Fréttablaðið - 25.09.2010, Side 22
22 25. september 2010 LAUGARDAGUR
Þú hefur sagt að það þurfi mikið
að gerast til að þú greiðir ekki
atkvæði með tillögu meirihluta
þingmannanefndar Atla Gísla-
sonar um ákærur á hendur fjór-
um fyrrverandi ráðherrum. Hvers
vegna?
„Vegna þess að nefndin starfaði
samkvæmt lögum og hefur kom-
ist að ígrundaðri niðurstöðu. Þetta
breytir því ekki að málið er okkur
öllum erfitt. En það er náttúrlega
allt þetta hrun svo mörgu fólki. Ég
set ekki undir sama hatt glæpsam-
leg ásetningsbrot annars vegar og
pólitískan aulagang og yfirsjónar-
brot hins vegar. Enda taka gerólík
lög til þessara mismunandi gjörða.
En það er staðreynd að þær ríkis-
stjórnir sem sátu að völdum brugð-
ust. Þarna voru leiðsögumennirnir
út í hrunið. Þarna var fólkið sem
hvatti til þess að Ísland yrði gert
að einni allsherjarfjárfestingar-
paradís – spilavíti á heimsvísu.
Menn fóru út í lönd til að segja að
hér væri allt í himnalagi. Ætlum
við síðan núna að segja að ekkert
hafi farið úrskeiðis í Stjórnarráð-
inu og í stjórnmálum almennt?
Það sem mörgum – og mér líka
– finnst erfitt og ósanngjarnt er að
brot þeirra sem upphaflega vörð-
uðu þessa leið og gengu lengst í
þessum efnum eru fyrnd. Þau eru
komin út úr myndinni. En þau sem
leiddu okkur síðasta spölinn fá
þetta allt í fangið ein. Það er engu
að síður svo að þáverandi ríkis-
stjórn sýndi ekki bara andvara-
leysi heldur var hún enn að fylgja
stefnu sem var fullkomlega galin
alveg fram á síðasta dag. Ég minn-
ist þess að vorið 2008 var reynt að
koma í gegnum þingið lögum sem
opnuðu fyrir skortsölu fyrir líf-
eyrissjóðina, með öðrum orðum
að opna á leiðir fyrir lífeyrissjóð-
ina til að taka þátt í frekara braski.
Þetta var stjórnarfrumvarp, lagt
fram þegar bankarnir voru við það
að hrynja. Ég tek þetta bara sem
dæmi.
Auðvitað þarf enginn að láta sér
bregða í brún þótt fólk sé kallað til
ábyrgðar samkvæmt lögum. Það
er ekki þar með sagt að fram séu
settar ásakanir um óheiðarleika,
í skilningi þess sem við höfum
séð gerast í bankakerfinu. Ég
geri mikinn greinarmun þarna á
milli. Við þurfum að skilja að þetta
snýst um ráðherraábyrgð og lög
um hana voru ekki sett að tilefn-
islausu. Hins vegar vil ég fá rann-
sókn á einkavæðingu bankanna
– og einkavæðingunni almennt –
vegna þess að þar tel ég að þess-
ir tveir heimar, annars vegar hinn
pólitíski heimur ráðherraábyrgðar
og hins vegar hinn sviksami heim-
ur ásetningsbrotanna, skarist.“
Jóhanna Sigurðardóttir er ósam-
mála þér um ágæti starfa þing-
mannanefndarinnar og f lutti
mikla ræðu um málið á þingi í vik-
unni. Hún talaði meðal annars um
að mannréttindi hefðu hugsanlega
verið brotin á þeim fjórmenning-
um sem þarna um ræðir. Þú ert nú
ráðherra þess málaflokks. Hvað
fannst þér um þá ræðu?
