Fréttablaðið - 20.09.2010, Side 4
4 20. september 2010 MÁNUDAGUR
ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslunni
barst í gærmorgun beiðni um
aðstoð frá skemmtibátnum Gypsy
Life, sem var í vandræðum um
níutíu sjómílur vestur af Bjarg-
töngum. Var báturinn á leið frá
Grænlandi til Íslands með tvö um
borð. Vindhraði á svæðinu var
töluverður með krappri öldu.
Varðstjórar LHG höfðu sam-
band við togarann Guðmund í
Nesi sem staddur var um fimmt-
án sjómílur frá bátnum. Björg-
unarskipi Slysavarnafélagsins
á Patreksfirði var siglt til móts
við skipin og tók við fylgd báts-
ins. Ekki var ákveðið hvar komið
yrði til hafnar þegar blaðið fór í
prentun. - shá
Í vanda á leið frá Grænlandi:
Skemmtibáti
fylgt til lands
Á LANDLEIÐ Togarinn fylgdi bátunum
áleiðis. MYND/GUÐMUNDUR ÁSKELSSON
ALÞINGI Pétur H. Blöndal Sjálfstæð-
isflokki vill að erlendum matsfyrir-
tækjum og lánveitendum bankanna
verði bætt við
ályktun Alþingis
um þá er mesta
ábyrgð bera á
bankahruninu.
Þingmanna-
nefnd leggur til
að ályktað verði
að stjórnendur
og helstu eig-
endur fjármála-
fyrirtækja beri mesta ábyrgð. Að
auki vill Pétur að veilu í hlutabréfa-
forminu verði einnig kennt um.
Í breytingatillögu við þings -
ályktun nefndarinnar leggur
Pétur jafnframt til að Alþingi
verði launagreiðandi þingmanna
en ekki fjármálaráðuneytið, þing-
menn einir semji frumvörp eða rit-
stýri þeim og að fall sparisjóða og
vátryggingafélaga verði rannsak-
að. - bþs
Matsmenn og lánardrottnar:
Fjölgað verði á
lista yfir ábyrga
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
23°
19°
17°
21°
24°
15°
15°
24°
20°
27°
24°
33°
15°
22°
18°
15°Á MORGUN
3-6 m/s
og víða smá væta.
MIÐVIKUDAGUR
Hæg breytileg
átt um allt land.
8
6
4
6
4
8
7
10
3
5
9
7
5
4
6
3
4
3
8
4
7
6
7
5
5
4
8 9
4 5
4
6
HÆGT EN SVALT Í
dag og næstu daga
eru horfur á fallegu
haustveðri. Vindur
verður fremur hæg-
ur og það verður
heldur svalt í veðri.
Búast má við ein-
hverri úrkomu,
einkum súld og
slyddu á morgn-
ana og kvöldin. Inn
til landsins verður
að mestu þurrt og
nokkuð bjart.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
BESSASTAÐIR Forseti Slóvakíu, Ivan Gaspar-
ovic, átti fund með Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands, á Bessastöðum í gær.
Þjóðarleiðtogarnir ræddu meðal annars
nýtingu jarðvarma til orkuframleiðslu og
umsókn Íslands um aðild að Evrópusam-
bandinu. Slóvakía fékk aðild að Evrópu-
sambandinu árið 2002 og segir Gasparovic
inngöngu í sambandið hafa átt stóran þátt í
efnahagslegri uppbyggingu landsins undan-
farin ár.
Gasparovic kom til landsins í gær og held-
ur áfram för sinni síðar í dag. Hann fundar
með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra og Össuri Skarphéðinssyni utanríkis-
ráðherra áður en hann heldur af landi brott
auk þess sem hann heimsækir Alþingi.
Gasparovic hefur gegnt embætti forseta
frá árinu 2004 og er sá eini í sögu landsins
sem náð hefur endurkjöri.
Íslandsdeild Amnesty International
afhenti helstu ráðamönnum landsins bréf
í gær þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött
til þess að vekja athygli forseta Slóvakíu á
mannréttindabrotum gegn rómabörnum í
Slóvakíu. Þúsundir rómabarna þar í landi
hljóta að sögn Amnesty International ófull-
nægjandi menntun í skólum sökum aðskiln-
aðarstefnu sem ríkir innan menntakerfis-
ins.
Samtökin efna til mótmælafundar fyrir
fram alþingishúsið klukkan 9.10 í dag - sm
Ivan Gasparovic, forseti Slóvakíu, átti fund með forseta Íslands á Bessastöðum í gær:
Forsetar ræddu aðildarumsókn Íslands
RÆDDU SAMAN Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, átti fund með forseta Slóvakíu, Ivan Gasparov-
ic, á Bessastöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AFGANISTAN Talning atkvæða
hófst í Afganistan í gær en þing-
kosningar fóru fram í landinu á
laugardag. Kosningareftirlits-
menn hafa lýst yfir áhyggjum af
framkvæmd kosninganna. Búist
er við að talning atkvæða geti
tekið nokkra mánuði.
Núverandi þing hefur glatað
trausti þjóðarinnar vegna gruns
um víðtækt kosningasvindl í for-
setakosningunum sem fram fóru
í landinu á síðasta ári.
