Fréttablaðið - 25.09.2010, Qupperneq 4
4 25. september 2010 LAUGARDAGUR
Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur er
ekki sérfræðingur í ungum afbrota-
mönnum og netfíkn, eins og Frétta-
blaðið sagði í byrjun mánaðarins.
LEIÐRÉTTING
EVRÓPUFÁNINN Lissabon-sáttmálinn
kveður meðal annars á um að ESB hlut-
ist ekki til um málefni sem aðildarríki
getur sjálft leyst úr. MYND/ÚR SAFNI
EVRÓPUMÁL Fyrr í þessum mánuði
hófst vinna hjá þýðingarmiðstöð
utanríkisráðuneytis við að þýða
Lissabon-sáttmála Evrópusam-
bandsins yfir á íslensku.
Gert er ráð fyrir að verkinu
verði lokið í byrjun næsta árs.
Kostnað af þessu ber ráðuneyt-
ið og er hann á fjárlögum. Sam-
kvæmt upplýsingum úr ráðu-
neytinu er viðbúið að ESB taki
kostnaðinn á sig, verði landið
hluti af ESB.
Téð skjal var samþykkt 2009 og
stundum kallað umbótasáttmáli.
Því er ætlað að auka skilvirkni og
lýðræði í ESB. - kóþ
Verklok í byrjun næsta árs:
Lissabon-sátt-
málinn þýddur
MANNRÉTTINDAMÁL
Kúbufeðgarnir komnir heim
Kúbversku feðgarnir sem flúðu land fyrr
í mánuðinum eru komnir aftur heim
til Íslands. Þeir yfirgáfu landið sökum
mikilla kynþáttafordóma og miklar
skemmdir voru unnar á heimili þeirra.
TYRKLAND, AP Tyrkneska stjórnin
vill ekki leyfa kennslu á kúrdnesku
í skólum landsins.
Kúrdar í Tyrklandi hafa ára-
tugum saman barist fyrir auknum
réttindum og jafnvel stofnun sjálf-
stæðs ríkis. Ein helsta krafa kúrda
hefur verið sú að kúrdnesk börn fái
að stunda nám á móðurmáli sínu.
Recep Tayyip Erdogan forsætis-
ráðherra hefur sagst staðráðinn
í að leysa deilu stjórnvalda við
kúrda, en átök út af henni hafa
kostað tugi þúsunda lífið undan-
farna tvo áratugi. - gb
Kröfu kúrda hafnað:
Engin kennsla
á kúrdnesku
FJÁRMÁL Tap 56 þúsund einstakl-
inga vegna glataðrar hlutabréfa-
eignar í bönkunum og nokkrum
öðrum almenningshlutafélögum
sem fóru í þrot í framhaldi banka-
hrunsins nam samtals 183 millj-
örðum króna.
Tap fólks var mismikið. Lang-
flestir, um fjörutíu þúsund, töpuðu
fjárhæðum upp að einni milljón
króna. Tæplega átta þúsund töpuðu
frá einni til þremur milljónum og
3.400 manns töpuðu á bilinu þrem-
ur til sex milljónum.
Þessar upplýsingar er að finna
í gögnum sem Pétur H. Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
lét taka saman í byrjun ársins.
Í þeim er greint á milli þeirra
sem áttu meira eða minna en 50
milljónir í hlutabréfum. Fram
kemur að 286 einstaklingar áttu
samtals 103 milljarða króna í
hlutabréfum. 96 þeirra eru fæddir
fyrir 1944. Heildarupphæð eignar
þeirra nam rúmum 15 milljörðum.
Hinir 190 áttu samtals 88 milljarða
í hlutabréfum.
Pétur Blöndal segist hafa látið
taka þessar upplýsingar saman
til að sýna fram á að fjármagns-
eigendur hefðu, öfugt við það sem
oft er haldið fram, tapað miklu í
hruninu. „Þetta sýnir að næstum
60 þúsund manns sem, áttu sam-
tals um 80 milljarða og að meðal-
tali eina og hálfa milljón, töpuðu
sínu.“
Pétur setur þessa fjárhæð í sam-
hengi við umræðuna um gengis-
lánin. Þau hafi hækkað um ámóta
upphæð frá gengisfalli krónunnar.
„Þetta tap slagar vel upp í þess-
ar auknu byrðar lántakenda sem
mikið hefur verið fjallað um. Þetta
er því mikið áfall en enginn talar
um það.“
Fyrirtækin sem hlutabréfaeign-
in náði til eru Glitnir, Kaupþing,
Landsbankinn, Straumur, Atorka,
Avion, Bakkavör, Exista og TM.
Verðbréfaskráning Íslands ann-
aðist útreikningana. Frá því að
útreikningarinar voru gerðir hafa
hluta- og stofnbréf í fleiri fyrir-
tækjum orðið verðlaus og fjárhæð-
ir því hækkað. bjorn@frettabladid.is
Almenningur tapaði
80 milljörðum króna
Einstaklingar töpuðu samtals 183 milljarða króna hlutabréfaeign við þrot
almenningshlutafélaga í kjölfar bankahrunsins. Tæplega 300 áttu samtals 103
milljarða en 56 þúsund einstaklingar og heimili töpuðu samtals 80 milljörðum.
