Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 6
6 25. september 2010 LAUGARDAGUR Holl mjólk hraustir krakkar Á alþjóðlega skólamjólkurdeginum, 29. september, býður Mjólkursamsalan öllum 70.000 grunn- og leikskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum. Með deginum vill íslenskur mjólkuriðnaður vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna. Mjólk er góð! LÖGREGLUMÁL Liðlega tvítugur maður var handtekinn á heimavist Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri um klukkan þrjú aðfaranótt föstudags vegna ógnandi tilburða við samnemendur sína. Maðurinn deildi húsi með þrem- ur öðrum nemendum skólans og var teiti í húsinu, sem mun hafa farið úr böndunum. Maðurinn brá kjöthnífi á loft og hafði í hót- unum við fólkið. Það flúði undan honum inn í herbergi og læsti að sér. Þegar maðurinn gerði tilraun til að brjóta sér leið inn í herbergið hringdi fólkið í lögreglu. Fólkið var komið út úr herberg- inu þegar lögreglu bar að garði. Engin meiðsl urðu á fólki en flytja varð stúlku á sjúkrahús og þurfti hún á áfallahjálp að halda, sam- kvæmt lögreglunni í Borgarnesi. Lögreglan yfirheyrði mann- inn í gær eftir að hann komst í viðræðuhæft ástand. Honum var sleppt lausum að því loknu. Beðið er niðurstöðu blóðrannsóknar sem leiða mun í ljós hversu mikið áfengismagn var í blóði hans. Sam- býlisfólk mannsins hefur kært hann vegna málsins. „Við lítum þetta mál mjög alvar- legum augum, höfum vikið honum úr skólanum og úr húsinu,“ segir Ágúst Sigurðsson, rektor háskól- ans. - jab Maður á þrítugsaldri ógnaði háskólanemendum á Hvanneyri með kjöthnífi: Einn var fluttur á sjúkrahús REKTOR HÁSKÓLANS Ofbeldi er ekki liðið í Landbúnaðarháskólanum, að sögn Ágústs Sigurðssonar rektors. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FRAMKVÆMDIR Viðræðum ríkis- valdsins og lífeyrissjóðanna um aðkomu sjóðanna að fjármögnun vegaframkvæmda miðar vel, að sögn Kristjáns Möller, þingmanns Samfylkingarinnar, sem stýrir þeim fyrir hönd ríkisins. Undir eru tvöföldun Reykjanes- brautarinnar suður fyrir Straums- vík, tvöföldun Suðurlandsvegar suður fyrir Selfoss, tvöföldun á hluta Vesturlandsvegar og Vaðla- heiðargöng. Áætlaður kostnað- ur við verkefnin fjögur er um 38 milljarðar króna. - bþs Umfangsmiklar framkvæmdir: Góður gangur í viðræðunum Auglýsingasími EVRÓPUMÁL Ísland þarf ekki að ótt- ast viðræður við Evrópusamband- ið (ESB), segir Joe Borg, fyrrum utanríkisráðherra Möltu, for- maður samninganefndar lands- ins í ESB-viðræðum á sínum tíma og síðar sjávarútvegsstjóri sam- bandsins. Borg er staddur hér á landi á vegum samtakanna Sterk- ara Íslands, sem vinna að ESB- aðild Íslands. Hann heldur erindi í Háskólanum í Reykjavík í dag undir yfirskriftinni: Hvað má læra af reynslu Möltu? Titillinn vísar til þess að margt sé líkt með reynslu Maltverja og stöðu Íslend- inga í dag. Maltverjar gengu í Evrópu- sambandið árið 2004 og eru nú fámennasta ríki sambandsins með 400 þúsund íbúa. Eftir harða kosningabaráttu þar sem aðild var samþykkt með 53 prósentum atkvæða hafa Maltverjar almennt verið ánægðir með aðildina í skoð- anakönnunum. Í samtali við Fréttablaðið segir Borg að þrennt hafi skipt sköpum við að afla aðild fylgis á Möltu. „Í fyrsta lagi var mikilvægt að allir hagsmunaaðilar komu að við- ræðuferlinu og höfðu sitt að segja. Í öðru lagi fórum við af stað með yfirgripsmikið upplýsingaátak þar sem við útlistuðum nákvæmlega hvað aðild að sambandinu hefði í för með sér fyrir einstaklinginn, bæði kosti og galla, svo hann gæti tekið upplýsta ákvörðun byggða á staðreyndum en ekki upphrópun- um eða röngum upplýsingum. Loks vorum við með afar sterka samninganefnd sem náði fram hagstæðum samningi þar sem við fengum meðal annars í gegn 76 tímabundin sérákvæði.