Árásir hryðjuverkamanna á
kjörstaði víða um landið trufluðu
kosningarnar sem og störf eftir-
litsmanna, en um sjö þúsund eft-
irlitsmenn fylgdust með kosning-
unum í ár. - sm
Þingkosningar í Afganistan:
Talning tekur
nokkra mánuði
SJÁVARÚTVEGUR Makríll sem veiddur
var inni á Berufirði fyrir nokkrum
dögum var troðinn af loðnuseið-
um. Á sama tíma og samnorrænn
rannsóknaleiðangur mælir millj-
ónir tonna af makríl á ferðinni á
hafsvæðinu kringum landið spyrja
sjómenn hvaða áhrif göngurnar
hafi á aðra stofna. Sú vitneskja
fæst ekki nema með frekari rann-
sóknum, að sögn sérfræðinga.
„Besta samlíkingin er líklega
engisprettufaraldur“, segir á vef
Landssambands smábátaeigenda
og til þess vísað að 25 grömm af
tveggja sentimetra loðnuseiðum
fundust að meðaltali í maga makr-
íls sem veiddist fyrir austan. „Það
þarf hvorki fjörugt ímyndunar-
afl né mikla reiknihæfileika til að
átta sig á því hvers konar ryksug-
ur makríltorfurnar eru við slíkar
aðstæður“, segir á vef LS.
Í sumar var farinn sameiginleg-
ur rannsóknaleiðangur Íslendinga,
Norðmanna og Færeyinga í kring-
um Ísland, Færeyjar og í norska
hafinu. Vísbendingar eru um að
fjórar til fimm milljónir tonna af
makríl hafi verið á svæðinu, þar
af um 650 þúsund tonn á því svæði
sem rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson kannaði innan íslensku
lögsögunnar.
Sveinn Sveinbjörnsson, sérfræð-
ingur á nytjastofnasviði Hafrann-
sóknastofnunar, segir eðlilegt að
loðnuseiði finnist í maga makr-
íls fyrir austan. Makríllinn taki
loðnuseiði þar sem þau gefast,
eins og fleiri tegundir. „En aðal
útbreiðslusvæði loðnuseiða er í
kalda sjónum úti fyrir Norðurlandi
þar sem ekki finnst mikill makríll.
Ef makríllinn hins vegar ryðst þar
inn færi maður að hafa verulegar
áhyggjur.“
Sveinn gefur lítið fyrir uppnefni
á makrílnum eins og „rottur hafs-
ins“ og „engisprettur“. Hér sé kom-
inn að landinu geysilega verðmætur
stofn „og ég reikna með því að sjó-
menn séu að vitna til þess að ástæða
sé til að veiða meira en nú er gert.“
Sveinn segir makrílgöngurn-
ar hafa komið á mikilvægum tíma
þar sem loðnan hafi lítið gefið sig
frá 2006. Sama megi segja um kol-
munna og veiðar úr íslenska síld-
arstofninum gefi minna en áður.
Líkur séu jafnframt á minni veiði
úr norsk-íslenska síldarstofninum
en verið hefur. „Hvað loðnuna varð-
ar þá minni ég á að makríllinn var
ekki farinn að ganga hingað þegar
loðnustofninn gaf eftir. Þar ber
frekar að líta til umhverfisbreyt-
inga. Það eru vísbendingar um að
seiðin berist norður í haf og síðan
jafnvel vestur undir Grænland.
Þar lenda þau í Austur-Grænlands-
strauminn og það er ekki víst að
þessi seiði skili sér hingað aftur í
einhverju magni.“
svavar@frettabladid.is
Makrílnum líkt við
engisprettufaraldur
Hafrannsóknastofnun hefur staðfest að makrílgöngur við landið hafa aldrei
verið stærri. Smábátar fyrir austan veiða makrílinn inni á fjörðum troðinn af
loðnuseiðum. Óljóst er hvaða áhrif göngurnar hafa á vistkerfið í hafinu.
PÉTUR BLÖNDAL
ÞORSTEINN KEMUR TIL LÖNDUNAR Makrílkvótinn er 130 þúsund tonn sem er tvö til
þrjú prósent af því magni sem er á ferðinni í Norður-Atlantshafi. Þorsteinn ÞH-360
hefur veitt 4.665 tonn af makríl í sumar. MYND/ÓSKAR
LÖGREGLUMÁL Yfirheyrslur héldu
áfram um helgina yfir sexmenn-
ingunum sem sitja í gæsluvarð-
haldi vegna gruns um að hafa
svikið út hátt í 300 milljóna
króna endurgreiðslur á virðis-
aukaskatti.
Jón H.B. Snorrason, sem hefur
yfirumsjón með rannsókninni,
sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöld að fleiri hafi verið yfir-
heyrðir vegna málsins.
Meintir fjársvikarar í haldi:
Yfirheyrslur
héldu áfram
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 17.09.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,6002
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,58 117,14
182,63 183,51
152,61 153,47
20,491 20,611
19,177 19,289
16,526 16,622
1,3584 1,3664
177,67 178,73
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við
697 kr/kg