EFNAHAGSMÁL Hagsmunasamtök
heimilanna vilja að húsnæðislána-
kerfinu á Íslandi verði breytt veru-
lega og varanlega, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu samtak-
anna.
Samtökin leggja til að sett verði
fjögurra prósenta þak á verðbætur
verðtryggðra húsnæðislána, sem
lækki í þrepum þar til hætt verði að
nota verðtryggð lán. Á óverðtryggð
húsnæðislán verði svo sett fimm
til sex prósenta þak á vexti og þeir
verði ákvarðaðir til þriggja til fimm
ára í senn.
Þá leggja samtökin til að gengis-
tryggðum húsnæðislánum, húsnæð-
islánum í erlendri mynt og erlendum
húsnæðislánum verði breytt í verð-
tryggð krónulán miðað við stöðu
þeirra um áramótin 2007. Einnig
vilja þau að höfuðstóll verðtryggðra
lána miðist við árslok 2007.
Samtökin segja tillögurnar sjálf-
sagt virka róttækar en þær myndi
góða, sanngjarna og framkvæman-
lega heild. Tillögurnar kalla sam-
tökin grunn að þjóðarsátt. - þeb
Hagsmunasamtök heimilanna kynna tillögur um breytingar á lánum:
Lánakerfinu verði breytt
FUNDURINN Andrea J. Ólafsdóttir, Friðrik
Ó. Friðriksson og Marinó G. Njálsson
kynntu hugmyndir samtakanna.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
14°
17°
16°
14°
10°
15°
15°
25°
14°
29°
29°
32°
8°
15°
23°
18°Á MORGUN
13-18 m/s S- og V-til,
annars víða 8-13.
MÁNUDAGUR
3-8 m/s.
11
11
10
10
10
10
12
6
13
13
12
12
10
9
8
6
6
5
7
13
7
15
13
13
12
12
14
14
12
12
11
13
ÓSPENNANDI
VEÐUR um helg-
ina um sunnan og
vestanvert landið
en búast má við
stífri suðaustanátt
og úrhelli sunnan-
lands í dag og
síðan aftur annað
kvöld. Mun skap-
legra veður verður
norðaustan til þar
sem úrkoma verður
lítil og það hlýnar
heldur í veðri.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Þeir sem töpuðu innan við 50 m. kr. verðmæti:
Einstaklingar Einstaklingar fæddir Allir
fæddir fyrir 1944 1944 og síðar einstaklingar
Fjöldi 12.751 42.808 55.559
Heildarupphæð 29.464.217.950 50.297.965.324 79.762.183.274
Meðalupphæð 2.310.738 1.174.966 1.435.630
Þeir sem töpuðu meira en 50 m. kr. verðmæti:
Einstaklingar Einstaklingar fæddir Allir
fæddir fyrir 1944 1944 og síðar einstaklingar
Fjöldi 96 190 286
Heildarupphæð 15.140.965.543 88.054.150.026 103.195.115.569
Meðalupphæð 157.718.391 463.442.895 360.822.082
Tap hlutabréfaeigenda í kjölfar hrunsins Fjöldi þeirra sem töp-
uðu hlutabréfum eftir
hrunið, flokkaður eftir
fjárhæðum
40000
30000
20000
10000
0
40
.5
40
m
an
ns
8.
58
5
3.
39
5
1.
48
1
1.
07
4
48
4
28
6
0-
1
m
kr
1-
3
m
kr
3-
6
m
kr
6-
10
m
kr
10
-2
0
m
kr
20
-5
0
m
kr
yf
ir
50
m
kr
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann á þrítugsaldri
fyrir stórfellda líkamsárás.
Honum er gefið að sök að hafa
stórslasað annan mann.
Maðurinn er ákærður fyrir að
hafa aðfaranótt sunnudagsins
5. apríl 2009 slegið annan mann
einu hnefahöggi í andlitið þannig
að fórnarlambið féll og skall með
höfuðið í akbraut. Af þessu hlaut
sá sem ráðist var á mar á höfði
og andliti, höfuðkúpubrot, mar á
heila, nefbrot og heyrnartap.
Árásin átti sér stað við leigu-
bílastöð gegnt Stjórnarráðinu við
Lækjargötu í Reykjavík. Fórnar-
lambið krefst rúmlega tveggja
milljóna í skaðabætur. - jss
Ofbeldismaður ákærður:
Höfuðkúpu-
braut mann
VEIÐAR Hvalveiðum á þessu ári
lauk í gær þegar síðustu lang-
reyðarnar voru flensaðar í Hval-
firði. 148 dýr hafa verið veidd,
en kvóti ársins var 150 dýr auk
ónýtts kvóta frá því í fyrra.
Ákveðið var þó að hætta veiðum
nú þar sem veðurspá er slæm og
birtutími orðinn stuttur. Stefnt
er að því að hefja hvalveiðar á ný
snemma næsta sumar. -þeb
Hvalveiðivertíðinni lokið:
Hafa veitt 148
langreyðar
HVALVEIÐAR Síðustu langreyðarnar voru
flensaðar í Hvalfirði í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 24.09.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
196,1047
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,71 115,25
180,25 181,13
153,8 154,66
20,641 20,761
19,346 19,46
16,711 16,809
1,3589 1,3669
176,76 177,82
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR