Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 38
30 20. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
FÉSBÓKIN
„Við Jörundur og Ævar erum byrj-
aðir á sjónvarpsseríu sem á að taka
upp í vor. Hún heitir Heimsend-
ir, hvorki meira né minna,“ segir
Ragnar Bragason leikstjóri.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu stóð til að fimmenn-
ingarnir á bak við Nætur-, Dag- og
Fangavaktina myndu hefja vinnu að
nýrri þáttaröð nú í haust. Þegar Jón
Gnarr var kjörinn borgarstjóri varð
ljóst að hann yrði ekki með í þess-
ari vinnu, sem er nú hafin án hans.
Ragnar, Jörundur Ragnarsson og
Ævar Grímsson hófust handa fyrir
þremur vikum og Pétur Jóhann
Sigfússon er svo væntanlegur eftir
tvær vikur þegar tökum á þáttaröð-
inni Hlemmavídeó lýkur.
„Heimsendir er míkrókosmos af
íslensku samfélagi,“ segir Ragn-
ar spekingslega. „Þættirnir gerast
á fjársveltri geðdeild úti á landi.
Þetta er byltingarsaga, þegar sjúk-
lingarnir taka yfir hælið. Þetta
er smækkuð mynd af því sem við
erum að ganga í gegnum í dag.“
Pétur Jóhann og Jörundur verða
í aðalhlutverki í þáttunum og sam-
kvæmt Ragnari er Halldór Gylfa-
son efstur á óskalistanum fyrir
þriðja aðalhlutverkið. Ef það geng-
ur eftir er ljóst að Halldór þarf að
fylla gríðarlega stórt skarðið sem
Jón Gnarr skilur eftir. „Það kemur
nýr rauðhaus í staðinn fyrir Jón,“
grínast Ragnar.
Hugmyndin að þáttunum kom
upp þegar framleiðsla á Fanga-
vaktinni og kvikmyndinni Bjarn-
freðarson stóð yfir. Ragnar segir
verkefnið stórt og að mjög stór
hópur leikara komi að því – allt að
30 stykki. Þættirnir verða tekn-
ir upp í vor og verða á haustdag-
skrá Stöðvar 2. En verða þetta grín-
þættir? „Við dönsum á þessari línu
milli húmors og alvöru, eins og við
höfum verið að gera,“ segir Ragn-
ar. „Þetta eru náttúrulega háalvar-
legar aðstæður, þessi heimur geð-
sjúkra. Svo er það sem kemur upp
náttúrulega kómískt í sjálfu sér.“
atlifannar@frettabladid.is
RAGNAR BRAGASON: HALLDÓR GYLFASON EFSTUR Á ÓSKALISTANUM
Vaktargengið hefur vinnu
að nýjum þáttum án Jóns
landsmanna á
aldrinum 12 til
80 ára horfðu
á frumsýningu lokaþáttar
Fangavaktarinnar í fyrra.
44%
GULLKÁLFARNIR KOMA SAMAN
Viðtökur Nætur-, Dag- og Fangavaktarinnar eiga sér
ekki hliðstæðu á Íslandi. Þættirnir fengu gríðarlega
mikið áhorf og seldust einnig vel á DVD. Þá sló
lokahnykkurinn, kvikmyndin Bjarnfreðarson, í
gegn í kvikmyndahúsum.
Borgarstjórinn Jón Gnarr
verður ekki með í nýju
þáttunum en Ragnar,
Jörundur, Ævar og Pétur
Jóhann vilja fá Halldór
Gylfason í stórt hlutverk.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Siggu Beinteins á stjórnlaga-
þing! Ég meina, hún var í Stjórn-
inni, kann öll lögin og fer létt
með að velja þau bestu. Er ekki
annars verið að gera safnplötu?
Svo er þetta hugguleg og fram-
bærileg kona. Áfram Sigga!“
Stefán Máni rithöfundur.
„Tíu milljónir er tala sem myndi skipta mig máli.
Tvær milljónir breyta ekki lífi mínu,“ segir Gotti
Bernhöft, sem teiknaði frægar myndir í umslagið
fyrir Ágætis byrjun, aðra plötu Sigur Rósar.
Gotti fékk nýlega tilboð upp á tvær milljónir
króna í teikningarnar fjórar sem hann gerði fyrir
umslagið en hafnaði því samstundis. „Ég vil selja
þær allar á tíu milljónir. Ég vil í rauninni ekki selja
en ef ég ætlaði að selja þær myndi ég selja á því
verði,“ segir Gotti, sem hefur áður fengið tilboð í
aðalmynd umslagsins upp á tvær og hálfa milljón.
„Það er allt til sölu fyrir rétt verð en ég efast um að
það sé til svo ríkur Sigur Rósar aðdáandi á Íslandi
að hann sé tilbúinn að splæsa tíu milljónum í þetta.