„Við skulum ekki gleyma því
að þingmannanefndin er ekki að
dæma þetta fólk. Hún vísar gjörð-
um þeirra, með hliðsjón af lögum
um ráðherraábyrgð, til fjölskip-
aðs dómstóls þar sem sitja fimm-
tán einstaklingar sem þekkja allra
best til réttarkerfisins. Alþingi er
ekki að kveða upp sinn endanlega
úrskurð, heldur segja: Það eru
meiri líkur en minni á að lögum
hafi ekki verið fylgt og við viljum
fá úr því skorið fyrir landsdómi.
Þannig að mannréttindi hafa ekki
verið brotin á einum eða neinum
og það stendur ekki til að gera.
Hins vegar hefði ég talið að
núverandi forsætisráðherra sem
sat í ríkisstjórn á þessum tíma, og
var auk þess í innsta hring, mundi
tala af varúð, hófsemi og virðingu
um alla nefndarmenn þingmanna-
nefndarinnar. Ekkert okkar er
þess umkomið að bera Atla Gísla-
son og þá sem sitja í þingmanna-
nefndinni þungum sökum um að
brjóta mannréttindi á fólki.
Ég hef tekið eftir því að sumir
stjórnmálamenn hafa nú í hótun-
um við núverandi ráðherra og ráð-
herra framtíðarinnar um að þeirra
kunni að bíða landsdómur. Þessar
hótanir skil ég ekki. Er eitthvað að
því að hafa lög sem eiga að koma
í veg fyrir andvaraleysi og mis-
beitingu valds? Svar mitt við því
er nei.“
Engin pólitísk hrossakaup
Bæði Steingrímur J. Sigfússon og
Álfheiður Ingadóttir sögðu við ráð-
herraskiptin að það að þú kæmir
inn í ríkisstjórn væri tilraun til að
þétta raðirnar og styrkja stjórn-
ina. Af hverju er ríkisstjórninni
betur borgið með þig innan borðs
en utan? Munt þú og þínir samherj-
ar í flokknum verða þægari og hafa
ykkur minna í fammi fyrst þú ert
kominn í þetta embætti?
„Nei, alls ekki. Ef verið er að
gefa í skyn að hrossakaup hafi
átt sér stað þá fer því víðs fjarri.
Hins vegar er því ekkert að leyna
að það var mikil óánægja með það
sem gerðist haustið 2009 hjá mjög
mörgum, innan míns flokks og
víðar. Ég vísa þar í deilurnar um
Icesave, sem urðu þess valdandi að
ég fór úr ríkisstjórninni.
Mér var eftirsjá að því að fara
úr heilbrigðisráðuneytinu á sínum
tíma. Þar átti ég mjög gott sam-
starf við fjölda fólks sem allt vann
að sama marki. Ég starfaði þar
með mjög öflugu embættismanna-
kerfi og síðan heilbrigðisstéttun-
um sem vinna sitt starf gríðar-
lega vel. Stjórnmálamenn gera oft
mikið úr eigin verkum og stæra
sig af þeim. En hin raunverulegu
afrek eru unnin í hvunndeginum
af hinum almenna starfsmanni
sem oft þarf að taka á sig aukið
erfiði og vanda vegna ákvarðana
stjórnmálamanna. Í heilbrigðis-
þjónustunni er árangur og sigrar
ekki síst starfsfólkinu að þakka
– ekki þeim sem situr á ráðherra-
stóli þá stundina eða hina. Það er
hins vegar hlutverk ráðherrans
að reyna að örva menn til verka
og dáða og kalla það besta fram
í hverjum og einum. Öflug heil-
brigðisþjónusta verður ekki rekin
með tilskipunum. Sjúklingar vilja
það ekki, starfsfólkið vill það ekki
og þjóðin vill það ekki.“
Loftrýmisgæslan gott dæmi um
arfleifð kalda stríðsins
Varnarmálastofnun er að líða
undir lok en einhvern tímann á
næstu misserum er stefnt að því
að verkefni hennar eigi að færast
undir nýja stofnun á vegum inn-
anríkisráðuneytisins þíns. Verður
það eitthvað annað en ný Varnar-
málastofnun?
