Fréttablaðið - 25.09.2010, Side 52
25. september 2010 LAUGARDAGUR12
Umhverfis- og samgöngusvið
Með vísan til 9. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi
fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun eða
mengandi starfsemi, munu drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir
neðangreind fyrirtæki liggja frammi hjá Þjónustuveri Reykja-
víkurborgar í Borgartúni 12-14, 1. hæð, frá 24. september til
24. október 2010.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og
starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum
vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Reykjavikurborg -
Umhverfis- og samgöngusviði, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík,
í síðasta lagi 24. október 2010.
Auglýsing á sértækum
starfsleyfisskilyrðum
Fyrirtæki/gildistími Almenn Sértæk Reglugerð Staðsetning
starfsleyfis í árum skilyrði skilyrði 785/1999
Vífilfell hf. X X X Stuðlaháls 1
Ölgerðin Egill
Skallagrímsson ehf. X X X Grjótháls 7-11
Gosverksmiðjan
Klettur ehf. X X X Köllunarklettsvegur 8
býður upp á tólf spora starf í vetur. Tækifæri til að
taka til í vistaverum hugans og uppskera aukin
lífsgæði bæði félagslega og tilfinningalega.
Annar opni kynningarfundurinn verður haldinn í
kirkjunni í kvöld 28. september, kl. 20:00-22:00.
Fundirnir verða á þriðjudagskvöldum í vetur.
Nánari uppl. www.viniribata.is og www.frikirkjan.is
Iðan fræðslusetur
Skúlatún 2
105 Reykjavík
Sími: 590 6400
www.idan.is
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í
desember, janúar og febrúar ef næg þátttaka fæst:
Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn, og kjötiðn í
desember. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Í húsasmíði og pípulögnum í desember. Í málaraiðn
í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Í málmiðngreinum í janúar.
Umsóknarfrestur til 1. desember.
Í snyrtigreinum í janúar.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í bílgreinum í janúar/febrúar.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi,
lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunn-
um eða staðfestingu skóla á því að nemi muni
útskrifast í desember 2010.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismun-
andi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar,
veffang: www.idan.is og á skrifstofunni.
Hjúkrunarforstjóri óskast
Vilt þú vera þátttakandi í spennandi uppbyggingu á
þjónustu á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Naust á
Þórshöfn?
Sveitarfélagið Langanesbyggð óskar eftir að ráða
hjúkrunarforstjóra. Um er að ræða framtíðarstarf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst.
Sveitarfélagið Langanesbyggð rekur Hjúkrunar- og dvalar-
heimilið Naust sem er með 13 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými
og 2 dagvistarrými. Unnið er að endurskipulagningu
starfseminnar.
Helstu verkefni eru:
• Fagleg, stjórnunarleg og rekstrarleg ábyrgð á
hjúkrunarþjónustu.
• Ábyrgð á gæðastarfi .
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
• Hjúkrunarfræðingur með íslensk hjúkrunarréttindi.
• Starfi ð krefst hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum
ásamt frumkvæði, jákvæðni og lipurðar í mannlegum
samskiptum.
• Hæfni til stjórnunar, nýsköpunar og innleiðslu nýrra
hugmynda og vinnubragða.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar
sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemina, kaup og kjör veitir
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri, í síma: 468 1220 /
821 1646 og á netfangið: sveitarstjori@langanesbyggd.is.
Umsóknir berist skrifl ega til:
Sveitarfélagið Langanesbyggð. Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn
Umsóknarfrestur er til 7. október 2010.
Athugið að öllum umsóknum verður svarað.
Klausturbleikja leitar að nýjum hluthöfum
Klausturbleikja (Glæðir ehf.) leitar áhugasömum aðilum til
að koma að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í
samstarfi við núverandi eigendur.
Klausturbleikja er rótgróið fyrirtæki sem hefur frá 1992
verið leiðandi í eldi og vinnslu á bleikju. Klausturbleikja
er sterkt vörumerki með jákvæða og vistvæna ímynd,
sem hefur lagt grunninn að vaxandi sölu á kröfuharðan
erlendan markað samhliða aukinni eftirspurn á innan-
landsmarkaði.
Félagið stefnir að lífrænni vottun afurða, m.a. til að
opna nýja markaði og mæta aukinni eftirspurn erlendra
kaupenda.
Hrun efnahagskerfisins 2008 hafði afar slæm áhrif á
fjárhagsstöðu félagsins og til að bregðast við því hefur
verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu í sam-
starfi við helstu lánardrottna þess.
Klausturbleikja leitar nú að áhugasömum fjárfestum til að
taka þátt í uppbyggingu félagsins og spennandi verk-
efnum framundan.
Áhugasamir hafi samband við Hjört Jónsson hjá ALM
Fjármálum í síma 860 6440.
Auglýsing vegna úthlutunar atvinnu-
leyfa til aksturs leigubifreiða.
Vegagerðin auglýsir laus til umsóknar 20 leyfi til leigu-
aksturs á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og
1 leyfi á Akureyri.
Þeir einir geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur
leigubifreiðar að aðalatvinnu. Til að öðlast leyfi þurfa
umsækjendur að uppfylla skilyrði leyfis skv. 5. gr. laga
nr. 134/2001 og reglugerðar nr. 397/2003 um leigu-
bifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfa fer fram á grundvelli starfsreynslu við
akstur leigubifreiðar, sbr. ákvæði 6. gr. reglugerðar
nr. 397/2003.
Umsóknareyðublöð má nálgast á vegagerdin.is/leyfis-
veitingar, eða í afgreiðslu Vegagerðarinnar
Borgartúni 7 í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 4. október. 2010.
Ferð til Tenerife
1. – 8. mars 2011
Nánast allt innifalið.
Fararstjóri Friðrik G. Friðriksson
Skráning og upplýsingar hjá Vita
í síma 5704444 ( Silja Rún/Guðný)
Nefndin, http://orlofrvk.123.is
Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík
Hvíldar –
og menningarferð
í sólina.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2010 og skulu
umsóknir sendar til Öldrunarráðs Íslands,
Hrafnistu við Laugarás, 104 Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir Pétur Magnússon, formaður
stjórnar Öldrunarráðs. Hægt er að senda fyrirspurnir á
netfangið petur.magnusson@hrafnista.is
Stjórn Öldrunarráðs Íslands
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs
Íslands auglýsir eftir umsóknum
um styrk úr sjóðnum
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins:
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum
á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður.