Fréttablaðið - 20.10.2010, Side 13

Fréttablaðið - 20.10.2010, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2010 Í aðdraganda viðræðna okkar um aðild Íslands að Evrópu- sambandinu hef ég kappkostað að hafa sem mest samráð. Gildir það jafnt um Alþingi, almenning, sveitarfélög, hagsmunasamtök í atvinnugreinum og félagasamtök, forystu einstakra stjórnmála- flokka og aðra sem málið varðar. Ég hef líka gætt þess að upplýsa þá granna okkar og samstarfs- þjóðir sem eins og við standa enn þá utan sambandsins. Það er ein- beittur vilji ríkisstjórnarinnar að hafa allar upplýsingar á tak- teinum fyrir almenning, eftir því sem mögulegt er. Þó að Íslend- ingar hafi síðustu fimmtán árin verið í stöðugt nánara samstarfi við Evrópusambandið, og séu í reynd með hálfgildings aukaað- ild að því gegnum EES-samning- inn, þá er ákvörðun um að ráðast í samninga um fulla aðild stórt skref fyrir þjóðina. Það er því mikilvægt, ekki síst af sjónarhóli lýðræðis, að allar upplýsingar um samningaferl- ið og viðræðurnar séu á hverju stigi sem aðgengilegastar. Þannig getum við best eytt tortryggni. Það auðveldar landsmönnum að fylgjast með samningaviðræðun- um og taka að endingu upplýsta afstöðu með eða á móti samn- ingnum. Því á endanum verður það þjóðin, en ekki stjórnmála- menn, sem ákveður í þjóðarat- kvæðagreiðslu hvort það þjónar hagsmunum Íslands að ganga í Evrópusambandið. Víðtækt og náið samráð Víðtækt samráð var haft um skip- an aðalsamningamannsins, Stef- áns Hauks Jóhannessonar sendi- herra, og ég afréð ekki skipun hans fyrr en ljóst var að um hana ríkti breið samstaða. Sömu vinnubrögð voru viðhöfð við að skipa samninganefndina sjálfa. Þess var vandlega gætt að fag- legir verðleikar og samninga- reynsla réðu vali á nefndarmönn- um. Nefndin endurspeglar bæði viðhorf landsbyggðar og þéttbýl- is. Í átján manna samninganefnd er kynjasjónarmiða gætt til fulls. Þar eru jafnmargir karlar og konur. Leiðsagnar utanríkismála- nefndar Alþingis um reynda full- trúa úr háskólasamfélaginu var ríkulega gætt, en varaformenn nefndarinnar hafa gegnt forystu- hlutverkum innan háskólanna norðan heiða og sunnan. Fjölmargir, ríflega 200 manns, koma að samningaferlinu öllu sem þátttakendur í einstökum samningahópum. Tíu samninga- hópar eru starfandi um einstaka málaflokka, s.s. sjávarútveg, landbúnað, gjaldmiðlamál og byggðamál auk málaflokka á sviði EES-samningsins eins og umhverfismála, neytendamála o.fl. Ég gætti þess vandlega að hafa náið samráð og samstarf við hagsmunasamtök sem tengjast viðkomandi greinum um val full- trúa í samningahópana. Ekki var gengið frá skipan mikilvægustu formanna samningahópanna fyrr en búið var að ganga úr skugga um að samstaða ríkti um þá. Raunar komu tillögur að þeim innan úr viðkomandi atvinnu- greinum. Þeir voru valdir til for- ystu án þess að ég hefði hugmynd um hvort þeir væru með eða á móti aðild. Aðalatriðið í mínum huga var að viðkomandi nytu trausts og væru faglega fram- úrskarandi. Samráðið við hags- munasamtök hefur því verið með eins opnum og ríkum hætti og þau sjálf hafa kosið. Það er vafa- lítið lykillinn að því hve breið sátt hefur skapast um samninga- lið Íslands. Upplýsingagjöf til almennings Það er sömuleiðis