Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 30
22 20. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
A
u
g
lý
si
n
g
as
ím
i
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Heims-
meistara-
titillinn?
Nei, deildar-
meistaratitillinn,
maður verður
raunsærri með
árunum.
Af hverju er ég
að eyða ævinni í
heimalærdóm?
Hver er
tilgangur-
inn? Hvar eru
launin?
Þú ert að
horfa á þau.
Þegar þau heyra sann-
leikann þá geturðu
nánast heyrt heila-
sellurnar þeirra springa.
Hef ég búið
á hóteli?
Já..
Ó, já, það er
langt síðan
Við vorum á hóteli þegar
við heimsóttum afa og
ömmu síðast, manstu?
Ekki svo,
kannski ár.
Heyrðu, ár er
langur tími
þegar maður
hefur bara
verið til í
fimm.
Við hefðum
haft kistuna
opna ef hann
hefði ekki
verið í
vitnavernd.
LÁRÉTT
2. fyrir ofan, 6. tveir eins, 8. ham-
fletta, 9. spíra, 11. í röð, 12. krydd-
blanda, 14. hrista, 16. pot, 17. arr, 18.
skar, 20. átt, 21. drykkur.
LÓÐRÉTT
1. tafl, 3. tveir eins, 4. sambandsríkis,
5. farvegur, 7. gera óvandlega, 10.
rölt, 13. fljótfærni, 15. seytlar, 16.
mælieining, 19. belti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofar, 6. kk, 8. flá, 9. ála,
11. rs, 12. karrí, 14. skaka, 16. ot, 17.
sig, 18. hró, 20. sa, 21. malt.
LÓÐRÉTT: 1. skák, 3. ff, 4. alríkis, 5.
rás, 7. klastra, 10. ark, 13. ras, 15.
agar, 16. ohm, 19. ól.
Stjórnmálamenn hafa í gegnum tíð-ina beitt ýmsum brögðum til að halda
lýðnum í greipum sínum. Ein farsælasta
aðferðin var fundin upp af Rómverjum og
hefur hún verið nefnd „brauð og sirkus“.
Þannig var mál með vexti að harðsvíruð-
ustu valdamenn þurftu einungis að fylla
maga almúgans og bjóða honum síðan upp
á skemmtan svo að hann gleymdi lúsarlegu
hlutskipti sínu. Að þessu uppfylltu voru
valdamenn búnir að tryggja sig í sessi.
ÞETTA var ódýrt og þægilegt. Ekki þurfti
annað en bjóða lýðnum upp á hveiti og
síðan var ólánspésum varpað fyrir ljón,
fólkinu til ómældrar ánægju. Skemmti-
atriðin hafa breyst þó nokkuð í tímans rás
en aðferðin lifir góðu lífi. Til dæmis þarf
Berlusconi ekki annað en dusta annað
slagið brauðmylsnu af allsnægtaborði
sínu og bregða svo á leik með gamanmál
milli þess sem hann hleypur undan rétt-
vísinni. Er hann nú fyrir löngu orðinn
óhjákvæmilegur forsætisráðherra.
Á Íslandi hefur þessi aðferð líka
dugað býsna vel. Bankarnir
þeyttu styrkjum og bitlingum
út um allar trissur, buðu upp
á efnahagslegar sjónhverf-
ingar og ýmsar skemmtan-
ir og uppákomur. Reyndar
var varla til sú uppákoma
sem ekki var í boði bankanna. Þetta gafst
aldeilis vel og fyrr en varði gengu háir
sem lágir bankanum á vald.
EN síðan kom kreppan og brauðið var af
skornum skammti. Íslendingar dóu þó ekki
ráðalausir og ákváðu að leggja bara þeim
mun meiri áherslu á sirkusinn. Þetta skap-
aði tækifæri fyrir grínista eins og Jón
Gnarr sem ekki þurfti að kosta skemmtan-
irnar heldur stóð bara fyrir þeim sjálfur.
Þetta hentaði Reykvíkingum vel á þreng-
ingartímum. Ríkisstjórnin, sem jafnan
reynir að fylgja straumum og stefnum,
komst hins vegar að því, sér til mikill-
ar hrellingar, að hún hafði ekki á að skipa
neinum skemmtikrafti. Ekki einu sinni
hagyrðingi. Þá var gripið til þess ráðs að
varpa Geir fyrir landsdóm en landanum
var ekki skemmt.
Í dag er Ísland því gott dæmi um algjöra
stjórnarkreppu þar sem hvorki brauði né
sirkusi er fyrir að fara. Við slíkar aðstæð-
ur neyðist almúginn til að hafa ofan af
fyrir sér sjálfur með trumbuslætti og
þingmannaþeytingu en hún felst í því að
henda þingmönnum að Alþingishúsinu
– gagnast meira að segja varaþingmenn í
þessum tilgangi. Þeir sem standa sig vel í
þessu skemmtanahaldi fá svo eflaust tæki-
færi í ríkissirkusnum þegar hann tekur
flugið á ný.
Stjórnmálaheimspeki 101