Fréttablaðið - 28.09.2010, Blaðsíða 46
30 28. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR
„Ég nefndi þetta einhvern tímann
við Júlíus [Kemp] að við þyrftum
ekki að leita langt yfir skammt til
að finna glæp, við erum nefnilega
báðir úr Laugarnesinu,“ segir Lars
Emil Árnason handritshöfundur.
Kvikmyndafélag Íslands hyggst
ráðast í gerð kvikmyndar í fullri
lengd um morðið á leigubílstjóran-
um Gunnari Sigurði Tryggvasyni
sem var myrtur í Reykjavík árið
1968 með einu skoti í hnakkann.
Myndin verður gerð eftir handriti
Lars sem byggir meðal annars á
tilgátum úr bók Þorsteins B. Ein-
arssonar, „Morðið á Laugalæk“,
sem kom út á vegum Skruddu árið
2007.
Lars segist muna vel eftir
allri umfjölluninni á sínum tíma
um morðið sem telst einstakt í
íslenskri samtímasögu en það er,
enn þann dag í dag, óupplýst þrátt
fyrir ítarlega rannsókn lögreglu.
„Ég man sérstaklega eftir því
þegar maðurinn sem hafði setið í
gæsluvarðhaldi vegna málsins var
sýknaður árið 1971,“ segir Lars
og bætir því við að það hafi alltaf
blundað í honum að gera mynd um
þetta mál. „Svo kom Júlíus bara
með bókina hans Þorsteins til mín
fyrir þremur árum og þá fóru
hjólin að snúast,“ útskýrir Lars.
Ekki er enn búið að ákveða hve-
nær farið verði í tökur á myndinni
en ráðgert er að hún verði frum-
sýnd 2012. Lars segir þetta eiga
að vera svokallaða períódu-mynd,
hún hefjist haustið 1967 og ljúki
1971 en Lars mun sjálfur leikstýra
myndinni.
Lars hefur viðað að sér efni alls
staðar að og hann minnir á að það
hafi enginn verið dæmdur í þessu
máli. „Hvort ég er að fara að upp-
lýsa það verður bara að koma í
ljós, ég vann eftir ákveðnum til-
gátum sem birtust í bókinni hans
Þorsteins og vann þetta í góðu
samstarfi við hann.“ Lars bætir
því við að handritið sé enn opið.
„Það er ekki búið að loka því og
ef einhver er með upplýsingar um
málið er hægt að hafa samband í
gegnum netfangið info@kisi.is.
freyrgigja@frettabladid.is
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Þegar ég var að vinna hjá Kompási kom mamma
Karls Guðmundar Grönvold til mín og sagði mér
sögu hans. Ég ætlaði alltaf að fylgja henni eftir en
svo var þátturinn sleginn af. Þá ákvað ég að ég skyldi
skrifa bók um þetta mál og nú er ég í þeim sporum,“
segir Jóhannes Kr. Kristjánsson, oftast kenndur við
fréttaskýringaþáttinn Kompás.
Jóhannes er hættur á DV en er um þessar mund-
ir að leggja lokahönd á fyrstu bókina í bókaröð-
inni „Sönn íslensk sakamál“. Önnur bók í ritstjórn
Jóhannesar kemur út um næstu jól og er höfundur-
inn þegar farinn að leita fanga. Fyrsta bókin fjallar
hins vegar um Karl Grönvold en fyrir þremur árum
var hann gripinn af brasilískum yfirvöldum með tvö
og hálft kíló af kókaíni. Jóhannes fór sérstaklega út
til Brasilíu að hitta Karl en hann losnar úr farbanni á
næstu dögum eða vikum eftir að hafa afplánað skil-
orð.
Jóhannes segir sögu Karls ákaflega merkilega.
„Þetta var fyrirmyndarunglingur, komst í unglinga-
landsliðið í handbolta og lék með meistaraflokki.
Karl greinir frá því í bókinni að þegar hann var kom-
inn í neyslu fékk hann sér stundum amfetamín í hálf-
leik.“ Veröld Karls fór hins vegar öll á hvolf þegar
hann var gripinn og stungið í fangelsi í Sao Paulo
þar sem orðið „mannréttindi“ er varla til. „Þessi ferð
sem hann fór til Brasilíu átti að vera síðasta ferðin,
hún átti að redda öllum fjármálum hans en varð að
nærri þriggja ára samfelldri fangelsisvist. Vonandi
verður bókin því til þess að fæla ungt fólk frá því að
ætla að græða peninga á því að smygla fíkniefnum og
gerast burðardýr.“ - fgg
Brasilíufangi segir sögu sína
MÖGNUÐ SAGA Karl Magnús Grönvold fékk sér amfetamín í
hálfleik þegar hann var leikmaður meistaraflokks í handbolta.