lykilatriði að halda almenningi eins upplýstum og kostur er um framvindu við- ræðnanna. Utanríkisráðuneytið lét því á sínum tíma birta á vef sínum allar spurningarnar, 2.500 talsins, sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins beindi til okkar þegar hún undirbjó skýrslu sína um Ísland. Svör íslensku stjórnsýslunnar, 2.600 blaðsíður auk fylgiskjala, alls 8.700 blað- síður, voru síðan birt á vef okkar um leið og þau voru formlega afhent framkvæmdastjórninni í Brussel. Áður hafði efni þeirra verið kynnt utanríkismálanefnd þingsins, þar sem allir flokkar eiga fulltrúa. Fjölmargir notfærðu sér vefinn til að skoða bæði spurningar og svör. Það vakti sérstaka athygli mína að engar neikvæðar athuga- semdir bárust vegna svaranna. Aðfinnslur voru tæpast viðraðar opinberlega. Það staðfestir í senn hátt gæðastig undirbúningsvinnu okkar og sýnir traust almennings á henni. Til að sýna áfram gagnsæi í verki hef ég haldið áfram þess- ari upplýsingamiðlun úr kjarna undirbúningsvinnunnar með því að birta opinberlega á vef ráðu- neytisins fundafrásagnir bæði einstakra samningahópa og aðal- samninganefndar. Greinar gerðir einstakra samningahópa til und- irbúnings rýnifundum með ESB verða birtar á næstu vikum. Þegar samningsafstaða Íslend- inga í einstökum málaflokkum hefur verið kynnt gagnaðilum okkar verður hún líka birt opin- berlega, með þeim hætti sem samningafólkið okkar telur ekki skaða samningshagsmuni Íslands. Hinu sama mun gegna um ýmsar sérfræðiskýrslur sem unnar verða í samningaferlinu. Eini mælikvarðinn sem settur verður er hvort birting kann að skaða samningshagsmuni Íslands. Öll gögn sem varða samninga- viðræður Íslands við ESB er nú að finna á sérstakri heimasíðu, esb.utn.is, sem og hnitmiðaða útskýringu á ferlinu sjálfu. Í sumar fól ég einnig aðalsamn- ingamanni okkar að eiga fundi með samtökum víðs vegar um okkar góða land til að kynna stöð- una í aðdraganda viðræðnanna og miðla þar þeim upplýsingum sem menn óska eftir. Fyrstu yfir- ferð hans um landið er lokið og almenn ánægja hefur ríkt með tök hans á málinu. Þátttaka þjóðarinnar Rafræn stjórnsýsla er á fleygi- ferð, og við Íslendingar eigum að nýta okkur kosti hennar til að greiða enn frekar fyrir þátttöku þjóðarinnar í samningunum. Ég tók því ákvörðun um, að ábend- ingu Hauks Arnþórssonar stjórn- sýslufræðings sem hefur sérhæft sig á þessu sviði, að veita Íslend- ingum öllum beina hlutdeild í umsóknarferlinu með því að setja á fót gagnvirka vefsíðu, sem verð- ur opnuð innan tíðar. Þar munu borgarar landsins geta spurt spurninga og fengið svör, gert athugasemdir við einstök mál og komið á framfæri ábendingum eða gagnrýni, en líka haft reglu- lega samræðu við aðalsamninga- mann, sérfræðinga eða ráðherr- ann sjálfan, eftir því sem tilefni er til. Því má slá föstu að aldrei áður hafa stjórnvöld átt í jafnmikil- vægum samningum sem hafa verið undirbúnir með jafnlýð- ræðislegum og opnum hætti og núverandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er langbesta leiðin til að eyða tortryggni og auðvelda mönnum að taka afstöðu á málefnalegum og upplýstum forsendum. Opið og aðgengi- legt samningaferli Evrópumál Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.