Fréttablaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 23. ágúst 2010 35
Sex vikna átaksnámskeið hefjast 30 ágúst. M&N-training nýtt á Íslandi
Konuátak
konuátak
Karlaátak
Krefjandi
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 565-2212/565-2712 mottaka@hress.is
Markmiðum náð
• Meiri árangur og hámarks brennsla
• Vikulegur netpóstur
• Vigtun og mælingar sem veita aðhald
• Mataræði sem hreinsar, eykur bruna og gefur orku
• Fjölbreytt þjálfunarmunstur
• Þú kynnist m.a TABATA, Hot Yoga, Les Mills tímum
og M&N-Training
• Ótakmarkaður aðgangur að fjórum stöðvum og sundi
• Framhaldsnámskeið-hraðferð
• Árangur á met tíma
• Hámarks brennsla
• Vigtun, mælingar og mataræði sem veita strangt aðhald
• Vikulegur netpóstur
• Mjög fjölbreyttir tímar
• Ótakmarkaður aðgangur að fjórum stöðvum og sundi
• Meiri orka, kraftur og styrkur
• Hámarks brennsla
• Vigtun og mælingar sem veita gott aðhald
• Vikulegur netpóstur um bætt mataræði og
fræðslupunkta
• Mjög fjölbreyttir tímar m.a stöðvaþjálfun, BodyPump,
M&N-training
• Ótakmarkaður aðgangur að fjórum stöðvum og sundi
Námskeið kl. 6.05, 9.15, 16.30 og 17.30. 3 x í viku.
Námskeið kl. 6.05 og 18.30 3 x í viku.
Námskeið kl. 18.30 3 x í viku.
Verð fyrir átaksnámskeið
kr. 21.990.- Korthafar kr. 12.990.-
FÓTBOLTI Fjórir leikir fara fram í
Pepsi-deild karla í kvöld. Keflvík-
ingar taka á móti Stjörnunni, Fram-
arar á móti Selfyssingum, Vals-
menn á móti KR-ingum og Alfreð
Finnbogason og félagar í Breiða-
bliki á móti botnliði Hauka.
Fjöldi útsendara verður á leikn-
um í kvöld til að fylgjast með
Alfreð. Þeir eru frá Frakklandi,
Danmörku og Póllandi en þaðan
hefur einmitt borist tilboð frá
Lechi Gdansk. Samningaviðræður
Blika og pólska félagsins eru enn
í gangi en það hefur áhuga á að
kaupa Alfreð eða fá hann að láni.
Áður var talið að tilboðið hljóðaði
upp á um fimmtán milljónir íslen-
kra króna en samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Fréttablaðsins er
það mun hærra.
„Ég reyni bara að hugsa um að
standa mig. Auðvitað hugsar maður
aðeins um þetta en ég hef áður vitað
af því að menn séu að fylgjast með
mér. Ég breyti ekki út af neinu, ég
er ekkert að fara að reyna að klára
leikinn einn heldur snýst þetta um
liðið,“ segir sóknarmaðurinn geð-
þekki.
Hann á ekki von á auðveldum
leik gegn Haukum. „Ef maður
mætir ekki klár á maður ekki von
á góðu. Það eru engir auðveldir
leikir í þessari deild. Haukar hafa
staðið sig vel í mörgum leikjum og
hirt stig af KR og fleiri liðum. Þá
er eflaust farið að þyrsta í fyrsta
sigurinn líka,“ segir Alfreð. - hþh
Alfreð Finnbogason leiðir framlínu Blika í kvöld fyrir framan fjölda útsendara:
Reyni að hugsa ekki um þetta
EFTIRSÓTTUR Fjöldi félaga er að fylgjast
með sóknarmanninum knáa sem hefur
skorað tólf mörk í sextán leikjum í
sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Gilles Ondo er eftirsótt-
ur af félögum um allan heim og
líklegt er að tilboð berist í hann
áður en félagaskiptaglugginn
lokar þann 1. september. Grind-
víkingar mega ekki við því að
missa sinn helsta markaskorara
segir Þorsteinn Gunnarsson,
formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur.
„Það er mjög ólíklegt að við
seljum hann. Við erum í bullandi
fallbaráttu og við höfum bara
ekki efni á því. Hann er samn-
ingslaus eftir tímabilið og það
er ekkert launungamál að hann
ætlar sér að spila í stærri deild,“
sagði Þorsteinn.
Nánast engar líkur eru því á
því að hann fari þar sem ekkert
félag er væntanlega tilbúið að
greiða háa upphæð fyrir Ondo
í ágúst þegar það getur fengið
hann frítt í október. - hþh
Gilles Ondo eftirsóttur:
Höfum ekki efni
á að selja Gilles
GÓÐUR Ondo hefur verið góður í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Íslenska U-18 ára
landsliðið hafnaði í tólfta sæti á
Heimsmeistaramótinu í Svart-
fjallalandi. Það tapaði lokaleikn-
um gegn Tékkum 32-30 þegar
spilað var um ellefta sætið. Akur-
eyringurinn Geir Guðmundsson
var maður leiksins en hann var
markahæstur með tíu mörk. - hþh
U-18 ára landslið Íslands:
Elleftu á HM
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson
skoraði tvö mörk og lagði upp
eitt í 4-0 sigri Stabæk á Høne-
foss í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær. Bjarni Ólafur
Eiríksson spilaði allan leikinn
eins og Veigar en Pálmi Rafn
Pálmason síðustu þrettán mínút-
urnar. Kristján Örn Sigurðsson
var í vörn Hønefoss.
Björn Bergmann Sigurðsson
og Stefán Logi Magnússon var í
byrjunarliði Lilleström sem vann
Aalasund 1-0. Birkir Bjarnason
og Indriði Sigurðsson léku allan
leikinn fyrir Viking sem gerði 2-2
jafntefli við Start og Árni Gautur
Arason fékk á sig þrjú mörk í 3-1
tapi Odd Grenland gegn Tromsö.
Ragnar Sigurðsson, Hjálmar
Jónsson og Theodór Elmar
Bjarnason léku allan leikinn í 2-0
tapi IFK Gautaborg gegn Djur-
gården í sænsku úrvalsdeildinni.
Ragnar fékk tvö gul spjöld og þar
með rautt í seinni hálfleik. - hþh
Veigar Páll Gunnarsson:
Skoraði tvö og
lagði upp eitt