Fréttablaðið - 19.10.2010, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Þriðjudagur
skoðun 12
S att best ð
Endurspeglumalla flóruna
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
Áklæði að eigin valiEndalausir möguleikar
285.900
kr
Rín Horn
sófi 2H2
Verð frá
Púðar í úrvali Verð frá 2.900 krDugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
bílar
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010
Veðurguðirnir brostu á jeppaferð fjöl-
skyldunnar síðastliðinn laugardag.
Rétt um níutíu jeppar tóku þátt í jeppaferð fjöl-sk ld
var einn ferðalangur svo heppinn að vinna glæ-nýjan Nokia-farsíma í boði Hátækni, sem auk Skeljungs og fleiri fyrirtækja styrkti ferðina.
Að borðhaldi og slökun lokin i h ldið
Ferðalangar í jeppaferð fjölskyldunnar með Bílabúð Benna voru með eindæmum heppnir með veður síðasta laugardag, en þá var slegið hitamet í október á Suðurlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Nær hundrað bílar í árvissri ferð
Sex starfsmenn íslenska fyrir-
tækisins Arctic Trucks eru nú við
störf í Suður-Afríku við breytingar
á sex Toyota Hilux jeppum. Áður
hafði fyrirtækið breytt tveimur
jeppum hér heima og sérsmíðað
allan aukabúnað í þá sex sem nú
er unnið við í Suður-Afríku. Bíl-
arnir verða síðan fluttir til Suður-
skautslandsins, þar sem þeir munu
sinna margþættum verkefnum á
komandi árum.
Gunnar Haraldsson, sölu- og
markaðsstjóri Arctic Trucks, segir
jeppana ná margföldum hraða á
við beltatækin sem hingað til hafa
verið notuð, auk þess sem þeir
þurfi minna eldsneyti og viðhald
og komist lengra.
Fyrsti leiðangur nýju bílanna
verður farinn í byrjun nóvem-
ber og fara þaulreyndir íslenskir
fjallamenn með í þá ferð. Áætlað
er að um tuttugu starfsmenn Arc-
tic Trucks komi að verkefninu með
einum eða öðrum hætti. - fsb
Íslenskir jeppar
á Suðurskautinu
Sex starfsmenn Arctic Trucks vinna
nú í Jóhannesarborg við breytingar á
jeppunum.
Gamalt gert upp
Bílaverkstæði Kjartans
og Þorgeirs sérhæfir sig í
viðgerðum á fornbílum.
SÍÐA 2
Úr tísku í trukka
Tískuljósmyndarinn
Roger Snider heldur
upp á ofurtrukka.
SÍÐA 3
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Bílar
veðrið í dag
19. október 2010
245. tölublað 10. árgangur
FÓLK Baltasar Kormákur kvik-
myndaleikstjóri og Working Title
Films hafa náð samkomulagi við
kvikmyndaverið Universal um
framleiðslu og dreifingu á kvik-
myndinni Contraband, endur-
gerð myndarinnar Reykjavík-
Rotterdam.
Baltasar flytur út til New
Orleans á sunnudag og mun vænt-
anlega dveljast þar ytra í sex mán-
uði ef undanskildir eru nokkrir
dagar sem leikstjórinn fær í jóla-
frí. „Ætli ég klári þá ekki tökurnar
á Djúpinu,“ segir Baltasar í sam-
tali við Fréttablaðið. - fgg / sjá síðu 26
Baltasar flytur til New Orleans:
Semur við ris-
ann Universal
BALTASAR KORMÁKUR Á leið til Banda-
ríkjanna þar sem hann leikstýrir mynd-
inni Contraband, sem er endurgerð á
Reykjavík-Rotterdam. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fimm góðar venjur
Ýmislegt er sameiginlegt í
mataræði þeirra þjóða sem
hafa hæstan meðalaldur.
allt 4
STJÓRNMÁL Talsverð andstaða er
innan Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs við að íslenska
ríkið þiggi svonefnda IPA-styrki
frá Evrópusambandinu.
Styrkirnir standa umsóknar-
ríkjum sambandsins til boða og
eru fyrst og fremst ætlaðir til að
búa stjórnsýslu þeirra undir aðild
að því.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er sú skoðun ríkjandi
innan VG að ekki beri að þiggja
slíka styrki. 28 milljónir evra,
4,3 milljarðar króna, standa
Íslendingum til boða.
Tveir ráðherrar VG, Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra og Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
hafa þegar ákveðið að sækjast
ekki eftir styrkjum til verkefna
í sínum ráðuneytum.
Ögmundur Jónasson hefur
sett umsóknir forvera sinna
á ís. Bæði Kristján Möller og
Ragna Árnadóttir, sem gegndu
þeim ráðherraembættum sem
Ögmundur sinnir nú, höfðu sótt
um styrki til tilgreindra verk-
efna. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins ætlar Ögmundur
að endurskoða þær ákvarðanir.
