Fréttablaðið - 25.09.2010, Page 2
2 25. september 2010 LAUGARDAGUR
KÖNNUN Skiptar skoðanir eru
á því meðal landsmanna hvort
byggja eigi mosku í Reykjavík.
Samkvæmt nýrri könnun Frétta-
blaðsins eru 41,8 prósent andvíg
byggingu mosku en 36,6 prósent
eru hlynnt því að moskan rísi.
Alls sögðust 17,2 prósent mjög
fylgjandi því að múslimar fái að
byggja mosku í Reykjavík, og
19,4 prósent sögðust því frekar
fylgjandi. Þá sögðust 21,6 pró-
sent hlutlaus í afstöðu sinni til
byggingar mosku. Um 13,5 pró-
sent þeirra sem afstöðu tóku voru
frekar andvíg því að múslimar
fái að reisa mosku í Reykjavík,
og 28,3 prósent voru því mjög
andvíg.
Talsverður munur er hins
vegar á afstöðu fólks eftir því
hvaða stjórnmálaflokk það myndi
kjósa yrði gengið til kosninga
nú.
Stuðningsmenn Vinstri grænna
eru hlynntastir byggingu mosku,
52,9 prósent sögðust fylgjandi
byggingu mosku en 25,9 prósent
sögðust henni andvíg.
Stuðningsmenn Samfylkingar-
innar voru einnig jákvæðir gagn-
vart byggingu mosku, 46,8 pró-
sent sögðust því fylgjandi en 29,9
prósent sögðust því andvíg.
Á meðal stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins var mun minni
stuðningur við byggingu mosku.
Alls sögðust 26,7 prósent því
hlynnt en 48,1 prósent andvígt.
Alls sögðust 37,5 prósent stuðn-
ingsmanna Framsóknarflokksins
fylgjandi því að múslimar fái að
reisa mosku, en 45,8 prósent voru
því andvíg.
Ekki reyndist tölfræðilega mark-
tækt að reikna afstöðu stuðnings-
Þriðjungur Íslendinga
mjög andvígur mosku
Tæplega 42 prósent landsmanna eru andvíg því að múslimar fái að reisa mosku
í Reykjavík. Um 37 prósent eru því hlynnt. Stuðningsmenn Samfylkingar og
Vinstri grænna eru jákvæðari en stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins.
10
7,5
5
2,5
0
Hversu fylgjandi eða andvíg(ur)
ertu því að múslimar fái að reisa
mosku í Reykjavík?
Hægt er að sjá afstöðu fólks til byggingar
mosku með því að raða henni á skala
á bilinu núll til tíu, þar sem tíu er mjög
fylgjandi, fimm er hlutlaus og núll er
mjög andvígur.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins
Mjög fylgjandi
17,2%
19,4%
21,6%
13,5%
28,3%
Mjög andvíg(ur)
Frekar
fylgjandi
Hlutlaus
Frekar andvíg(ur)
Allir
Mjög
fylgjandi
Frekar
fylgjandi
Hlutlaus
Frekar
andvíg(ur)
Mjög
andvíg(ur)
4,6
4,5
Karlar
4,7
Konur
Stuðningsmenn stærstu flokkanna
4,8
3,9
5,7 5,9
manna annarra flokka til spurning-
arinnar.
Hringt var í 800 manns fimmtu-
daginn 23. september. Þátttakend-
ur voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni og hlutfallslega
eftir búsetu og aldri. Spurt var:
Hversu fylgjandi eða andvíg(ur)
ertu því að múslimar fái að reisa
mosku í Reykjavík? Alls tóku 97,1
prósent afstöðu til spurningar-
innar.
brjann@frettabladid.is
Sigurbjörg, var verið að steypa
bæjarskrifstofunum í glötun?
„Nei, þetta er bara tóm steypa.“
Sigurbjörg Kr. Hannesdóttir er forseti
bæjarstjórnar Grundarfjarðar þar sem
bæjarstjórinn stöðvaði verktaka sem
notaði steypu, sem ekki var keypt þar
innanbæjar, til að endurnýja gangstétt
við bæjarskrifstofurnar.
KONGÓ Að minnsta kosti þrjú
hundruð manns var nauðgað
í austanverðu Kongó í júlí og
ágúst, að því er fram kemur í
bráðabirgðaskýrslu Sameinuðu
þjóðanna um atburðina.
