Fréttablaðið - 25.09.2010, Síða 34
MENNING 4
Þ
að er í nógu að snúast
hjá Ólafi Kjartani Sig-
urðarsyni, æft er sex
daga vikunnar fyrir
frumsýningu á Rigol-
etto um þessar mundir. Í sjón-
máli eru svo æfingar í heimabæ
Ólafs og fjölskyldu, Saarbrücken
í Þýskalandi, á óperunni Fídelíó
eftir Beethoven. Svo mun hann
syngja Rigoletto í Volksoper í Vín-
arborg og í kjölfarið hefja æfing-
ar á Rínargullinu eftir Wagner í
Darm stadt. Þéttbókaður vetur
er fram undan og verkefnin eru
spennandi og krefjandi.
„Það er ótrúlegt tækifæri fyrir
mig að syngja Rigoletto í Vínar-
borg, ég er enn að melta það að
mér hafi verið boðið það. Ekki
síðra er hlutverkið í Darmstadt,
en þar mun ég taka þátt í öllum
uppfærslum á Niflungahringnum
eftir Wagner, sem settur verður
upp á tímabilinu 2011 til 2012.“
Ólafur segir gefandi að vera
kominn á þann stað í ferlinum þar
sem hlutverk í óperum eftir Verdi
og Wagner eru á dagskránni.
„Dagbókin mín er orðin nákvæm-
lega eins og ég vildi hafa hana,
þetta verður VW ár, Volkswagen-
ár eins og ég segi stundum, Verdi
– Wagner. Rödd söngvara þrosk-
ast vitanlega og breytist með aldr-
inum. Fyrir tíu árum hefði mig
ekki dreymt um að syngja Verdi
og Wagner, þá hélt ég að ég myndi
ílengjast í léttari hlutverkum á
borð við Fígaró, en þegar röddin
fór að bjóða upp á þessi krefjandi
hlutverk þá fór mig vitanlega að
þyrsta í þau,“ segir Ólafur. „Verdi
er nánast sérkategóría í óperu-
heiminum, það er oft talað um
verdí-barítóna og verdí-sóprana.
Verdí-söngvarar eru svo oft heppi-
legir til að syngja Wagner. Ég segi
það gjarnan að ef Wagner hefði átt
ipod þá hefði hann hlustað á Bell-
ini og þessar ítölsku óperur. Hann
hreifst af þeim, þetta var söng stíll
sem hann þekkti. Enda skrifar
Wagner gríðarlega vel fyrir söng-
röddina, ekki síður en Verdi.“
Flakkar þrátt fyrir fastráðningu
Ólafur söng sitt fyrsta Wagner-
hlutverk í Saarbrücken í fyrra-
vetur, í kjölfarið var honum boðið
að vera með í Niflungahringnum í
Darmstadt, enda fylgist Wagner-
heimurinn vel með Wagner-upp-
færslum segir hann.
Ólafur hefur verið búsettur í
Saarbrücken í tvö ár og nýverið
var fastráðningarsamningur hans
þar framlengdur um ár. „Þeir eru
mjög liðlegir við mig þannig að
þrátt fyrir fastráðninguna gefst
mér tækifæri til að flakka annað
þegar það býðst.“ Mikill munur
er fyrir óperusöngvara að vera
búsettur miðsvæðis í Evrópu að
sögn Ólafs. Hann getur nýtt sér
miklu betur tækifæri sem bjóð-
ast og koma óvænt upp á, eins og
afleysingar í óperuhlutverkum.
Þessi útgerð var öll þyngri í vöfum
héðan, en eftir að fastráðningar-
tímabili Ólafs við Íslensku óper-
una 2001 til 2004 lauk gerði hann
út héðan til 2008. „Það er dæmi
sem gengur varla upp fjárhags-
lega, út af flugfargjöldum, auk
þess sem fjarlægðin getur verið
fyrirstaða.“
Hann segir hins vegar frábært
að fá að koma hingað til lands og
taka þátt í uppfærslu Íslensku
óperunnar. „Hér eru frábærir
kollegar og listrænir stjórnend-
ur sýningarinnar, Stefán Baldurs-
son leikstjóri og Daníel Bjarnason
tónlistarstjóri. Að öðrum kollegum
ólöstuðum get ég ekki lagt nægi-
lega áherslu á hvað ég er lánsam-
ur að vinna með Þóru Einarsdóttur
sem fer með hlutverk Gildu [dóttur
Rigolettos] hún er í einu orði sagt
stórkostleg eins og fólk mun bæði
sjá og heyra í óperunni.“
Auðvelt að missa móðinn
Ólafur Kjartan segir ungu söngv-
arana í sýningunni einnig afar
góða og hefur ekki áhyggjur af
endurnýjun söngvarastéttarinn-
ar. Óperubrautin er þó sannarlega
ekki endilega bein og breið, sjálf-
ur segist hann hafa upplifað mörg
óvissuaugnablik í námi og starfi.
