Fréttablaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 50
34 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1.777 FH Fylkir TÖLFRÆÐIN Skot (á mark): 17-9 (10-3) Varin skot: Gunnleifur 1 – Fjalar 6 Horn: 7-2 Aukaspyrnur fengnar: 5-5 Rangstöður: 1-3 FYLKIR 4–5–1 Fjalar Þorgeirsson 4 Kjartan Á.Breiðdal 5 Valur F.Gíslason 5 Þórir Hannesson 4 Andri Þór Jónsson 4 (73. Pape M. Faye -) Tómas Þorsteinsson 6 Ásgeir B. Ásgeirsson 6 Kristján Valdimarsson 5 (68. Ólafur Stígsson 4) Andrés Jóhannesson 6 (60. Ingim. Óskarss. 5 ) Ásgeir Arnþórsson 5 Jóhann Þórhallsson 6 FH 4–5–1 Gunnleifur Gunnleifs. 5 Ásgeir G. Ásgeirsson 4 (69. Gunnar Guðm. 6) Freyr Bjarnason 6 Tommy Nielsen 6 Hjörtur Valgarðsson 5 Ólafur Páll Snorrason 5 Björn D. Sverrisson 5 Matthías Vilhjálmsson 6 Pétur Viðarsson 5 Atli Guðnason 6 (86. Gunnar Kristjáns. - ) Atli Viðar Björnsson 7* *Maður leiksins 0-1 Andrés Már Jóhannesson (27.) 0-2 Jóhann Þórhallsson (30.) 1-2 Freyr Bjarnason (44.) 2-2 Gunnar Már Guðmundsson (69.) 3-2 Atli Viðar Björnsson (71.) 4-2 Atli Viðar Björnsson (73.) 4-2 Kristinn Jakobsson (8) … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Hásteinsvöllur, áhorf.: 816 ÍBV Grindavík TÖLFRÆÐIN Skot (á mark): 6-6 (15-10) Varin skot: Albert 5 – Óskar 6 Horn: 8-6 Aukaspyrnur fengnar: 9-1 Rangstöður: 4-0 GRINDAV. 4–4–2 Óskar Pétursson 6 Alexander Magnúss. 8 Ólafur Örn Bjarnason 7 Auðun Helgason 7 Jósef Kr.Jósefsson 6 Scott Ramsay 6 (88. Guðm. Bjarnason -) Orri Freyr Hjaltalín 7 Jóhann Helgason 7 Hafþór Æ. Vilhj. 8* (75. Óli Bjarnason -) Grétar Hjartarson 6 (62. Ray Jónsson 6) Gilles Mbang Ondo 6 *Maður leiksins ÍBV 4–4–2 Albert Sævarsson 6 James Hurst 5 Rasmus Christiansen 6 Eiður Sigurbjörnsson 7 Matt Garner 6 Finnur Ólafsson 6 (75. Ásgeir Ásgeirsson -) Andri Ólafsson 5 Damien Warlem 5 Tony Mawejje 5 (71. Gauti Þorvarðars. -) Eyþór H. Birgisson 5 (62. Denis Sytnik 4) Tryggvi Guðmunds. 5 0-1 Hafþór Ægir Vilhjálmsson (26.) 0-1 Gunnar Jarl Jónsson (8) ÍBV 17 10 3 4 27-17 33 Breiðablik 16 9 4 3 36-18 31 FH 17 8 5 4 33-26 29 KR 15 7 4 4 26-20 25 Stjarnan 16 6 5 5 32-26 23 Keflavík 16 6 5 5 17-19 23 Valur 16 5 7 4 22-26 22 Fram 16 5 5 6 23-24 20 Grindavík 17 5 4 8 20-24 19 Fylkir 17 5 3 8 29-32 18 Selfoss 16 4 2 10 23-36 14 Haukar 16 0 7 9 20-39 7 STAÐAN FÓTBOLTI Eyjamenn tóku á móti Grindvíkingum í vindasömum leik á Hásteinsvellinum í Vestmanna- eyjum í gær en Grindvíkingar komu mörgum á óvart og hirtu öll þrjú stigin. Þetta var mikilvægur leik- ur fyrir bæði liðin að berjast á sitthvorum endanum á töflunni. Grindvíkingar komust með sigri num upp fyrir Fylki og sitja nú í 9. sæti með 19 stig, fimm stigum frá fallsæti. Eyjamenn hefðu getað styrkt stöðu sína á toppi deildar- innar og náð fimm stiga forystu á Blika. Grindvíkingar byrjuðu með vindinn í bakið en vindhraði á vell- inum var um 20 metrar á sekúndu. Þeir voru mun hættulegri í fyrri hálfleiknum og uppskáru mark eftir 27. mínútna leik. Þar var að verki Hafþór Ægir Vilhjálmsson sem komst einn í gegn þegar send- ing kom fyrir aftan vörn Eyja- manna, Albert Sævarsson kom út á móti og reyndi að ná sendingunni en Hafþór Ægir náði að pota í bolt- ann og urðu svo ekki á nein mis- tök á þegar hann renndi boltanum í tómt mark Eyjamanna. Eftir markið héldu Grindvíking- arnir áfram að sækja en náðu ekki að bæta öðru markinu við fyrir hálfleik. Eyjamenn reyndu svo að sækja í sig veðrið með vindinn í bakið í síðari hálfleik en ekkert gekk að brjóta vörn Grindvíkinga á bak aftur. Eyjamenn reyndu mikið að senda í svæði og náðu ekki að halda boltanum á jörðinni en það er ekki góðs viti í svona miklum vindi. „Við vorum allavegana ekki að gera það sem þarf að gera og ætl- uðum að gera. Það eru einfaldlega ákveðnar reglur sem gilda þegar maður spilar í svona roki og við þekkjum þær reglur alveg, ég veit ekki hvað var í gangi hvort það var bara einhver taugaspenna og menn gleymdu sér bara. Í svona vindi verðum við bara að spila niðri, spila í fætur en ekki í svæði og bara ákveðnar reglur sem maður