Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 88
 25. september 2010 LAUGARDAGUR52 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Það verður einnig keppt um gull-, silfur- og bronsskóinn í lokaumferðinni í dag. Blikinn Alfreð Finnbogason er markahæstur fyrir lokaumferðina með 14 mörk en ólíkt hinum fjórum sem koma honum næstir þá mun Alfreð ekki spila með Blikum í dag þar sem hann er í leikbanni. FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson var með þriggja marka forustu fyrir lokaum- ferðina í fyrra en KR-ingur- inn Björgólfur Takefusa tók þá gullskóinn með því að skora fimm mörk í lokaleiknum sínum. Atli Viðar er nú í 3. sæti með 13 mörk, einu marki minna en Alfreð og jafn Stjörnumann- inum Halldóri Orra Björnssyni sem er í 2. sæti á færri spiluð- um leikjum. Halldór Orri Björnsson verður alltaf hærri en Atli Viðar og Alfreð þar sem hann hefur spilað færri leiki en Atli og færri mínútur en Alfreð. Grind- víkingurinn Gilles Ondo er tveimur mörkum á eftir Alfreð en er í bestu stöðunni verði hann jafn öðrum leikmanni. - óój liðum og við berum það mikla virð- ingu fyrir Keflavík að við getum ekki leyft okkur að vera að hugsa um neitt annað.“ En sumarið hjá ÍBV hefur verið vonum framar, segir Heimir. „Við mætum kannski hvað afslappaðast- ir til leiks af þessum liðum því við erum ánægðir með okkar sumar. Auðvitað viljum við vinna leikinn en við erum mjög sáttir við okkar tímabil.“ Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, þekkir þó vel að vera í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn enda liðið orðið meistari bæði þau ár sem hann hefur þjálfað liðið. FH er einnig ríkjandi bikarmeistari en liðið hefur þó aldrei unnið tvöfalt. „Það er möguleiki á því nú sem hefur kannski ekki verið áður,“ segir Heimir sem hefur mikla trú á að FH geti varið titilinn í dag. „Ef við tryð- um því sjálfir að við gætum ekki unnið þetta mót gætum við allt eins sleppt því að mæta í leikinn í dag. Þetta verð- ur þó erfið- ur leikur og við þurfum að mæta 100 prósent einbeittir til leiks.“ eirikur@ frettabladid.is FÓTBOLTI Hinn 27 ára gamli dóm- ari, Gunnar Jarl Jónsson, fær það verðuga verkefni að dæma stórleik dagsins í Garðabænum. Gunnar Jarl er næstyngsti dómari deild- arinnar en hefur vakið verðskuld- aða athygli fyrir góða dómgæslu í sumar. Hann er svo verðlaunað- ur með því að fá þennan risaleik í dag. „Þetta er klárlega minn stærsti leikur á ferlinum. Ég hef dæmt nokkra stóra leiki í sumar og þar á meðal leik Hauka og FH. Það toppar samt ekki þennan leik þar sem allt er undir,“ sagðu Gunnar Jarl en hann átti ekki von á því að dæma leik í lokaumferðinni. Taldi sig vera búinn með leikjakvóta sumarsins. En er hann stressað- ur? „Nei, ég get ekki sagt það. Ég verð ekki stressaður fyrir leiki. Ég stefni á að dæma eins og ég geri venjulega og vonandi taka menn sem minnst eftir mér í leiknum. Svona leikir eiga að ráðast á fót- boltanum en ekki dómgæslunni.