Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2010 19
Hún var skemmtileg og athyglisverð fréttin um
leikskólabörnin í Sjónvarp-
inu 13. október sl. Sagt var frá
göngu barna í leikskólum borg-
arinnar frá Hallgrímskirkju
niður á Ingólfstorg þar sem
þau sungu og mynduðu friðar-
merki. Tilgangurinn var góður
og sagt var í fréttinni að þetta
hefði verið gert til þess að leggja
áherslu á „friðar og kærleiks-
boðskap Johns Lennon og Yoko
Ono“. Mér er vel við Lennon og
margt af því sem hann skapaði
er hátt skrifað hjá mér.
Friðarganga barnanna var
gerð undir tilteknu merki, frið-
armerkinu, sem frægt varð á
tímum blómabyltingarinnar.
Friðarmerkið er eins og önnur
merki og tákn, það bendir til ein-
hvers sem að baki stendur, vísar
til gilda eða trúar, einhverrar
stefnu, heimspeki eða gildis-
mats. Ekkert er hlutlaust í henni
veröld. Allt hefur í sér fólgin
einhver gildi eða tilvísanir. En
þrátt fyrir það er lífsskoðunum
gert mishátt undir höfði og það
með réttu. Við samþykkjum t.d.
ekki lífsfjandsamlegar skoðanir
en metum þær hærra sem boða
frið, kærleika og sátt. Mikilvægt
er að hlutlægni gildi varðandi
álitamál á sviði lífsskoðana.
Ég geri þetta að umtalsefni
vegna þess að nú um þess-
ar mundir er hart gengið fram
gegn kristinni trú í landinu.
Leikskólar, sem nú eru marg-
ir algjörlega lokaðir fyrir öllum
áhrifum frá kirkju og kristni og
þar með boðskap Jesú Krists um
„frið og kærleika“, virðast nú
hafa opnað fyrir nýjum „trúar-
brögðum“ með nýjum „frelsur-
um“.
Af því tilefni spyr ég: Ef
kristnir söfnuðir í miðbæ
Reykjavíkur hefðu farið þess á
leit við leikskólana að fá börn-
in með í friðargöngu til þess
að mynda krosstákn og leggja
áherslu á „friðar og kærleiks-
boðskap Jesú Krists“, hefði feng-
ist leyfi fyrir slíkri göngu?
Hvað má gera með börnum?
Hvað má kenna í skólum? Við
þurfum að taka það allt til endur-
skoðunar, einkum í ljósi þess, að
nú er hamast á kirkju og kristni
sem aldrei fyrr og boðskapurinn
um frið og kærleika sem þaðan
kemur er af fámennum hópi tal-
inn hættulegur börnum þessa
lands.
Hvar á að láta staðar numið í
þessum efnum?
Ég get til að mynda haft margt
að athuga við gildismat íþrótta-
félaga í landinu og barist gegn
því að þau fái aðgang að skól-
um vegna þess að íþróttir gangi
margar hverjar, ef ekki flest-
ar, út á samkeppni og yfirburði,
hetju- og hlutadýrkun, eftirsókn
eftir peningum, frægð og öðrum
veraldlegum gæðum, sem tær-
ast og eyðast. Sástu atganginn á
dögunum í kringum hann Ron-
aldo, blessaðan? Og ég get líka
lagst gegn því að ættjarðarljóð
séu kennd í skólum og/eða sung-
in, þar sem slíkt geti alið á óeðli-
legri þjóðrembu og hættulegri
þjóðerniskennd (nasjónalisma).
Og ég get líka lagst gegn því að
nemendur í skólum láti sjást á
sér eða flíkum sínum nokkur
tískumerki eða slagorð. Einnig
mætti berjast gegn því að vöru-
merki yfirleitt sjáist í skólum,
ekki á nokkrum blýanti, penna
eða strokleðri.
Allt eru þetta í raun skoðan-
ir sem eru sjálfum mér fjarri en
nefndar hér til að sýna fram á
fáránleika umræðunnar þegar
kemur að rökum andstæðinga
kristinnar trúar. Viljum við
kannski þjóðfélag í anda menn-
ingarbyltingarinnar í Kína á
dögum Maós formanns sem
reyndi að þurrka allar skoðanir
og háttsemi út nema eina skoðun
og einn klæðnað?
Allt er gildishlaðið. Engin
kennsla er hlutlaus og verður
aldrei. Hvernig á til dæmis að
kenna sögu í skólum, menningu,
trúarbrögð, tungumál, félags-
fræði? Hvar ætla þau sem vilja
kirkju og kristni út úr öllum
skólum að draga mörkin? Krafa
þeirra um að „gerilsneyða“
skóla, af boðskap kristinnar
trúar, vekur upp spurningar
um allt sem fram fer í skólum,
einnig í ríkisreknum fjölmiðlum
og víðar.
Gildahlöður þjóðfélagsins eru
margar. Kristin kirkja geymir
í sínum hlöðum gömul og marg-
reynd gildi sem enn duga í lífs-
baráttu einstaklinga og þjóðar.
Félagar í Siðmennt eiga sínar
gilda hlöður. Vantrúarfélagar
einnig. Sama má segja um fylgj-
endur stjórnmálaflokka, hags-
munasamtök öll og hreyfingar.
Vilt þú íþróttir út úr skól-
um, sögukennslu, ættjarðarljóð,
kristna menningu og grunngildi?
Telur þú að þjóðfélagið þrífist
í skjóli þöggunar og útilokun-
ar? Meirihlutinn á ekki að kúga
minnihlutann. Það er rétt. En
meirihlutinn getur vissulega
ráðið ferðinni og þannig er það
yfirleitt í lýðræðisþjóðfélagi.
En vilt þú að minnihluti lands-
manna kúgi meirihlutann með
útilokun skoðana og trúar fjöld-
ans?
Rétturinn til trúfrelsis er rétt-
ur til trúar en ekki frá trú. Ég
get ekki krafist þess að trúar-
skoðanir heyrist hvergi í opin-
berri umræðu því sú krafa leiðir
óhjákvæmilega til þess að allar
skoðanir verði bannaðar. Þögg-
un skoðana leiðir ekki af sér
umburðarlyndi heldur hið gagn-
stæða.
Ekkert þjóðfélag þrífst án
grunngilda. Ef þessum gildum
verður varpað fyrir róða, hvað
verður þá tekið upp í staðinn?
Í fjölhyggjusamfélagi þarf
fólk að læra að virða og meta
skoðanir annarra. Þess vegna
eiga skoðanir að fá að heyrast og
birtast en ekki að lúta þöggun af
hálfu þröngsýnna manna. Ég tel
að þöggunin sem nú er reynt að
innleiða í skóla muni leiða af sér
fordóma, fáfræði og fátækara
samfélag. Ég vil ekki búa í slíku
þjóðfélagi. En þú?
Gildahlöður og menningarbylting
Trúmál
Örn Bárður
Jónsson
sóknarprestur á
Seltjarnarnesi
Láttu hjartað ráða
L
E
Y
N
IV
O
P
N
IÐ
„Agave-sýróp er unnið úr mexíkóskri kaktusplöntu. Þökk sé óvenjulágum sykurstuðli
veldur það mun minni sveiflum í blóðsykri en hefðbundinn sykur.“
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is