Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 12
12 25. september 2010 LAUGARDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 H araldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, skrifar skeleggan leiðara í Bændablaðið, þar sem hann afþakkar fyrir hönd bænda hvers konar styrki sem Evrópusambandið býður upp á vegna aðildarviðræðna Íslands við sambandið. „Bændasam- tökin hafa verið hvött til að leita eftir slíkum fjármunum til ýmissa verkefna. Þeir gætu bæði haft áhrif á afstöðu bænda og undirbúið okkur fyrir aðild. Taka skal fram að Bændasamtökin hafa ekki í hyggju að leita eftir né þiggja slíkar aðréttur,“ skrifar Haraldur. „Algjörlega er siðlaust af íslenskum stjórnvöldum að þiggja slíka fjármuni frá ESB áður en þjóðin gerir upp hug sinn til aðildar.“ Þetta er skarplega athugað hjá Haraldi. Auðvitað er auðvelt að kaupa bændur til að styðja ESB-aðild og torvelda þeim að mynda sér sjálfstæða skoðun. Þeir gera rétt í að hafna slíkum „aðréttum“. Haraldur skilgreinir vandann hins vegar ekki nógu vítt. Á und- anförnum sautján árum, eða frá því að Ísland gerðist aðili að EES- samningnum, hafa milljarðar á milljarða ofan runnið til Íslands úr sjóðum Evrópusambandsins, mest í tengslum við alls konar samstarfsáætlanir sem Ísland er aðili að. Þar hefur landbúnað- urinn fengið drjúgan skerf. Sem dæmi má nefna glænýtt verkefni þar sem Þróunarfélag Austurlands og fleiri samtök í landshlutanum fá 30 milljóna króna styrk frá ESB til að byggja upp atvinnu á sviði vöruhönnunar og handverks í fjórðungnum. Markmiðið er meðal annars að vinna betur úr íslenzku ullinni, skógarafurðum og hreindýraleðri. Þetta gæti verið varasamt, enda bændur þátttakendur í öllu saman. Í gegnum rannsóknaáætlanir ESB hafa rannsókna- og þjónustu- stofnanir landbúnaðarins fengið tugi eða hundruð milljóna til verk- efna, sem nýtast landbúnaðinum. Einhverjir þátttakendur í þessum verkefnum gætu hafa orðið hlynntir ESB-aðild. Sama má segja um verkefnið „Sheep skills“, sem Landbúnað- arháskólinn á Hvanneyri stýrir og styrkt er af ESB. Það gengur meðal annars út á þjálfun smala með þátttöku danskra, þýzkra og tyrkneskra samstarfsaðila. Það er alveg afleitt ef Evrópusinnaðir smalar hafa verið á ferð í göngum og réttum að undanförnu. Íslenzkir bændur hafa líka, svo dæmi sé nefnt, verið þátttakend- ur í verkefninu „Byggjum brýr“, sem gengur út á að efla atvinnu- þátttöku kvenna í landbúnaði. Verkefnið er styrkt af ESB og augljós hætta á að þátttakendum gæti farið að finnast sambandið sniðugt. Evrópusambandið hefur styrkt fjöldann allan af verkefnum sem koma fólki á landsbyggðinni til góða, meðal annars sjálfboðaliða- starf ungmenna undir merkjum samstarfsverkefnisins Ungs fólks í Evrópu. Þannig voru það samtök á ESB-styrk, sem hjálpuðu til við 17. júní-hátíðahöldin á Hrafnseyri við Arnarfjörð í sumar. Ætli Unnur Brá viti af þessu? Allt ber þetta að sama brunni. Evrópusambandið hefur ausið pen- ingum í alls konar áróðursstarfsemi á Íslandi undanfarin sautján ár og við tekið á móti þeim, án þess að þjóðin hafi gert upp hug sinn til aðildar. Stöðug aðlögun að regluverki ESB hefur átt sér stað á sama tíma, líka í landbúnaðinum. Íslenzkir bændur hafa tekið þátt í öllu saman og flotið sofandi að feigðarósi – á ESB-styrk. Hvernig ætlar Haraldur Benediktsson að laga það? SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Einn af þingmönnum VG, Lilja Mósesdóttir, sagði á dögunum að landsdóms-ákærurnar fælu í sér uppgjör við pólitíska hugmynda- fræði. Af þeim ummælum er þó ekki unnt að draga þá ályktun að allir sem vilja ákæra geri það á sömu forsendu. Ummælin segja aðeins þá sögu að þetta er ein af þeim forsendum sem liggja til grundvallar þegar atkvæði falla. Á hinn bóginn draga þau athygli að þeirri stað- reynd að ákærurnar snúast um það hvernig þeir sem hlut áttu að máli mátu aðstæður frá febrúar fram til október 2008. Eðl i legt er að á því álita- efni hafi menn ólíkar skoðan- ir. Þær skoðanir geta skipst eftir flokkslínum. Þær kunna líka að vera ólíkar eftir mismun- andi mati hagfræðinnar á markaðs- viðbrögðum við tilteknar aðstæð- ur. Stóra spurningin er: Hvenær er réttlætanlegt að dæma ráðherra til refsingar vegna