„Það hefur aldrei staðið til að
setja nýja stofnun á laggirnar.
Þvert á móti er verið að leggja
niður stofnun. Þeim verkefnum
sem áfram verður haldið verður
komið fyrir á viðeigandi stöðum.
Nefnd á vegum fimm ráðuneyta
fer nú yfir hvernig sé best að haga
því og niðurstöður ættu að liggja
fyrir fljótlega.“
En þú hefur í gegnum tíðina ekki
verið sérstaklega gefinn fyrir land-
varnir eða samvinnu við NATO.
„Það hefur lengi verið mín skoð-
un að við eigum að hefja okkur
upp úr hjólförum kalda stríðsins
og hugsa öryggismál í miklu víð-
ara samhengi. Hernaðarstarfsemi
hefur ekki reynst heiminum sér-
staklega vel. Landhelgisgæslan
hefur til að mynda verið mikilvæg-
ari fyrir öryggi Íslendinga heldur
en nokkurn tímann hernaðarleg
starfsemi, hvort sem var á Mið-
nesheiði eða innan NATO.“
En þessi loftrýmisgæsla sem
hefur verið hér og annað slíkt
varnarsamstarf? Munt þú leitast
við að draga úr því?
„Loftrýmisgæslan er gott dæmi
um arfleifð kalda stríðsins og það
er merkilegt hversu langan tíma
tekur menn að laga sig að breytt-
um heimi. Ég er einn af þeim sem
helst vilja að Íslendingar gangi
úr NATO og hef verið talsmað-
ur þess að við efnum til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um veru okkar
þar, eins og hefði átt að gera árið
1949. Sem ráðherra framkvæmi ég
hins vegar vilja Alþingis og hann
hefur ekki staðið til úrsagnar úr
NATO, að minnsta kosti ekki enn
sem komið er.“
Finnst þér þá einhver þörf á sér-
stakri stofnun utan um þessi varn-
ar- og öryggismál?
„Nei, enda er hún lögð niður og
við ætlum að hugsa þessa hluti upp
á nýtt.“
Stór hópur í stórfelldum svikum
Lögreglan er áhugasöm um að fá
svokallaðar forvirkar rannsóknar-
heimildir. Þú deilir ekki þeim
mikla áhuga. Hefurðu sest niður
með forsvarsmönnum lögreglunn-
ar og farið yfir þessi mál?
„Já, ég hef gert það. Ég er mikill
efasemdarmaður um þessi mál og
hef horft til fyrri tíma og samsvar-
andi greiningardeilda í grannríkj-
um okkar. Ég er hins vegar alveg
sammála forvera mínum í embætti
og lögreglunni um að það þarf að
stíga markviss skref til að berj-
ast gegn skipulagðri glæpastarf-
semi, hvort sem við erum að tala
um verslun með fíkniefni eða man-
sal, en við megum aldrei ganga svo
langt að það verði á kostnað mann-
réttinda.“
Ertu að segja að það sé svigrúm
til að rýmka þessar heimildir?
„Nei, ég er ekki að segja það.
Ótakmarkaðar heimildir lögreglu
til að safna gögnum um fólk koma
ekki til greina. Hins vegar verð-
ur lögreglunni að vera gerlegt að
rannsaka skipulagða glæpastarf-
semi, en aldrei öðruvísi en að
fengnum úrskurði dómstóla.“
Hvernig finnst þér rannsókn á
málum tengdum bankahruninu
hafa gengið?