Vopnaðir hópar manna, sem
sumir voru hermenn, gerðu fjöl-
margar árásir á fólk. Nærri þús-
und heimili voru lögð í rúst og
að minnsta kosti 235 konum,
52 stúlkum, þrettán körlum og
þremur drengjum var nauðgað í
þessum árásum, sumum oft.
Sameinuðu þjóðirnar höfðu
áður viðurkennt að friðargæslu-
liðar hafi í sumum tilvikum
brugðist þessu fólki. - gb
Bráðabirgðaskýrsla frá SÞ.:
Hundruðum
var nauðgað
BRETLAND, AP Starfsfólk bresku
konungsfjölskyldunnar fór þess á
leit við opinberan sjóð, sem á að
styrkja fátæklinga til að standa
straum af húshitun, að greitt yrði
úr sjóðnum til húshitunar fyrir
konungsfjölskylduna.
Svar barst, þar sem þessari
málaleitan var kurteislega hafn-
að.
Reikningar fyrir húshitun, raf-
magn og gas til bresku konungs-
fjölskyldunnar höfðu hækkað um
helming og námu rúmlega millj-
ón pundum árið 2004, þegar bréf-
ið var skrifað. - gb
Bretadrottning fékk synjun:
Bað um styrk
til húshitunar
LÖGREGLUMÁL Fjármálaráðuneytið og embætti ríkis-
skattstjóra vinna nú að úrbótum við að lágmarka
áhættu ríkissjóðs eftir að 270 milljónir voru sviknar
út vegna endurgreidds virðisaukaskatts.
Hrundið verður af stað víðtækri endurskoðun á
stjórnun, verklagi, ferlum og meðferð gagna er tengj-
ast virðisaukaskattsinnheimtu. Ráðist verður strax í
þá endurskoðun og hún unnin eins hratt og kostur er.
Áhættumat og áhættustjórnun verður hert, endur-
bætur verða gerðar á innri og ytri ferlum, svo sem
aðkomu starfsfólks, afgreiðsluhraða og krafna til
stofnenda og stjórnenda fyrirtækja. Lagt verður sér-
stakt mat á verklag meðal annars með hliðsjón af
fjárhæðum til endurgreiðslu. Endurskoðaðir verða
starfshættir við samanburð gagna, skráningu upp-
lýsinga og innra eftirlit og loks er lagt mat á hvort
ástæða sé til að breyta lögum eða reglugerðum, og þá
í hverju slíkar breytingar ættu að felast.
Gæsluvarðhald yfir einum af þeim sex, sem sæta
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á fjár-
svikamálinu, var í gær framlengt til 8. október. Um
er að ræða starfsmann ríkisskattstjóra.Lögregla
vinnur að rannsókn málsins. - jss
Unnið að úrbótum til að lágmarka áhættu ríkissjóðs eftir stórfelld skattsvik:
Herða reglur um virðisaukaskatt
FYRIR DÓMARA Einn hinna sex sem sæta gæsluvarðhaldi
vegna fjársvikamálsins var leiddur fyrir dómara í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRAKKLAND, AP Um milljón manns
hélt út á götur í helstu borgum
Frakklands í gær til að mótmæla
hækkun eftirlaunaaldurs um tvö
ár.
Verkföll trufluðu einnig starf-
semi á flugvöllum, lestarstöðvum
og í skólum.
Nicolas Sarkozy forseti ákvað
að hækka eftirlaunaaldur upp í
62 ár til þess að draga úr útgjöld-
um ríkissjóðs í kjölfar heims-
kreppunnar. - gb
Frakkar mótmæla:
Milljón manns
á götunum
ÍRLAND, AP Noel Graelish, óháður
þingmaður á Írlandi, hefur hætt
stuðningi við ríkisstjórn Brians
Cowen vegna stefnu stjórnarinn-
ar í fjármálum.
Hann sagði það óþolandi
„þegar við erum með heilbrigðis-
kerfi sem er að falli komið,“ að
stjórnin skuli verja tugum millj-
arða punda til þess að styrkja
skuldum hlaðna banka.
