Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2010 19 Hún var skemmtileg og athyglisverð fréttin um leikskólabörnin í Sjónvarp- inu 13. október sl. Sagt var frá göngu barna í leikskólum borg- arinnar frá Hallgrímskirkju niður á Ingólfstorg þar sem þau sungu og mynduðu friðar- merki. Tilgangurinn var góður og sagt var í fréttinni að þetta hefði verið gert til þess að leggja áherslu á „friðar og kærleiks- boðskap Johns Lennon og Yoko Ono“. Mér er vel við Lennon og margt af því sem hann skapaði er hátt skrifað hjá mér. Friðarganga barnanna var gerð undir tilteknu merki, frið- armerkinu, sem frægt varð á tímum blómabyltingarinnar. Friðarmerkið er eins og önnur merki og tákn, það bendir til ein- hvers sem að baki stendur, vísar til gilda eða trúar, einhverrar stefnu, heimspeki eða gildis- mats. Ekkert er hlutlaust í henni veröld. Allt hefur í sér fólgin einhver gildi eða tilvísanir. En þrátt fyrir það er lífsskoðunum gert mishátt undir höfði og það með réttu. Við samþykkjum t.d. ekki lífsfjandsamlegar skoðanir en metum þær hærra sem boða frið, kærleika og sátt. Mikilvægt er að hlutlægni gildi varðandi álitamál á sviði lífsskoðana. Ég geri þetta að umtalsefni vegna þess að nú um þess- ar mundir er hart gengið fram gegn kristinni trú í landinu. Leikskólar, sem nú eru marg- ir algjörlega lokaðir fyrir öllum áhrifum frá kirkju og kristni og þar með boðskap Jesú Krists um „frið og kærleika“, virðast nú hafa opnað fyrir nýjum „trúar- brögðum“ með nýjum „frelsur- um“. Af því tilefni spyr ég: Ef kristnir söfnuðir í miðbæ Reykjavíkur hefðu farið þess á leit við leikskólana að fá börn- in með í friðargöngu til þess að mynda krosstákn og leggja áherslu á „friðar og kærleiks- boðskap Jesú Krists“, hefði feng- ist leyfi fyrir slíkri göngu? Hvað má gera með börnum? Hvað má kenna í skólum? Við þurfum að taka það allt til endur- skoðunar, einkum í ljósi þess, að nú er hamast á kirkju og kristni sem aldrei fyrr og boðskapurinn um frið og kærleika sem þaðan kemur er af fámennum hópi tal- inn hættulegur börnum þessa lands. Hvar á að láta staðar numið í þessum efnum? Ég get til að mynda haft margt að athuga við gildismat íþrótta- félaga í landinu og barist gegn því að þau fái aðgang að skól- um vegna þess að íþróttir gangi margar hverjar, ef ekki flest- ar, út á samkeppni og yfirburði, hetju- og hlutadýrkun, eftirsókn eftir peningum, frægð og öðrum veraldlegum gæðum, sem tær- ast og eyðast. Sástu atganginn á dögunum í kringum hann Ron- aldo, blessaðan? Og ég get líka lagst gegn því að ættjarðarljóð séu kennd í skólum og/eða sung- in, þar sem slíkt geti alið á óeðli- legri þjóðrembu og hættulegri þjóðerniskennd (nasjónalisma). Og ég get líka lagst gegn því að nemendur í skólum láti sjást á sér eða flíkum sínum nokkur tískumerki eða slagorð. Einnig mætti berjast gegn því að vöru- merki yfirleitt sjáist í skólum, ekki á nokkrum blýanti, penna eða strokleðri. Allt eru þetta í raun skoðan- ir sem eru sjálfum mér fjarri en nefndar hér til að sýna fram á fáránleika umræðunnar þegar kemur að rökum andstæðinga kristinnar trúar. Viljum við kannski þjóðfélag í anda menn- ingarbyltingarinnar í Kína á dögum Maós formanns sem reyndi að þurrka allar skoðanir og háttsemi út nema eina skoðun og einn klæðnað? Allt er gildishlaðið. Engin kennsla er hlutlaus og verður aldrei. Hvernig á til dæmis að kenna sögu í skólum, menningu, trúarbrögð, tungumál, félags- fræði? Hvar ætla þau sem vilja kirkju og kristni út úr öllum skólum að draga mörkin? Krafa þeirra um að „gerilsneyða“ skóla, af boðskap kristinnar trúar, vekur upp spurningar um allt sem fram fer í skólum, einnig í ríkisreknum fjölmiðlum og víðar. Gildahlöður þjóðfélagsins eru margar. Kristin kirkja geymir í sínum hlöðum gömul og marg- reynd gildi sem enn duga í lífs- baráttu einstaklinga og þjóðar. Félagar í Siðmennt eiga sínar gilda hlöður. Vantrúarfélagar einnig. Sama má segja um fylgj- endur stjórnmálaflokka, hags- munasamtök öll og hreyfingar. Vilt þú íþróttir út úr skól- um, sögukennslu, ættjarðarljóð, kristna menningu og grunngildi? Telur þú að þjóðfélagið þrífist í skjóli þöggunar og útilokun- ar? Meirihlutinn á ekki að kúga minnihlutann. Það er rétt. En meirihlutinn getur vissulega ráðið ferðinni og þannig er það yfirleitt í lýðræðisþjóðfélagi. En vilt þú að minnihluti lands- manna kúgi meirihlutann með útilokun skoðana og trúar fjöld- ans? Rétturinn til trúfrelsis er rétt- ur til trúar en ekki frá trú. Ég get ekki krafist þess að trúar- skoðanir heyrist hvergi í opin- berri umræðu því sú krafa leiðir óhjákvæmilega til þess að allar skoðanir verði bannaðar. Þögg- un skoðana leiðir ekki af sér umburðarlyndi heldur hið gagn- stæða. Ekkert þjóðfélag þrífst án grunngilda. Ef þessum gildum verður varpað fyrir róða, hvað verður þá tekið upp í staðinn? Í fjölhyggjusamfélagi þarf fólk að læra að virða og meta skoðanir annarra. Þess vegna eiga skoðanir að fá að heyrast og birtast en ekki að lúta þöggun af hálfu þröngsýnna manna. Ég tel að þöggunin sem nú er reynt að innleiða í skóla muni leiða af sér fordóma, fáfræði og fátækara samfélag. Ég vil ekki búa í slíku þjóðfélagi. En þú? Gildahlöður og menningarbylting Trúmál Örn Bárður Jónsson sóknarprestur á Seltjarnarnesi Láttu hjartað ráða L E Y N IV O P N IÐ „Agave-sýróp er unnið úr mexíkóskri kaktusplöntu. Þökk sé óvenjulágum sykurstuðli veldur það mun minni sveiflum í blóðsykri en hefðbundinn sykur.“ Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.