„Ég hef sagt að ef okkur tekst
ekki að upplýsa um hvað raunveru-
lega gerðist hvað varðar glæpsam-
leg ásetningsbrot í fjármálakerfinu
þá verður þjóðin með timburmenn
í 300 ár. Ég held að það hafi verið
mikið gæfuspor að fá hingað Evu
Joly til ráðgjafar, aðhalds og eftir-
fylgni í þessum málum. Það hefur
líka skipt máli fyrir ásýnd okkar
erlendis. Hún er tákngervingur trú-
verðugra rannsókna í Frakklandi,
Bretlandi og víðar. Ríkisstjórnin
hefur sett umtalsvert fjármagn
inn í embætti sérstaks saksóknara
og þar hefur fengist til starfa önd-
vegislið. Nú bíðum við eftir niður-
stöðum úr þessum rannsóknum og
væntanlegum dómsmálum.“
Hefurðu trú á því að stór hópur
manna muni enda í fangelsi fyrir
það sem þeir gerðu?
„Ég ætla ekki að leyfa mér að
hafa skoðanir á því og bíð niður-
stöðu dóms. En það er augljóst
að við værum ekki að setja þessa
miklu fjármuni í rannsókn ef ekki
væri rökstuddur grunur um að hér
hafi verið framdir stórfelldir glæp-
ir. Það er verið að rannsaka rök-
studdan grun um að hrunið hafi
ekki verið mistök heldur hafi verið
á ferðinni stór hópur sem ástundaði
sviksamlegt atferli af ásetningi.“
Ranglæti sem stingur í augun
Þínir samflokksmenn hafa ekki
alltaf verið á eitt sáttir við meðferð
Íslendinga á flóttafólki og útlend-
ingum sem hingað flytjast. Síðast
í vikunni bárust fréttir af því að
við værum að hóta að senda konu
úr landi sem hefur búið hér árum
saman af því að hún er skilin við
manninn, við endursendum enn
flóttamenn til Grikklands þrátt
fyrir að flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna sé andvíg því og
þannig mætti lengi telja. Er þetta
forsvaranlegt ástand eða munt þú
gera eitthvað í þessum málum?
„Reyndar hefur ýmislegt verið
gert á undanförnum mánuðum til
úrbóta. Þannig lét forveri minn í
embætti dómsmálaráðherra setja
á laggirnar nefnd fulltrúa allra
þeirra stofnana sem koma að þess-
um málum – lögreglunnar, Útlend-
ingastofnunar, Rauða krossins og
annarra – til að samræma aðgerð-
ir. Þrjú lagafrumvörp voru sam-
þykkt á Alþingi nú í september og
með þeim hefur réttarstaða hælis-
leitenda og annarra útlendinga sem
hér búa, og eru ekki frá hinu marg-
rómaða EES-svæði, verið styrkt til
muna. Ég mun halda áfram á þess-
ari vegferð.
Varðandi málefni einstaklings-
ins sem átti á hættu að vera vísað
úr landi vegna þess að hann er með
breytta hjúskaparstöðu þá hef ég
kannað það mál og það er til skoð-
unar á öðrum vettvangi – inni í
félagsmálaráðuneyti og hjá Vinnu-
málastofnun. Dæmi sem þetta þykir
mér mjög umhugsunarvert en ég
Hefur ekki lofað að vera þægur
Ögmundur Jónasson stýrir nú dómsmála- og samgönguráðuneytum. Stígur Helgason tók hann tali um álitaefni sem undir hann
heyra. Forsætisráðherra var í innsta hring og ætti því að fara varlega í að útdeila ákúrum, segir hann um umdeild landsdómsmál.
ENGAR ÓTAKMARKAÐAR HEIMILDIR „Ótakmarkaðar heimildir lögreglu til að safna gögnum um fólk koma ekki til greina. Hins vegar verður lögreglunni að vera gerlegt að rannsaka
skipulagða glæpastarfsemi, en aldrei öðruvísi en að fengnum úrskurði dómstóla.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það er staðreynd að þær ríkisstjórnir sem sátu að völd-
um brugðust. Þarna voru leiðsögumennirnir út í hrunið.
Þarna var fólkið sem hvatti til þess að Ísland yrði gert að
einni allsherjarfjárfestingarparadís – spilavíti á heimsvísu.
FRAMHALD Á SÍÐU 24