Fréttablaðið - 05.10.2010, Blaðsíða 36
24 5. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. veita húsaskjól, 6. öfug röð, 8. gól,
9. í hálsi, 11. æst, 12. bolur, 14. fáni,
16. tveir eins, 17. síðan, 18. bjálki, 20.
ólæti, 21. stertur.
LÓÐRÉTT
1. á endanum, 3. tveir eins, 4. kasta,
5. for, 7. nýta, 10. eldsneyti, 13.
viðmót, 15. fínt, 16. frændbálkur, 19.
persónufornafn.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hýsa, 6. on, 8. ýlu, 9. kok,
11. ör, 12. stofn, 14. flagg, 16. ææ, 17.
svo, 18. tré, 20. at, 21. tagl.
LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. ýý, 4. slöngva,
5. aur, 7. notfæra, 10. kol, 13. fas, 15.
gott, 16. ætt, 19. ég.
Ókei,
settu tónlistina
í gang.
Stelpur... Þær eru
allt öðru-
vísi en við.
Það er
kannski þess
vegna sem
við erum
svo hrifnir af
þeim!
Skjaldbökur
eru líka allt
öðruvísi en
við!
Það er
rétt!
En ætli maður
hafi ekki meiri
áhuga á stelp-
unum!
Það er
nú gott
að heyra
Maggi
minn!
Hvernig gekk
að keyra
strákana í
skólann?
Fínt, það sagði
enginn orð
eins og venju-
lega.
Strákarnir sitja bara þarna,
horfa út í loftið og ímynda
sér veröld sem væri betri ef
við værum ekki til.
Þú ert sætur
þegar þú ert
í fýlu.
Þetta er eins og
að vera fanga-
vörður en án
hlýjunnar.
Í dag eldaði ég sjö máltíðir, spilaði
ellefu hengimann, synti í vaðlaug-
inni og stjórnaði útför fyrir tvö
óheppin fiðrildi.
Vá.
Lífið er
svo fullt.
Og svo flæðir út fyrir í
sumarfríinu.
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
Hvað tekur þú með þér inn í haust, myrkur og vetur? Hvaða liti, hljóð,
sögur, orð og upplifanir eru þitt vetrar-
nesti? Ég nýt þeirrar blessunar með konu
minni að horfa líka á veröldina með fimm
ára drengjum okkar. Við reynum að miðla
þeim visku og vitum að á þessum árstíma
eru Þingvellir aðalstaðurinn til upplifana.
Við notuðum því laugardaginn til píla-
grímsferðar inn í ríki blámans, langsýna og
skýrleika. Gjárnar seiddu, hægur Silfru-
straumur heillaði og haustlitir glöddu. Við
skokkuðum upp hleðslugötuna upp Hallann
og í Stekkjargjá og síðan að úðandi Öxar-
árfossi.
EFTIR gleðihopp í gjánni héldum við svo
niður að breiðunni við Neðrifoss. „Nú
ætla ég að sýna ykkur undur lífs-
ins“ sagði ég við karlana mína. Við
læddumst öll að ánni og viti menn.
Þarna var stór urriði, sem rauk
af stað og sprettbunga myndaðst
á grunnsævinu. „Vá“ hann er
stór. „Þeir eru fleiri hér einhvers
staðar,“ sagði pabbinn, „það glitt-
ir í eitthvað þarna við flúðina.“
Við fórum upp á brúna við Drekk-
ingarhyl og undrið blasti við. Stór
torfa fiska brosti þarna í glitrandi
vatninu, kviðmiklir og bolþykk-
ir. Sporðarnir voru sem skóflur. Ég
taldi 101 stykki, kannski voru sumir þess-
ara risafiska nærri tuttugu pund?
ÉG hef fylgst vel með Öxará í tvo áratugi
og ástalífið þar fer batnandi. Mikilvægar
riðstöðvar við útfall Sogsins við Kaldár-
höfða voru eyðilagðar við gerð Steingríms-
stöðvar fyrir hálfri öld. Hinn stórvaxni
urriðastofn vatnsins hrundi, en hefur
braggast síðustu ár með hjálp manna.
Fyrir tuttugu árum voru aðeins nokkrir
fiskar sem komu í Öxará til að efla lífið, en
nú má vænta tvö til fjögur hundruð ofur-
fiska í ána hvert haust. Það er því sjón
að sjá boltana. Nú er ástalífið í gerðinni í
Öxará og lífsgleðin magnast.
FYRST er að kenna drengjum á undur lífs-
ins, að við megum njóta og taka með okkur
svona upplifun inn í okkur og veturinn.
Svo þurfum við líka að vita að menn geta
skemmt eða verndað. Ég sagði þeim ekkert
um Drekkingarhyl í þessari ferð, en naut
þess fremur að tala og hugsa um þessa líf-
iðju, gleði og vonir neðan við fossinn hjá
hyl grimmdarinnar. Töfrar lífsins þrátt
fyrir dauða. Í nánd við Drekkingarhyl
spírar lífið í þessari Lífbreiðu. Neðan við
Drekkingarhyl eru stangveiðar bannaðar
en upplifanir leyfðar. Dauðinn dó en lífið
lifir – góð viska fyrir veturinn og allt líf
mannabarna.
101 Öxará
Blessaði Guð Ísland?
Stefnir Ísland áfram? Er atvinna að skapast eða tapast?
Tvö ár eru liðin frá bankahruni. Félag atvinnurekenda stendur fyrir
opnum fundi þar sem rædd verður framtíðarsýn í atvinnurekstri á
Íslandi. Hvernig sköpum við störf? Hverjar eru aðstæður fyrirtækja? Er
Ísland nýtur þegn í samfélagi þjóðanna, nafli alheimsins eða afskekkt
einkahagkerfi?
Fundurinn fer fram í Iðnó miðvikudaginn 6. október kl. 15.00
Skattheimta á skjön. Á milli erinda verða kynnt grátbrosleg dæmi um
innheimtu vörugjalda og skatta sem augljóslega stríða gegn heilbrigðri
skynsemi.
Munum að „Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir“.
Dagskrá:
1. Viðskiptaumhverfið á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi – hver er
staðan tveimur árum eftir hrun?
Margrét Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Félags atvinnurekenda og
forstjóri Icepharma
2. Á krossgötum: Pólitískar og hugmyndafræðilegar forsendur
endurreisnarinnar
Þorsteinn Pálsson
3. Hugmyndir skapa störf!
Frosti Sigurjónsson, frumkvöðull
4. Minni og meðalstór fyrirtæki eru drifkraftur atvinnusköpunar
– en erum við að beisla kraftinn?
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda
Margrét Þorsteinn Frosti Almar
fæst í
pósthúsum
um allt land