skoðana eða vegna mats á áhrifum aðgerða á peninga- markaði? Eða: Er það yfir höfuð réttlætanlegt? Þessar spurningar snúa að kjarna lýðræðisins. Eng- inn ágreiningur er um að þau rök sem þingmaðurinn Lilja Mósesdótt- ir nefndi fyrir ákærum stríða gegn lýðræðisskipulaginu. Hver er þá munurinn á því að leyfa ekki refsingar vegna skoð- ana en leyfa þær vegna mismun- andi mats á áhrifum aðgerða á sviði peningamála? Stóru mistök meiri- hluta þingmannanefndarinnar eru þau að rökstyðja ekki hvar marka- línan liggur þar á milli. Ráðherraábyrgð og lýðræði Hvað gat þingmannanefnd-in gert til þess að draga þessa markalínu? Í raun var það aðeins unnt með því að tilgreina ákveðnar ráðstaf- anir og sýna með rökum fram á að með því að beita þeim hefði mátt koma í veg fyrir hrun krónunnar og fall bankanna. Skaði almennings var fyrst og fremst vegna hruns krónunnar. Hvers vegna var þetta ekki gert? Sennilega vegna þess að það var ómögulegt. Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið unnt að koma í veg fyrir fall bankanna eftir 2006. Þegar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra var spurð að því til hvaða ráða sakborningarn- ir hefðu átt að grípa féllst hún á að þeirri spurningu þyrfti að svara og nefndi gjaldeyrisvarasjóð og fjár- lög. Það er rétt að þetta eru þau stjórntæki sem ríkisstjórnin gat helst beitt. Einar Oddur Kristjánsson gagn- rýndi á sínum tíma eigin ríkisstjórn fyrir of lítinn afgang á fjárlögum. VG lagði þá til að auka útgjöldin og eyða afganginum með öllu. Hverjir höfðu mest rangt fyrir sér í þessu tilviki? Samræmist það síðan leik- reglum lýðræðisins að ákæra ráð- herra vegna fjárlaga sem Alþingi samþykkti? Margir eru þeirrar skoðunar að svo miklir atburðir hafi gerst að almenn ráðherraábyrgð fullnægi ekki réttlætisvitund fólks. Það er um margt skiljanlegt. Þær tilfinn- ingar mega hins vegar ekki reka þingmenn til þess að ákæra fyrir skoðanir eða mat á mismunandi áhrifum aðgerða á peningamark- aði. Fari svo eru undirstöður lýðræð- isins í hættu. Hvað átti að gera? Árið 2008 þurfti að meta hvort verjandi væri að hjálpa Landsbankanum með því að setja peninga skattborgaranna að veði til þess að koma ábyrgðinni á Icesave úr landi. Þetta var ekki gert og telst því vera athafnaleysi. Hér þarf hins vegar að spyrja: Hefur verið sýnt fram á að slík athöfn hefði örugglega verið hag- stæðari fyrir skattborgarana? Þann rökstuðning er ekki að finna í ákæruskjölunum. Er athafnaleysið þá refsivert? Einn af sérfræðingum Seðla- bankans lýsti því fyrir rannsókn- arnefndinni að bankinn hefði stað- ið andspænis því að allar aðgerðir gegn viðskiptabönkunum, eins og þvingun til samruna, gátu leitt til falls þeirra. Til slíkra aðgerða var ekki gripið fyrr en með yfirtöku Glitnis. Athyglisvert er að einmitt sú tillaga Seðlabankans, sem ríkis- stjórnin framkvæmdi, sætir gagn- rýni í rannsóknarnefndarskýrsl- unni. Í ákæruskjölunum eru heldur engin rök leidd að því að skattborg- ararnir hefðu hagnast á því að grip- ið hefði verið fyrr til slíkra aðgerða á árinu 2008. Er það athafnaleysi þá refsivert? Stjórnarskráin mælir fyrir um að ráðherrafundi skuli halda um mikil- væg stjórnarmálefni. Það merkir að ráðherra leitar þar eftir pólitískri samstöðu um aðgerðir sem hann telur nauðsynlegar. Það eru ekki gild rök að forsætis- ráðherra hafi verið skylt að við- lagðri refsingu að útbúa yfirlits- skjal með þeim álitamálum sem hér eru nefnd og ræða á ríkisstjórnar- fundi. Er ekki líka langt seilst að ákæra fyrir þá sök að ræða ekki í ríkisstjórn skjal sem ekki var til? Hin hliðin á þeim peningi er spurningin: Geta ráðherrar þá leyst sig undan ábyrgð með svo einföld- um hætti að búa til matsgerðir og hafa um þær hugarflæðisfund í rík- isstjórn? Athafnaleysi getur verið refsi- vert. Þegar það snýst hins vegar um mat eins og í þessu tilviki verð- ur ekki á það fallist að því verði við komið nema refsa eigi fyrir skoð- anir. Það er um þá spurningu sem Alþingi greiðir nú atkvæði. Matsatriðin ÞORSTEINN PÁLSSON Bændur fljóta sofandi að feigðarósi ESB-aðildar. Siðlausar aðréttur Láttu hjartað ráða Fæst í verslunum Hagkaups, Bónus og 10-11 · www.lífrænt.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.