Ef ég vil selja þarf ég að fara með þetta á uppboð
úti. Ég á örugglega eftir að gera það þegar ég hef
tíma og það liggur þannig við.“
Á næsta ári verða liðin tíu ár síðan Ágætis
byrjun kom út í Bandaríkjunum og af því tilefni
er afmælishátíð í bígerð. Bók og tónleikaferð
hafa þar verið nefnd til sögunnar. „Ef maður
selur myndirnar væri sniðugt að gera það þegar
þetta er í gangi.“
Platan Ágætis byrjun hefur farið víða, enda
hefur hún selst gríðarvel síðastliðinn ára-
tug. Spurður segist stoltur af teikning-
um sínum. „Ég er stoltur af ansi mörgu
sem ég hef gert en þetta er það eina sem
hefur lifað og kannski farið víðar en
nokkuð annað sem ég hef gert, þótt ég
sé búinn að vera starfandi hönnuður í
tuttugu ár,“ segir Gotti, sem er einnig
útlitshönnuður nýja Popppunktsspils-
ins sem er væntanlegt. - fb
Vill tíu milljónir fyrir Ágætis byrjun
GOTTI BERNHÖFT Hafnaði
tilboði upp á tvær milljónir í
teikningar sínar.
ÁGÆTIS BYRJUN Teikningarnar
sem Gotti gerði fyrir Ágætis
byrjun.
„Þetta er heill her af karlmönnum og hver öðrum
betri,“ segir Óskar Jónasson leikstjóri, en radd-
prufur fyrir íslensku útgáfuna af teiknimyndinni
Þór standa nú yfir í upptökuverinu Upptekið. Meðal
hlutverka sem verið er að prófa í eru Þór og Mjölnir,
hamarinn víðfrægi.
Þegar Fréttablaðið bar að garði var Þórhallur
Sigurðsson, Laddi, að prófa að tala fyrir Mjölni en
Laddi er eflaust einhver besta teiknimyndarödd
Íslandssögunnar. „Hann er hokinn af reynslu, hefur
einhvern tón sem er bæði sannur og réttur, eins og
öll þjóðin þekkir,“ segir Óskar um Ladda án þess þó
að vilja láta neitt uppi um möguleika Ladda. Meðal
annarra sem hafa reynt sig við hlutverkin tvö eru
Sveppi, Atli Rafn og Felix Bergsson sem er einn-
ig nokkuð reyndur í teiknimyndunum, hefur talað
fyrir bæði kúrekann Vidda í Leikfangasögu og
Manna í Ísaldarmyndunum.
Óskar segir vinnu við teiknimynd allt öðruvísi
en það sem hann hefur kynnst. „Við erum búnir að
vera lengi neðanjarðar því svona teiknimynd verð-
ur til á jarðfræðilegum tíma og það er svolítið nýtt
fyrir mér enda vanur sjónvarpi þar sem allt gerist
hratt,“ útskýrir Óskar sem fagnar því að komast
upp á yfirborðið og hitta annað fólk. Óskar reiknar
með að raddirnar verði ráðnar á næstu vikum, þeir
muni hins vegar ekki ráða í hlutverkin fyrr en þeir
eru orðnir fyllilega sáttir. - fgg
Stórskotalið reynir við Þór
HOKINN AF REYNSLU Óskar Jónasson segir Ladda vera hokinn
af reynslu en hér reynir leikarinn sig við rödd Mjölnis.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta kom mér rosalega á óvart,“
segir rapparinn Ástþór Óðinn.
Lag hans, Mamma, sem hann
syngur með Möggu Eddu er komið
í 35 manna úrslit í erlendri laga-
keppni á vegum I-Mego. Um nýja
evrópska keppni er að ræða þar
sem hæfileikaríkir tónlistarmenn
sem eru ekki með plötusamning fá
tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Mörg hundruð lög voru send í
keppnina og lag Ástþórs, sem er
bæði sungið á íslensku og ensku,
var valið úr þeim hópi.
„Þetta lag fjallar um mömmu
mína sem lést fyrir fimmtán
árum síðan. Ég er að skrifa henni
bréf um hvernig staðan er í dag
og hvernig hlutirnir hafa þróast,“
segir Ástþór. Lagið er á plötu
hans, Both Ways, sem kom út
fyrir síðustu jól. Hann frétti fyrst
af keppninni þegar hann stundaði
nám í upptökustjórn í London og
sendi lagið svo inn fyrir mánuði.
Bandaríska útgáfufyrirtækið
Expat Records heyrði lagið fyrir
skömmu og hefur sýnt áhuga á
að gefa plötuna Both Ways út.
„Þetta er á byrjunarstigi en þetta
er komið í ferli hjá þeim,“ segir
Ástþór og viðurkennir að innsti
draumur sinn muni rætast ef
samningurinn verður að veru-
leika.
Hægt er að kjósa lag Ástþórs á
síðunni Facebook.com/imegoin-
finity. Tilkynnt verður um ellefu
efstu keppendurna 29. október og
sigurvegarinn verður tilkynntur
2. nóvember. Hann fær einn dag
í hljóðveri í verðlaun og hinir tíu
fá smærri verðlaun. - fb
Ástþór áfram í
erlendri lagakeppni
ÁSTÞÓR ÓÐINN Lag hans, Mamma, er
komið í 35-manna úrslit nýrrar evrópskr-
ar lagakeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRIÐUR
OG JAFNVÆGI
Speki Konfúsíusar fyrir nútímafólk
Boðskapur Konfúsíusar er tímalaus og endur-
nærandi, veitir hjálp á erfiðum stundum og
beinir sjónum að því sem skiptir máli í lífinu
YFIR
TÍU MILLJÓ
N
EINTÖK
SELD!