„Lengi vel var ég meira að segja
feiminn við að kalla mig söngvara,
fannst ég næstum vera að taka of
stórt upp í mig. Það er auðvelt að
missa móðinn í þessum bransa,
en ég hef stundum sagt að ég hafi
tekið þetta á seiglunni, mér hlotn-
aðist enginn auðfenginn frami,“
segir hann. Nú ætlar sonur hans að
feta brautina, hefur í haust fram-
haldsnám í söng í akademíunni í
Saarbrücken og flyst því þangað
með konu og barn, afanum til mik-
illar ánægju. Kona hans og dætur
tóku tíðindunum líka fagnandi og
fjölskyldan sér fram á fleiri sam-
verustundir en fyrr. Sjálfur seg-
ist hann ekki hafa ýtt syninum
út á söngvarabrautina, en tónlist-
in sé vissulega í genunum í fjöl-
skyldunni, faðir Ólafs er Sigurður
Rúnar Jónsson, þekktur sem Diddi
fiðla, og afi hans, Jón sigurðsson,
var bassaleikari í Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands.
„Maður er alltaf að bíða eftir
lögfræðingnum í fjölskyldunni,“
segir Ólafur og hlær. „Nei, maður
styður auðvitað við bakið á börn-
unum en það er enn auðveldara en
áður eftir bankahrunið að hvetja
þau til að gera nákvæmlega það
sem þau vilja, það er greinilega
ekki trygging fyrir farsæld að fara
í lögfræði eða viðskiptafræði.“
VOLKSWAGEN-ÁR
fram undan
Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverk í óperunni Rigoletto sem verður
frumsýnd í Íslensku óperunni 9. október. Spennandi vetur er fram undan hjá bar-
ítóninum sem hefur tekið óperuheiminn á seiglunni eins og hann segir sjálfur.
ÓPERA SIGRÍÐUR BJÖRG TÓMASDÓTTIR
Ólaf Kjartan þyrsti í þyngri hlutverk þegar röddin fór að bjóða upp á þau og er því
vitanlega ánægður með dagskrá vetrarins þar sem bæði er að finna Verdí og Wagner.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rigoletto var fyrsta óperan sem sett var upp á Íslandi, það var
árið 1951 og fór Guðmundur Jónsson með titilhlutverkið. Ólafur
nam síðar hjá honum. „Mér finnst alltaf eitthvað sérstakt við
Rigoletto, og lít svolítið á það sem mína rullu,“ segir Ólafur um
hlutverkið í þessari
tímamótaóperu í
íslenskri óperusögu.
Í stuttu máli segir
í henni frá Rigol-
etto sem starfar
fyrir hinn illræmda
kvennabósa, her-
togann af Mantua.
Hann aðstoðar
hertogann við að
koma á fláráðum
ástarævintýrum við
konur en um leið
heldur hann þeirri
staðreynd leyndri,
að hann á sjálfur
unga og fagra dóttur, Gildu. Þegar Rigoletto kemst að því að
hann hefur sjálfur tekið þátt í brottnámi dóttur sinnar án þess
að gera sér grein fyrir hver á í hlut leggur hann á ráðin um að
láta myrða hinn ósvífna hertoga og flýja ásamt dóttur sinni, en
ráðabrugg hans tekur óvænta stefnu og endar með skelfingu.
Óperan sem er eftir Giuseppe Verdi var frumflutt í Feneyjum
árið 1851. Hún er talin meðal meistaraverka ítalska snillingsins.
Íslenska óperan frumsýnir Rigoletto hinn 9. október.
TÍMAMÓT Í ÍSLENSKRI ÓPERUSÖGU
Líklega bestu frystikistukaupin!
Gerðu verðsamanburð
FR205 189L B73xD70xH95
1 karfa, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð kr. 66.900
FR305 278L B98xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð kr. 76.900
FR405 385L B128xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð kr. 86.900
FR505 463L B150xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð kr. 96.900
Nánari upplýsingar í síma 440-1800 og www.kaelitaekni.is