynferðisbrota og siðareglur
handa þeim sem starfa með börn-
um og unglingum. Hún hefur sett
á laggirnar fagráð sem skipað er
presti sem hefur sérmenntun í sál-
gæslu, lögfræðingi og hjúkrunar-
fræðingi. Regluverk, stofnanir og
nefndir eru dýrmætur rammi um
mikilvæg réttlætismál, en ramm-
inn glatar trúverðugleika sínum ef
minnsti grunur leikur á að kirkj-
an tali tungum tveim í kynferð-
isbrotamálum. Skiptir þá engu
hvort um sé að ræða ný mál eða
gömul. Kynferðisafbrotamál geta
fyrnst að lögum, en sálgæsla og
úrvinnsla rennur aldrei út. Þjóð-
kirkjan stendur í nánum tengslum
við þjóðríkið og embættis-menn
hennar eiga að sjálfsögðu að fara
að lögum um tilkynningaskyldu
eins og aðrir þegnar samfélagsins.
Þeir eru einnig undir sérstakri til-
kynningaskyldu samkvæmt barna-
verndarlögum, ásamt öðrum sem
hafa sérstakan aðgang að börnum
og ungmennum, læknum, hjúkrun-
arfræðingum, kennurum og fleiri
fagstéttum.
Hvernig ætlar Þjóðkirkjan að
ganga frá þessu máli núna? Hún
getur að mínu viti ekki leyst úr því
máli sjálf sem hér er komið upp
og trúverðugleiki hennar er í veði.
Óhægt er fyrir núverandi biskup
Íslands að tjá sig með sannfær-
andi hætti um meint afbrot fyrr-
verandi biskups vegna ásakana á
hendur honum sjálfum um að hann
hafi með virkum hætti tekið þátt
í að þagga málið niður árið 1996.
Yfirstjórn kirkjunnar á að mínum
dómi að fara þess á leit við mann-
réttindamálaráðuneyti, félags-
málaráðuneyti og Siðfræðistofn-
un Háskólans að nú þegar verði
sett saman óháð sannleiksnefnd
til að rannsaka ásakanir um þögg-
un íslensku þjóðkirkjunnar vegna
meints kynferðisofbeldis þess
manns sem áður gegndi æðsta
embætti kirkjunnar. Íslenska
þjóðkirkjan má ekki stjórnast af
máttleysi eða yfirdrepsskap í við-
brögðum sínum næstu daga og
vikur. Þetta mál þarf að rannsaka
og axla á því ábyrgð og það fyrir
dómsdag. Það er kominn tími til
að brotnar kirkjusögur komi út úr
skápnum.
Yfirstjórn kirkjunnar á að mínum
dómi að fara þess á leit við mannrétt-
indamálaráðuneyti, félagsmálaráðu-
neyti og Siðfræðistofnun Háskólans að
nú þegar verði sett saman óháð sannleiksnefnd til að
rannsaka ásakanir um þöggun íslensku þjóðkirkjunn-
ar vegna meints kynferðisofbeldis þess manns sem
áður gegndi æðsta embætti kirkjunnar.
Stjórnmál
Sveinn Valfells
eðlisfræðingur og
hagfræðingur
Brennuvargar gagnrýna
FYRIR ÞÁ SEM VILJA
MIKLU MEIRA Á MILLI
Þú færð ferska og gómsæta samloku frá Sóma á hverjum degi í næstu verslun.
FERSKAR Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI!
Í Sómahyrnunum er
talsvert meira af áleggi
og fersku grænmeti
en þú átt að venjast
og að sjálfsögðu er
brauðið beint
úr ofninum.
Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar
þannig að betri námsárangri.
Vönduð blanda fiski- og
kvöldvorrósarolíu sem
eflir og styrkir:
• Hugsun
• Einbeitingu
• Sjón
• Hormónajafnvægi
Einstakt gegn
lesblindu og
ofvirkni.
Hentar fólki á öllum aldri.
Fæst í fljótandi formi
og hylkjum í lyfja- og
heilsuverslunum.
Efalex er einstök samsetning úr hreinni
kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár
mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt
tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni
og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi
lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum.
Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla
að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem
eykur færni okkar til þess að læra.
Þjóðkirkjan
Sigríður
Guðmarsdóttir
sóknarprestur í
Grafarholtsprestakalli og
doktor í guðfræði
Brotnar kirkjusögur