Fréttablaðið - 25.09.2010, Síða 13
LAUGARDAGUR 25. september 2010 13
Í Fréttablaðinu 02.09 heldur Vilhjálmur Lúðvíksson áfram
að afbaka sannleikann og tala
niður til þeirra sem standa að
átaki til að stemma stigu við
útbreiðslu alaskalúpínu og skóg-
arkerfils. Hann segir, „Líklega
má með hliðstæðum hugmynda-
fræðilegum rökum réttlæta
herferð gegn fleiri tegundum
sem telja má „ágengar og fram-
andi“ að mati einhvers hóps“.
Þarna er gefið í skyn að nátt-
úrufræðingar séu fámennur
hópur fúskara þegar sannleik-
urinn er sá að Vilhjálmur og
skoðanabræður hans eru að
einangrast sem lítill hópur sér-
vitringa.
Ýmsum ræktunarmönnum
er tamt að kalla baráttu gegn
ágengum framandi tegundum
tegundafordóma; fólk er á móti
alaskalúpínu bara af því að hún
er útlensk. Með þessu gera þeir
aðvörunarorð vistfræðinga tor-
tryggileg og sneiða hjá fræði-
legri rökræðu.
Skilgreiningin sem Samning-
ur um líffræðilega fjölbreytni
notar nú um slíkar tegundir er
eftirfarandi: „Ágeng framandi
tegund er tegund sem dreifst
hefur út fyrir náttúruleg heim-
kynni sín og ógnar þar líffræði-
legri fjölbreytni .
Það hefur verið staðfest með
rannsóknum að alaskalúpína
breiðist ekki aðeins yfir lítt
grónar auðnir heldur einnig
ýmsar gerðir af algrónu landi
svo sem mosaheiðar og lyng-
móa. Þar sem hún fer yfir
kæfir hún staðargróður, dreg-
ur stórlega úr tegundaauðgi og
eykur einsleitni í gróðurfari.
Útbreiðsla alaskalúpínu er því
klárlega ógn fyrir þann líf-
breytileika sem fyrir er á svæð-
inu.“
Samningur um líffræðilega
fjölbreytni skilgreinir lífbreyti-
leika „sem breytileika alls lífs
á jörðinni og vefinn sem hann
myndar“. Þessi skilgreining
er óháð mælikvörðum góðs og
ills. Samkvæmt samningnum er
lúpínustóð ekki betri eða verri
lífbreytileiki en mosaheiði í
sjálfu sér. Íslendingum ber þó
að vernda mosaheiðina á kostn-
að lúpínustóðsins vegna þess að
hún er upprunaleg hér á landi.
Þegar fjallað er um endurheimt
spilltra vistkerfa á vegum
samningsins er ávallt lögð
áhersla á að endurheimta eftir
föngum hið upprunalega kerfi,
ekki skapa nýtt og framandi.
Með því að halda öðru fram
stundar Vilhjálmur sjálfur „lit-
aða og óvísindalega túlkun á
Ríó-sáttmálanum“, svo vitnað
sé í orð hans sjálfs.
Það er fráleitt að líta svo á
að lífbreytileiki Íslands sé eitt-
hvað verri eða óæðri en líf-
breytileiki Noregs eða Alaska
þótt hér séu færri tegundir og
minni meðaluppskera af hekt-
ara. Ef skynsamlega er með
lífríki landsins farið nýtist
það okkur fullkomlega. Heil-
brigða gróðurþekju má endur-
heimta með friðun og skyn-
samlegri nýtingu eins og ljóst
má vera þeim sem um land-
ið fara. Á Skeiðarársandi er
t.d. að vaxa upp fleiri hundruð
hektara birkiskógur algerlega
af sjálfsdáðum. Gleymum því
heldur ekki að lyngmóinn veitir
núlifandi kynslóðum mikilvæga
viskerfisþjónustu, svo notað sé
enn eitt hugtak samningsins,
mófugl, ber og ótaldar unaðs-
stundir.
Til varnar
lífbreyti-
leika Íslands
Lífbreytileiki
Snorri
Baldursson
líffræðingur og
áhugamaður um
náttúruvernd
LAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI | landsbankinn.is | 410 4000
Lausnir fyrir fyrirtæki
Landsbankinn ætlar sér stóran hlut í uppbyggingu íslensks efnahagslífs og
mun þjónusta fyrirtæki og einstaklinga í greiðsluvanda af enn meiri krafti en
áður. Bankinn mun setja á stofn sérstakt svið sem eingöngu sinnir málum sem
lúta að endurskipulagningu fyrirtækja. Úrræði Landsbankans til að takast á við
greiðsluvanda fyrirtækja eru mörg, t.d.:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
0
1
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
LÁN FÆRÐ Í 90% AF EIGNAVIRÐI GEGN EIGINFJÁRFRAMLAGI
Miðað er við að færa skuldir í 90% af heildarvirði eða endurmetnu eignavirði gegn
því að eigandi greiði a.m.k. 10% af heildarvirði. Ef eigandi greiðir umfram 10% inn
á lánið er hægt að lækka skuldir um 1,5 krónur á móti hverri krónu eiginfjár á
meðan skuldir eru umfram 70% af heildarvirði eða eignavirði.
LÁN FÆRÐ Í 100% AF EIGNAVIRÐI ÁN EIGINFJÁRFRAMLAGS
Miðað er við að færa skuldir í 100% af heildarvirði eða endurmetnu eigna-
virði hjá fyrirtækjum með skuldir undir 750 m.kr. ef eigandi getur ekki lagt
til lágmarks eigið fé. Úrræðið á við um fyrirtæki þar sem reksturinn byggir
fyrst og fremst á eigendunum sjálfum.
25% HÖFUÐSTÓLSLÆKKUN LÁNA
Fyrirtæki með lán í erlendri mynt eiga kost á að sækja um 25% höfuð-
stólslækkun gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð eða verðtryggð
lán í íslenskum krónum. Úrræðið á við um fyrirtæki sem eru með meira en
50% af tekjum í íslenskum krónum eða eru ekki með beina tengingu við
erlenda gjaldmiðla.
FRYSTING – GREIÐSLA Á VÖXTUM ÁSAMT HLUTA AFBORGANA
Hægt er að fá frestun á hluta eða öllum afborgunum lána í 12-24 mánuði
ef fyrirtæki getur staðið undir greiðslu á vöxtum ásamt hluta afborgana.
Lausnirnar eru háðar nánari skilmálum.
Viðskiptavinir sem nýta sér úrræði bankans fyrirgera
ekki rétti sínum leiði dómar eða lagasetning til betri
niðurstöðu.
Hafðu samband við fyrirtækjasérfræðing
í næsta útibúi. Við tökum vel á móti þér
um land allt.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
LAGERHREINS
UNA
ðeins í
BYKO Breidd
Enn í fullum g
angi!
afsláttur
Mikill