“ Maltverjar fengu einnig í gegn varanleg ákvæði, meðal ann- ars varðandi fiskveiðar. „Til að koma í veg fyrir ofveiði, fengum við að takmarka fjölda veiðileyfa innan 25 mílna. Þannig fengu þeir sem þegar stunduðu veiðar innan svæðisins leyfi og aðrir sem síðar koma eru háðir hámarksfjölda.“ Borg segist loks ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að Íslending- ar nái viðunandi samningum í sjávar-útvegsmálum. „Í viðræðunum er gott að vera ekki of óbilgjarn til að byrja með. Varðandi mál sem eru Íslending- um sérstaklega hugleikin, mun framkvæmdastjórnin gera hvað hún getur til að finna lausn sem er viðunandi fyrir Ísland svo lengi sem það gengur ekki gegn grund- vallarlögum sambandsins. Hins vegar er ég viss um að með útsjón- arsemi og góðum vilja er hægt að finna lausn sem báðir aðilar geta sætt sig við.“ thorgils@frettabladid.is Hægt að finna lausn í sjávarútvegsmálum Fyrrum sjávarútvegsstjóri ESB segir mikilvægt að almenningur sé upplýstur um kosti og galla aðildar. Maltverjar fengu mörg sérákvæði í ESB-viðræðum. Segir framkvæmdastjórn jafnan jákvæða fyrir sjónarmiðum umsóknarþjóða. JOE BORG Þessi fyrrum sjávarútvegsstjóri ESB segir Íslendinga eiga að geta náð hagstæðum samningum í viðræðum við ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hefurðu keypt þýfi, þér vitan- lega? JÁ 55,8% NEI 44,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að sjá myndir á RIFF? Segðu skoðun þína á Visir.is. EFNAHAGSMÁL Lagt er til í skatta- tillögum starfshóps á vegum fjár- málaráðuneytis að erfðafjárskatt- ur verði hækkaður um fimmtíu prósent, fjármagnstekjuskattur um ellefu prósent, undanþágur fríhafnarinnar frá vörugjaldi og virðisaukaskatti á áfengi og tóbaki verði felldar niður og tekinn verði upp sérstakur bankaskattur líkt og í Svíþjóð og Bretlandi. Starfshópurinn var settur á laggirnar í apríl við mótun hug- mynda að skattabreytingum til að ná fram þeim áformum ríkis- stjórnarinnar að auka tekjur rík- isins um ellefu milljarða króna á næsta ári. Fyrstu áfangaskýrsl- unni var skilað til fjármálaráð- herra í vikunni. Í skattatillögunum er jafnframt lagt til að skoðað verði að hækka auðlegðarskatt, sem tekinn var upp í fyrra. Í rökstuðningi starfshóps- ins er tekið fram að skattlagning- in kunni að leiða til þess að efna- fólk komi fé sínu fyrir erlendis eða flytji úr landi. Engin trygging sé fyrir lægri skattgreiðslum í öðru landi þar sem fjármagnstekjur séu víðast hvar hærri en hér. - jab Skattahópur fjármálaráðuneytis telur ólíklegt að auðugir færi eignir úr landi: Ætla að ná í ellefu milljarða FJÁRMÁLARÁÐHERRA Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytis reynir að ná inn ellefu milljörðum króna í ríkiskass- ann með sjö tillögum að hærri sköttum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.