Hann var gripinn með rúm tvö kíló af kókaíni í Brasilíu og segir
Jóhannesi Kr. Kristjánssyni sögu sína í bókinni Sönn íslensk
sakamál.
LARS EMIL ÁRNASON: KEMUR BARA Í LJÓS HVORT ÉG UPPLÝSI MÁLIÐ
Morðið á Gunnari leigubíl-
stjóra verður að kvikmynd
VETTVANGUR GLÆPSINS
Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson
hyggjst framleiða kvikmynd um morðið
á Gunnari Sigurði Tryggvasyni leigu-
bílstjóra, sem var myrtur í Reykjavík
árið 1968, eftir handriti Lars Emils
Árnasonar. Morðið vakti mikinn óhug
og er eitt örfárra sem ekki hefur enn
verið upplýst. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Nú hefur Asian flutt frá Suðurlandsbraut 32 og opnað í
nýju og stærra húsnæði og næg bílastæði að Kauptúni
3 (beint á móti IKEA). Asian er með mikið úrval af hrá-
efni í Asíska matreiðslu og sushi gerð. Erum með nýjan
matseðil í Asian Take Away.
Kv. Starfsfólk Asian
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
laugardag hljóp veðurfréttakon-
an Soffía Sveinsdóttir fyrsta
borgarmaraþonið sitt í Berlín á
sunnudag. Soffía hefur glímt við
hnémeiðsli frá því að hún tók þátt í
hinu alræmda Laugavegsmaraþoni
í sumar og hafði talsverðar
áhyggjur af því að rústa
sér, eins og hún orðaði
það sjálf. Takmark henn-
ar var því einfaldlega að
klára hlaupið
og það tókst
henni að
sjálf-
sögðu,
en
fyrir
vikið
var hún
hölt á
leiðinni
heim.
Þrátt fyrir að Breiðablik hafi orðið
Íslandsmeistari á laugardaginn þá
verða það væntanlega Stjörnu-
strákarnir sem verða frægasta
íslenska liðið fyrir utan lands-
steinana. Drengirnir, með Jóhann
Laxdal og Halldór Orra Björnsson í
broddi fylkingar, hafa nánast verið
hundeltir af erlendum fjölmiðlum
enda hafa markafögn þeirra vakið
mikla athygli á netinu.
Fram kom á vefnum
fotbolti.net að þeir
félagar ættu að verða
gestir sjónvarpsþáttar-
ins Sportstudio á ZDF-
sjónvarpsstöðinni sem
er sá vinsælasti
fyrir íþrótta-
áhugamenn
í Þýskalandi.
- afb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það er rosalega gaman að fá að taka
þátt í þessari sýningu,“ segir fata-
hönnuðurinn Vera Þórðardóttir.
Bandaríska söngkonan Lady Gaga
var í jakka frá Veru þegar hún kom
fram á árlegri góðgerðarskemmt-
un Eltons John í júní. Jakkinn er
nú á leiðinni til Parísar þar sem
hann verður sýndur á listasýning-
unni Lada Gaga á Gogo sem hefst
21. október. Sýningin er sú fyrsta
sinnar tegundar í heiminum, en föt
og ýmsir aðrir munir sem tengjast
þessari vinsælu söngkonu verða til
sýnis. Lady Gaga hefur einnig sést í
pilsi frá Veru, en það verður ekki á
sýningunni.
„Hún tók pilsið með sér, þannig
að jakkinn verður þarna ásamt flík-
um frá rosalega virtum hönnuðum.
Það er mikill heiður fyrir mig
að komast þarna inn,“ segir
Vera. „Þarna sýna hönn-
uðir sem ég er búin að
líta upp til mjög lengi;
Viktor & Rolf og Thi-
erry Mugler. Fólk sem
er búið að vera í brans-
anum árum saman,
þannig að þetta er mjög spenn-
andi.“
Jakkinn sem Vera sýnir var í
útskriftarlínu hennar frá Istituto
Marangoni-skólanum í London. Hún
býr nú í London og ætlar til Parísar
á sýninguna. Búist er við að um þús-
und manns mæti á opnun sýningar-
innar, sem er studd af útgáfurisanum
Universal. Lady Gaga kemur fram í
París daginn eftir að sýningin hefst
og Vera segir að fólk á vegum söng-
konunnar hafi séð til þess að hún
viti af sýningunni. „Þannig að það
er aldrei að vita nema hún mæti,“
segir Vera. „Það væri gaman, en
maður veit aldrei.“ - afb
Sýnir jakka á Lady Gaga-sýningu í París
SÝNIR Í PARÍS Jakki Veru
sem Lady Gaga klæddist
fyrir Elton John verður til
sýnis í París í október.
„Pad Thai-núðlur á Krúa Thai
hafa verið í uppáhaldi hjá mér
í tíu ár og aldrei valdið mér
vonbrigðum.“
Ragnar Hansson leikstjóri Mér er gaman-
mál með Frímanni Gunnarssyni.