Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 94
58 25. september 2010 LAUGARDAGUR Söngleikurinn Chess, innblásinn af einvíginu mikla í Reykjavík 1972 milli Boris Spasskí og Bobbys Fis- cher, verður eitt af opnunaratrið- um nýja tónlistar- og ráðstefnu- hússins Hörpu. Chess, eða Skák, er eftir Abba-tvíeykið Björn Ulava- eus og Benny Anderson og texta- höfundinn Tim Rice sem er hvað þekktastur fyrir samstarf sitt við Andrew Lloyd Webber en saman gerðu þeir meðal annars Jesus Christ Superstar og Evitu. 28 manna hljómsveit mun leika undir í gryfju og 24 raddir verða í kór en sjö einsöngvarar fara með helstu hlutverkin. Ráðgert er að söngleikurinn verði frumsýnd- ur hinn 18. júní á næsta ári en tilkynnt verður um frekari opn- unaratriði á blaðamannafundi í Hörpunni á mánudag. Búið er að ganga frá samningum við þrjá söngvara um að koma fram í Skák en það eru þau Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Garðar Thor Cortes og Selma Björnsdóttir. „Þetta er söngleikur sem á sér mjög merkilega sögu,“ segir Páll Baldvin Baldvinsson, sem stend- ur fyrir sviðsetningunni. „Tim Rice leitaði til Björns og Bennys úr Abba þegar árið 1981 og bauð þeim samstarf um söngleik sem lýsti átökum stórveldanna í kalda stríðinu eins og þau birtust í áskor- endaeinvígum heimsmeistaramóts- ins í skák. Kveikjan var einvígið í Reykjavík milli Spasskys og Fis- chers. Á vinnutíma verksins bætt- ust við einvígin milli Kortsnojs og Karpovs og úr varð „konsept“-plat- an Chess,“ útskýrir Páll en tvö lög, I Know him so well og One Night in Bangkok nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Verkið var síðan frumsýnt 1986 í London og hefur farið sigurför um heiminn. Af ástæðum, sem óþarfi er að tíunda hér, eru til tvær útgáf- ur af verkinu, amerísk og evrópsk, en sú síðarnefnda verður sett upp hér á landi. „Chess hefur sópað að sér verðlaunum þar sem það hefur verið sett á svið. Rolling Stone lýsti verkinu á sínum tíma svo að þar kæmu saman allar greinar dæg- urlaga í eitt, tónlistin er voldug og sönglögin gera miklar kröfur til flytjenda enda hefur hún verið vin- sæl í flutningi á tónleikaformi í tvo áratugi,“ segir Páll Baldvin. freyrgigja@frettabladid.is PERSÓNAN Árni Sveinsson Aldur: Fæddur 9. maí 1976. Starf: Kvikmynda- gerðarmaður og plötusnúður í frístundum. Fjölskylduhagir: Í góðum málum. Foreldrar: Sveinn Aðalsteinsson, viðskiptafræðingur og strætóbílstjóri. Sigrún Hermanns- dóttir bóksali. Búseta: 101 Reykjavík. Stjörnumerki: Naut. Árni Sveinsson er leikstjóri kvikmyndar- innar Backyard sem fer á kvikmyndahá- tíðina CPH:DOX í Kaupmannahöfn. „Ég skal komast í mark – en ég er svo hrædd um að ég rústi mér,“ segir veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir. Soffía flaug til Þýskalands í gær, en þar hyggst hún taka þátt í Berl- ínarmaraþoninu á morgun. Hlaup- ið mun reynast Soffíu erfiðara en ella þar sem hún hefur glímt við hnémeiðsli að undanförnu. „Ég fékk bólgur utan á liðbönd í báðum hnjánum þannig að ég er búin að vera hjá sjúkraþjálfara í mánuð,“ segir hún. Maraþonið er fyrsta borgarmara- þonið sem hún hleypur, en áður hefur hún tvisvar hlaupið hinn alræmda Laugaveg, 54 kílómetra leið. Þannig að þetta er bara skemmti- skokk fyrir þig? „Skemmtiskokk! Það er reynd- ar allt öðruvísi út af því að maður hleypur allan tímann í maraþoni, en á Laugaveginum labbar maður upp og niður brekkurnar,“ segir Soffía. „Ég bý að æfingunum fyrir Laugaveginn. Ég skráði mig í jan- úar og það er ekki hægt að hætta við, ég er búin að bóka flug og svona. Þannig að ég fer þetta á þrjóskunni.“ Soffía segir meiðslin hafa orðið til þess að hún slái af tímakröfun- um. „Nú er markmiðið að koma í mark, en ég er ekki að fara að gera neinar rósir – enda hefði ég ekki gert það hvort sem er,“ segir Soff- ía hógvær. - afb Hleypur meidd fyrsta maraþonið HÖRKUTÓL Veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir lætur meiðsli ekki stöðva sig og hleypur Berlínarmaraþonið á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PÁLL BALDVIN BALDVINSSON: SAMEINAR ALLAR GREINAR DÆGURLAGA Söngleikur um skákeinvíg- ið frumsýndur í Hörpunni „Þá er maður alfarið farinn að skjóta rótum í höfuðborginni,“ segir Ingólfur Þórarinsson, söngvari, leikari og fótboltamaður en hann festi nýverið kaup á sinni fyrstu íbúð. Íbúðin er í Gerðahverfi í Reykjavík og ætlar kapp- inn því endanlega að yfirgefa heimabæ sinn Selfoss. Íbúðina fær söngvarinn afhenta í byrjun desember og lofar hann innflutnings- partýi fram í febrúar. „Ég hef alltaf verið með annan fótinn á Selfossi hjá mömmu en nú er kominn tími til að standa á eigin fótum,“ segir Ingólfur, eða Ingó eins og hann jafnan er kallaður, og viðurkennir að þetta sé stórt fullorðinsskref fyrir sig. „Maður á nú eftir að sakna Selfoss en ég verð duglegur að keyra yfir heiðina í heimsókn,“ segir Ingó og bætir við að mat- seldin eigi eftir að verða stærsta vandamál- ið í heimilishaldinu til að byrja með. „Ég get alveg viðukennt það að ég er ekki mikill kokkur og finnst eins og flestum strákum maturinn hennar mömmu bestur,“ segir Ingó og bætir við að uppskriftabók sé efst á óska- listanum yfir innflutningsgjafir. „Það eina sem ég kann er að sjóða pulsur svo allar mat- arráðleggingar eru vel þegnar.“ Þrátt fyrir að vera að yfirgefa Selfoss er Ingólfur staðráðinn í að halda áfram í fót- boltanum en Selfoss féll á dögunum niður í fyrstu deild. „Ég ætla pottþétt að spila fót- bolta næsta sumar en ég veit ekki alveg enn þá með hvaða liði. Það á eftir að koma í ljós,“ segir Ingó að lokum. - áp Á eftir að sakna matarins hjá mömmu SKÝTUR RÓTUM Í REYKJAVÍK Ingólfur Þórarinsson hefur fest kaup á sinni fyrstu íbúð í Reykjavík og yfirgefur þar með heimabæ sinn Selfoss í bili. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fyrirsætan og fegurðardrottning- in Ingibjörg Egilsdóttir lenti í Singapúr í gær, en þangað var henni boðið til að fylgjast með Formúlu 1-keppn- inni um helgina. Ingi- björg flaug til London fyrr í vikunni áður en langt flug til Singapúr tók við – þrettán tímar, takk fyrir, en þægindin í háloftun- um voru svo mikil að henni leið eins og ferðalagið hefði tekið aðeins hálftíma … Í Singapúr hitti Ingibjörg Íslands- vinkonuna Rachel Kum, en hún var ungfrú Singapúr í fyrra og þær stúlkur hittust á Miss Univer- se-keppninni á Havaí. Kum er mikill aðdáandi Sigur Rósar og lengi hefur staðið til að hún komi til landsins. Hún ætlaði t.d. að eyða síðustu jólum á Íslandi en áformin duttu upp fyrir. Þá stóð til að hún myndi halda upp á afmælið sitt á Hótel Rangá í apríl, en af því varð ekki heldur. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI dagar eru þangað til ráðstefnu- og tónlistarhúsið Harpan verður vígt, væntanlega við formlega athöfn. 221 SKÁKSÖNGLEIKUR Garðar Thor Cortes, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Selma Björnsdóttir verða meðal aðalleikara í söngleik eftir Abba-tvíeykið Björn og Benny. Söngleikurinn verður meðal opnunaratriða Hörpunnar næsta sumar en hann er innblásinn af skákeinvíg- inu í Laugardalshöll árið 1972 milli Boris Spassky og Bobbys Fischer. N O R D IC PH O TO S/ G ET TY Fös 15/10 kl. 20:00 frums Lau 16/10 kl. 20:00 2.sýn Fös 22.10. Kl. 20:00 aukas. Lau 23/10 kl. 20:00 3.sýn Lau 30/10 kl. 20:00 4.sýn Sun 31/10 kl. 20:00 5.sýn Fös 5/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 6/11 kl. 20:00 7.sýn Fim 11/11 kl. 20:00 8.sýn Fös 12/11 kl. 20:00 9.sýn Lau 25.9. Kl. 13:00 Lau 25.9. Kl. 15:00 Sun 26.9. Kl. 13:00 Sun 26.9. Kl. 15:00 Lau 2.10. Kl. 13:00 Lau 2.10. Kl. 15:00 Sun 3.10. Kl. 13:00 Sun 3.10. Kl. 15:00 Lau 9.10. Kl. 13:00 Lau 9.10. Kl. 15:00 Fös 24.9. Kl. 20:00 Lau 25.9. Kl. 20:00 Sun 26.9. Kl. 20:00 Fim 30.9. Kl. 20:00 Fös 1.10. Kl. 20:00 Lau 2.10. Kl. 20:00 Fös 8.10. Kl. 20:00 Lau 9.10. Kl. 20:00 Fös 15.10. Kl. 20:00 Lau 16.10. Kl. 20:00 Fim 21.10. Kl. 20:00 aukas. Fös 22.10. Kl. 20:00 Lau 23.10. Kl. 20:00 Fös 24.9. Kl. 19:00 U Lau 25.9. Kl. 19:00 U Sun 26.9. Kl. 15:00 U Fim 30.9. Kl. 19:00 U Fös 1.10. Kl. 19:00 Ö Lau 2.10. Kl. 19:00 Ö Sun 3.10. Kl. 15:00 U Fös 8.10. Kl. 19:00 Ö Sun 17.10. Kl. 19:00 U Sun 24.10. Kl. 19:00 Ö Þri 26.10. Kl. 19:00 U Mið 27.10. Kl. 19:00 U Fim 28.10. Kl. 19:00 Ö Sun 7.11. Kl. 19:00 Ö Mið 10.11. Kl. 19:00 Ö Sun 14.11. Kl. 19:00 Fim 21.10. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Fös 26.11. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö U U U Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fíasól (Kúlan) Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Gildir ágúst 2010 til jún í 2011 hús kor tið 1 OPIÐ KORT Gildir á Leik hús kor tið 201 0/2 011 ÁSK ikhus id.is I mida sala@ le Leikhúsk ort 4 miðar á aðeins 9.900 kr. U Ö U U Ö Ö U Ö U U U U Ö Ö Ö Ö Ö U Ö U U Ö Ö U Ö Ö Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00 Vinsælu dagbækurnar komnar aftur. 16 mánaða, sept. 2010 - des. 2011 verð 1.995,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.