Í mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu hefur verið unnið að
umsóknum vegna tveggja verk-
efna en óvíst er hvort þeim verð-
ur fylgt eftir. Í umhverfisráðu-
neytinu er á hinn bóginn unnið
að umsóknum.
Ráðherrar Samfylkingarinnar
vilja allir nýta styrkina.
Eftir því sem næst verður
komist er framhald málsins í
óvissu. Ráðherranefnd um Evr-
ópumál hefur ekki fjallað um
það en þaðan liggur leið þess inn
í ríkisstjórn. - bþs
Vilja ekki styrki frá
Evrópusambandinu
Óvíst er hvort ríkið þiggir svonefnda IPA-styrki Evrópusambandsins. Tveir ráð-
herrar VG ætla ekki að þiggja styrkina og málið er í bið hjá tveimur öðrum. Fjölskyldufaðir bestur
Stefán J. Arngrímsson vann
Íslandsmótið í póker.
fólk 26
F27181010 póker
Opið til 18.30
Kringlukast
20 – 50% afsláttur
Lokadagur
BJARTAST SUNNAN TIL Í dag má
búast við NA- og A-áttum, 3-8 m/s.
Norðanlands má búast við skúrum
eða slydduéljum og vestanlands
þykknar heldur upp með skúrum er
líður á daginn. VEÐUR 4
4
5
2
1
2
ATVINNUMÁL „Skelfingarástand“ er í Orkuveitunni
vegna boðaðra fjöldauppsagna að sögn Kjartans
Magnússonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn
fyrirtækisins.
„Ég er alveg hissa á því hversu lengi lokið hefur
haldist á pottinum,“ segir Kjartan sem óskaði í gær
eftir aukafundi í stjórn Orkuveitunnar. Kjartan
segir ástæðuna þá að hann hafi fregnað að trúnaðar-
menn fyrirtækisins hafi fyrir nokkru meðal annars
lagt það til að starfshlutfall starfsmanna yrði skert í
stað þess að grípa til fjöldauppsagna.
Kjartan fundaði með trúnaðarmönnum Orku-
veitunnar í gær. Þangað kom einnig Helgi Þór Inga-
son forstjóri og tók þátt í umræðunum. Engin form-
leg niðurstaða varð af fundinum.
Skiptar skoðanir virðast meðal starfsmanna um
næstu skref. „Margir hafa það viðhorf að það þurfi
einfaldlega að klára þetta mál því mórallinn sé
alveg í lágmarki; það þurfi bara að rífa af plástur-
inn. En samkvæmt hugmyndabanka sem efnt var til
meðal starfsmanna eru ýmsir sem tala fyrir því að
menn reyni að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir með
skertu starfshlutfalli eða lækkun launa,“ segir Stefán
Pálsson, einn trúnaðarmanna Orkuveitunnar. - gar
Skiptar skoðanir innan Orkuveitunnar um leiðir til að hagræða í rekstrinum:
Skert störf eða fjöldauppsagnir
KVENNAFRÍ UNDIRBÚIÐ Um tuttugu konur komu saman í gær að Hallveigarstöðum í
Reykjavík til að mála kröfuspjöld fyrir kvennafríið næsta mánudag. Undirbúningur hófst fyrir alvöru fyrir nokkrum
mánuðum og er nú að ná hámarki, enda í mörg horn að líta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Aldrei, aldrei
Enginn stjórnmálamaður
getur ráðskast með lífeyris-
sjóðina, segir Kjartan
Jóhannsson.
skoðun 12
STJÓRNMÁL Séra Bjarni Karlsson,
varaborgarfulltrúi Samfylkingar-
innar, er ósammála fulltrúum
flokks síns í mannréttindaráði
Reykjavíkur sem telja að fulltrúar
trúfélaga eigi ekki erindi í skóla
borgarinnar og hætta eigi kirkju-
ferðum á skólatíma.
Bjarni segir þetta lýsa van-
þekkingu á eðli mannfélagsins.
„Hingað til hefur það verið aðall
íslenskrar menningar að sam-
félagið hefur átt trúnað um það
atlæti sem börnum er búið þvert
á allar lífsskoðanir. Eigi það að
breytast verður sú ákvörðun ekki
tekin af mannréttindaráði Reykja-
víkurborgar,“ skrifar Bjarni á
bloggsíðu sína. - gar / sjá síðu 4
Prestur ósammála flokknum:
Skólar úthýsi
ekki kirkjunni
Framtíð Rooneys óljós
Wayne Rooney gæti verið
á förum frá Manchester
United.
sport 22