Með brotthvarfi Graelish
stendur stjórnin tæpt og líkur
þykja hafa aukist á því að kosn-
ingar verði strax á næsta ári. - gb
Þingmaður gengur úr liði:
Írska stjórnin
stendur tæpt
Systur taka árbakka í fóstur
Systurnar Kolbrún og Auður Ingi-
marsdætur, sem áður hafa, til
minningar um foreldra sína, gefið
Hveragerðisbæ 150 þúsund krónur
til ræktunarstarfs á bökkum Varmár,
hafa nú fengið leyfi til að taka í fóstur
árbakkann frá Lystigarðinum að gisti-
heimilinu Frosti og funa. Þar hyggjast
systurnar planta ýmsum trjátegund-
um öllum til yndisauka.
HVERAGERÐI
ALÞINGI Þingsályktunartillögur
um að fyrrverandi ráðherrar
verði ákærðir fyrir landsdómi
eru í samræmi
við ákvæði
stjórnarskrár-
innar um rétt-
láta málsmeð-
ferð.
Þetta er nið-
urstaða meiri-
hluta allsherj-
arnefndar
Alþingis sem
skilaði Atla-
nefndinni áliti sínu á málinu síð-
degis í gær.
Minnihluti Sjálfstæðisflokksins
í allsherjarnefnd er ósammála.
Róbert Marshall, formaður
allsherjarnefndar, segir í samtali
við Fréttablaðið að niðurstaðan
hafi verið sú að þar sem eiginleg
málsmeðferð hefjist ekki fyrr en
landsdómur taki til starfa, hafi
ekkert brot átt sér stað. „Í raun
hefur því ekki enn komið til kasta
70. greinar stjórnarskrár,“ sagði
Róbert.
Atlanefndin fundar í dag og er
búist við að hún afgreiði málið. - þj
Allsherjarnefnd skilar áliti:
Telur mannrétt-
indi ekki brotin
RÓBERT MARSHALL
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir fyrrverandi utanríkisráð-
herra neitar að hafa haldið upplýs-
ingum frá Björgvin G. Sigurðssyni
þáverandi viðskiptaráðherra um
bága stöðu bankanna í aðdrag-
anda bankahrunsins. Jafnframt að
aldrei hafi verið rætt um banka-
áhlaup á Landsbankann í Bret-
landi á fundi sem hún sat með for-
manni bankaráðs Seðlabankans í
forsætisráðuneytinu í apríl 2008.
Þetta kemur fram í bréfi sem
Ingibjörg Sólrún sendi Alþing-
ismönnum í gær vegna þings-
ályktunartillögu þeirra Magnúsar
Orra Schram og Oddnýjar Harðar-
dóttur, fulltrúa Samfylkingar í
þingmannanefnd. Þau hafa lagt
til að Ingibjörg verði dregin fyrir
Landsdóm í stað Björgvins.
Í bréfinu fjallar hún um skýrslu
Rannsóknarnefndar Alþingis um
bankahrunið og ákúrur á hendur
sér í forsætisráðherratíð Geirs H.
Haarde.
Ingibjörg Sólrún segir í bréfinu
ekki hafa haldið upplýsingum frá
samflokksfélögum sínum í ríkis-
stjórninni í aðdraganda banka-
hrunsins. Þvert á móti hafi hún
miðlað upplýsingum af fundum
með Seðlabankanum til ráðherra
Samfylkingarinnar og trúnaðar-
manna á ýmsum fundum. - jab
Ingibjörg Sólrún segist ekki hafa haldið upplýsingum frá Björgvin G. Sigurðssyni:
Miðlaði upplýsingum áfram
INGIBJÖRG SÓLRÚN Segist ekki hafa
haldið upplýsingum frá þáverandi við-
skiptaráðherra.
SPURNING DAGSINS
Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi boðar
til aðalfundar kjördæmisráðsins í Skjólbrekku Mývatnssveit laugar-
daginn 9. október 2010. Léttar veitingar í boði kl 12-13.
Þinghald hefst kl 13.00.
Dagskrá
a. Skýrsla stjórnar og reikningar.
b. Kjör stjórnarmanna skv. lögum kjördæmisráðsins
c. Lagabreytingar
d. Ávörp gesta
e. Almennar stjórnmálaumræður
f. Ályktanir
g. Önnur mál
Rétt til setu á kjördæmisþingi eiga allir formenn aðildarfélaga og einn
fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn í aðildarfélögum kjördæmisráðsins.
Þátttöku á kjördæmisþing skal tilkynnt til formanna aðildarfélaga.
Stjórn kjördæmisráðs.