“ Hina stórleikina dæma dómar- arnir þrautreyndu, Jóhannes Val- geirsson og Kristinn Jakobsson. Kristinn fær að dæma Fram- leikinn þó svo hann sé KR-ingur enda afar litlar líkur á því að Fram geti náð KR í deildinni. Það vekur síðan athygli að Jóhannes Valgeirsson fái stór- leikinn í Keflavík en dómgæsla Jóhannesar í síðustu tveim leikjum sínum hefur verið afar umdeild og hann ekki upp á sitt besta í þeim leikjum eftir að hafa dæmt mjög vel í sumar. - hbg Hinn ungi Gunnar Jarl dæmir stórleik dagsins: Vonandi taka menn sem minnst eftir mér EFNILEGUR Hinn 27 ára gamli Gunnar Jarl dæmir leik Stjörnunnar og FH. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Dómarar í dag Stjarnan-Breiðablik Gunnar Jarl Jónsson Keflavík-ÍBV Jóhannes Valgeirsson Fram-FH Kristinn Jakobsson KR-Fylkir Þóroddur Hjaltalín Selfoss-Grindavík Örvar Sær Gíslason Haukar-Valur Erlendur Eiríksson FÓTBOLTI Sjaldan hefur verið jafn mikil spenna fyrir lokaumferð í efstu deild karla í knattspyrnu og nú. Þrjú lið eiga enn möguleika á titlinum en ekkert þeirra mætast innbyrðis. Þetta eru Breiðablik, ÍBV og FH en öll spila liðin á útivelli í dag. Blikar standa best að vígi – eru með 43 stig en ÍBV kemur næst stigi á eftir og FH tveimur á eftir. „Við högum undirbúningi okkar fyrir leikinn eins og fyrir alla aðra. Þetta er bara einn leikur af 22 í deildinni í sumar. Hann gefur jafn mörg stig og hinir,“ segir Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks. Hann segir að aðalbarátta hans fyrir leikinn sé að senda leikmenn til leiks með réttu hugarfari. „Þetta er baráttan við það að segja að þessi leikur hafi jafn mikið vægi og aðrir leikir. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er síðasti leikur mótsins og eftir hann ráðast úrslitin. Það hefur áhrif á spennu- stigið en um það snúast slagsmálin – að líta á þennan leik eins og hvern annan,“ segir Ólafur sem hefur unnið markvisst í að bæta hugar- far leikmanna í tvö ár. „Hugarfarsþjálfun ber ekki árangur nema hún sé langtíma- verkefni. Auðvitað höfum við mis- stigið okkur hér og þar á leiðinni og eigum eflaust eftir að gera það aftur. En mér finnst þetta komið í fínt horf og hún er orðin hluti af okkar hefðbundna undirbúningi. Ég er því nokkuð rólegur yfir þessu öllu saman.“ Ólafur hefur lagt áherslu á að hugsa ekki um það sem þeir fá ekki stjórnað – til að mynda að Kári Ársælsson fyrirliði og Alfreð Finn- bogason sóknarmaður verði í banni og að Breiðablik hafi aldrei áður orðið Íslandsmeistari. „Við höfum reynt að útiloka allt það sem við ráðum ekki við og þess í stað beint kröftunum að því sem við ráðum við,“ segir Ólafur. „Þetta snýst um að vera hvorki fastur í for- tíðinni eða kominn of langt fram úr sér. Þetta snýst um að vera einfald- lega í núinu.“ ÍBV og FH munu veita Blikum aðhald í dag og anda ofan í hálsmál þeirra. Þjálfarar beggja liða eru þó ekki að hugsa um annað en eigin verkefni. „Auðvitað vonar maður að þetta fari á besta veg,“ sagði Heimir Hall- grímsson, þjálfari ÍBV. „En ég held að við séum að spila við erfiðasta andstæðinginn af þessum þremur Bara einn leikur af 22 Í dag ráðast úrslitin í Pepsi-deild karla. Þrjú lið – Breiðablik, ÍBV og FH – eiga möguleika á að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Blikar eru á toppnum en Ólafur Kristjánsson, þjálfari liðsins, lítur á leikinn eins og hvern annan á tímabilinu. Fjögur lið hafa misst frá sér Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferð Íslandsmóts- ins