verður að fara eftir, “ sagði Heimir Hallgrímsson eftir leikinn. Grindvíkingar fóru með sann- gjarnan 0–1 sigur af hólmi í leik þar sem lítið var um góð tilþrif. Mikil stígandi hefur verið á liði Grindvíkinga síðan Ólafur Örn Bjarnason tók við og ljóst er að þeir geta unnið hvaða lið sem er í þessari deild. „Við ákváðum strax að leggja ekki áherslu á fallbaráttuna þannig séð heldur bara að einblína á okkur sjálfa. Við erum að reyna að bæta okkar leik, bæta leikskipulag og leikskilning hjá liðinu og þá koma stigin,“ sagði Ólafur Örn. - vsh Grindvíkingar sendu Fylkismenn niður fyrir sig eftir frábæran sigur á toppliði ÍBV í Eyjum: Eyjamenn brutu eigin reglur í vindinum SIGRAÐIR Eyjamenn töpuðu á heima- velli í gær og geta misst toppsætið í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI „Við tvíefldumst við mark- ið sem Freyr Bjarnason skoraði undir lok fyrri hálfleiks og spiluð- um svo virkilega vel í seinni hálf- leik,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH eftir mikilvægan sigur liðsins á Fylki, 4-2, á Kaplakrika- velli í gær. Fylkir komst tveimur mörk- um yfir í leiknum með mörkum frá Andrési Má Jóhannessyni og Jóhanni Þórhallssyni. FH náði með miklum karakter að snúa leiknum sér í hag og halda lífi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. „Ég þurfti ekki að messa yfir mínum mönnum í hálfleik. Ég sá að þeir voru að leggja sig fram og spila saman sem eitt lið. Það er þá sem lið ná árangri.“ Heimir gerði góða skiptingu í stöðunni 1-2 þegar hann setti Gunnar Má Guðmundsson inn á um miðbik síðari hálfleiks. Gunn- ar þakkaði traustið með að skora nokkrum sekúndum seinna úr sinni fyrstu snertingu. „Gunnar Már er góður skotmaður og var sneggri að setja mark sitt á leik- inn en ég átti von á,“ segir Heim- ir og hlær. „Heimir bað mig að koma inn á til að reyna að breyta einhverju og það tókst í þetta skiptið. Þetta var algjört draumaskot hjá mér úr fyrstu snertingu. Eftir að við jöfn- uðum leikinn þá varð ekki aftur snúið,“ sagði Gunnar Már. FH er nú aðeins fjórum stigum á eftir ÍBV sem situr í efsta sæti deildarinnar með 33 stig þegar fimm umferðir eru eftir. Atli Viðar Björnsson var á skotskónum í gær og skoraði tvö mörk í leikn- um á aðeins tveimur mínútum og tryggði FH sigurinn. Hann telur að sigurinn í gær geti haft jákvæð áhrif fyrir framhaldið. „Við gerum okkur grein fyrir því að nú megum við ekki misstíga okkur. Þessi sigur getur hjálpað okkur gríðarlega. Andinn í hópn- um verður örugglega mun léttari úr því að við unnum leikinn,“ segir Atli Viðar en FH-ingar mæta næst KR á útivelli í sannkölluðum stór- leik. Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylk- is, var sár og svekktur með gengi og stöðu sinna manna. Hann telur að einbeitingarleysi sé helsta ástæðan fyrir slæmu gengi liðsins að undanförnu. „Menn einfaldlega halda ekki haus og við höfum glímt við þetta vandamál í allt sumar,“ segir Ólafur sem veltir framtíð sinni hjá félaginu fyrir sér. „Við þurfum annað hvort að fá betri leikmenn eða nýjan þjálfara. Við höfum reynt ýmislegt í sumar til að létta andann í hópnum þegar illa hefur gengið og verðum að halda því áfram. Það er hins vegar mjög erfitt að horfa upp á svona hluti leik eftir leik. Það er eitthvað sem vantar í hópinn, það er alveg ljóst, hvort sem það eru sterkari karakterar eða eitthvað annað,“ segir Ólafur sem útilokar ekki að hann hætti sem þjálfari liðsins. „Maður veit aldrei hvað gerist í lífinu og ég spái alvarlega í mína framtíð.“ - jjk Endurkoma FH hélt lífi í titilvoninni Ólafur Þórðarson íhugar að segja af sér hjá Fylki eftir 4-2 tap gegn FH í gær. Liðið er komið í bullandi botn- baráttu á meðan Íslandsmeistararnir eru aðeins fjórum stigum frá ÍBV. FH lenti 0-2 undir en vann samt. SKALLI FH-ingar voru framar í gær, á nánast öllum sviðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AÐÞRENGDUR Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH í baráttu við þrjá Fylkismenn í leikn- um í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.