Fréttablaðið - 25.09.2010, Síða 46
25. september 2010 LAUGARDAGUR6
Auglýsir eftir skólaliða
í Grunnskóla Seltjarnarness
um 50% stöðugildi er að ræða
Óskað er eftir að ráða skólaliða sem hefur m.a.
umsjón með þrif og gæslu í frímínútum
og á göngum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Samstarfshæfni, stundvísi, sveigjanleiki og frumkvæði
• Hefur reynslu eða áhuga á að vinna í skóla
Umsóknarfrestur er til 30. september 2010.
Á Seltjarnarnesi eru um 600 nemendur í heildstæðum
grunnskóla. Skólinn er rekinn í tveimur starfstöðvum; Mýrar-
húsaskóla fyrir nemendur í 1. - 6. bekk og Valhúsaskóla fyrir
nemendur í 7. - 10. bekk.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Skaftason umsjónamaður
húseigna í síma 822 9125 eða á netfangið thorvaldurs@
grunnskoli.is
Fræðslu-, menningar- og þróunarsvið Seltjarnarnesbæjar
www.grunnskoli.is
Leikskólastjóri
á Hólmavík
Meginhluverk leikskólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og
þróunar í skólastarfi
• Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi,
fjármálum og rekstri skólans
• Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans í samstarfi við
sveitarstjórn
Menntunar- og færnikröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Menntun, hæfni og reynsla í stjórnun æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á börnum og samskiptum við þau
• Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar, frum
kvæði og metnaður í starfi
Hólmavík er í 234 km fjarlægð frá Reykjavík og
tilheyrir sveitarfélaginu Strandabyggð sem rúmlega
500 manns búa í. Þar er góð þjónusta, öflugur
grunn- og tónlistarskóli, fjölbreytt menningarstarf og
góð íþrótta- og útivistaraðstaða í einstaklega fallegu
umhverfi.
Nánar á www.strandabyggd.is og
www.123.is/laekjarbrekka.
Umsóknarfrestur er til 11. október næstkomandi.
Umsóknir, ásamt ferilskrá og meðmælendum, berist
á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510
Hólmavík, netfang: holmavik@holmavik.is, sem
einnig gefur nánari upplýsingar, s. 451 3510.
Leikskólinn Lækjarbrekka á
Hólmavík auglýsir eftir
leikskólastjóra.
Í skólanum eru um 30 börn í tveimur
deildum og þar dvelja börn frá 1 árs
aldri. Einkunnarorð skólans eru:
Gleði – Virðing – Vinátta.
- Lifið heil
www.lyfja.is
Lyfjafræðingur – Austurlandi
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi til starfa á
Egilsstöðum og á Neskaupstað, með aðsetur á Egilsstöðum.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Lyfjafræðingur annast afgreiðslu lyfseðla auk þess sem hann veitir
viðskiptavinum og starfsfólki faglega ráðgjöf.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan lyfjafræðing.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Í boði er krefjandi starf, skemmtilegur vinnustaður og gott vinnuumhverfi.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Guðjónsson, starfsmannastjóri,
sími 530-3800, hallur@lyfja.is
Umsóknarfrestur er til 9. október 2010 og farið verður með allar
umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. eru karlar jafnt sem konur
hvattir til þess að sækja um stöðu hjá fyrirtækinu.
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því að
starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er
starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði
þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi.
Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
5
16
78
0
9.
20
10
Við leitum að sjálfstæðu,
skipulögðu og metnaðarfullu
starfsfólki sem hefur áhuga á að
ganga til liðs við framsækið og
spennandi fyrirtæki.