á síðustu 30 árum. Tvö liðanna eiga það sameiginlegt að hafa verið á eftir sínum fyrsta meistaratitli líkt og Blikar nú (FH 1989 og Fylkir 2002) og enn fremur var Ólafur Kristjánsson, núverandi þjálfari Blika, leikmaður með tveimum þessara liða (FH 1989 og KR 1996). FH-ingar voru með eins stigs forskot á KA fyrir lokaumferðina 1989 og nægði sigur á heimavelli á móti botnliði Fylkis. Fylkir átti möguleika á að bjarga sér, alveg eins og Keflavík sem tók á móti KA. FH komst í 1-0 eftir 3 mínútur en tapaði leiknum á endanum 1-2 á sama tíma og KA tryggði sér titilinn með 2-0 sigri í Keflavík. Fylkir og Keflavík féllu bæði en FH vann ekki fyrsta titilinn sinn fyrr en 15 árum síðar. KR og ÍA voru jöfn að stigum en KR með betri markatölu þegar þau mættust í lokaumferðinni 1996 upp á Akranesi. KR nægði jafntefli en mátti sætta sig við 1-4 tap og að 28 ára bið eftir meistaratitlinum lengdist enn. Fylkir var með eins stigs forskot á KR fyrir lokaumferðina 2002 eftir að KR hafði tryggt sér 1-1 jafntefli sjö mínútum fyrir leikslok í innbyrðisleik liðanna í umferðinni á undan. Fylkir fór upp á Skaga en tapaði 0-2 og á sama tíma tryggði KR sér titilinn með 5-0 sigri á Þór Akureyri. Keflavík var með tveggja stiga forustu á FH fyrir lokaumferðina 2008 og átti heimaleik á móti Fram. Keflavík komst í 1-0 á 54. mínútu og fyrsti meistaratitillinn í 35 ár virtist vera að koma í hús. Framarar sneru hins vegar leiknum á síðustu 23 mínútunum og unnu 2-1. FH-ingar nýttu sér það og urðu meistarar eftir 2-0 sigur á Fylki í Árbænum. - óój Það er líka barist um markakóngstitilinn í dag: Hver fær gullskóinn? Fjögur lið hafa klikkað í lokaumferðinni TRYGGVI GUÐMUNDSSON verður í sömu stöðu í dag og árið 2008. Þá, líkt og nú, var Tryggvi í leikbanni í lokaumferðinni þar sem hans lið átti möguleika á því að vinna titilinn. FH-liðið þá þurfti eins og Eyjaliðið nú að vinna bæði sinn leik og treysta á úrslit í öðrum leikjum. FH vann þá titilinn, þökk sé sigri Fram í Keflavík, og nú er að sjá hvort Eyjamenn fá sömu hjálp frá Stjörnumönnum í dag. ÓLAFUR KRISTJÁNSSON Getur gert Blika að Íslandsmeisturum í dag. Markahæstu menn: Alfreð Finnbogason, Breiðabliki 14 mörk 21 leikur/1870 mínútur Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 13 mörk 20 leikir/1748 mínútur Atli Viðar Björnsson, FH 13 mörk 21 leikur/1822 mínútur. Gilles Ondo, Grindavík 12 mörk 19 leikir/1710 mínútur Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 12 mörk 21 leikur/1669 mínútur NÚ ER TVÖFALT MEIRA Í VINNING EN Á-DUR! I I ! 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. ÚRV.D. 1. D. Liverpool – Sunderland Arsenal – W.B.A. Birmingham – Wigan Blackpool – Blackburn Fulham – Everton West Ham – Tottenham Leeds – Sheff. Utd. Scunthorpe – Ipswich Burnley – Bristol City Nottingham Forest – Swansea Q.P.R. – Doncaster Reading – Barnsley Watford – Middlesbro 68.000.000 25.500.000 20.400.000 42.500.000 ENSKI BOLTINN 25. SEPTEMBER 2010 38. LEIKVIKA (13 R.) (12 R.) (11 R.) (10 R.) Stærstu nöfnin eru í Enska boltanum og nú er potturinn orðinn ennþá stærri. Vertu með og tippaðu fyrir kl. 13 í dag. SÖLU LÝKUR 25. SEPT. KL. 13.00 1 X 2 TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.